Morgunblaðið - 10.10.2002, Side 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 19
Árvekni um brjóstakrabbamein
Við kynnum
Pure Color Velvet
fyrir varir og neglur.
Fjórir förðunarfræðingar frá Estée Lauder aðstoða við litaval
fimmtudag, föstudag og laugardag frá kl. 12-18.
Illusionist maskari fylgir öllum varalitum.
www.esteelauder.com
Förðunardagar hjá
í Clöru Kringlunni
Kringlunni. Sími 568 9033
MEIRIHLUTI stjórnar Heilbrigð-
isstofnunar Suðurnesja samþykkti í
gær að leggja til við heilbrigðisráð-
herra að Skúli Thoroddsen verði
skipaður framkvæmdastjóri stofn-
unarinnar.
Staða framkvæmdastjóra Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja, sem
meðal annars rekur sjúkrahúsið í
Keflavík, var auglýst laus til um-
sóknar í haust eftir að gerður var
starfslokasamningur við Jóhann
Einvarðsson sem stýrt hefur stofn-
uninni undanfarin ár. Átta sóttu um
en einn umsækjandi dró síðar um-
sókn sína til baka. Sérstök mats-
nefnd taldi alla umsækjendur hæfa.
Meirihluti stjórnar, fjórir stjórn-
armenn af fimm, samþykkti í gær
að leggja til við ráðherra að Skúli
Thoroddsen, lögfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Miðstöðvar símennt-
unar á Suðurnesjum, verði skipaður
í stöðuna. Einn greiddi Sigríði
Snæbjörnsdóttur atkvæði sitt. Hún
er hjúkrunarfræðingur og starfar
sem framkvæmdastjóri Heyrnar-
og talmeinastöðvar Íslands. Stjórn-
in er skipuð fulltrúum sveitarfélag-
anna á Suðurnesjum nema hvað
ráðherra skipar formann án tilnefn-
ingar.
Auk þeirra sóttu um stöðuna Að-
alsteinn J. Magnússon rekstrarhag-
fræðingur, Óskar J. Sandholt
grunnskólafulltrúi, Sigurður H.
Engilbertsson innheimtustjóri,
Stella Olsen skrifstofustjóri, og
Valbjörn Steingrímsson fram-
kvæmdastjóri.
Tillaga um Skúla
Thoroddsen
Keflavík
Staða framkvæmdastjóra
Heilbrigðisstofnunar
KOSTNAÐUR við að færa þjóð-
veginn sem liggur í gegn um Sand-
gerði er áætlaður 268 milljónir kr.
Þar af er hlutur Sandgerðisbæjar
44 milljónir.
Þessar kostnaðartölur koma fram
í greinargerð um framkvæmdir við
flutning þjóðvegarins, gerð hring-
torgs og fleira sem því tengist sem
lögð hefur verið fram í bæjarráði
Sandgerðis. Verkinu er skipt upp í
þrjá áfanga.
Bæjarráðið fól bæjarstjóra á
fundi síðastliðinn þriðjudag að
koma þessum upplýsingum til sam-
gönguráðherra þannig að fram-
kvæmdin yrði tekin inn á næstu
samgönguáætlun.
Kostar 268 milljónir
að færa veginn
Sandgerði