Morgunblaðið - 10.10.2002, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 10.10.2002, Qupperneq 44
MINNINGAR 44 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Helgi Krist-bjarnarson fæddist í Reykjavík 25. júní 1947. Hann lést á heimili sínu 30. september síðastlið- inn. Foreldrar Helga voru Kristbjörn Tryggvason barna- læknir og prófessor, f. 29.7. 1909, d. 23.8. 1983, og kona hans, Guðbjörg Helgadótt- ir Bergs húsmæðra- kennari, f. 6.3. 1919, d. 13.7. 2002. Systur Helga eru Fanney, f. 24.9. 1949, og Halla, f. 24.3. 1951. Árið 1969 kvæntist Helgi Sig- ríði Sigurðardóttur kennara, f. 12.8. 1946. Foreldrar hennar eru Sigurður Gunnarsson, f. 10.8. 1923, d. 6.8. 1980, og Sigríður Ólafsdóttir, f. 10.12. 1921. Börn þeirra Helga og Sigríðar eru: 1) Birna, líffræðingur, f. 1.10. 1969, eiginmaður Rögnvaldur J. Sæ- mundsson verkfræðingur, f. 3.3. 1968, synir þeirra eru Sæmund- ur, f. 1991, Sölvi, f. 1994, og Kári, f. 2001. 2) Tryggvi, læknir, f. 5.9. 1971, sambýliskona Ásta Katrín Hannesdóttir háskólanemi, f. 29.1. 1975, sonur þeirra er fædd- ur 2002. 3) Halla, háskólanemi, f. 4.10. 1976, sambýlismaður Andr- eas Michaelis háskólanemi, f. 8.12. 1974. 4) Kristbjörn, há- skólanemi, f. 2.4. 1979, sambýlis- kona Inga María Leifsdóttir blaðamaður, f. 5.9. 1977. Helgi ólst upp á heimili for- eldra sinna á Miklubraut 48 í Reykjavík. Hann tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1967 og embættispróf frá læknadeild Háskóla Íslands árið 1975. Helgi lauk doktors- námi í taugalífeðlis- fræði frá Karol- inska Institutet í Stokkhólmi árið 1983 og varð sér- fræðingur í geð- lækningum árið 1986. Hann starfaði sem læknir á geð- deild Landspítalans frá 1981– 1996 og kenndi við Háskóla Ís- lands. Helgi átti stóran þátt í uppbyggingu svefnrannsókna á Íslandi og stóð fyrir rannsókn- arstofu á því sviði á geðdeild Landspítalans. Hann var frum- kvöðull að útgáfu Íslensku lyfja- bókarinnar sem fyrst kom út 1985. Árið 1994 stofnaði Helgi fyrirtækið Flögu hf. til að þróa og smíða nýja gerð svefnrann- sóknartækja og var forstjóri fyr- irtækisins til ársins 2001. Vís- indagreinar eftir Helga hafa birst í fagritum víða um heim og honum hafa verið veittar ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín, m.a. frá Rannsóknaráði Íslands og Samtökum iðnaðarins. Með verkum sínum stuðlaði Helgi að vexti og framþróun íslensks heil- brigðistækniiðnaðar. Útför Helga fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. „Mínir vinir fara fjöld, feigðin þessa heimtar köld,“ segir Hjálmar Jónsson frá Bólu í einu kvæða sinna. Fallvaltleiki mannlegrar tilveru hefur um aldir verið öllum hugsandi mannverum hugleikinn; Hjálmar kallaði sig Feig Fallandason eins og til að undirstrika eigin forgengileika. Séra Hallgrímur Pétursson leggur í sálmum sínum og veraldlegum kveð- skap áherslu á óvissan tíma lífs og dauða. „Leikur líf á þræði, en lukkan völt er,“ segir hann einhvers staðar. Í þessum brothætta heimi skiptir mestu að rækta vitundarsamband sitt við Guð og góða menn. „Freist- ing þung ef þig fellur á, forðastu einn að vera þá;“ segir séra Hallgrímur. Fátt er skelfilegra en örvinglan og einmanaleiki þess sem finnur sig yf- irgefinn af Guði og mönnum. Nú á ævilokum vinar míns Helga Kristbjarnarsonar skynja ég betur en áður gildi vináttunnar í heimi breytileikans. Við Helgi kynntumst í upphafi læknanáms fyrir liðlega 30 árum þegar við fundum hvor annan. Ég skynjaði hversu skarpgreindur og skapandi Helgi var og óhræddur við að nálgast viðfangsefnin á fersk- an hátt. Stúdentapólitík heillaði okk- ur báða og án mikillar umhugsunar æddum við á foraðið. Helgi var efsti maður á framboðslista meintra vinstrimanna en ég var áróðursstjóri og ritstjóri lítils kosningablaðs. Við töpuðum þeim slag naumlega vegna dirfskufulls dómgreindarleysis rit- stjórans og þessi ósigur tengdi okkur æ síðan. Við tókum við útgáfu blaðs læknanema nokkru síðar og breytt- um því úr steinrunnu tímariti fyrir verðandi embættismenn og smá- borgara í nýstárlegt málgagn þeirr- ar stúdentabyltingar sem þá skók heiminn. Við vorum óhræddir við að ráðast á gamlar hefðir og gildi og skoruðum heiminn á hólm. Blaðið varð málsvari þeirra sem neituðu að beygja sig undir viðteknar hefðir og höfnuðu óskeikulleika handhafa valdsins. Það var ekki að ófyrirsynju að verðir hefðbundinna gilda ís- lenskrar læknastéttar sögðu alls ör- yggis vegna okkur báða gengna af göflunum. Á þessum árum var Helgi oftar en ekki hugmyndasmiður fyrst og fremst en ég gekk til fram- kvæmdanna. Saman komum við mörgu í verk; gáfum út blöð, mót- mæltum mótmælanna vegna, stofn- uðum félög félaganna vegna og sótt- um hvor annan heim og góðar hugmyndir. Ég vissi að á heimili hans átti ég mér ávallt grið, og þangað gat ég leitað í hlýju og mannvit hans og Sig- ríðar, hvort heldur heimurinn var mér andsnúinn eða hampaði mér um stund. Hjónaband þeirra Helga og Sigríðar einkenndist af gagnkvæmri virðingu og hugarflug Helga jarð- tengdist fyrir tilstuðlan Sigríðar. Þau voru um margt ólík en kostir þeirra beggja fengu að njóta sín ein- mitt þess vegna. Tíminn leið áfram og við héldum til sérnáms hvor í sína áttina og sner- um síðan aftur heim. Lífið bjó okkur ólíka umgjörð en gömul vinátta tengdi okkur í gleði og sorg daganna. Um tíma skildi leiðir en vináttan var byggð á þeim kærleika sem fyrirgef- ur allt og umber allt svo að við huns- uðum ósættið. Samskiptin fengu aðra birtingu með breyttum forsend- um. Ég fann á þessu tímabili ósættis að hallur stóð ég Helgalaus. Ítarleg umræða og athuganir hans skiptu mig óendanlega miklu í dagsins önn. Síðasta árið þjáðist Helgi af þeim sjúkdómi sem að lokum dró hann til bana. Á þessu tímabili hittumst við oft og veltum fyrir okkur lífi okkar og lifun, pro og contra. Við vorum á sumum sviðum manna ólíkastir en kannski fundum við það hvor í ann- ars fari sem við söknuðum í okkur sjálfum. Sameiginlegur vinur okkar Helga, meistari Megas, segir einhvers stað- ar: Mitt ævistarf er orðið næsta nóg og nú mun ráð að tygja sig til farar því sá er meiri er sekkur djúpin í; með sínum knerri þeim er í hálfu kafi marar. Helgi ákvað að hann vildi ekki mara í hálfu kafi og hratt þeirri ákvörðun sinni í framkvæmd eins og hann var ávallt vanur að gera. Frá því að andlátsfregnin barst mér hef ég verið að reyna að hugsa mig í sátt við þessa ákvörðun vinar míns eins og ég aðlagaði mig svo oft að hugviti hans og dirfsku. Hjálmar Jónsson frá Bólu harm- aði brottför vina sinna í hendingun- um sem vitnað er til hér að ofan. Þessar línur komu mér í huga þegar Helgi dó einungis ári á eftir hollvini okkar Ásbirni Sigfússyni. Hjálmar heldur áfram og segir: – eg kem eftir, kannske í kvöld, með klofinn hjálm og rifinn skjöld, brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld. Lífið og baráttan halda áfram og tilveran er öðruvísi nú en áður. Fjöl- skyldan á alla samúð okkar Ernu. Minningin um mannkosti Helga Kristbjarnarsonar mun gera sorgina léttbærari og greiða leiðina til góðs. Óttar Guðmundsson. Dýrmætar eru minningarnar sem Helgi Kristbjarnarson skilur eftir sig. Spor hans lágu víða, hæfileikarn- ir ríkir, en mest um verð var mann- eskjan sjálf. Helgi var hlédrægur og fámáll við fyrstu kynni. Hann var djúphugull gáfumaður, frumlegur og skapandi, grúskari og uppfinningamaður, en umfram allt heilsteyptur, hlýr og traustur. Enginn kunni betur að hlusta. Hann tók sér ótrúlega margt fyrir hendur og virtist hafa hæfileika í nánast öllu; söng, leiklist, skák og ljósmyndun, svo fátt eitt sé nefnt. Það var veturinn sem við Helgi vorum í 5. bekk í MR og Sigga í 6. bekk að kynni okkar tókust. Betri og traustari vinir eru vandfundnir. Það voru sameiginlegar hugsjónir sem tengdu okkur. Helgi og Sigga voru í 12 manna hópi sjálfboðaliða sem hófu starf Tengla á Kleppsspítalan- um í ársbyrjun 1966. Það átti síðan eftir að breiðast út til fleiri stofnana og í samfélagið. Markmiðið var að rjúfa félagslega einangrun geð- sjúkra, efla mannréttindi þeirra og vinna gegn fordómum. Helgi leiddi Tengla í sérstöku átaki vorið 1968 þegar koma þurfti fræðslu um breytinguna yfir í hægri umferð til allra þeirra sem af ein- hverjum ástæðum voru einangraðir í samfélaginu. Í leiðinni stóð Helgi fyrir því að gerð var könnun á högum aldraðra í Reykjavík með viðtölum við þá sjálfa, sem var nýlunda. Eftir eins árs nám í læknisfræði við HÍ tókst Helgi á hendur forystuhlut- verk í stúdentapólitíkinni er hann haustið 1969 varð oddviti vinstri manna fyrir hið nýstofnaða félag, Verðandi. Sigga var lífsförunautur Helga í víðasta skilningi þess orðs, hún var með honum í nánast öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Hamingja þeirra blómstraði frá fyrstu tíð og barnalánið var einstakt. Það voru dásamleg forréttindi að vera auka- félagi í stórfjölskyldunni og fá að fylgjast með Birnu, Tryggva, Höllu og Kristbirni frá fyrstu tíð, hverju öðru efnilegra og yndislegra. Nú eru þau öll á góðri leið með að eignast fjölskyldu og það er eins og andblær- inn af Miklubrautinni ætli ekki að segja skilið við þau. Í lífsstarfi Helga tókust á tveir meginþættir og fengu báðir að njóta sín, vísindin og manneskjan. Sér- grein Helga í læknisfræði var geð- lækningar. Virðing, skilningur og hlýja gagn- vart sjúklingum einkenndi öll hans störf. Hann lagði einnig drjúgan skerf til áfengis- og vímuefnalækninga, þótt vísindastörf og uppfinningar yrðu fyrirferðarmeiri með árunum. Glæsi- legan bautastein reisti Helgi sér með því framfarafyrirtæki sem Flaga er og mun hugmyndaauðgi hans og snilld meðfram manneskjulegri stjórnun svífa þar yfir vötnum um mörg ókomin ár. Þegar Helgi er nú hrifinn burt af grimmum sjúkdómi sem herjað hef- ur á hann í meira en ár og valdið óumræðilegri kvöl, þá er dauðinn frelsi. Harmurinn er þungbær þeim sem eftir standa og sjá á eftir slíkum öð- lingi, afbragðsdreng og afreksmenni í blóma lífsins. Það er vandséð hvernig skarðið verður fyllt. En huggun er það harmi gegn að líta til barna Helga og barnabarna og sjá og finna hvernig hann lifir áfram í þeim mannvæna hópi. Elsku Sigga mín. Guð varðveiti þig og styrki og láti verndarengla sína vaka yfir ykkur öllum. Vinurinn minn góði, ég þakka þér allt. Þú skil- aðir þínu, hvíldu nú í friði. Sveinn Rúnar Hauksson. Fyrir 16 árum gerðist ég tíður gestur á Miklubrautinni. Ég var þá kærastinn sem gerði hosur sínar grænar fyrir elstu dótturinni á heim- ilinu. Það gekk vel að kynnast dótt- urinni en verr að kynnast Helga föð- ur hennar. Helgi var afar þögull og reyndist oft erfitt fyrir hinn tilvon- andi tengdason að brydda upp á heppilegum umræðuefnum. Það var því lítið annað að gera en að skoða í bókahillurnar á Miklubrautinni. Þar leyndust þó ýmis sameiginleg áhuga- mál og efni í margar samræður sem urðu upphafið að áralangri vináttu okkar Helga. Helgi lét sér þó ekki nægja að grúska í bókum og spjalla. Hann var alltaf að gera eitthvað óvenjulegt. Þegar ég hugsa til baka þá var Helgi alltaf að berjast fyrir að gera flókna hluti einfalda og láta þar með gott af sér leiða. Hvort sem það var notkun Macintosh-tölva, útgáfa lyfjabókar fyrir almenning, rannsóknir í geð- læknisfræði, svefnrannsóknir, smíði svefnrannsóknartækja eða rekstur og stjórnun Flögu þá einkenndust þessi verkefni af þeirri grunnhugsun hans að flóknir hlutir þyrftu ekki að vera flóknir ef maður bara hugsaði þá á nýjan hátt. Hann var afskaplega trúr þessari sannfæringu sinni og hafði hana ávallt að leiðarljósi. Ég fékk tækifæri til þess að taka þátt í sumum af þessum verkefnum með Helga. Það var mér dýrmæt reynsla sem ég er mjög þakklátur fyrir. Ég á eftir að sakna nýrra hug- mynda frá Helga, en ég á fyrst og fremst eftir að sakna góðs vinar með stórt hjarta sem var óhræddur við að láta það ráða ferðinni. Rögnvaldur J. Sæmundsson. Helgi Kristbjarnarson mágur minn er til grafar borinn í dag eftir sviplegt og ótímabært andlát hinn 30. september. Það er mikill harmur kveðinn við andláts slíks öðlings sem Helgi var. Engu að síður ber að þakka fyrir að hafa tengst Helga og kynnst mannkostum hans. Vísindamaðurinn Helgi Krist- bjarnarson var flestum kunnur og þarf ekki að fjölyrða um hæfileika hans á því sviði. Rannsóknir hans og uppbygging hátæknifyrirtækisins Flögu vitna um einbeitni hans, snilld og áræði sem einungis örfáum er gefið. Mannvinurinn Helgi Kristbjarn- arson var e.t.v. ekki eins sýnilegur öllum. Það er hins vegar áberandi að leiðarljós Helga í öllu, sem hann hef- ur tekið sér fyrir hendur, er bættur hagur samferðafólksins. Áhugamál hans og störf hafa einnig markast af sterkri réttlætiskennd og umhyggju fyrir samborgurunum, smáum sem stórum. Margir hafa leitað til hans með ýmiss konar vanda og notið góðs af hæfileikum hans til að hlusta, íhuga, rökræða og gefa góð ráð. Heimilisfaðirinn og fjölskyldu- maðurinn Helgi er þó það dýrmæt- asta sem eftir stendur í minningunni þegar hann kveður sína nánustu. Samheldni hans og Siggu systur minnar var einstök og heimili þeirra einkennist ekki síst af þeim hlýja og rólega anda sem ávallt fylgdi Helga. Þar eiga allir skjól og þar hafa börn þeirra fjögur notið fádæma góðs at- lætis og fengið þann styrk sem nú hjálpar þeim á erfiðum stundum. Það eru mikil verðmæti sem Helgi hefur skilað til samfélagsins. Hann hefur rutt braut á sviði svefnrann- sókna og hátækniiðnaðar og sinnt læknis- og mannúðarstörfum af eld- móði og alúð. Síðast en ekki síst hef- ur hann með eigin lífsmáta gefið börnum sínum og eftirlifendum skýra sýn á verðmæti lífsins. Sú sýn felst í að leita kjarna hvers máls, setja markið hátt en miklast þó ekki af verkum sínum. Þökk sé þér, kæri mágur. Hvíl í friði. Ólafur Sigurðsson. Helgi Kristbjarnarson, þessi ljúfi, greindi og góði maður, hefur verið hrifinn burtu. Eftir stendur hnípinn hópur sem unni honum og mat svo mikils verk hans, góðan hug og gjörðir. Leiðir okkar hafa legið saman í 30 ár í gegnum nám, störf og vinátt- ustundir. Síðustu árin bættist enn við stundirnar þegar börnin okkar Inga María og Kristbjörn ákváðu að leiðast saman í gegnum lífið. Þá kynntumst við enn einni hlið á Helga og fleirum af hans góðu eiginleikum. Á öllum samverustundum okkar hef- ur hann borið með sér svo mikla hlýju og góðvild og áhugi hans á vel- ferð annarra var einstakur. Lífsganga hans bar vott um heil- steypta lífssýn. Hann afrekaði mikið í lífinu á sinn hljóða og fágaða hátt með Sigríði ávallt sér við hlið. Ber þar hæst uppeldi fjögurra barna og stuðning og alúð við tengdabörn og barnabörn. Hann var vinur vina sinna og átti stóran sess í hjarta allra í vinahópnum. Helgi var með greind- ari mönnum og átti frumkvæði að svo mörgu til framfara og aukinna gæða innan heilbrigðisþjónustunnar. Eftir hann stendur mikill þekking- arforði sem framtíðin mun njóta ávaxta af. Áhugi Helga á listum og listsköp- un var mikill og voru menning og listir stór þáttur í lífi hans. Hann skildi betur en margir aðrir hve mik- ið og óeigingjarnt starf liggur þar oft að baki. Því studdi hann með beinum og óbeinum hætti ýmiss konar lista- og menningarstarf. Hann leitaði aldrei eftir hrósi, þakklæti eða við- urkenningu en naut stundanna og þess að geta lagt eitthvað af mörkum til að auðga samfélagið af menning- ar- og listrænum gildum. Fjölskyldan, vinir, heilbrigðis- þjónustan, heilbrigðisvísindaheim- urinn og samfélagið hafa misst svo ótrúlega mikið við fráfall hans. Við biðjum góðan guð að blessa minningu Helga Kristbjarnarsonar og styðja alla þá er hann unni og hon- um unnu. Vilborg og Leifur. Ég man í sjálfu sér ekki mikið eftir samskiptum okkar frændanna á mín- um uppvaxtarárum. Helgi var nokkru eldri en ég, og mér finnst hann einhvern veginn alltaf hafa ver- ið þessi yfirvegaði geðlæknir sem hlaut að skilja mannshugann svo miklu betur en ég. Af og til upplifði ég allt aðrar hliðar á honum eins og þegar hann beitti sér fyrir hvala- vernd, eða þegar hann gaf mér ætt- artré okkar langt aftur í aldir, sem hann hafði lagst yfir og komið á tölvutækt form löngu á undan flest- um samferðamönnum okkar. Það var svo á síðasta áratug að samskipti okkar jukust til muna. Á sama tíma og ég var við viðskipta- tengt nám og ráðgjafastörf í Banda- ríkjunum hafði Helgi stofnað Flögu og hafið framleiðslu á hátæknilækn- isfræðitækjum, af því að honum fannst þau tæki sem hann notaði ekki nógu góð! Í fríum hér heima frá ys og þys bandarískra hátæknifyr- irtækja fannst mér frábært að hitta rólynda Helga og heyra hvernig Flaga hafði byggst upp síðan við hitt- umst síðast, skref fyrir skref, jafnt og örugglega. Það er mikið afrek að með nýlegum kaupum á bandarísk- um keppinaut skuli Flaga hafa tekið afgerandi forystu á sínu sviði í heim- inum. Ég lærði mikið í viðskiptum af Helga, sem hafði einstaklega heil- brigt viðhorf til rekstrar fyrirtækja. Meginmarkmið hans í viðskiptum var ekki að hagnast heldur að láta gott af sér leiða. Honum var það hjartans mál, að allir sem áttu sam- skipti við hann, hvort heldur voru starfsmenn, fjárfestar eða viðskipta- vinir, nytu góðs af. Helgi var varfær- inn og mátti ekki til þess hugsa að standa ekki við sitt. Hann fjárfesti nokkuð í líftækni og eftir hrun þess markaðar var honum kappsmál og léttir að selja aðrar eignir sínar til þess að standa við allar skuldbind- ingar sem þessum fjárfestingum fylgdu. Helgi var hins vegar ótrúlega óvæginn í eigin garð og þótt hann sýtti ekki tapaða fjármuni sína tók hann afar nærri sér tap annarra sem lagt höfðu í sams konar fjárfestingar og hann sjálfur. Ég kveð Helga með söknuði og sorg í hjarta. Eftir stendur minning- in um einstakan persónuleika og kæran frænda sem ég mun ávallt hugsa til og segja frá fullur stolts. Jón Gunnar Bergs. HELGI KRISTBJARNARSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.