Morgunblaðið - 10.10.2002, Síða 59

Morgunblaðið - 10.10.2002, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 59 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake VOG Afmælisbörn dagsins: Þú ert varkár og athugull og nýtur trausts annarra. Á komandi ári verða nánustu sambönd þín í brennidepli. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Fólk er reiðubúið til að greiða skuldir sínar við þig í dag. Notaðu tækifærið til að endurheimta eigur þín- ar og fjármuni.. Naut (20. apríl - 20. maí)  Gamalt vandamál kemur upp á yfirborðið að nýju. Þú hefur sex vikur til að ráða fram úr því. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Samstarfsmenn þínir vilja endurgjalda þér gamla greiða. Vertu óhræddur við að þiggja aðstoð þeirra. Þú átt hana inni hjá þeim. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Eitthvað minnir þig á gam- alt ástarævintýri. Annars setja fjölskyldumál svip á daginn. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Á næstu sex vikum muntu leggja áherslu á að fegra heimili þitt. Þú getur ann- aðhvort keypt þér nýja húsmuni eða dyttað að þeim gömlu. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Á næstu vikum verður eitt- hvað til þess að minna þig á það hvað þú nýtur mik- illar ástar. Njóttu þess. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú færð tækifæri til að kaupa eitthvað sem þú hef- ur áður látið ganga þér úr greipum. Íhugaðu hvort þetta sé raunverulega það sem þú vilt. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú hefur sýnt öðrum vel- vild og umhyggju að und- anförnu og nýtur því virð- ingar annarra. Það er gott þegar fólk tekur eftir því sem vel er gert. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú hefur haft mikið að gera að undanförnu og þarft því á hvíld að halda. Láttu það eftir þér að vera einn með sjálfum þér í dag. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú nýtur óvenju mikillar athygli í dag. Fólk er reiðubúið til að hjálpa þér og gera þér greiða. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Hikaðu ekki við að kynna áhrifafólki hugmyndir þín- ar. Þú nýtur velvildar og því er þetta rétti tíminn til aðgerða. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Dagurinn hentar vel til að gera áætlanir varðandi út- gáfustarfsemi, menntun og ferðalög. Hikaðu ekki við að taka af skarið í þessum málaflokkum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT SÓLSTAFIR Sólstafir glitra um sumardaga. Sælt er á grund og tindi. Algróið tún og unnið flag ilmar í sunnanvindi. Kveður sig sjálft í ljóð og lag landsins og starfans yndi. Annir og fegurð augað sér. Yfir er sólarbjarmi. Léttklætt til vinnu fólkið fer, fölbrúnt á hálsi og armi. Sumarsins gleði í svipnum er, sólstafir innst í barmi. Guðmundur Ingi Kristjánsson Árnað heilla 50 ÁRA afmæli. Nk.laugardag, 12. októ- ber, er fimmtugur Aðal- steinn Ingi Jónsson, bóndi í Klausturseli á Jökuldal og formaður félags sauðfjár- bænda. Hann verður heima og fagnar þessum tímamót- um með frændum og vinum frá kl. 20. Ljósmynd/Sigríður Bachmann BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 27. júlí sl. á Borg á Mýrum af séra Þorbirni Hlyni Árnasyni þau Fjóla Guðjóns- dóttir og Francois E.T.M. Claes. Heimili þeirra er að Rauða- nesi 2, Borgar- nesi. Ljósmynd/Sigríður Bachmann BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 13. júlí sl. í Laugar- neskirkju af séra Bjarna Karlssyni þau Bettý Gríms- dóttir og Árni Hrannar Arngrímsson. Heimili þeirra er að Gnoðarvogi 104, Reykjavík. Ljósmynd/Sigríður Bachmann BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 22. júní sl. í Grafar- vogskirkju af séra Sigfinni Þorleifssyni þau Íris Björk Hlöðversdóttir og Ægir Finnbogason. Heimili þeirra er í Gautavík 1, Reykjavík. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. f3 e5 7. Rb3 Be6 8. Rd5 Bxd5 9. exd5 Re7 10. Bg5 Rd7 11. Dd2 h6 12. Bh4 Dc7 13. c4 Rg6 14. Bf2 Be7 15. g3 0–0 16. h4 a5 17. Dc2 Bd8 18. Rd2 a4 19. Bh3 Rf6 20. 0–0–0 Da5 21. c5 a3 22. b3 dxc5 23. Rc4 Da7 24. Hhe1 b5 25. Rd6 Da6 Staðan kom upp í Evrópu- keppni tafl- félaga sem lauk fyrir skömmu í Grikklandi. Vladimir Baklan (2.614) hafði hvítt gegn Martin Borriss (2.439). 26. Rxf7! Rxd5 staða svarts væri einnig töpuð eftir 26... Kxf7 27. Be6+. 27. Rxh6+ gxh6 28. Hxd5 Hxf3 29. Bxc5 Df6 30. Hd6 og svartur gafst upp. 3. umferð Mjólkur- skákmótsins hefst kl. 17.00 í dag á Hótel Selfossi. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. ÁRIÐ 1966 kom á markaðinn bridsbók sem lét lítið yfir sér, en átti eftir að hafa mikil áhrif í bridsheiminum: Kill- ing Defence at Bridge eftir Skotann Hugh Kelsey (1926– 95). Fram til þess tíma hafði lítið verið skrifað skipulega um vörnina og bók Kelseys fullnægði því brýnni þörf. Þótt margt hafi breyst í varn- artækni á síðustu 36 árum heldur bókin enn gildi sínu sem þjálfun í rökréttri hugs- un og umfram allt í því að telja upp á þrettán. Austur gefur; allir á hættu. Norður ♠ – ♥ KD72 ♦ KG4 ♣KD8752 Vestur ♠ Á3 ♥ Á8653 ♦ Á9732 ♣9 Vestur Norður Austur Suður – – Pass 3 spaðar Pass Pass Pass Lesandinn er í vestur og hittir á gott útspil gegn þremur spöðum suðurs – tíg- ulás. Makker lætur drottn- inguna í slaginn. Hvernig á nú að skipuleggja vörnina? Það þarf ekki að hafa mörg orð um það: drottning makk- ers er ein á ferð. Sem þýðir að suður á fjórlit í tígli til hlið- ar við spaðann, sem senni- lega er sjölitur í þessari stöðu (í annarri hendi á hættunni). Sagnhafi á því aðeins tvö spil í hjarta og laufi. Hin „eðli- lega“ vörn er að spila tígulníu í öðrum slag og biðja þannig um hjarta til baka. En það dugir þó ekki ef suður er með eyðu í hjarta, til dæmis þessi spil: Norður ♠ – ♥ KD72 ♦ KG4 ♣KD8752 Vestur Austur ♠ Á3 ♠ 9762 ♥ Á8653 ♥ G1094 ♦ Á9732 ♦ D ♣9 ♣G1043 Suður ♠ KDG10854 ♥ – ♦ 10865 ♣Á6 Suður trompar og spilar spaða. Vörnin fær þá aðeins fjóra slagi: þrjá á tromp og einn á tígulás. Kelsey mælir með því að vestur spili tígultvisti í öðrum slag og kalli þannig á lauf til baka. Austur hlýðir og suður tekur með laufás og spilar spaðagosa. En vestur drepur strax og spilar aftur smáum tígli til að ítreka laufkallið. Austur gefur makker lauf- stungu og fær sjálfur þriðju stunguna í tígli – tveir niður. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Ætlar þú í nám? Búfræðinám Innritun nýnema í Bændadeild LBH stendur nú yfir. Kennsla hefst 6. janúar 2003. Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára, hafa reynslu af landbúnaðar- störfum og hafa lokið minnst 36 einingum í fram- haldsskóla. Umsóknarfrestur er til 25. október 2002. Námið er fjölbreytt starfsmenntun í landbúnaði með áherslu á nautgriparækt og sauðfjárrækt. Frekari upplýsingar er að finna á www.hvanneyri.is, og á skrifstofu skólans í síma 437 0000, eða hjá kennslustjóra, Birni Garðarssyni, netfang: bjorng@hvanneyri.is LBH - LANDBÚNAÐARHÁSKÓLINN Á HVANNEYRI 437 0000 - lbh@hvanneyri.is - www.hvanneyri.is Vorum að fá nýjar haustvörur fyrir alvöru karlmenn Stærðir frá 2X-8X VINNUFATABÚÐIN Laugavegi 76, s. 551 5425 Flauelsbuxur Margir litir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.