Morgunblaðið - 13.10.2002, Side 23

Morgunblaðið - 13.10.2002, Side 23
hafa sýnt að í kringum helmingur kjósenda sé ákveðinn í að greiða ESB-aðildinni atkvæði sitt en um þriðjungur á móti. Munu því báðar fylkingar berjast hart um atkvæði hinna óákveðnu. En jafnvel þótt allt gangi eftir og Malta verði fullgildur aðili að ESB árið 2004 er spurning hvað gerist ef Verkamannaflokkur- inn skyldi ná aftur meirihluta í næstu þingkosningum og Sant mynda nýja ríkisstjórn, skipaða mönnum ósáttum við aðildina. And- staðan hefur helgast m.a. af ótta um að þátttaka í sameiginlegu landbún- aðarstefnunni myndi hækka verðlag á lífsnauðsynjum og um að aðildin myndi spilla fyrir rótgróinni hlut- leysisstefnu lýðveldisins. Búlgarar lengra komnir en Rúmenar Strax áður en framkvæmda- stjórnin kynnti formlega niðurstöð- ur nýju aðildarhæfnis-matsskýrsln- anna voru ráðamenn í Búlgaríu byrjaðir að bregðast við þeim. „Eins og sakir standa eru umbætur í Búlg- aríu mun lengra á veg komnar [en í Rúmeníu]; þetta er niðurstaða framkvæmdastjórnarinnar, ekki mín eigin skoðun,“ var í síðustu viku haft eftir Meglevu Kunevu, Evrópu- málaráðherra og aðalsamninga- manni Búlgaríu í aðildarviðræðun- um. Búlgarar hafa nú náð að ljúka 22 af 31 efniskafla aðildarviðræðnanna (sem miðast við uppskiptingu laga- safns ESB, sk. acquis commun- autaires), en Rúmenar aðeins 13. Er greinarhöfundur hitti Kunevu í Berlín fyrr á árinu sagðist hún telja raunhæft að Búlgarar gætu lokið aðildarviðræðunum á árinu 2003. Hún lagði einnig áherzlu á að því fylgdu áhættur að halda landi hennar utan við fyrstu stækkunar- lotuna til austurs. Ein væri sú að það gerði landinu enn erfiðara að ná sama stigi aðlögunar að ESB og hin mið- og austur-evrópsku umsóknar- ríkin/nýju aðildarríkin en ella. Sú aðstoð sem Búlgaría og Rúmenía gætu vænzt að fá við umbótaferlið yrði tæpast jafn umfangsmikil og sú aðstoð sem nýju aðildarríkin munu hafa aðgang að. Þá benti Megleva á, að vart yrði hjá því komizt að frestun á ESB- aðildinni myndi hafa neikvæð áhrif á almenningsálitið í Búlgaríu í garð Evrópusambandsins, svo og á möguleika landsins á að draga til sín erlenda fjárfestingu. Aftur á móti hefur verið bent á að veikburða efnahagslíf Búlgaríu og Rúmeníu myndi ekki hafa gott af því að þurfa of fljótt að standast sam- keppnisþrýstinginn á innri markaði Evrópu. Lengri aðlögunartími væri því sjálfu fyrir beztu. Það sem þó hefur verið hvað erfiðasta málið í samskiptum Búlgaríu og ESB er deila um kjarnorkuverið í Kozlodui, sem er með gamla kjarnaofna af sovézkri gerð. ESB þrýstir á um að tveir af ofnum versins verði teknir úr umferð fyrir 2006. Sambandið hafði reyndar gert lokun tveggja elztu ofnanna að skilyrði fyrir upp- töku aðildarviðræðna á sínum tíma. Búlgarska þingið ályktaði hinn 1. október að ekki skyldi loka kjarna- ofnunum og setti þar með strik í reikning ríkisstjórnarinnar sem hafði gert sér vonir um að geta lok- að orkumálakafla aðildarviðræðn- anna fyrir lok þessa árs. Kozlodui- verið sér Búlgörum fyrir 40% raf- orkuþarfa sinna. Vasile Puscas, aðalsamninga- manni Rúmeníu í aðildarviðræðun- um, var ekki skemmt yfir nýjustu ummælum kollegu sinnar Kunevu sem gengu í raun út á að Búlgaría verðskuldaði að vera tekin fyrr inn í sambandið en Rúmenía; kallaði Puscas afstöðu hennar „machiavell- íska“. En er greinarhöfundur hitti Pusc- as í Berlín fyrr á árinu viðurkenndi hann að stærð Rúmeníu gerði stjórnvöldum erfiðara um vik að hrinda þeim umbótum í framkvæmd með árangursríkum hætti sem nauðsynlegar eru til að búa landið í stakk fyrir aðild að ESB. Í Rúmeníu búa um það bil jafnmargir og á öll- um Norðurlöndunum til samans, yf- ir 22 milljónir. Íbúar Búlgaríu eru um 8,2 milljónir. Að dómi framkvæmdastjórnar- innar eru vandamálin í Rúmeníu býsna víðtæk; efnahagsástandið er slæmt, spilling útbreidd og stjórn- kerfið óskilvirkt. Aðildarviðræðurn- ar við Rúmeníu eru þó það langt komnar, að búið er að opna alla samningskafla. Sagðist aðalsamn- ingamaðurinn Puscas í samtali við greinarhöfund vonazt til að hægt yrði að ljúka öllum köflunum í sein- asta lagi árið 2004. Með dyggum stuðningi ESB við umbótaþróunina í landinu á næstu árum álítur Puscas raunhæft að landið geti gengið í sambandið árið 2007. Vilji Búlgarar fá inngöngu fyrr sé það „þeirra vandamál“, að því er netritið Transitions Online hefur eftir Hildegard Puwak, Evrópumálaráð- herra Rúmeníu. Balkanlönd: ESB-aðild er langtímamarkmið Mesta „vandamálasvæði“ Suð- austur-Evrópu, löndin á vestanverð- um Balkanskaga, er af augljósum ástæðum ekki eins langt á veg kom- ið að því markmiði að taka virkan þátt í Evrópusamrunanum og önnur og friðsamari svæði álfunnar. Slóv- enía er eini hluti gömlu Júgóslavíu sem auðnazt hefur að sleppa við stríðseyðileggingu og tilheyrandi efnahagslega og pólitíska óreiðu sem einkennir hins vegar ástandið í Króatíu, Bosníu-Herzegóvínu, Júgóslavíu (þ.e. Serbíu-Svartfjalla- landi), Makedóníu og Albaníu. Með- al stjórnmálamanna í þessum lönd- um öllum er þó mjög útbreiddur stuðningur við það langtímamark- mið að fara að dæmi Slóveníu og fá inngöngu í ESB, sem litið er á sem félagsskap sem tryggir velmegun og stöðugleika. Óhætt er þó að fullyrða að af þessum ríkjum eigi eingöngu Króatía raunhæfa möguleika á að takast að uppfylla skilyrðin fyrir að- ild að sambandinu á þessum áratug. Loks má ekki gleyma því að aust- an við væntanleg austurlandamæri stækkaðs ESB eru lönd sem tví- mælalaust eru evrópsk og uppfylla þar með grundvallarforsenduna fyr- ir því að eiga tilkall til þess að mega sækja um aðild að ESB, eins og kveðið er á um í stofnsáttmála sam- bandsins. Reyndar leikur ekki vafi á því að þessi lönd, fyrrverandi Sov- étlýðveldin Úkraína, Hvíta-Rúss- land, Moldóva og Rússland sjálft, eru „evrópskari“ en Tyrkland. Þrátt fyrir það er vart raunhæft að ætla að þessi lönd verði nokkurn tímann fullgildir aðilar að ESB. Líklegra er að þessi lönd – og jafnvel fleiri fyrr- verandi Sovétlýðveldi – verði þegar til lengri tíma er litið tengd ESB- markaðnum með aðlögunarsamn- ingum sem þó munu vart ganga eins langt og EES-samningurinn, en eitthvað í þá áttina þó, þ.e. fríverzl- unarsamningar að viðbættum fleiri atriðum sem binda þessi lönd innri markaði Evrópu nánari böndum og kvæðu t.d. á um pólitískt samráð og samstarf á fleiri sviðum en hinu efnahagslega. Lokaorð Flest bendir nú til þess að það gangi eftir að aðildarríkjum Evr- ópusambandsins – og Evrópska efnahagssvæðisins þar með – fjölgi úr 15 í 25 árið 2004, í 27 árið 2007 og jafnvel enn fleiri áður en áratugur- inn er úti. Ýmislegt getur þó enn sett þetta ferli út af sporinu; hafni Írar því að staðfesta Nizza-sáttmál- ann svokallaða er þeir greiða at- kvæði um hana öðru sinni um næstu helgi verða góð ráð dýr, þar sem enginn nýr aðildarsamningur getur tekið gildi fyrr en þær breytingar á stofnanakerfi og ákvarðanatöku ESB sem kveðið er á um í sáttmál- anum verða komnar til fram- kvæmda. Þá verða þjóðaratkvæða- greiðslur haldnar í flestum umsóknarríkjunum um aðildar- samningana og ekki er hægt að úti- loka að í einhverju þeirra komi upp „norskt ástand“; þ.e. að meirihluti almennings felli samninginn þótt allt starf stjórnkerfisins í viðkom- andi landi hafi árum saman miðað að því marki að ganga í sambandið. Og hvort eitthvað verður úr hótunum Tyrkja og Grikkja í sambandi við Kýpur á líka eftir að koma í ljós. Hvað sem öllu þessu líður er víst, að næsta stækkunarlota sambands- ins mun jafngilda stökkbreytingu á skipulagi álfunnar. auar@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 2002 23 Dr. Fischer hreinsiklútar Frábær vara á verði sem kemur á óvart Dr. Fischer hreinsiklútarnir eru ótrúlega auðveldir og þægilegir í notkun því þeir fjarlægja allan farða á augabragði, hvort sem um er að ræða andlits- eða augnfarða. Í hreinsiklútunum er andlitsvatn auk kamillu (Chamomille), sem hefur róandi og nærandi áhrif á húðina og hjálpar til við að halda rakastigi húðarinnar réttu. Dr. Fischer hreinsiklútarnir eru ofnæmisprófaðir og henta öllum húðgerðum. Útsölustaðir: Allir helstu stórmarkaðir og apótek landsins. * Innifali›: Flug, flugvallaskattar, gisting, fer›ir til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. kr. * kr. * 41.150 á mann m.v. tvo fullor›na og 25.000 frípunkta. Fríkortstilbo› Tilbo›sver› 54.900 Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is Úrval-Úts‡n Nú fer hver a› ver›a sí›astur - fer›ir a› seljast upp Fjölbreytt úrval gó›ra gistista›a og glæsihótela. Úrval-Úts‡n b‡›ur upp á skemmtilegar og fræ›andi sko›unarfer›ir um eyjuna og á kvöldin kviknar fjölbreytt skemmtanalíf flar sem allir finna eitthva› vi› sitt hæfi. Í SL EN SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 1 90 50 10 /2 00 2Kanaríeyjar Trygg›u flér sól í vetur Betri fer›ir – betra frí Enn eru örfá sæti laus í jólafer› 19. desember. Golf á hagstæ›u ver›i Tvöfaldir frípunktar 30. nóvember í 19 nætur. fiú getur n ota› frípun kta í allar fer›ir til Kanaríe yja á›ur en fleir ren na út um á ramótin. Bankastræti 3,  551 3635 pink mat; eau de parfum japanski dömuilmurinn hannaður af MASAKÏ MATSUSHÏMA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.