Morgunblaðið - 10.10.2002, Page 51

Morgunblaðið - 10.10.2002, Page 51
samskiptum við bæði starfsfólk og viðskiptavini. Þar kom hann fram af sömu kurteisi og virðingu við alla, hver sem átti í hlut. Þessi glæsilegi maður með hlýja brosið var hvers manns hugljúfi og var góður vinur okkar allra sem við fyrirtækið störf- um. En Gunnar var líka slyngur samningamaður sem er aðalsmerki góðra stjórnenda. Þegar menn hafa skilað svo góðu dagsverki finnst manni sanngjarnt að þeir fái að njóta efri áranna, uppskera í líkingu við það sem þeir hafa sáð. En þannig er það ekki alltaf. Gunnar lét af störfum 68 ára gamall og áttu þá flestir von á því að hann ætti góð ár fyrir höndum. En fljótlega lét það á sér kræla meinið sem nú hefur fellt þennan góða mann. Um leið og við þökkum Gunnari Steingrímssyni fyrir vináttuna, sam- fylgdina og samstarfið færum við Halldóru Óladóttur og fjölskyldu hans allri innilegustu samúðarkveðj- ur. F.h. starfsfólks og stjórnar Ó. Johnson & Kaaber, Ólafur Ó. Johnson. Minningin um Gunnar er okkur mjög hugstæð. Hann var maður vin- sæll í starfi og framúrskarandi fjöl- skyldufaðir. Hjónaband Gunnars og Halldóru var afar ástríkt. Samheldni þeirra var til fyrirmyndar og virðing þeirra hvors fyrir öðru var öllum ljós. Fyrir allmörgum árum varð Halldóra heilsutæp og þá sýndi Gunnar af sinni eðlislægu nærfærni hversu mikill hjúkrunarmaður hann var í sambandi við heilsubetrun konu sinnar. Varla hefði hann grunað þá, að alllöngu seinna myndi þetta snúast við. Síðast- liðin þrjú ár hjúkraði hún Gunnari í illvígum sjúkdómi hans. Það var aðdá- unarvert að fylgjast með því hve hún stóð sig eins og hetja og var afgerandi í að líkna Gunnari síðustu árin. Þau ætluðu að njóta efri áranna í nálægð barna og barnabarna, en gátu það ekki nema alltof – alltof stutt. Guð ræður för. María Anna, Hákon og fjölskylda. Í þann góða hóp sem voru frum- byggjar í Hæðarbyggð í norðanverð- um Garðabæ vantar nú einn. Til moldar er borinn í dag Gunnar Stein- grímsson, vinur okkar og samherji. Sorgarstund og saknaðar hvílir yfir okkur öllum. Enginn er ber að baki sem átti Gunnar og þau hjónin að vin- um. Réttsýni Gunnars, sanngirni og mannúð kom sér oft vel og kært er að minnast Gunnars sem persónulegs vinar. Hefðbundin var samkoma fé- laganna í götunni á gamlársdag, þeg- ar við litum yfir farinn veg og fögn- uðum framtíðinni. Gætti þá áhrifa fagurkeranna, Gunnars og Halldóru, sem bjuggu heimili sítt af slíkri smekkvísi að við er brugðið. Segja má þó að vináttan og tryggðin sé dýrasta gullið sem lagt er í hinn mikla eilífð- arsjóð. Gunnar hefur átt við vanheilsu að stríða um skeið, sem bæði reyndi á líkamsþrek hans og sálarstyrk. Var honum þá dýrmætt að eiga óvenju umhyggjusama eiginkonu og ágætar dætur. Samband þeirra hjóna var al- úðlegt og svo gott að allir sem til þess þekktu urðu af betri menn. Já, Gunn- ar var góðfús maður og drengur góð- ur. Við félagarnir í götunni sendum þér, Halldóra, og dætrum ykkar ein- læga vinarkveðju á erfiðri stund. Emilía og Karl, Stella og Pétur og Þórunn og Örn. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 51 Genginn er góður drengur Gunnar til feðra sinna. Öðlaðist gæfu um ævi, ötull, þarfur í starfi. Hreinskiptinn hlaut giftu, hann tregum sárlega. Drengur góður er genginn, gull af manni – með sanni. Leifur Eiríksson. HINSTA KVEÐJA  Fleiri minningargreinar um Gunnar H. Steingrímsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ÞAÐ ER yfirleitt fjör á fimmtudags- morgnum í safnaðarheimili Háteigs- kirkju. En þar hittast stundum pabb- ar, en þó aðallega mömmur um tíuleytið yfir kaffibolla, spjalli og leikjum með börnunum. Með foreldramorgnunum vill Há- teigskirkja leggja sitt af mörkum til þess að styrkja og efla mikilvægi foreldrahlutverksins. Hér gefst for- eldrum tækifæri til þess að kynnast öðrum foreldrum úr hverfinu. Og oftar en ekki haldast þessi kynni: Börnin fara á sama leikskóla eða í sama skóla, sækja í sömu íþrótta- félögin og alls staðar koma foreldr- arnir saman til þess að styðja við og styrkja starf viðkomandi aðila. Þá er ekki síður mikilvægt fyrir mömmurnar að hafa stund og stað til þess að ræða þær áskoranir sem fylgja því að hafa verið ólétt, vera með barn á brjósti, vera uppgefin eftir vökunætur og læra hver af ann- arri um leiðir til þess að gleðjast enn frekar yfir krílunum. Og ekki spillir fyrir að Anna Eyjólfsdóttir hjúkr- unarfræðingur er á staðnum og get- ur upplýst um eitt og annað eins og hjúkrunarfræðinga sem sinna ung- barnastarfi er von og vísa. Lítil helgistund í kirkjunni í um- sjón Guðrúnar Helgu Harðardóttur, þar sem foreldrar og börn setjast fyrir framan altarið, syngja saman og fara með bæn er mikilvægur lið- ur á foreldramorgnunum, for- eldrum til uppbyggingar og börn- unum til blessunar. Foreldramorgnar eru í Setrinu, á neðri hæð safnaðarheimilis Háteigs- kirkju alla fimmtudaga frá 10 til 12. Góð aðstaða er fyrir barnavagna fyrir utan Setrið. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar um for- eldramorgnana og annað starf í Há- teigskirkju er að finna á vefslóðinni hateigskirkja.is Einnig gefur starfs- fólk Háteigskirkju upplýsingar í síma 511 5400. Opið hús hjá Nýrri dögun FIMMTUDAGINN 10. október verð- ur haldið opið hús á vegum Nýrrar dögunar, samtaka um sorg og sorg- arviðbrögð. Þar gefst syrgjendum kostur á að koma saman og ræða stöðu sína í litlum hópum undir handleiðslu reyndra aðila úr stjórn samtakanna. Opnu húsin hefjast kl. 20 og standa til kl. 22 og eru haldin í safnaðarheimili Háteigskirkju, 2. hæð. Félagsstarf aldraðra í Neskirkju FÉLAGSSTARF aldraðra í Nes- kirkju verður laugardaginn 12. október, kl. 14. Jóna Hansen kennari segir frá ferð sinni um slóðir Vestur- Íslendinga í Kanada og Bandaríkj- unum. Borin verður fram léttur málsverður. Þeir sem ætla að neyta matarins þurfa að tilkynna þátttöku í síma 511 1560. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Halldórsson. Krossinn heimsækir Ísafjörð KROSSINN mun sækja Salemsöfn- uðinn á Ísafirði heim laugardaginn 12. október. Sönghópur Krossins mun flytja tónlist og Gunnar Þor- steinsson predikar. Samkoman hefst kl. 20 og allir eru hjartanlega vel- komnir. Foreldramorgnar í Háteigskirkju Háteigskirkja í Reykjavík. KIRKJUSTARF Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10– 12 í umsjá Lovísu Guðmundsdóttur. Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurs- hópa kl. 14–16 í safnaðarheimilinu Lækj- argötu 14a. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Léttur málsverður í safnaðarheimili að stundinni lokinni. Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 20. Langholtskirkja. Foreldra- og barnamorg- unn kl. 10–12. Umsjón hefur Ágústa Jónsdóttir. Söngstund með Jóni Stefáns- syni. Kaffisopi í boði kirkjunnar. Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Gunnar Gunnarsson leikur á orgel milli kl. 12 og 12.10. Að bænastund og altarisgöngu lokinni er léttur hádegisverð- ur í safnaðarheimilinu. Einfalt, fljótlegt og innihaldsríkt. Alfanámskeið kl. 19–22. (Sjá síðu 650 í Textavarpi). Neskirkja. Nedó – unglingaklúbbur kl. 19.30. Svenni og Hans. Breiðholtskirkja. Biblíulestrar kl. 20–22 í umsjón dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar. Mömmumorgunn föstudag kl. 10–12. Digraneskirkja. Foreldramorgunn kl. 10– 12. Kirkjustarf aldraðra, leikfimi kl. 11.15. Bænastund kl. 12.10. Unglinga- kór Digraneskirkju kl. 17–19. Unglinga- starf KFUM&K kl. 20–21.45. (Sjá nánar www.digraneskirkja.is) Fella- og Hólakirkja. Biblíu- og helgistund í Gerðubergi kl. 10.30–12. Starf fyrir 8– 10 ára stúlkur kl. 16.30. Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam- verustundir, ýmiss konar fyrirlestrar. Allt- af heitt á könnunni, djús fyrir börnin. Kirkjukrakkar fyrir börn 7–9 ára í Húsa- skóla og Grafarvogskirkju kl. 17.30– 18.30. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk í Grafarvogskirkju kl. 20–22. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30. Kópavogskirkja. Samvera eldri borgara í dag kl. 14.30–17 í safnaðarheimilinu Borgum. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 17. Fyrirbænaefnum má koma til sókn- arprests eða kirkjuvarðar. Seljakirkja. Alfanámskeið kl. 19. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl. 22. Ath. breyttan tíma. Gott er að ljúka deginum í kyrrð kirkjunnar og ber þar fram áhyggjur sínar og gleði. Bænarefnum má koma til presta kirkjunnar og djákna. Hressing í safnaðarheimilinu eftir stund- ina. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn- aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30. Víðistaðakirkja. Foreldrastund í dag kl. 13. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi foreldra með ung börn að koma saman í notalegu umhverfi og eiga skemmtilega samverustund. Barnastarf fyrir 10–12 ára börn í dag kl. 17. Dagskrá í tali og tón- um í kvöld kl. 20. Þorvaldur Halldórsson syngur. Kaffisala í safnaðarheimilinu á eftir. Allir velkomnir. Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10– 12 ára kl. 16.30–18. Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl. 20. Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbúning- ur í Kirkjulundi kl. 16–16.45. MK í Heið- arskóla og 8. KÓ í Heiðarskóla. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Spilakvöld aldraðra í kvöld kl. 20 í umsjá félaga úr Lionsklúbbi Njarðvíkur, Ástríðar Helgu Sigurðardóttur og sr. Baldurs Rafns Sigurðssonar. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 10 mömmumorgunn. Sr. Kristján Björnsson. Kl. 16 æfing hjá Litlum lærisveinum, kl. 17 æfing hjá Litlum lærisveinum. Kór- stjóri Guðrún Helga Bjarnadóttir. Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel- komnir. Aðaldeild KFUM. Fundur í kvöld kl. 20 á Holtavegi 28. Hvers vegna fór ég? Gísli Arnkelsson og Katrín Guðlaugsdóttir segja frá. Allir karlmenn velkomnir. Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund kl. 12. Léttur hádegisverður á vægu verði í Safnaðarheimili eftir stund- ina. Konur eru konum bestar kl. 20. Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur. Seinni hluti. Safnaðarstarf Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ANNA INGADÓTTIR, Hlíðarhúsum 3, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 1. október, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. október kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Ólafur Sverrisson, Sverrir Ólafsson, Shameem Ólafsson, Hulda Ólafsdóttir, Stefán Stefánsson, Ingi Ólafsson, Ragnhildur Ásgeirsdóttir, Ólafur Ólafsson, Ingibjörg Kristjánsdóttir, Anna Elísabet Ólafsdóttir, Viðar Viðarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, MARTINA ERNA SIGFRIEDSDÓTTIR, Hamrabergi 24, verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 11. október kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknardeild Landspítalans, Kópavogi. Jónína G.H. Daníelsdóttir, Jóhann Ingólfsson, Sigurður M. Daníelsson, Þórunn Björk Einarsdóttir, Þröstur S. Daníelsson, Helga Bára Magnúsdóttir, Hanna G. Daníelsdóttir, Ámundi Ingi Ámundason, Kristján G.H. Daníelsson, Daníel Daníelsson, Almut Kühl, Heidi Jedelsky og barnabörn. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSTVALDUR HJÁLMARSSON, Deplum, er andaðist föstudaginn 4. október sl., verður jarðsunginn frá Barðskirkju, Fljótum, laugar- daginn 12. október kl. 14.00. Sigríður Sveinsdóttir, Haukur Ástvaldsson, Sigurlína Kristinsdóttir, Sveinn Ástvaldsson, Sigríður Skarphéðinsdóttir, Kári Ástvaldsson, Annetta María Norbertsdóttir, Reynir Ástvaldsson, Guðrún Sigurðardóttir, Lilja Ástvaldsdóttir, Pétur Bjarnason, Sigurjóna Ástvaldsdóttir, Bjarni K. Stefánsson, Kristján Ástvaldsson, Sylvía Eðvaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Í dag er lokað vegna jarðarfarar Dr. HELGA KRISTBJARNAR- SONAR, stofnanda Flögu hf. Medcare Flaga. Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÁRNASON, Ártúni 4, Selfossi, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugar- daginn 12. október kl. 13.30. Auður Thoroddsen, Árni Guðmundsson, Sigurbjörg Hermundsdóttir og fjölskylda, Henný Matthíasdóttir og fjölskylda. Elskuleg systir okkar, SIGRÍÐUR INGIBJÖRNSDÓTTIR fyrrv. aðstoðarskólastjóri, frá Flankastöðum, Sandgerði, verður jarðsungin frá Útskálakirkju föstudaginn 11. október kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Halldóra Ingibjörnsdóttir, Ólafur Ingibjörnsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.