Morgunblaðið - 10.10.2002, Side 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HALLDÓR Blöndal, forseti Alþingis,
sagði í upphafi þingfundar á Alþingi í
gær að Guðmundur Sigurðsson, for-
stöðumaður samkeppnissviðs Sam-
keppnisstofnunar, hefði farið með
rangt mál í fjölmiðlum í gær og þann-
ig brugðist embættisskyldum sínum.
Halldór sagði í umræðum um störf
þingsins í gær að hann hefði í síðustu
viku gert að umtalsefni á Alþingi að í
öðrum löndum væri bannað að selja
undir kostnaðarverði og jafnframt að
slíkt væru óheilbrigðir viðskiptahætt-
ir. Nú hefði Guðmundur Sigurðsson
sagt að það væri ekki rétt.
Halldór las síðan upp úr minnis-
blaði um skaðlega undirverðlagningu,
sem hann kvað Guðmund hafa sent
sér árið 1999. Þar segði: „Að Noregi
og Íslandi undanskildu er í framan-
greindum ríkjum og ríkjasamböndum
mistnotkun á markaðsráðandi stöðu
bönnuð. Þetta þýðir að í þessum ríkj-
um er fyrirfram bannað að grípa til
skaðlegrar undirverðlagningar og
getur slík hegðun víðast hvar varðað
sektum eða fangelsi.“
Halldór sagði ennfremur að í minn-
isblaðinu stæði að hér á landi og í
Noregi væri slík skaðleg undirverð-
lagning ekki fyrirfram bönnuð og að
slík hegðun markaðsráðandi fyrir-
tækis gæti ekki leitt til viðurlaga.
Samkeppnisyfirvöld gætu hins vegar
bannað slíka hegðun í einstökum til-
vikum gagnvart ákveðnum fyrirtækj-
um. Ef fyrirtækin brjóti bann sam-
keppnisyfirvalda gæti það varðað
viðurlögum. Síðan sagði Halldór:
„Það er því ljóst að þessi starfsmaður
Samkeppnisstofnunar hefur farið
rangt með og hann hefur brugðist
embættisskyldum sínum.“
Ódrengilega vegið að
starfsheiðri mínum
Halldór spurði Valgerði Sverris-
dóttur m.a. um þessi ummæli Guð-
mundar Sigurðssonar. Hún ítrekaði
það sem Guðmundur hafði sagt í fjöl-
miðlum í gær, þ.e. að þegar fákeppnin
hefði orðið til á Íslandi hefðu gilt önn-
ur lög í landinu. Ennfremur hefði fall-
ið dómur í málum Flugfélags Íslands
og Flugfélags Norðurlands en hann
þýddi að samkeppnisyfirvöld hefðu
ekki haft forsendur til að grípa til
íhlutunar þegar Baugur keypti 10–11-
verslanakeðjuna. „Þetta þekkir hátt-
virtur þingmaður (Halldór Blöndal)
áfaklega vel, vegna þess að ég trúi því
að hann hafi gegnt embætti sam-
gönguráðherra á þessum tíma. Þann-
ir að það eru einhverjir útúrsnúning-
ar hér á ferðinni,“ sagði Valgerður.
Guðmundur Sigurðsson segir að
Halldór Blöndal hafi ekki farið með
rétt mál á Alþingi í gær er hann ásak-
aði hann um að hafa brugðist embætt-
isskyldum sínum. „Mér er töluvert
misboðið með þessum ummælum
þingmannsins og finnst heldur
ódrengilega vegið að starfsheiðri mín-
um í ræðu þingmannsins,“ sagði Guð-
mundur.
Guðmundur segir að orð Halldórs
Blöndals beri þess vott að annaðhvort
viti hann ekki um hvað málið snúist
eða skynji ekki muninn á þessum
hugtökum sem verið er að nota.
„Það sem ég lét hafa eftir mér í
Morgunblaðinu í dag [í gær] stend ég
við. Ég var beðinn um að koma með
athugasemd við það sem Halldór
hafði sagt á Alþingi í síðustu viku. Þá
talaði hann um það að þegar verslanir
væru að selja vörur undir kostnaðar-
verði væri það bannað alls staðar í
heiminum nema hér á landi. Ég sagði
hins vegar að í öðrum löndum væri
ekki bannað að selja vörur undir
kostnaðarverði. Halldór slær saman
hugtökunum, að selja undir kostnað-
arverði og að vera með skaðlega und-
irverðlagningu, sem er sérstakt hug-
tak í samkeppnisrétti og á aðeins við
um markaðsráðandi fyrirtæki. En
þegar verið er að selja vöru undir
kostnaðarverði, er væntanlega verið
að vísa til þess ef verslanir eru með
útsölu og selja undir því verði sem
varan kostaði þegar hún var keypt inn
og það er ekki bannað. Þannig að ég
stend við það sem ég læt hafa eftir
mér í Morgunblaðinu í dag,“ sagði
Guðmundur.
„Þá vísaði Halldór í minnisblað frá
Samkeppnisstofnun frá 1999 þar sem
fjallað var um þessa svokölluðu skað-
legu undirverðlagningu og á þessu
minnisblaði var sagt að hún væri víða
bönnuð. Í umræddu minnisblaði var
verið að gera samburð á samkeppn-
islögum eins og þau voru árið 1999
hér á landi og í öðrum löndum, en síð-
an var samkeppnislögunum breytt
hér á landi í desember árið 2000.“
Halldór Blöndal gagnrýndi starfsmann Samkeppnisstofnunar harðlega á Alþingi í gær
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Halldór Blöndal, forseti Alþingis, gagnrýndi starfsmann Samkeppn-
isstofnunar í gær. Með á myndinni er Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir.
Segir starfsmanninn hafa
brugðist skyldum sínum
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnað-
arráðherra, sagði á Alþingi í gær að
mikilvægt væri að athugaðir verði
möguleikar á lagningu sæstrengs
milli Íslands og Noregs. Eins og fram
kom í Morgunblaðinu í gær hefur
verið undirritaður samningur milli
Landsvirkjunar og norsku fyrirtækj-
anna Statoil og Statnett um gerð hag-
kvæmniathugunar á lagningu slíks
sæstrengs. Norðmenn höfðu frum-
kvæðið að þessum samningi en þeir
hafa áhuga á að kaupa endurnýjan-
lega raforku frá Íslandi. Landsvirkj-
un mun leggja til upplýsingar um
nýtingu endurnýjanlegrar orku á Ís-
landi og Norðmenn munu skoða
markaðsmál fyrir sæstreng í Noregi
og jafnvel víðar. Árni Steinar Jó-
hannsson, þingmaður Vinstrihreyf-
ingarinnar -græns framboðs, vakti
máls á þessu í upphafi þingfundar í
gær.
Viðurkenning fyrir Ísland
Valgerður tók fram að fyrrgreind-
ur samningur milli Landsvirkjunar
og norsku fyrirtækjanna fæli ekki í
sér neinar skuldbindingar af hálfu
Landsvirkjunar. „Hér er eingöngu
verið að athuga möguleika á virkjun-
arkostum, ásamt þeim fyrirtækjum
sem hér hafa verið nefnd, Statoil og
Statnett. Það tel ég vera mjög mik-
ilvægt til þess að stjórnvöld geti mót-
að stefnu á þessu sviði.“ Ráðherra
minnti þó á að samkvæmt samningn-
um eigi athuguninni ekki að vera lok-
ið fyrr en eftir hálft ár.
„Ég tel að það sé ákveðin viður-
kenning fyrir Ísland að þessi umræða
skuli vera uppi og að þessi áhugi sé til
staðar hjá öðrum þjóðum ... Og hugs-
anlega getur það verið ákveðin hvatn-
ing fyrir þær þjóðir sem búa yfir auð-
lindum af þessu tagi en hafa kannski
ekki nýtt þær sem skyldi,“ sagði Val-
gerður. Hún ítrekaði þó að umrætt
mál væri alls ekki í neinum forgangi
hjá ríkisstjórninni. „Það er eingöngu
um það að ræða að þarna séu athug-
aðir möguleikar sem hugsanlega eru
til staðar. Ég ítreka að mér finnst
þetta ekki vera neitt forgangsmál.“
Valgerður sagði ennfremur að hún
væri áhugasamari um það að nýta
okkar endurnýjanlegu orku hér á
landi til atvinnuuppbyggingar en að
flytja orkuna til annarra landa og til
atvinnuuppbyggingar þar.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra
Könnun á lagningu
sæstrengs mikilvæg
VALGERÐUR Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra sagði í upphafi þing-
fundar á Alþingi í gær að Landsbanki
Íslands hf. yrði ekki seldur fyrr en
skýrsla Ríkisendurskoðunar um
vinnubrögð við sölu bankans lægi fyr-
ir og þingmenn hefðu fengið tíma til
að kynna sér skýrsluna.
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, spurði ráðherra
um þetta í upphafi þingfundar. „Ég
tel mikilvægt að skýrsla Ríkisendur-
skoðunar liggi fyrir áður en tekin
verður ákvörðun um sölu Landsbank-
ans,“ sagði Össur. Viðskiptaráðherra
tók undir þau orð. Hún bætti því síðan
við að viðræður við eignarhaldsfélagið
Samson ehf. væru ekki komnar það
langt að líkur væru á því að skýrslan
lægi ekki fyrir áður en bankinn yrði
seldur. „Landsbankinn verður ekki
seldur fyrr en skýrslan liggur fyrir og
háttvirtur þingmaður (Össur Skarp-
héðinsson) hefur fengið tækifæri til
að stúdera hana vel.“
Eins og kunnugt er hefur forsæt-
isráðuneytið falið Ríkisendurskoðun
að yfirfara þau vinnubrögð sem við-
höfð voru þegar ákveðið var að ganga
til viðræðna við eignarhaldsfélagið
Samson efh. vegna sölu á umtalsverð-
um hlut ríkisins í Landsbankanum.
Þetta var ákveðið í kjölfar þess að
Steingrímur Ari Arason sagði sig úr
einkavæðingarnefnd og gagnrýndi
vinnubrögð hennar.
Skýrslan liggi fyrir
áður en bankinn
verði seldur
ÖGMUNDUR Jónasson, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar, vakti at-
hygli á því í umræðum utan dag-
skrár á Alþingi í gær um húsnæðis-
mál, að fjöldi manns væri á biðlista
eftir félagslegu húsnæði, einkum á
suðvesturhorni landsins. Sagði
hann m.a. að um 799 einstaklingar
og fjölskyldur væru á biðlista hjá
Félagsþjónustunni í Reykjavík og
að biðlistinn hefði lengst um 200
umsóknir frá því í janúar sl. Hann
sagði ennfremur að um 500 manns
væru á biðlista hjá Félagsstofnun
stúdenta og að um 385 væru á bið-
lista hjá Öryrkjabandalaginu.
Jóhanna Sigurðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, benti
jafnframt á að samtals um 1.800
einstaklingar og fjölskyldur væru á
biðlista eftir leiguíbúðum í Reykja-
vík. Ögmundur Jónasson sagði að
vandinn í húsnæðismálum væri
tröllauknari nú en áður. Hann
sagði aukinheldur að vaxtakjör að-
ila sem byggðu félagslegt húsnæði
færu versnandi. Þannig hefðu vext-
ir á lánum til þeirra hækkað úr 1% í
3,5% frá og með byrjun ársins 2001.
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra sagði m.a. að víst væri gam-
an að geta veitt vaxtalaus lán eða
lán með mjög lágum vöxtum. Málið
snerist hins vegar um það hvar ætti
að taka peningana. Ráðherra benti
einnig á að um 17% íbúða í Reykja-
vík, eða um 7.500, væru leiguíbúð-
ir. þar af væru 2.900 félagslegar
leiguíbúðir og um 4.600 almennar
leiguíbúðir. Þá hefði heildarfjöldi
húsaleigubótaþega í Reykjavík ver-
ið um 2.800 í maí sl.
Ögmundur Jónasson
799 á biðlista
eftir húsnæði
ÍSÓLFUR Gylfi Pálmason, þing-
maður Framsóknarflokksins,
hefur lagt fram á Alþingi tillögu
til þingsályktunar um uppbygg-
ingu meðferðardeildar við fang-
elsi fyrir sakhæfa geðsjúka af-
brotamenn. Í meginefni
tillögunnar segir: „Alþingi álykt-
ar að fela dómsmálaráðherra í
samráði við heilbrigðisráðherra
að hefja þegar í stað undirbúning
að uppbyggingu meðferðardeild-
ar við fangelsi fyrir sakhæfa geð-
sjúka afbrotamenn í tengslum
við starfsemi Heilbrigðisstofnun-
ar Selfoss, fangelsið á Litla-
Hrauni og réttargeðdeild að
Sogni. Ákvörðun um úrræði fyrir
þennan hóp sjúkra afbrotamanna
liggi fyrir eigi síðar en 1. maí
2003.“
Í greinargerð tillögunnar segir
m.a. að um langt skeið hafi verið
rætt um meðferðarúrræði fyrir
sakhæfa geðsjúka afbrotamenn
og hvernig hægt væri að koma
þeim til aðstoðar. „Hér er um
mjög viðkvæman málaflokk að
ræða sem nauðsynlegt er að taka
á svo fljótt sem auðið er. Sak-
hæfir geðsjúkir einstaklingar
sem brotið hafa af sér hafa ekki í
mörg hús að venda því að engin
sérhæfð stofnun er til.“ Síðan
segir m.a. að nauðsynlegt sé að
umræddir afbrotamenn fái upp-
byggilega meðferð um leið og
þeir afpláni dóma.
Ísólfur Gylfi Pálmason
Meðferðardeild
í fangelsumSIGRÍÐUR Ragnarsdóttir, skóla-stjóri á Ísafirði og varaþingmaður
Samfylkingarinnar í Vestfjarða-
kjördæmi, hefur tekið sæti á Al-
þingi í fjarveru Karls V. Matthías-
sonar þingmanns. Hann mun vera
erlendis.
Er þetta í fyrsta sinn sem Sig-
ríður tekur sæti á þingi. Af þeim
sökum þurfti hún að undirskrifa
drengskaparheiti að stjórnarskrá
Íslands á Alþingi á mánudag, eins
og venja er þegar nýr þingmaður
tekur sæti á þingi. Að því búnu
bauð Halldór Blöndal Sigríði vel-
komna til starfa á Alþingi.
Þá hefur Vilhjálmur Þ. Vilhjálm-
son tekið sæti á þingi fyrir Björn
Bjarnason Sjálfstæðisflokki og
Jónas Hallgrímsson tekið sæti
Halldórs Ásgrímssonar Framsókn-
arflokki. Þeir hafa báðir setið á
þingi áður.
Þrír vara-
þingmenn taka
sæti á þingi