Morgunblaðið - 10.10.2002, Side 30

Morgunblaðið - 10.10.2002, Side 30
ERLENT 30 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ BÖRN í flóttamannabúðum í Raf- ah á Gaza-svæðinu mótmæla drápi ísraelskra hermanna á tólf ára palestínskri stúlku sem beið bana í skothríð frá ísraelskum skriðdreka í fyrradag. Stúlkan var að leik fyrir utan heimili sitt þegar skothríðin hófst. Ísraelsher sagði að hermennirnir hefðu ver- ið að svara skotárás Palest- ínumanna sem hefðu sært tvo hermenn. Tveir palestínskir drengir biðu bana í skotárás ísraelskra skrið- dreka í Rafah í gær og tuttugu ungmenni særðust. Reuters Blóðs- úthell- ingum mótmælt BUNDINN var í gær með dómsúr- skurði bráðabirgðaendir á verkfall hafnarverkamanna á vesturströnd Bandaríkjanna. Verkfallið hafði í tíu daga lamað 29 helztu hafnir Banda- ríkjanna við Kyrrahaf. Standa verkamennirnir og skipafélög nú frammi fyrir því risavaxna verkefni að skipa upp og út þeim býsnum af vörum sem hrannast hafa upp með- an á verkfallinu stóð. Er talið að það taki allt að tvo og hálfan mánuð að koma vöruflæðinu aftur í eðlilegt horf. Vinnudeilan var farin að hafa það alvarlegar afleiðingar að George W. Bush Bandaríkjaforseti ákvað á þriðjudag að grípa inn í hana. Í fyrsta sinn í 25 ár nýtti Bandaríkja- forseti heimild sem hann hefur sam- kvæmt svokölluðum Taft-Hartley- lögum frá 1947 til að biðja alríkis- dómstól sem hefur lögsögu yfir deiluaðilum að stöðva verkfallið eða vinnustöðvunina í tilvikum þar sem talið er að þjóðaröryggi sé ógnað. Í beinu framhaldi af beiðni forset- ans gaf alríkisdómarinn William Als- up út bráðabirgðaúrskurð um að hlé skyldi gert á verkfallinu til 16. októ- ber. Lögfræðingar beggja deiluaðila sögðust vænta þess að dómarinn myndi síðan úrskurða að sverðin skuli slíðruð í deilunni í 80 daga, en Taft-Hartley-lögin kveða á um slík- an frest. Þetta mun gera kaupmönn- um kleift að fá vörupantanir sínar með skilum í jólavertíðinni. Tjónið mikið „Þessi þjóð getur einfaldlega ekki leyft sér að láta hundruð milljarða framleiðslu og vöruviðskipti falla niður,“ sagði Bush. „Við höfum ein- faldlega ekki efni á því.“ Verkfallið hófst í lok september vegna deilu um innleiðingu nýrrar tækni við upp- og útskipun, er fulltrúar verkalýðsfélaga hafnar- verkamanna telja geta kostað fjölda manns vinnuna. Samkvæmt mati sem unnið var fyrir samtök fragt- skipafélaga olli verkfallið á bilinu eins til tveggja milljarða dala tjóni á dag. Tekjumissirinn vegna hins 10 daga verkfalls hefði alls verið um 19 milljarðar dala, andvirði hátt í 1.700 milljarða króna. Forseti Bandaríkjanna grípur inn í vinnudeilu Hafnirnar opnaðar með dómsúrskurði San Francisco. AP. BANDARÍKJAMAÐUR, Japani og Svisslending- ur hlutu í gær Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir rannsóknir sínar á prótínum er hafa valdið byltingu í þróun nýrra lyfja og lofa góðu um fljótvirkari að- ferðir til að greina sumar tegundir krabbameina. Bandaríkjamaðurinn og Japaninn, John B. Fenn, við Virginiu-háskóla, og Koichi Tanaka, starfsmað- ur Shimadzu-fyrirtækisins í Kyoto, deila með sér helmingi verðlaunafjárins, sem alls er 10 milljónir sænskra króna. Hinn helminginn fær Svisslending- urinn Kurt Wüthrich sem starfar hjá Svissnesku tæknistofnuninni í Zürich og Scripps rannsóknar- stofnuninni í San Diego í Bandaríkjunum. Vegna vísindastarfa þessara þriggja manna geta „efnafræðingar nú á skjótan og öruggan hátt fundið hvaða prótín eru í tilteknu sýni“, segir í tilkynningu Konunglegu sænsku vísindaakademíunnar. „Þeir geta líka búið til þrívíðar myndir af prótínmólik- úlunum í lausn. Þannig geta vísindamenn bæði „séð“ prótínin og komist að því hvaða hlutverki þau gegn í frumunum.“ Fenn og Tanaka gerðu uppgötvanir sínar á síðari hluta níunda áratugarins og gerbyltu greiningar- tækni er kallast massalitrófsmæling og gerir vís- indamönnum kleift að bera kennsl á efni í ljósi massa þess. Fenn og Tanaka uppgötvuðu aðferð til að beita þessari tækni á stór mólikúl. Wüthrich hlaut verðlaunin fyrir að bæta tækni er kallast kjarnsegulherma. Með þeirri tækni geta vís- indamenn búið til þrívíðar myndir af mólikúlum í lausn, sem er hið eðlilega umhverfi prótíns í frumu. Uppgötvun Wüthrichs gerði vísindamönnum kleift að beita þessari tækni á stór mólikúl á borð við prót- ín. Uppgötvanirnar hafa leitt af sér ný lyf og fregnir berast um notagildi hennar í öðrum greinum, þ. á m. við greiningu brjósta- og blöðruhálskirtils- krabbameins og malaríu, að því er sænska aka- demían greindi frá. Nóbelsverðlaunin í efnafræði veitt fyrir rannsóknir á prótínum Stokkhólmi. AP. TVEIR Bandaríkjamenn fengu í gær Nóbelsverðlaunin í hagfræði fyrir rannsóknir sem miðuðu að því að nota sálfræðilega hagfræði og til- raunahagfræði til að útskýra ákvarð- anir og atferli á fjármálamörkuðum. Verðlaunahafarnir eru Daniel Kahneman, 68 ára bandarískur og ísraelskur ríkisborgari, sem starfar við Princeton-háskóla í New Jersey, og Vernon L. Smith, 75 ára prófess- or við George Mason-háskóla í Virg- iníu. Þeir deila með sér verðlauna- fénu, sem er alls tíu milljónir sænskra króna, andvirði 94 milljóna króna. Rannsóknir þeirra hafa sameinað tilraunahagfræði og skilvitlega sál- fræði og hafa auðveldað vísinda- mönnum að treysta minna á athug- anir á raunverulegum mörkuðum við ákvarðanatöku og reiða sig meira á vísindalegar tilraunir á rannsóknar- stofum. Að sögn sænsku vísindaakademí- unnar hefur Kahneman fellt sál- fræðilega þekkingu inn í hagfræðina og lagt þannig grunninn að nýju rannsóknasviði, „einkum hvað varð- ar dómgreind manna og ákvarðana- töku þegar óvissa ríkir“. Hann hafi sýnt að ákvarðanir manna geti verið í ósamræmi við ákvarðanir sem hag- fræðikenningar segja fyrir. „Kahne- man hefur þannig sýnt að þegar óvissa ríkir notar dómgreind manna oft kerfisbundið þumalputtareglur sem samræmast ekki grundvallar- fullyrðingum í líkindakenningum.“ Smith lagði grunninn að tilrauna- hagfræði og sýndi mikilvægi nýrra fjármálakerfa. Rannsóknir Smiths hafa einkum beinst að hlutverki upp- boða, sem hafa lengi verið notuð til að skipuleggja markaði fyrir hráefni eða fjármálakerfi. Slík uppboð eru nú einnig notuð til að afnema einka- leyfi á orkumörkuðum og einkavæða ríkiseinokunarfyrirtæki. Verðlaunin verða afhent í Stokk- hólmi 10. desember. Lögðu grunninn að nýjum rannsókna- sviðum Stokkhólmi. AP, AFP. Daniel Kahneman Vernon L. Smith Nóbelsverðlaunin í hagfræði GRÍSKA rétttrúnaðarkirkjan hefur hafnað kröfu presta um að fá að raka af sér skeggið, losa sig við svörtu hempurnar og pípuhattana og verða nú- tímalegri í útliti. Talsmaður kirkjunnar, Anthimos biskup í Aþenu, sagði að breytinga væri ekki að vænta hvað þetta varðaði. Prestar sem eru óánægðir með hinn hefðbundna klæðn- að segja að hann komi í veg fyrir að þeir nái til venjulegs fólks og auk þess dragi hann úr líkunum á því að þeir geti kvænst. Krafa prestanna var lögð fyrir kirkjuráð á mánu- dag. Prestar grísku rétttrúnað- arkirkjunnar geta aðeins kvænst áður en þeir eru vígð- ir til prests en einungis ein- hleypir prestar geta fetað upp metorðastigann innan kirkjunnar. Andstæðingar prestaskrúð- ans segja að fæstar konur séu fáanlegar til að láta sjá sig með manni með mikið skegg og í svartri hempu. Fá ekki að raka sig Aþenu. AP. John B. Fenn Koichi Tanaka Kurt Wüthrich Uppgötvanirnar hafa valdið byltingu í þróun nýrra lyfja

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.