Morgunblaðið - 14.09.2002, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
FORSVARSMENN Bónuss munu
innan tíðar fara af stað með verð-
könnun á milli Bónuss og lágvöru-
verðsverslana á Norðurlöndum, segir
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss. „Við munum
gera verðkannanir að minnsta kosti
einu sinni í mánuði og birta niðurstöð-
urnar, hvort sem þær eru okkur í vil
eða ekki,“ segir hann.
Guðmundur kveðst vita fyrir víst
að samanburður verði Bónusi í óhag
hvað landbúnaðarvörur áhrærir. „En
í öðrum vörum erum við fyllilega sam-
keppnisfærir. Við munum því ekki
bara miða okkur við verð á heima-
markaði hér eftir, heldur ætlum við
að færa okkur út fyrir landsteinana.
Bónus er að mati okkar fyrirtæki sem
getur boðið sambærilegt verð við það
sem best gerist annars staðar,“ segir
hann. Guðmundur segir ennfremur á
döfinni að opna fleiri Bónusverslanir
á næstu mánuðum, bæði á höfuðborg-
arsvæðinu og úti á landi.
Áætluð ársvelta Bónuss er 13 millj-
arðar og segir Guðmundur að versl-
unin velti jafnmiklu í matvöru árlega
og 10–11 og Hagkaup samanlagt.
Fleiri Bón-
usverslanir
og norræn-
ar verð-
kannanir
Samkeppni/28
ÓVENJUHLÝTT var víðast hvar
um landið í gær miðað við árstíma
og sáust tveggja stafa hitatölur á
flestum veðurathugunarstöðvum.
Hæst fór hitinn í 23 stig í Mý-
vatnssveit og Grímsstöðum á
Fjöllum og víða um landið var
hann í kringum 20 stig, t.d. í
Húsafelli í Borgarfirði, Hjarðar-
landi í Biskupstungum og á Nauta-
búi í Skagafirði.
Þá var 16 stiga hiti um miðjan
dag í gær á Holtavörðuheiði og
Hveravöllum, svo sérstök dæmi
séu tekin. Í Reykjavík fór hitinn
mest í 17 stig. Að sögn Kristínar
Hermannsdóttur, veðurfræðings á
Veðurstofu Íslands, voru hlýindi
um mestallt land í gær að Aust-
fjörðum undanskildum þar sem
var þokusúld. Lægsti hitinn í gær
var 9 stig á Dalatanga.
Kristín segir að í dag og á morg-
un verði áfram hlýtt og bjart,
einkum á Norður- og Austurlandi.
Skýjað verði með köflum og úr-
koma einna helst á Suður- og
Vesturlandi.
Eftir helgi er reiknað með kóln-
andi veðri.
Hitinn hæstur 23 stig
á Norðausturlandi
Óvenjuhlýtt í gær miðað við árstíma
CARNIVAL Legend, nýjasta
skemmtiferðaskipið í flota Carni-
val-skipafélagsins í Bandaríkj-
unum, lagðist að bryggju í Sunda-
höfn í gærmorgun. Er það eitt af
stærstu skipum sem heimsótt hafa
Ísland. Um borð er að finna leik-
hússal, sem tekur 1.100 manns í
sæti, spilavíti, líkamsræktarstöð,
þrjár sundlaugar, kapellu, bóka-
safn og tölvustofu auk fjölda veit-
ingahúsa, skemmtistaða og versl-
ana en alls eru 12 þilför í skipinu.
Eimskip færði skip sín til að gera
Carnival Legend kleift að leggjast
að bryggju í höfninni en skipið er
292 metrar að lengd og tæplega 86
þúsund brúttótonn að þyngd. Er
þar rúm fyrir 2.600 farþega auk
tæplega 1.000 manna áhafnar.
Morgunblaðið/Ómar
Glæsiskip
í fyrstu
ferð sinni
Fljótandi/6
STJÓRNENDUR heilsugæslunnar í
Reykjavík, Kópavogi, Mosfellsbæ og
Seltjarnarnesi kynntu heilbrigðisráð-
herra í gær tillögur sem miða að því
að allir sem þurfa geti fengið þjónustu
heimilislæknis samdægurs. Meðal til-
lagnanna eru að tekið verði upp nýtt
launakerfi, nýjar heilsugæslustöðvar
verði opnaðar, námsstöðum í heimilis-
lækningum verði fjölgað og sjálfstæði
stjórnenda heilsugæslunnar aukið.
Tillögurnar koma m.a. í kjölfar út-
tektar Ríkisendurskoðunar á Heilsu-
gæslunni í Reykjavík þar sem gerðar
eru nokkrar athugasemdir við launa-
fyrirkomulagið og fastlaunakerfið t.d.
talið óheppilegt.
Ríkisendurskoðun segir í úttekt-
inni að huga beri að breytingum á
launafyrirkomulagi heilsugæslunnar.
Núverandi fastlaunakerfi er að mati
stofnunarinnar óheppilegt, m.a. þar
sem niðurstöður alþjóðlegra rann-
sókna bendi til þess að slíkt fyrir-
komulag hafi neikvæð áhrif á afköst
samanborið við annars konar umbun-
araðferðir og stuðli að myndun bið-
lista. Telur Ríkisendurskoðun enn-
fremur að launakjör
heilsugæslulækna eigi að ráðast í
samningaviðræðum við stjórnvöld en
ekki með úrskurði kjaranefndar.
Lúðvík Ólafsson, lækningaforstjóri
Heilsugæslunnar í Reykjavík, segir
að með tillögum framkvæmdastjórn-
ar og yfirlækna heilsugæslunnar
verði vonandi hægt að bæta aðgang
fólks að heilsugæslustöðvunum og
markmiðið náist sem fyrst að allir
sem þurfi geti fengið þjónustu heim-
ilislæknis samdægurs.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra segist fagna þessum tillögum.
Það sé vilji ráðuneytisins að launa-
kerfi heilsugæslunnar verði rýmkað,
svigrúm læknanna aukið og fast-
launakerfið verði afnumið. Hefur
ráðuneyti hans komið hugmyndum í
þá veru á framfæri við kjaranefnd.
Jón segir mikilvægt að kveðinn verði
upp úrskurður um laun heilsugæslu-
lækna svo fljótt sem verða má.
Dæmi um 40 millj. kr. brúttó-
greiðslu vegna samnings við TR
Heilbrigðisráðherra fagnar einnig
skýrslu Ríkisendurskoðunar um
samninga Tryggingastofnunar við
sérfræðilækna og telur það skyldu
sína og ráðuneytisins að bregðast við
þeim ábendingum sem þar komi
fram. Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu í gær voru útgjöld Trygg-
ingastofnunar vegna sérfræðilækna
umfram fjárlög á árunum 1997 til
2001 og jukust um 133% á þeim tíma.
Greint er nánar frá þessari skýrslu
í dag þar sem kemur m.a. fram að
greiðslur til sérfræðilækna eru í
mörgum tilvikum mjög háar. Þannig
námu brúttógreiðslur sjúkratrygg-
inga til hvers svæfingalæknis á samn-
ingi við TR að meðaltali rúmum 14,4
milljónum króna á síðasta ári. Ríkis-
endurskoðun segir enga sérgrein eiga
jafnmarga fulltrúa á lista yfir tíu
tekjuhæstu sérfræðilæknana, eða
sex, þ.á m. í fyrsta og öðru sæti.
Hæstar brúttógreiðslur til eins svæf-
ingalæknis námu 40,5 milljónum árið
2001 og sá sem næstur kom fékk 32,7
milljónir. Hvorugur gegndi starfi á
opinberri sjúkrastofnun á árinu. Þá er
dæmi um háls-, nef- og eyrnalækni,
sem er í 75% starfi á sjúkrastofnun,
sem fékk í fyrra 22,5 milljónir kr.
vegna samnings við Tryggingastofn-
un. Eru þessar upphæðir samanlagð-
ur hluti sjúkratrygginga og sjúklings.
Ráðherra fagnar tillögum um breytt launakerfi lækna
Fastlaunakerfi tal-
ið vera óheppilegt
Heilbrigðisþjónusta/10–11
MESTA mildi þykir að ekki varð
stórslys er sportbifreið af gerðinni
BMW endastakkst eina 50 metra
út af Hafnarfjarðarvegi á móts við
hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð í
Kópavogi um hálftólfleytið í gær-
kvöldi. Endaði bíllinn í trjábeði eft-
ir að hafa skemmt tvo kyrrstæða
bíla.
Loka varð veginum um tíma á
meðan lögregla og sjúkralið, með
aðstoð tækjabíls frá slökkviliði höf-
uðborgarsvæðisins, náðu ökumanni
og tveimur farþegum úr bílnum,
sem er gjörónýtur eftir slysið.
Að sögn lögreglu var ekki talið
að fólkið hefði hlotið lífshættuleg
meiðsl en það var með meðvitund
þegar lögreglumenn, sem urðu
vitni að slysinu, komu á vettvang.
Umferð var aftur hleypt um Hafn-
arfjarðarveg upp úr miðnætti í
nótt.
Endastakkst
50 metra
♦ ♦ ♦