Morgunblaðið - 10.10.2002, Page 39

Morgunblaðið - 10.10.2002, Page 39
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 39 ÞAÐ vakti athygli þegar Jón Krist- jánsson heilbrigðisráðherra lýsti því yfir í fyrrahaust að markmið heil- brigðisáætlunar í öldrunarþjónustu til 2010 myndu ekki nást vegna fjár- skorts, nema að nýir aðilir og nýjar aðferðir kæmu til skjalanna. Stjórn Hjálparstarfs kirkjunnar tók þetta ákall til sín og fékk Dögg Pálsdóttur lögmann til að skoða það álitaefni hvort kirkjan ætti að taka meiri þátt í öldrunarþjónustu en verið hefur. Niðurstaða hennar var sú að söfnuðir kirkjunnar ættu fyrst og fremst að taka ný skref í opinni öldrunarþjón- ustu. Tillaga til þingsályktunar þar að lútandi er til umfjöllunar á kirkju- þingi sem fram fer nú í október. Samtök yngri aldraðra Þjóðkirkjan og stofnanir hennar hafa um árabil látið mikið til sín taka í opinni öldrunarþjónustu, þótt hvergi sé þeirrar starfsemi getið í opinberu yfirliti um þessa þjónustu. Í Reykja- víkurprófastsdæmum hefur verið boðið upp á starf fyrir aldraða í nokkrum kirkjum í a.m.k. tvo áratugi. Starfið er af ýmsum toga: Reglulegar samverustundir fyrir aldraða og vinaheimsóknir, þ.e. heimsóknir á heimili aldraðra einstaklinga í söfn- uðinum, t.d. eftir að viðkomandi hefur útskrifast af sjúkrahúsi. Þess hefur orðið vart í vaxandi mæli að ungir aldraðir, þ.e. þeir sem eru rétt liðlega 70 ára að aldri, bjóða fram þjónustu sína til þessara starfa. Sambærileg þjónusta mun rekin í ýmsum söfnuðum víða um land. Spyrja má hvort ekki sé tímabært að hlutast verði til um það af hálfu safn- aða að stofnuð verði samtök yngri aldraðra sem hafi það hlutverk að veita þeim sem elstir eru stuðning innan ramma opinnar öldrunarþjón- ustu. Tvíþætt áhersla Áherslan í öldrunarþjónustu næsta áratuginn er tvíþætt. Annars vegar er lögð áhersla á stuðningsþjónustu við aldraða sem búa heima, sb. for- gangsmarkmiðið að 75% aldraðra séu við svo góða heilsu að þeir geti með viðeigandi stuðningi búið heima. Hins vegar er lögð áhersla á stuttan bið- tíma, þannig að hann verði aðeins þrír mánuðir eftir hjúkrunarrými fyrir aldraðan einstakling sem metinn hef- ur verið í brýnni þörf fyrir slíka vist. Þess er að vænta að gert sé ráð fyrir að efling stuðningsþjónustu eigi að styðja við markmið um stutta bið eft- ir hjúkrunarrými. Því öflugri sem op- in öldrunarþjónusta er þeim mun lengur getur aldraður einstaklingur búið heima. Hlutfallslega fleiri hér á landi búa á stofnunum en annars staðar á Norð- urlöndunum. Líklegt er að þetta muni breytast á næstu árum og það kallar einnig á meira framboð af op- inni öldrunarþjónustu en nú er fyrir hendi. Mörg sóknarfæri Starf kirkjunnar í þágu aldraðra hefur verið fjármagnað af söfnuðun- um sjálfum. Opinberir aðilar hafa ekki komið þar að máli með fjárfram- lögum. Við vitum að vaxandi verkefni eru framundan í opinni öldrunarþjón- ustu. Efla þarf þjónustu heimilis- hjálpar og heimahjúkrunar. Slík þjónusta verður væntanlega áfram á vegum heilsugæslustöðva sem ríkið fjármagnar. Önnur þjónusta, svo sem félagsmiðstöðvar aldraðra, dagvistir og skammtímavistun, eru úrræði í opinni öldrunarþjónustu sem aðrir aðilar en hið opinbera gætu tekið að sér, annaðhvort gegn greiðslu frá ríki eða sveitarfélögum eða gegn greiðslu frá hinum aldraða sjálfum. Sóknarfærin eru mörg í þessu sambandi. Sérstaklega gæti verið at- hugunarefni að brydda upp á nýjung- um í starfi á þessu sviði, nýjungum sem rúma sjálfboðastarf og hefðu að markmiði ódýrari þjónustu en þó góða þjónustu. Hér hefur verið horft til safnaða þjóðkirkjunnar en auðvit- að eru fleiri líknar- og félagasamtök á Íslandi vel í stakk búin til þess að taka að sér verkefni í opinni öldrun- arþjónustu. Þannig sýnum við þeim sem byggðu landið þá virðingu og þökk sem þau eiga skilið. Opin öldrunar- þjónusta og aðstoð frá yngri öldruðum Eftir Einar Karl Haraldsson Höfundur er stjórnarformaður Hjálparstarfs kirkjunnar. „Starf kirkj- unnar í þágu aldraðra hef- ur verið fjár- magnað af söfnuðunum sjálfum.“ FORMAÐUR Sjálfstæðisflokks- ins, Davíð Oddsson, hefur kallað við- leitni Samfylkingarinnar til þróa nýj- ar lýðræðisleiðir við ákvörðun um stefnu flokksins til aðildarumsóknar að Evrópusambandinu „gervipóst- kosningu“ sem „kemur lýðræðinu ekki við“. Ljóst er að honum er mikið í mun að gera sem minnst úr áhuga nú- tímalegra lýðræðissinna sem stuðla vilja að virkara lýðræði og tíðari sam- skiptum stjórnmálaflokka og stjórn- valda við þegna landsins. Morgun- blaðið á þakkir skyldar fyrir frumkvæði að umræðu um virkt og nútímalegt lýðræði en þrjú ár eru lið- in frá því blaðið birti ítarlegan greina- flokk um málið. Óhætt er að segja að póstkosning Samfylkingarinnar um aðildarviðræður að ESB sé m.a. svar við ákalli Morgunblaðsins. En hvers vegna reynir Davíð Odds- son að láta sem lýðræðisviðleitni Samfylkingarinnar sé lítils virði. Erf- itt er að trúa því að það sé vegna þröngsýni hans og fastheldni á það form lýðræðis sem þróaðist einkum á síðustu öld. Líklegasta skýringin er að Davíð óttast hinn lýðræðislega vilja í þessu máli. Hann veit að erfitt er að sigra í alþingiskosningum á þessu máli en á hinn bóginn hafa skoðanakannanir ítrekað sýnt vilja meirihluta Íslendinga á að hefja við- ræður við ESB um aðild. Og það sem meira er að í hans eigin flokki er, sam- kvæmt könnunum, stærri hópur stuðningsmanna aðildarumsóknar en andstæðinga. Davíð er því í minni- hluta í sínum flokki með sína afdrátt- arlausu andstöðu við ESB. Undrast þá nokkur andstöðu hans við lýðræð- islegar nýjungar sem gætu beint at- hyglinni að stöðu hans í eigin flokki, – nýjungar sem gætu afhjúpað hvernig formaður Sjálfstæðflokksins fer of- fari í einu mikilvægasta viðfangsefni íslenskra stjórnmála og það í blóra við meirihluta félagsmanna í eigin flokki. Póstkosningin afhjúpar Davíð Eftir Ásgeir Friðgeirsson Höfundur er ritstjóri og í framboði í flokksvali Samfylkingarinnar í Suð- vesturkjördæminu. „Líklegasta skýringin er að Davíð ótt- ast hinn lýð- ræðislega vilja í þessu máli.“ Fyrir flottar konur Bankastræti 11  sími 551 3930 Tilboð Jólakort og merkimiðar Í öllum verslunum Hagkaupa Almennt verð 2.999,- Tilboðs- verð 1.499,- Í hverjum pakka eru 20 blönduð jólakort og 18 merkimiðar. Til styrktar Umhyggju - félag til stuðnings langveikum börnum. A FJ Ó RI R

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.