Morgunblaðið - 10.10.2002, Qupperneq 56
56 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!
"#
$
$
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÚTDRÁTTUR úr opnu bréfi Friðar
2000 til alþingismanna, félaga og
stofnana:
Með öllu er óviðunandi að for-
sætisráðherra hvetji til ofbeldis eins
og Davíð Oddsson gerði í DV: „Þá
lamdi ég þá alveg leiftursnöggt í
hausinn…Það á að lemja viðkomandi
í hausinn“.
Ofbeldi er jafnóviðunandi hvort
sem það beinist gegn einum einstak-
lingi eða heilli þjóð eins og stríðs-
ofbeldið gagnvart írösku þjóðinni
sem forsætisráðherra studdi í
stefnuræðu á Alþingi. Framtíð okkar
stafar ógn af þjóðarleiðtogum sem
eru úr slíku andlegu jafnvægi.
Alvarlegt er að ráðherra gefi
grænt ljós á ofbeldi í skólastofum
landsins, enda hætt við að hvers
kyns ofbeldi kennara sveipist í ung-
um huga hulu réttlætinga sem rugla
börn og unglinga í ríminu. Í Bret-
landi t.d. er slíkt nú refsivert enda
hafa rannsóknir sýnt að ofbeldi
kennara getur stóraukið ofbeldi í
þjóðfélaginu og meðal komandi kyn-
slóða.
Samkvæmt könnun Rauða kross-
ins og dómsmálaráðuneytisins tvö-
falda jákvæð viðhorf til ofbeldis í
vinahópi drengja líkur á því að þeir
beiti aðra ofbeldi. Í kynningu segir:
„Veruleg ábyrgð hvílir á stjórnvöld-
um…Fjölskyldan, skólinn, og fé-
lagsstarfið gegna veigamiklu hlut-
verki í að halda utan um lífsstíl
ungmenna og brynja þau fyrir þeim
straumum menningar og lífsstíls
sem taldir eru óæskilegir. Við þurf-
um í raun á viðhorfsbreytingu að
halda, ekki bara meðal unglinga,
heldur einnig meðal foreldra…Tölur
frá lögreglunni sýna að tilkynning-
um vegna líkamsárása hefur fjölgað
á síðustu árum.“ Aðrar rannsóknir
sýna að margir sem beita ofbeldi
hafa sjálfir orðið fyrir barðinu á því í
bernsku og að eitt helsta vandamálið
við að hefta ofbeldi sé að ungt fólk
telji það stundum „töff“ að lumbra á
einhverjum.
Fjöldi þjóðarleiðtoga og um 100
milljónir manns studdu yfirlýsingu
UNESCO á alþjóðlegu friðarmenn-
ingarári, og hétu því að hafna hvers
konar ofbeldi. Áhugavert væri að
vita hvort forsætisráðherra hafi und-
irgengist þennan samning eða hvort
hann hafnar honum.
Margir taka leiðtoga þjóðarinnar
sér til fyrirmyndar. Með ummælun-
um er forsætisráðherra að grafa
undan mikilvægu forvarnarstarfi til
viðhorfsbreytinga til ofbeldis. Hætt
er við að stuttmyndir gegn ofbeldi,
eins og þær sem Friður 2000 lagði
RÚV og Stöð2 til án endurgjalds,
eða landsátak Rauða krossins gegn
ofbeldi megi sín lítils gegn orðum
landsföðurins.
Harkalegt ofbeldi eykst samfara
aukinni neyslu vímuefna sem losa
um hömlur og skerða dómgreind.
Erfitt getur verið í hita leiksins að
draga línur hvort gefið er létt eða
þungt höfuðhögg. Hvatning for-
sætisráðherra til að leysa mál með
höfuðhöggum er algerlega út úr
kortinu og alvarlegt brot í starfi.
Friður 2000 telur útilokað að for-
sætisráðherra sitji óátalið áfram í
embætti eftir að hafa látið hafa slíkt
eftir sér. Afsögn væri eðlilegust til
að sýna ótvírætt í verki að slíka
hvatningu til ofbeldis láta ráðamenn
þjóðar ekki frá sér fara.
ALÞJÓÐASTOFNUNIN
FRIÐUR 2000,
Ástþór Magnússon
og Eiríkur Eiríksson.
Forsætisráðherra
biðjist afsökunar
Frá Friði 2000:
„ÁSTAND rjúpnastofnsins“ heitir
grein, sem birtist í Morgunblaðinu
11. september 2002. Undir grein-
inni stendur: „Rjúpnaveiðimaður“.
Hann lýsir rjúpnablóðbaðinu, sem
viðgengist hefur ár eftir ár – og
kennt við friðarhátíð – jólin. M.a.
segir hann: „Allir, sem nálægt
rjúpnaveiði koma, vita að því fer
fjarri, að það lagaákvæði sé virt“,
sem hann svo vitnar til, þ.e. að
„rjúpu má ekki elta á vélsleða eða
fjórhjóli! En fjöldi veiðimanna not-
ar fjórhjól og vélsleða, gagngert til
þess að elta uppi bráðina. Veiði-
maður á vélsleða fer mjög hratt yf-
ir og er fljótur að finna út hvar
fuglinn heldur sig. Þegar hann er
fundinn, er það undir hælinn lagt,
hvort veiðimaðurinn stígur af sleð-
anum á meðan skotið er, eða ekki.“
Ólafur K. Nielsen fuglafræðing-
ur segir um rjúpuna:
„Stofnsveiflur eru um það bil að
þurrkast út.“ Hann telur, að lík-
lega sé stofninn að hausti núna um
400–600 þúsund fuglar. En áður
fyrr hafi rjúpurnar skipt milljón-
um. Svona væri ekki komið nú ef
listamanninum Jóhannesi Kjarval
hefði verið hlýtt; hann vildi banna
að skjóta rjúpuna.
Íslendingum er það ævarandi
skömm og skaði ef þeir reyna ekki
strax með alfriðun að koma upp
þeim staðfugla friðarstofni, sem
var hér milljónir fugla löngu fyrir
landnám og allt fram á 20. öld. Al-
friðun, gjörbann á allar skotveiðar
er lífsnauðsyn nú þegar.
En það þarf líka átak til að
fækka minkum og refum. Síla- og
hettumáfar eru eggja- og ung-
aræningar. Þeim þarf líka að
fækka.
Eingöngu eru ungar frá vori
skotnir á haustin. 5.000 veiðimenn
eru þar að verki, auk ýmissa ann-
arra, sem skjóta jafnvel rjúpur á
hlaði og kálf í túni, óskyggnir úti í
náttúrunni.
Skjótið nú minka í staðinn fyrir
rjúpur.
RÓSA B. BLÖNDALS,
rithöfundur.
Rjúpnaveiðar verður
að banna strax
Frá Rósu B. Blöndals: