Morgunblaðið - 10.10.2002, Page 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 13
ÞEIR eru óárennilegir þar sem þeir
standa hálfir upp úr lestinni,
klæddir lambhúshettum og þykk-
um einangrunarhönskum og dúð-
aðir í skjólfatnað að öðru leyti. Hjá
sumum þeirra stingast hrímaðir
skeggbroddar út undan húfunni og
kuldagufu leggur frá vitum þeirra.
Skyndilega gefur einn þeirra merki
og tröllvaxnir fiskar, fjórir saman í
kippu, takast á loft upp úr lestinni.
Við erum stödd við uppskipun á
túnfiski í Reykjavíkurhöfn þar sem
þrír japanskir túnfiskveiðibátar
liggja við bryggju. Tugir manna,
flestir japanskir, vinna þar hörðum
höndum við að koma gaddfreðnum
flykkjunum inn í gám og inni í hon-
um streða nokkrir til viðbótar við
að hlaða þeim upp. Hitastigið í lest-
inni og gámnum er mínus 60 gráð-
ur og því undrast enginn þann
skjólfatnað sem viðhafður er.
Ólafur Torfason, verkstjóri á
skipaafgreiðslu Eimskips í Hafn-
arfirði, upplýsir að hér sé allt gert
til að vanda til verka enda miklir
fjármunir í húfi. „Farmurinn kostar
einhverja tugi milljóna, kílóið fer á
tvö til þrjú þúsund kall og það eru
25 tonn í gámnum.“ Lauslegir út-
reikningar leiða í ljós, að sam-
kvæmt því sé verðmætið á bilinu 50-
75 milljónir króna og í því ljósi er
skiljanlegt að passað sé upp á vör-
una.
Gámurinn, sem fiskurinn fer í, er
fenginn frá þýska frystiflutninga-
félaginu Mearsk Sealand. Að sögn
Ólafs getur geymslan haldið 60
gráðu frosti sem er kjörhitastig
fyrir geymslu túnfisks. Eimskip
mun síðan flytja gáminn til Ham-
borgar þar sem skip frá Mearsk
tekur við flutningnum til Japans.
Yfir hundrað kíló að þyngd
Til marks um það hversu mikil
áhersla er lögð á rétta meðhöndlun
bendir Ólafur á að sérstakur eft-
irlitsmaður fylgir gámnum hingað
til lands. Niels Henrik Larsen heitir
hann og upplýsir að fyrirtæki hans
er hið eina sem hefur á að skipa
slíkum frystigámum. „Ég er sér-
staklega hingað kominn til að sýna
þeim hvernig þeir eiga að hlaða í
frystigáminn og meðhöndla tún-
fiskinn,“ segir hann. „Í framtíðinni
munu svo menn frá Eimskip taka
yfir það verk.“
Ólafur segir þessi skip koma
sjaldan en þó komi fjögur til sex
skip á hausti hverju og algengt sé
að hvert skip fylli einn gám. Tölu-
vert streð sé að koma fisknum fyrir
í gámnum. „Þetta er virkilega erfitt
því það er verið að taka þarna
hundrað kílóa ólöguleg stykki og
hlaða þeim upp í fimm hæðir. Þetta
eru miklir fiskar og mér sýnist að
þeir stærstu séu á annað hundrað
kíló, en þeir hafa gert þetta áður
þessir menn og verkið hefur nánast
alveg verið unnið af skipverjum á
þessum skipum.“
Lengra verður spjallið ekki enda
nóg við að vera hjá gestum hafn-
arinnar í Reykjavík þennan svala
miðvikudagsmorgun. Þeir eru því
horfnir inn í kuldann í gámnum og
lestinni fyrr en varir.
Japönsk túnfiskveiðiskip hafa viðkomu í Reykjavík og skipa upp verðmætum afla
Fimbulkuldi og
fiskflikki í kippum
Morgunblaðið/Golli
Það er mikið streð að raða stórfiskunum inn í frystigáminn enda ekki
heppilegir í laginu til þess arna. Þeim þarf að stafla upp á fimm hæðir.
Reykjavíkurhöfn
Fljúgandi túnfiskar á hafnarbakkanum. Hvert flikki er um 100 kíló.