Morgunblaðið - 13.10.2002, Side 14

Morgunblaðið - 13.10.2002, Side 14
14 SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ALDONA Voldynskaja var16 ára gömul í ágúst 1942þegar þýskir hermenntóku hana af munaðar-leysingjahæli í Sovétríkj- unum og fluttu til Þýskalands. Þar var hún látin vinna við að ferma og af- ferma bíla. Nú, 60 árum seinna, hafa þýsk stjórnvöld beðið hana afsökunar á meðferðinni og sent henni ávísun upp á tæplega 200.000 ísl. kr. Hún bíður hins vegar enn eftir bótum fyrir það, sem hún og fjölskylda hennar urðu að líða af hálfu stjórnvalda í eig- in landi. Eins og þúsundir Rússa, sem enn eru á lífi, leið Voldynskaja minna af hendi Hitlers en Jóseps Stalíns, ein- ræðisherra í Sovétríkjunum. KGB, sovéska leynilögreglan, lét taka föður hennar af lífi 1938 en sendi Vold- ynskaja og móður hennar í vinnubúð- ir. Þegar Voldynskaja var 11 ára var henni komið fyrir á munaðarleys- ingjahæli fyrir börn „óvina fólksins“ og þar var hún þegar þýsku hermenn- irnir tóku hana. Þegar hún sneri heim eftir stríð var henni umsvifalaust varpað í fangelsi fyrir að fela skjöl um handtöku foreldra sinna. 260 krónur á mánuði Einu sárabæturnar, sem Voldynsk- aja og aðrir hafa fengið, eru 260 kr. styrkur á mánuði og ákveðinn afslátt- ur af leigu og annarri þjónustu. Að öðru leyti heyra þjáningar og dauði milljóna manna sögunni til og ekki er laust við, að aðeins hafi verið hresst upp á ímynd Stalíns. Þjóðverjar hafa beðist afsökunar á Hitler en í Rússlandi ríkir undarleg þögn um Stalín þótt næstum hálf öld sé liðin frá því dauði hans batt enda á lengstu og skelfilegustu ógnarstjórn í Evrópu á 20. öld. Í Rússlandi er ekk- ert opinbert safn um glæpi Stalíns. Talsmenn Memorial, helstu mann- réttindasamtaka í Rússlandi, segja opinber gögn sýna, að ein milljón manna að minnsta kosti hafi verið líf- látin fyrir pólitíska glæpi og 9,5 millj- ónir manna eða fleiri verið fluttar nauðungarflutningi, reknar í útlegð eða fangelsaðar á árunum 1921 til 1953. Minnismerkið í Moskvu um örlög alls þessa fólks, steinn úr fangabúð- um, er svo lítilfjörlegt, að fæstir koma auga á það í litlum garði skammt frá fyrrverandi höfuðstöðvum KGB við Lúbjanka-torg. Þá er aðgangur að skjalasafni KGB svo takmarkaður, að jafnvel þeir, sem lifðu af Gúlag- vistina, fá ekki að vita hver sveik þá. Sumir fræðimenn telja, að vegna ástandsins í landinu, upplausnar og fátæktar, hafi fáir Rússar áhuga á upplýsingum um grimmdarverk leið- togans, Bóndans í Kreml. Aðrir, til dæmis Alexander Jakovlev, fyrrver- andi félagi í stjórnmálaráði kommún- istaflokksins, óttast, að þetta upp- gjörsleysi valdi því, að mannréttindi verði áfram fremur fjarlægt hugtak venjulegum Rússum. Þeir hafa áhyggjur af því, að Rússar kunni síð- ar að láta blindast af valdaglýjunni, hvort sem um verður að ræða annan einræðisherra eða aukin áhrif lands- ins á alþjóðavettvangi. „Það er svo undarlegt með okkur Rússa, að við látum bugast af sorg yf- ir dauða eins manns en ypptum öxlum yfir dauða milljóna manna,“ sagði Jakovlev en hann var áður einn af frumkvöðlum efnahagslegra umbóta á dögum perestrojkunnar og stýrir nú nefnd, sem á að hreinsa nafn þeirra, sem kommúnistar ofsóttu. Stalín ekki lengur alvondur Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseti Sovétríkjanna, og Borís Jelts- ín, fyrrverandi forseti Rússlands, for- dæmdu báðir Stalín en í forsetatíð Vladímírs Pútíns má sjá þess merki, að Stalín sé ekki lengur talinn alvond- ur. Pútín hefur leyft, að slegnir séu 500 sérstakir silfurpeningar með mynd Stalíns og hann hefur afhjúpað minningarskjöld um herforingjann Stalín. Á fundi með pólskum frétta- mönnum fyrr á árinu sagði hann, að þótt Stalín hefði verið einræðisherra, væri „rangt að gleyma því“, að hann hefði leitt Sovétríkin til sigurs í síðari heimsstyrjöld. Pútín, sem var yfirmaður rúss- nesku öryggislögreglunnar, FSB, arf- taka KGB, 1998 til 1999, sagði nýlega, að hún ætti „að vera hreykin af fortíð- inni, hetjum sínum og afrekum þeirra“. Í samræmi við það ber nýtt dagatal FSB mynd af höfuðstöðvum KGB við Lúbjanka-torg eins og þær voru í tíð kommúnista ásamt stytt- unni af Felix Dzerzhínskí, stofnanda öryggislögreglunnar. Það eru þó tak- mörk fyrir öllu. Þegar Júrí Lúzhkov, borgarstjóri í Moskvu, lagði til fyrir skömmu, að 14 tonna styttunni af Járn-Felix yrði komið upp aftur, þá sagði Kreml nei. Það gæti ekki gengið gagnvart Rússum almennt. Pútín endurspeglar samt sem áður vissa eftirsjá meðal Rússa eftir Stalín, sem var um það bil kominn í guðatölu er hann lést. Í skoðanakönnun fyrir ári var helmingur landsmanna eins og á báðum áttum um hann og aðeins fjórðungur sagði, að hann hefði gert af sér meira illt en gott. Kommúnist- ar, sem eru með stærsta þingflokk- inn, lofa hann hins vegar í hástert og segja sögur af fjöldahandtökum og fjöldamorðum vera stórlega ýktar. Sluppu við reikningsskilin Ein af ástæðunum fyrir þögninni er sú, að stjórnmálamennirnir eru af- kvæmi sovétskipulagsins og önnur sú, að friðsamleg upplausn Sovétríkj- Ljósmynd/Perm-safniðPerm-36, einar af síðustu fangabúðum Stalíns. Þeim er nú verið að breyta í safn. Washington Post/Sharon LaFraniere Aldona Voldynskaja. Þjóðverjar hafa sent henni bætur en hún býst ekki við neinu slíku frá rússneskum stjórnvöldum. Neita að horfast í augu við fortíðina Í Rússlandi ríkir að mestu þögnin ein um Stalínstímann og enginn hefur verið dreg- inn til ábyrgðar á glæpaverkunum sem þá voru framin. Það er jafnvel ekki laust við, að aftur sé farið að hampa einræðisherranum sem miklum leiðtoga. Moskvu. Los Angeles Times. ’ Við látum bugastaf sorg yfir dauða eins manns en ypp- um öxlum yfir dauða milljóna manna. ‘ MENN vita það fyrir víst hvar þeir eru staddir þegar komið er til Mexíkóborg- ar: Leigubílarnir, grænu og hvítu Volkswagen-bjöllurnar, sem hökta másandi og blásandi eftir troðfullum götunum, segja allt, sem segja þarf. Nú lítur samt út fyrir, að dagar þeirra verði brátt taldir. Mexíkó er eina landið þar sem gömlu Volkswagen-bjöllurnar eru enn framleiddar og þær hafa lengi notið mikilla vinsælda þar. Er Bjallan jafn- einkennandi fyrir Mexíkóborg og gulu leigubílarnir fyrir New York. Yfirleitt hefur fremra farþegasætið verið fjarlægt til að gera það auðveld- ara fyrir fólk að komast inn og út úr bílnum og sagt er, að dæmi séu um, að fimm eða sex manna fjölskylda troði sér í aftursætið. Einn af kostunum við Bjölluna er, að hún er ódýr. Ný kostar hún um 650.000 ísl. kr. og auðvelt er að finna ódýra varahluti. Þá er hún lítil og það kemur sér svo sannarlega vel í eilífri umferðarteppunni í borginni. Ókostirnir eru aftur þeir, að vélin er loftkæld og mengar mikið. Í Bandaríkj- unum var framleiðslan stöðvuð 1977 og bannað er að flytja gömlu Bjölluna inn vegna þess, að hún uppfyllir ekki mengunarstaðla. „Vocho“ veifað á eigin ábyrgð Bjallan, eða „Vocho“ eins og hún er kölluð í Mexíkó, er líka vinsæl hjá þjóf- um og mannræningjum. Láta þeir líta út sem um leigubíl sé að ræða en þeg- ar inn er komið á fólk sér ekki und- ankomufæri enda engar afturdyr á bílnum. Stundum er fólkinu haldið dög- um saman eða svo lengi sem það tek- ur það að tæma bankareikninginn sinn í einhverjum hraðbankanum. Margir fararstjórar eru vanir að segja ferða- fólki það, sem allir borgarbúar vita: Þeir, sem veifa „vocho“, gera það á sína ábyrgð. Þetta er ein meginástæðan fyrir því, að borgaryfirvöld vilja Bjölluna feiga. Þótt hún verði ekki bönnuð, þá munu nýjar reglur um, að allir leigubílar hafi fernar dyr, ryðja henni burt á skömm- um tíma. Segja embættismenn, að Bjallan ekki lengur boðleg sem leigubíll AP Mengun frá einni Bjöllunni mæld í Mexíkóborg. Nýjar reglur kveða á um, að allir leigubílar hafi fernar dyr. Mexíkóborg. AP. ’ Bjallan er líka vinsæl hjá þjófum og mann- ræningjum. ‘

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.