Morgunblaðið - 10.10.2002, Síða 14

Morgunblaðið - 10.10.2002, Síða 14
Morgunblaðið/Kristján Þegar er búið að steypa grunninn að félagsheimilinu norðan Kjarna- lundar og ekki er gert ráð fyrir að þar verði reist orlofshús. AKUREYRARBÆR hefur auglýst tillögu að deiliskipulagi lóðar við Kjarnalund, en um er að ræða lóð Náttúrulækningafélags Íslands við Kjarnaskóg þar sem byggingin Kjarnalundur stendur. Fram kemur að um sé að ræða breytingu á deili- skipulagi fyrir orlofshúsabyggð sem samþykkt var haustið 1993. Sam- kvæmt tillögunni er gert ráð fyrir hugsanlegri stækkun Kjarnalundar og norðan hússins er sýndur stakur byggingareitur fyrir félagsheimili á einni hæð. Mun félagsheimilið koma í stað fjögurra orlofshúsa sem þar áttu að vera samkvæmt gildandi skipulagi. Bjarni Reykjalín skipulags- og byggingafulltrúi Akureyrarbæjar sagði að Náttúrulækningafélagið hefði haft leyfi til að bygga félagsheimili á svæðinu samkvæmt eldra skipulagi, en við nánari skoðun hefðu forsendur þess þótt hæpnar. Úrbótarmenn á Akureyri hafa reist fjölda orlofshúsa á svæðinu norðan Kjarnalundar og sagði Bjarni að yf- irvofandi hefði verið kæra til úrskurð- arnefndar skipulagsmála vegna máls- ins. „Þeir töldu ekki rétt að þessu staðið og því óskaði náttúrlækninga- félagið eftir því að byggingaleyfið yrði dregið til baka þar sem menn horfðu fram á málaferli,“ sagði Bjarni. Eins hefði mátt búast við töfum á verkinu ef til þeirra hefði komið, jafnvel um eitt ár. Þegar er búið að steypa grunninn að félagsheimilinu, en það verður um 160 fermetrar að stærð. Ekki er að sögn Bjarna gert ráð fyrir að orlofs- húsin fjögur sem upphaflega áttu að vera á svæðinu verði reist. Tillaga að deiliskipulagi við Kjarnalund Félagsheimili í stað orlofshúsa AKUREYRI 14 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ SÖNGLEIKURINN GUNNAR Á HLÍÐARENDA Í KETILHÚSINU 11. OKTÓBER KL. 20 Njálusönghópurinn - syngjandi bændur úr Rangárþingi, ásamt Arthúri Björgvini Bollasyni sögumanni fjalla um ævi og örlög kappans frá Hlíðarenda. Tónlistarstjóri, undirleikari og höfundur texta í óbundnu máli Halldór Óskarsson. Leikstjóri Svala Arnardóttir. Búningahönnuður Inga K. Guðlaugsdóttir. ATH. AÐEINS ÞESSI EINA SÝNING. Forsala aðgöngumiða í Ketilhúsinu, sími 466 2609. Miðaverð kr. 2000. Afsláttur fyrir Gilfélaga og ellilífeyrisþega. LAGT er til, í greinargerð um fram- tíðaráherslur í atvinnumálum Akur- eyrarbæjar, að bærinn dragi sig út úr rekstri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, AFE. Jafnframt er lagt til að atvinnumálanefnd verði starf- rækt áfram en að nafni hennar verði breytt í „markaðs- og atvinnumála- nefnd“ og hlutverk hennar lagað að breyttu fyrirkomulagi. Þá er lagt til að ráðinn verði starfsmaður, „mark- aðs- og kynningarstjóri“ sem sinni m.a. verkefnum á sviði atvinnu-, markaðs- og kynningarmála á veg- um bæjarins. Akureyrarbær greiðir í beint rekstrarframlag til AFE um 75% af heildarrekstrarframlagi sveitarfélaga á svæðinu, eða um 25 milljónir króna á ári. Greinargerðin er unnin af Price- waterhouseCoopers, PwC, og var unnin seinni hluta síðasta árs og fram á fyrstu mánuði þessa árs. Hún var unnin fyrir nefnd á vegum bæj- arráðs Akureyrar en hlutverk henn- ar var að endurskoða aðild bæjarins að samstarfsverkefnum með sveitar- félögum í Eyjafirði. Í málefnasamn- ingi Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks frá í vor er gert ráð fyrir að núverandi skipulag á þátttöku bæj- arins í atvinnumálum verði tekið til endurskoðunar. Miðað verði við að nýtt skipulag tengi aðila vinnumark- aðarins betur en áður við störf að at- vinnumálum sveitarfélagsins og jafnframt verði þetta starf tengt bet- ur stjórnsýslu bæjarins. Endurskoð- un þessi taki mið af greinargerð um framtíðaráherslur í atvinnumálum Akureyrarbæjar. Þá er í málefna- samningnum gert ráð fyrir að nið- urstöður og tillögur um breytingar liggi fyrir eigi síðar en í árslok 2002. Atvinnumálanefnd Akureyrar hef- ur fjallað um greinargerðina á tveimur fundum sínum nýlega. Bjarni Jónasson, formaður atvinnu- málanefndar, sagði að niðurstaða nefndarinnar væri að leggja til við bæjarráð að skipaður verði sérstak- ur starfshópur til að fara yfir þessi mál, með hliðsjón af málefnasamn- ingi meirihlutaflokkanna í bæjar- stjórn. Ekki réttlætanlegt að bærinn niðurgreiði fyrir aðra Í greinargerð PwC kemur m.a. fram að í ljósi árangurs undangeng- inna ára bendi lítið til þess að fjöl- breyttum störfum komi til með að fjölga í náinni framtíð með því að taka bæði þátt í rekstri AFE með öðrum sveitarfélögum í Eyjafirði og reka atvinnumálanefnd á vegum bæjarins. Ekki sé réttlætanlegt að bærinn greiði niður aðgengi annarra sveitarfélaga að þessari þjónustu. Þá er bent á að þessi breyting sé í takt við stefnu annarra sambærilegra sveitarfélaga. Akureyrarbær greiði hlutfallslega hæsta kostnaðinn á íbúa í rekstur atvinnumála og eðli- legt sé að þeim fjármunum sé varið í efla grunngerð samfélagsins. Akur- eyrarbær geti ræktað hlutverk sitt í stoðkerfi atvinnulífsins á árangurs- ríkan hátt og stór hluti þeirrar þjón- ustu sem Akureyrarbær greiði fyrir hjá AFE sé í boði hjá öðrum aðilum í bænum. Þá er í geinargerðinni talið eðlilegra að hið opinbera, t.d. Byggðastofnun standi undir megin- hluta kostnaðar við AFE, fremur en sveitarfélag eins og Akureyrarbær. Hver íbúi á Akureyri greiðir 3.150 krónur í atvinnuþróun á ári, sem er það langhæsta á landinu. Til saman- burðar greiða íbúar höfuðborgar- svæðisins 255 til 621 krónu. Markaðs- og kynningarstjóri verði hægri hönd bæjarstjóra Hlutverk markaðs- og kynningar- stjóra verður m.a. að vera hægri hönd bæjarstjóra og verkefnalegur starfsmaður bæjarstjórnar hvað varðar atvinnu-, markaðs- og kynn- ingarmál, segir í greinargerðinni. Þá er lagt til að Akureyrarbær eigi frumkvæði að stofnun verkefnasjóðs til styrktar nýmæmisathugunum, gerð viðskiptaáætlana og undirbún- ingsvinnu. Einnig að Akureyrarbær geri þjónustusamning við utanað- komandi aðila um þjónustu við frum- kvöðla. Loks er lagt til að Akureyr- arbær leiti til starfandi þjónustufyrirtækja til að vinna verk- efni sem til falla á sviðum atvinnu-, markaðs- og kynningarmála og stuðli um leið að faglegri vinnslu þeirra og nýsköpun í atvinnulífi bæj- arins. Eitt af markmiðum við breytta áherslu Akureyrarbæjar í atvinnu- málum er að draga úr beinum kostn- aði bæjarins án þess að draga úr ár- angri, segir í greinargerðinni. Það sem hefur háð bænum hingað til er að bærinn er búinn að binda sig í því að greiða fastan kostnað vegna þessa málaflokks án þess að hafa peninga- legt né verkefnalegt stýrivald. Er í greinargerðinni sérstaklega bent á kostnað vegna aðildar að AFE upp á tæplega 25 milljónir króna á ári. Greinargerð um framtíðaráherslur í atvinnumálum Akureyrarbæjar Bærinn dragi sig út úr rekstri Atvinnuþróunarfélagsins GRÍMSEYINGAR sópa flugur úr gluggum sínum líkt og um hásumar og bændur í Eyja- firði hafa í nokkrum mæli slegið tún sín þriðja sinni nú á einstaklega góðu hausti. „Hér er bara júlíveður upp á hvern dag og geysilegt flugufargan, þær ruglast eitt- hvað í ríminu blessaðar þeg- ar tíðin er svona góð,“ sagði Helga Mattína Björnsdóttir, fréttaritari í Grímsey. Sól- arlaust var í eynni í gær og 10 stiga hiti. Bátar róa hvern dag út á spegilsléttan sjóinn og „það er ágætiskropp,“ eins og þeir orða það Gríms- eyingar. „Börnin leika sér léttklædd úti í boltaleikjum til 10 á kvöldin og mannlífið allt afar gott þegar svona vel viðrar,“ sagði Helga Mattína. Ólafur Vagnsson, ráðu- nautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar, sagði ástandið einstaklega gott hjá þeim bændum sem stunduðu græn- fóðurrækt. „Það er mikil spretta og kemur sér vel,“ sagði hann. Hins vegar væri þessi mikla spretta ekki eins já- kvæð varðandi túnin. Hey- fengur hefði verið gríðarmik- ill í sumar og því væri nokkur kvöð á mönnum að þurfa nú að slá tún sín í þriðja sinn í sumar. Ekki væri nægilega gott að hafa þau svo loðin undir veturinn að þau færu í sinu næsta sumar. „Þannig að bændur eru þessa dagana að hreinsa túnin, en sumir geta beitt á þau. Það er engin þörf fyrir þessi hey,“ sagði Ólafur. Góðviðriskaflinn sem stað- ið hefur frá því í byrjun september kom að sögn Ólafs ívið of seint fyr- ir kartöflubændur, „en menn fengu feikilega sprettu þarna í lokin. Svo skiptir líka máli að taka upp í góðu veðri. Kartöflur eru viðkvæmar fyrir hnjaski sem frek- ar verður þegar veður er vont,“ sagði Ólafur. Hvað kornið varðar sagði hann að hvassviðrið sem fylgt hefði hlý- indunum hefði gert mönnum skrá- veifu. Það lagðist og öxin hrundu úr því í einhverju mæli þannig að nýtingin varð lakari en við mátti búast. „Þessi hlýindakafli er góð viðbót við sumarið, en það var nú eins og menn muna frekar úr- komusamt og sólarlítið hér norðan heiða.“ Hlýindin á Norðurlandi hafa haft góð áhrif á mannlífið Tún slegin í þriðja sinn og flugur ruglast í ríminu Starfsmenn Akureyrarbæjar hafa verið að tyrfa nýtt leiksvæði við leikskólann Krógaból, sem er í kjallara Glerárkirkju, í góða veðrinu að undanförnu. Þessir ungu piltar notuðu veðurblíð- una í gær og tóku létta golfæfingu og slógum boltum sínum í Glerána. Morgunblaðið/Kristján UM næstu helgi, 12.–13. október, hefst röð kynningarfunda á frambjóð- endum meðal félagsmanna Samfylk- ingarinnar í Norðausturkjördæmi. Eins og fram hefur komið gáfu sjö frambjóðendur kost á sér í tvö efstu sætin á lista flokksins í kjördæminu fyrir alþingiskosningarnar næsta vor. Fram fer póstkosning meðal fé- lagsmanna í tvö efstu sætin, þar sem niðurstaðan er bindandi, en kjörnefnd raðar í önnur sæti listans. Þau sem gefa kost á sér eru: Cecil Haraldsson, sóknarprestur á Seyðis- firði, Einar Már Sigurðsson, alþing- ismaður Neskaupstað. Kristján L. Möller, alþingismaður Siglufirði, Lára Stefánsdóttir, kennari Akur- eyri, Þorgerður Þorgilsdóttir, sjúkra- liði Akureyri, Þorlákur Axel Jónsson, kennari Akureyri, og Örlygur Hnefill Jónsson, lögmaður og varaþingmað- ur, Laugum í Reykjadal. Samfylkingarfélögin á Húsavík, Kópaskeri og Vopnafirði munu standa að fyrstu kynningunum um næstu helgi, á laugardag á Húsavík kl. 14: 00 í sal stéttarfélaganna, Garð- arsbraut 26, á Kópaskeri sama dag kl. 17:00 í Grunnskólanum og á Vopna- firði sunnudaginn 13. október kl. 17:00 í Austurborg. Helgina þar á eftir, 19.–20. október, munu Samfylkingarfélögin á Fljóts- dalshéraði, Seyðisfirði, Fjarðabyggð og austurfjörðum Austurlands skipu- leggja kynningar og síðustu helgina í október, 26.–27. október, munu félög- in á Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og Akureyri standa að kynningum meðal félagsmanna sinna. Samfylkingin í Norðausturkjördæmi Kynning á frambjóð- endum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.