Morgunblaðið - 10.10.2002, Page 60

Morgunblaðið - 10.10.2002, Page 60
FÓLK Í FRÉTTUM 60 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞETTA er skrýtið líf. Alltént skrýtið tónlistarlíf. Sveitatónlistin, sem lengi vel hefur verið eitt smáðasta tónlistarform vestrænn- ar dægurtónlistar, er orðin svöl. En hún hefur farið ákveðnar króka- leiðir til þessa – nefnilega í gegn- um jaðarsveita- tónlistina svokölluðu (alt. country) sem stunduð hefur verið af lista- mönnum eins og Bonnie Prince Billy, Jayhawks, Whiskeytown og Uncle Tupelo svo einhverjir séu nefndir. Samtíma, hefðbundin sveitatónlist George Strait, Vince Gill og Garth Brooks er jafn hall- ærisleg og áður … eða hvað? Johnny Cash og Hank Williams … jú, alltaf er gott að geta vísað í þá. En Dolly Parton, Dwight Yokam, Waylon Jennings? Hvar standa þessir listamenn? Já, þetta er vandmeðfarið eins og sjá má. Hudson Wayne, sem er skipuð meðlimum úr Kimono og Luna, reynir sig hér við jaðarsveitatón- listina og er árangurinn upp og of- an. Fyrstu lögin fá mann til að gruna að meðlimir hafi aðallega lagt sig eftir jaðarbundinni sveita- tónlist eftir ’90. Og það er vissu- lega erfitt – stundum – að greina hvort þeir eru að grínast (eins og vissulega er gefið til kynna sum- staðar hér, eins og í lagatitlum) eða hvort rennt er í svalleikann (og hetjunni, Bonnie Prince, þar með vottuð virðing). Söngurinn í fyrsta laginu er til dæmis ein- kennilegur útúrsnúningur á nef- hljóðum þeim sem einatt einkenna sveitalagasöng. Annaðhvort er um úthugsað spé að ræða eða að menn misskilja sveitatónlistina hrapal- lega. Hvort sem það var ætlunin eða ekki fjarlægjast Hudson-liðar svo sveitatónlistina með hverju lagi. Þannig eru tvö síðustu lögin í raun hreinræktuð nýbylgja, sungin af óskilgetnum syni Nick Cave og Stuart Staples, leiðtoga Tinder- sticks. Í fjórða laginu, „Sexual Garden“ er Hudson Wayne næst „alvörunni“, þrátt fyrir galgopa- legan titilinn. Hreint skrambi góð myrkraballaða, sungin af mikilli tilfinningu. Langbesta smíðin hér. Umslagshönnunin er einkar glæsileg og frumleg, allt frá sjálf- um diski til umbúða. Vandaður heimilisiðnaður sem virkar sem hvatning til þeirra sem eru í svip- uðum hugleiðingum. Þá er verði stillt mjög í hóf (200 kr. ef ég man rétt). Allt þetta er til hreinnar fyr- irmyndar. Hvað sem tónlistarlegum tilætl- unum Hudson-liða líður er hér á ferðinni ágætur diskur; þar sem hið sveitatónlistarlega nudd er þó síður heppnað en hið nýbylgjulega. Tónlist Blessuð sértu, sveitin mín Hudson Wayne Slightly out of Hank Mineur-aggressif Slightly out of Hank er fyrsta opinbera út- gáfa Hudson Wayne. Sveitina skipa John Hudson (söngur/bassi), Seymore Wayne (gítar), J.B. Gibson (gítar) og Harry Wern- er (trommur). Þetta ku vera dulnefni. Hljóðritað af Alex McNeil. Hljóðblandað af sveitinni. Arnar Eggert Thoroddsen Hudson Wayne-liðar reyna sig við sveita- nýbylgju á Slightly out of Hank. Kvöldverður fyrir og eftir sýningar Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd. Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700 Fim 10/10 kl. 21 Aukasýning Örfá sæti Fös 11/10 kl. 21 Uppselt Fös 11/10 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti Lau 12/10 kl. 21 Uppselt Lau 12/10 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti Lau 19/10 kl. 21 Uppselt Lau 19/10 kl. 23 Aukasýning Uppselt Sun 20/10 kl. 21 Örfá sæti Mið 23/10 kl. 21 Aukasýning Örfá sæti Fim 24/10 kl. 21 Uppselt Sun 27/10 kl. 21 Uppselt Fös 1/11 kl. 21 Uppselt Fös 1/11 kl. 23 Laus sæti Lau 2/11 kl. 21 Uppselt Lau 2/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti Fös 8/11 kl. 21 Uppselt Fös 8/11 kl. 23 Laus sæti Lau 9/11 kl. 21 Örfá sæti Lau 9/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti ÁSKRIFTARKORT VERTU MEÐ Í VETUR 7 sýningar á 10.500 og ýmis fríðindi innifalin. 10 miða kort á 16.400. Frjáls notkun Nýja sviðið - Komið á kortið! 4 miðar á 6.000 Stóra svið HONK! LJÓTI ANDARUNGINN e. George Stiles og Anthony Drewe Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna Fö 11/10 kl 20 - ath. kvöldsýning Su 13/10 kl 14, Su 20/10 kl 14 KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel Lau 12/10 kl 20, Lau 19/10 kl 20 MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fö 18. okt kl. 20 - Aukasýning Fi 24/10 kl 20 - Næst síðasta sýning Fi 31/10 kl 20 - Síðasta sýning GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt Fö 11/10 kl 20, Lau 12/10 kl 20 Sun 13/10 kl 20 AUKASÝNING Síðustu sýningar JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov frekar erótískt leikrit í þrem þáttum Í kvöld kl. 20, Fö 11/10 kl. 20, Fö 18/10 kl. 20, Lau 19/10 kl. 20 AND BJÖRK, OF COURSE .. e. Þorvald Þorsteinsson Lau 12/10 kl 20, Su 20/10 kl 20, AUKASÝNING Síðustu sýningar 15:15 TÓNLEIKAR Ferðalög. Jean Francaix Lau 12/10 kl. 15:15 Nýja sviðið Litla svið Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Miðasala: 568 8000 Frumsýn. lau. 12. okt. kl. 14 upp- selt 2. sýn. sun. 13. okt. kl. 14 örfá sæti 3. sýn. sun. 20. okt. kl. 14 4. sýn. sun 27. okt. kl. 14 Grettissaga saga Grettis frumsýnd 12. október Grettissaga saga Grettis leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu lau 12. okt kl. 20 frumsýning, uppselt, sun 13. okt kl. 20, fös 18. okt. kl. 20, lau 19. okt. kl. 20, föst 25. okt. kl. 20, lau 26. okt. kl. 20 Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur fim 10. okt. uppselt, þri 15. okt. uppselt, mið 16, okt, uppselt, fim 17. okt. uppselt, sun 20 okt. uppselt, þri 22. okt. uppselt, mið 23. okt. uppselt, sun 27. okt. uppselt, þri 29. okt. örfá sæti, mið 30. okt. örfá sæti, sun. 3. nóv. uppselt, mið. 6. nóv. laus sæti. Hamlet eftir William Shakespeare. Leikstjóri: Sveinn Einarsson. 5. sýn. lau. 12. okt. kl. 19 uppselt 6. sýn. lau. 19. okt. kl. 19 uppselt Aukasýningar fös. 25. okt. kl. 20 laus sæti. lau. 2. nóv. kl. 19 laus sæti lau. 9. nóv. kl. 19 laus sæti Síðustu sýningar Miðasölusími sími 462 1400 www.leikfelag.is eftir Þorvald Þorsteinsson sun. 20. okt. kl. 14 SNUÐRA OG TUÐRA eftir Iðunni Steinsdóttur sun. 13. okt. kl. 14 lau. 26. okt. kl. 14 HEIÐARSNÆLDA Nýtt leikrit fyrir yngstu börnin Frumsýn lau. 19. okt. kl. 14 uppselt 2. sýn. 25. okt. kl. 10.30 uppselt 3. sýn. 27. okt. kl. 14 4. sýn. 28. okt. kl. 11 uppselt Miðaverð kr. 1.100. Netfang: ml@islandia.is www.islandia.is/ml Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR Tónleikar í gulu röðinni í Háskólabíói í kvöld kl. 19:30 á morgun, föstudag kl. 19:30 Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson Einsöngvarar: Hulda Björk Garðarsdóttir Sesselja Kristjánsdóttir Gunnar Guðbjörnsson Tómas Tómasson Kór: Söngsveitin Fílharmónía W. A. Mozart: Sinfónía nr. 25, KV 183 W. A. Mozart: Requiem Requiem: eitt af umtöluðustu verkum tónlistarsögunnar, svana- söngur meistara, minnisvarði um snilling. Mozart M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN sýnir Kardemommu- bæinn Í VÖLUNDI AUSTURMÖRK 23 Frumsýn. lau. 12. okt. kl. 17.00 2. sýn. sun. 13. okt. kl. 14.00 3. sýn. lau. 19. okt. kl. 14.00 4. sýn. sun. 20. okt. kl. 14.00 5. sýn. lau. 26. okt. kl. 14.00 6. sýn. sun. 27. okt. kl. 14.00 7. sýn. lau. 2. nóv. kl. 14.00 8. sýn. sun. 3. nóv. kl. 14.00 Miðaverð kr. 1.200. Eldri borgarar/öryrkjar/hópar kr. 1.000. Frítt fyrir 2ja ára og yngri Vesturgötu 3 Í HLAÐVARPANUM Mjöll Holm og hljómsveit Gestasöngvari Raggi Bjarna Föstudagskvöld 11. okt. kl. 21.00 Ljúffengur málsverður fyrir alla kvöldviðburði MIÐASALA Í S. 551 9030 kl. 10-16 Símsvari eftir kl. 16.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.