Morgunblaðið - 10.10.2002, Qupperneq 15
TIL stendur að ráðast í umfangs-
miklar endurbætur á hinu fornfræga
bögglageymsluhúsi í Grófargili. Það
stendur neðan Ketilhúss og hýsti áð-
ur m.a. sláturhús og mjólkursamlag.
Undirbúningur að endurbótunum er
þegar hafinn að því er fram kemur í
viðtali við Benedikt Sigurðarson á
heimasíðu KEA. Fyrsta skrefið er að
mæla húsið upp, en í kjölfarið verður
tekin ákvörðun um næstu skref.
Benedikt segist sjá fyrir sér að í hús-
inu verði rekin menningarstarfsemi
af ýmsum toga.
Akureyrarbær keypti sem kunn-
ugt er gömlu iðnaðarhús KEA í
Grófargili og þar er nú rekin öflug
menningarstarfsemi, m.a. Listasafn-
ið á Akureyri, Myndlistarskólinn á
Akureyri, vinnustofur listamanna,
sýningar- og tónleikasalir og veit-
ingahús.
Endurbætur
á böggla-
geymslu
SÖNGLEIKURINN „Gunnar á
Hlíðarenda“ verður sýndur í Ket-
ilhúsinu á Akureyri föstudags-
kvöldið 11. október kl. 20.
Söngleikurinn var frumsýndur á
Hvolsvelli í fyrra og hefur síðan
víða verið sýndur, m.a. í Þýskalandi
og Kanada og hlaut góðar viðtökur.
Umræddur söngleikur fjallar
eins og nafnið bendir til um ævi og
örlög Gunnars á Hlíðarenda. Uppi-
staðan í söngleiknum er lagaflokk-
ur sem tónskáldið Jón Laxdal
samdi við ljóðabálk Guðmundar
skólaskálds Guðmundssonar um
Gunnar á Hlíðarenda.
Í sýningunni taka þátt 9 söngv-
arar úr Rangárvallasýslu, en þeir
eru félagar úr Karlakór Rang-
æinga. Tónlistarstjóri og undirleik-
Söngleikurinn
Gunnar á
Hlíðarenda
ari er Halldór Óskarsson, höfundur
texta í óbundnu máli og sögumaður
er Arthúr Björgvin Bollason, Svala
Arnardóttir er leikstjóri og bún-
ingahönnuður Inga K. Guðlaugs-
dótttir.
Forsala aðgöngumiða er hafin á
skrifstofu Gilfélagsins.
DAGSKRÁ verður á Akureyri í dag,
á Alþjóða geðheilbrigðisdeginum,
fimmtudaginn 10. október.
Opið hús verður í Laut, athvarfi
fólks með geðraskanir, að Þingvalla-
stræti 32 frá kl. 13 til 17. Í Háskól-
anum á Akureyri, stofu 25, við Þing-
vallastræti verður kynning á
klúbbnum Geysi, sem eru samtök um
gagnkvæman stuðning geðsjúkra og
starfa eftir aðþjóðlegri fyrirmynd.
Grundvallarhugmynd klúbbsins er að
bæta möguleika félaganna til þátt-
töku í samfélaginu eftir útskrift af
geðdeildum.
Horft til framtíðar er yfirskrift
fundar sem haldinn verður í Deigl-
unni um kvöldið og hefst hann kl.
20.30. Frummælendur verða Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir, alþingis-
maður, fulltrúar frá Akureyrarbæ,
Geðdeild FSA, Klúbbnum Geysi og
Rauðakrossinum. Munu þeir fjalla
um sína framtíðarsýn í málefnum og
þjónustu við fólk með geðraskanir, en
að mati Alþjóða heilbrigðisstofnunar-
Alþjóða geð-
heilbrigðisdagurinn
Opið hús,
kynning og
fundur
innar munu geðsjúkdómar í framtíð-
inni vega einna þyngst hvað varðar
sjúkdómabyrði í heiminum. Pallborð
verður eftir framsögur og munu
frummælendur sitja fyrir svörum.
Meira og minna þekktir listamenn
munu koma fram milli ávarpa.
Laut og Geðverndarfélag Akureyr-
ar standa fyrir dagskránni og verður
Elín Antonsdóttir fundarstjóri.
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 15
UMHVERFIÐ Í Eyjafirði –
þekkjum við ábyrgð okkar á
því? er yfirskrift ráðstefnu sem
haldin verður í Ketilhúsinu á
Akureyri á föstudag, 11. októ-
ber, kl. 9.
Á ráðstefnunni verður fjallað
um umhverfismál í víðu sam-
hengi og meðal annars lögð
áhersla á tengsl umhverfismála
héraðsins við skipulagsmál
þess. Þannig er ráðstefnunni
ætlað að auðvelda sveitar-
stjórnarmönnum, einkum þeim
sem fjalla um skipulags- og
byggingamál, ákvarðanatöku
þegar álitamál koma upp sem
varða samspil manns og nátt-
úru.
Ráðstefnan er samvinnu-
verkefni náttúruverndarnefnd-
ar Akureyrarbæjar, náttúru-
verndarnefndar Eyjafjarðar,
Háskólans á Akureyri, Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands (Ak-
ureyrarseturs) og SUNN
(Samtaka um náttúruvernd á
Norðurlandi).
Ráðstefnan er öllum opin.
Ráðstefna um
umhverfið í
Eyjafirði
.... og afköstin margfaldast!
www.h.is