Morgunblaðið - 10.10.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Viðtölin eru í Austurstræti 8-10.
Tímapantanir í síma 563 0471.
5. sætið
Fastir vikulegir viðtalstímar verða
teknir upp að nýju á fimmtudögum
frá kl. 8:00 til 10:30.
Guðmundur Hallvarðsson
8. þingmaður Reykvíkinga
Fastir viðtalstímar
netfang: ghallv@althingi.is
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
22. og 23. nóvember
Söguþing um félagsráðgjöf
Mikil þróun
í greininni
FÉLAGSRÁÐGJÖFhefur verið kennd áÍslandi í 20 ár og í
tilefni af því er efnt til mál-
þings, eða „Söguþings“ um
þróun og stöðu félagsráð-
gjafar á Íslandi. Jóna Egg-
ertsdóttir félagsráðgjafi er
í forsvari fyrir þingið.
Hver stendur fyrir
Söguþinginu, hvar verður
það haldið og hvenær?
„Undirbúningsnefnd
skipuð fulltrúum fyrstu út-
skriftarnema í félagsráð-
gjöf, félagsráðgjafarnema,
Háskóla Íslands, Stéttar-
félag íslenskra félagsráð-
gjafa, Félagsþjónustunnar
í Reykjavík og félagsráð-
gjafa innan heilbrigðis-
þjónustu hefur staðið að
undirbúningi þriggja mál-
þinga sem haldin eru á árinu. Það
þriðja og síðasta er söguþing sem
haldið verður á morgun, föstudag-
inn 11. október í Norræna hús-
inu.“
Tilefni þess og tilgangur?
„Á þessu ári eru tuttugu ár liðin
frá fyrstu útskrift félagsráðgjafa
frá Háskóla Íslands. Á Sögu-
þinginu verður rifjaður upp sögu-
legur aðdragandi að námi í fé-
lagsráðgjöf við Háskóla Íslands
og hvernig námið hefur þróast.
Fyrstu íslensku félagsráðgjafarn-
ir komu til starfa hér á landi um
1960 og flestir höfðu stundað nám
á Norðurlöndunum. Stéttarfélag
íslenskra félagsráðgjafa var
stofnað 1964. Um svipað leyti var
verið að endurskipuleggja fé-
lagslega þjónustu á vegum borg-
arinnar og mikil þörf á sérfræði-
menntuðu fólki til starfa. Árið
1966 kom fyrsta tillagan um að
ríkisvaldið kæmi á skóla fyrir fé-
lagsráðgjafa og var hún borin upp
á borgarstjórnarfundi í Reykja-
vík. Á næstu árum fjölluðu marg-
ar nefndir innan Háskóla Íslands
um möguleikann á því að koma á
félagsráðgjafarnámi og verður sú
saga rakin á Söguþinginu. Fljót-
lega eftir að Félagsvísindadeild
HÍ var stofnuð var ákveðið að fé-
lagsráðgjöf yrði kennd innan
þeirrar deildar. Kennslustjóri í fé-
lagsráðgjöf var ráðinn 1981 og
fyrstu félagsráðgjafarnir útskrif-
uðust frá Háskóla Íslands 1982.“
Hvernig verður þingið byggt
upp?
„Fyrri hluti Söguþingsins
fjallar um aðdraganda námsins,
en síðari hlutinn um þróun grein-
arinnar á undanförnum árum.
Formaður Stéttarfélags íslenskra
félagsráðgjafa, Ella Kristín
Karlsdóttir setur Söguþingið. Síð-
an flytur Þórólfur Þórlindsson
prófessor ávarp. Hann var deild-
arforseti félagsvísindadeildar
þegar fyrsti útskriftarhópurinn í
félagsráðgjöf lauk námi. Þá flytur
Guðrún Jónsdóttir, fyrrverandi
kennslustjóri í félagsráðgjöf, er-
indi sem hún nefnir „Horft um
öxl“. Fjórir nemendur úr fyrsta
útskriftarhópnum unnu BA-verk-
efni á sínum tíma um
aðdraganda og upphaf
náms í félagsráðgjöf
við HÍ. Ása F. Þor-
geirsdóttir, Jóna Egg-
ertsdóttir, Rannveig
Gunnarsdóttir og Anna Jónsdótt-
ir. Mun sú síðastnefnda rekja
þessa sögu í grófum dráttum.
Kristján Sturluson, starfsmanna-
stjóri Norðuráls, og Þórey Ólafs-
dóttir félagsráðgjafi og sálfræð-
ingur munu gefa Söguþings-
gestum innsýn í hvernig var að
tilheyra fyrsta hópnum sem
stundaði félagsráðgjafanám á Ís-
landi.
Eftir kaffihlé flytur Kristín
Ólafsdóttir félagsráðgjafi erindi
sem hún nefnir: Félagsráðgjöf –
Sérfræðigrein í takt við tímann.
Þá munu nokkrir félagsráðgjafa-
nemar kynna BA-verkefni sín
sem þeir eru að vinna að eða hafa
nýlokið við. Þeir þrír karlmenn
sem eru á fjórða og síðasta ári í fé-
lagsráðgjafanámi, Eymundur
Hannesson, Ottó Tulinius og Pét-
ur Gauti Jónsson munu segja frá
reynslu sinni af að stunda nám í
grein sem telja má kvennagrein.
Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í fé-
lagsráðgjöf, slítur Söguþinginu.“
Hver er staða félagsráðgjafar á
Íslandi í dag?
„Starfsgreinin hefur eflst og fé-
lagsráðgjafar starfa nú á breiðari
vettvangi og jafnframt hefur sér-
hæfing vaxið. Þeir geta hlotið sér-
hæfingu á sviði félags- og heil-
brigðismála og í skóla- og
réttarkerfi. Félagsráðgjöf er orð-
in fjölmenn starfsgrein og á fjórða
hundrað félagsráðgjafar eru hér á
landi, meirihluti þeirra hefur út-
skrifast frá Háskóla Íslands. Auk-
in áhersla er lögð á rannsóknir,
bæði í félagsráðgjafanáminu og í
störfum félagsráðgjafa.“
Helstu breytingar á 20 árum?
„Það hefur verið mikil þróun í
greininni. Árið 1991 var fyrsti
lektorinn í félagsráðgjöf ráðinn og
fyrir tveimur árum varð sú breyt-
ing að hægt var að taka félagsráð-
gjöf sem aðalgrein innan Fé-
lagsvísindadeildar. Þá var kominn
fjögurra ára samfelld
námsleið þ.e. BA-próf
auk starfsréttinda. Um
nokkurt skeið hefur
verið möguleiki á að
stunda meistaranám í
félagsráðgjöf. Árið 2000 var fyrsti
prófessorinn skipaður og þrír
lektorar í félagsráðgjöf eru við
deildina. Einnig hefur fengist
fjárframlag frá Framkvæmda-
sjóði aldraðra í heilbrigðis- og
tryggingarmálaráðuneytinu til
þess að kosta lektorsstöðu í fé-
lagsráðgjöf á sviði öldrunarþjón-
ustu og rannsókna frá og með
1.janúar 2003.“
Jóna Eggertsdóttir
Jóna Eggertsdóttir er fædd að
Bakkakoti í Skorradal 10. janúar
1937. Hún lauk BA prófi í félags-
fræði og starfsréttindanámi í fé-
lagsráðgjöf frá Háskóla Íslands
1982. Hún starfaði sem félags-
ráðgjafi á lyflækningadeild
Borgarspítalans 1983–88 og síð-
an sem yfirfélagsráðgjafi á vef-
rænum deildum Borgarspítalans.
Forstöðufélagsráðgjafi á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur á sömu deildum
til 1. júní 2001. Frá þeim tíma yf-
irfélagsráðgjafi öldrunarsviðs
Landspítala – háskólasjúkrahúss.
Félagsráð-
gjafar á fjórða
hundrað
Það er styttra til Brussel frá höfuðborginni.
STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands
hefur sent frá sér yfirlýsingu þar
sem lýst er yfir vonrigðum með að
ekki skuli vera veitt full lántöku-
heimild í nýútkomnu fjárlagafrum-
varpi til að ljúka við byggingu Nátt-
úrufræðahúss í Vatnsmýri fyrir
áætlaðan opnunardag þess, 23. ágúst
2003. Gert sé ráð fyrir því nú að af-
hendingu hússins verði frestað um
eitt ár, til ársins 2004.
Skorað er á fjárlaganefnd Alþingis
og þingmenn að taka málið til endur-
skoðunar og tryggja að húsið verði
opnað á umræddum tíma. Stjórn
Röskvu hefur sömuleiðis samþykkt
ályktun þar sem þingmenn eru
hvattir til að bregðast við í málinu.
Að sögn Ingjalds Hannibalssonar,
rekstrarstjóra rekstrar- og fram-
kvæmdasviðs Háskóla Íslands, sendi
HÍ um mitt ár 2001 áætlun til
menntamálaráðuneytisins um að
ljúka húsinu. Þá var óskað eftir að fá
að taka lán á árunum 2002 og 2003 í
þeim tilgangi. Í fjárlagafrumvarpi
fyrir árið 2002 var gert ráð fyrir 650
milljóna króna lánsfjárheimild til
verksins og að framkvæmdin myndi
skiptast niður á tvö ár. Var sam-
þykkt að veita Happdrætti HÍ heim-
ild til lántökunnar.
Óskað eftir að lánsfjárheimild
hækki í u.þ.b. 700 milljónir
Ingjaldur segir að settar hafi verið
takmarkanir við framkvæmdir á
húsinu á þessu ári en gert hafi verið
ráð fyrir þeim mun meiri fram-
kvæmdum á næsta ári.
Háskólinn hefur óskað eftir því að
upphæðin verði hækkuð í u.þ.b. 700
milljónir, í takt við verðbólgu á milli
ára. Ingjaldur segir að allar áætlanir
hafi þannig miðast við að húsið yrði
tekið í notkun næsta haust.
„Það var búið að heimila að við
myndum ljúka húsinu. Síðan vorum
við beðnir um að fresta framkvæmd-
um aðeins í fyrra og erum auðvitað
vonsviknir yfir því að við skulum
vera beðnir um það aftur í ár.“
Að sögn Ingjalds vonast HÍ til
þess að fjárheimildir til byggingar-
innar verði leiðréttar.
Vonbrigði í HÍ með fjárveitingar til Náttúrufræðahúss
Heimild fyrir því að
húsinu yrði lokið 2003
LÍÐAN konunnar og barnanna
tveggja sem slösuðust alvarlega í bíl-
veltu í Skutulsfirði á sunnudag er
óbreytt að sögn læknis á gjörgæslu-
deild Landspítala í Fossvogi. Þeim
er öllum haldið sofandi í öndunarvél.
Fólkið slasaðist þegar jeppi valt út af
veginum um Kirkjubólshlíð upp úr
klukkan 14 á sunnudegi. Sex voru í
bílnum og slösuðust fimm þeirra en
ákveðið var að senda þrjú þeirra með
sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Bílveltan í Skutulsfirði
Líðan er
óbreytt
♦ ♦ ♦