Morgunblaðið - 13.10.2002, Blaðsíða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 2002 27
Hvað er
lítið, öruggt og snöggt?
Finndu svarið í blaðinu.
Síðumúla 1 • 108 Reykjavík
Sími 510 4000 • Fax 510 4001
www. honnun.is
ÁR
M
ÚL
I
GRENSÁSVEGUR
SÍ
ÐU
M
ÚL
I
F
E
LL
S
M
Ú
LI
M
IK
LA
B
R
A
U
T
SU
ÐU
RL
AN
DS
BR
AU
T
11
89
/
T
A
K
T
ÍK
Hönnun mun í byrjun næsta árs flytja
starfssemi sína úr höfuðstöðvunum að
Síðumúla 1 í glæsilegt húsnæði að
Grensásvegi 1, sem nú hýsir skrifstofur
Orkuveitu Reykjavíkur en er í eigu
Hönnunar.
Núverandi húsnæði Hönnunar er farið að
þrengja verulega að starfseminni enda
hefur umfang Hönnunar og
starfsmannafjöldi vaxið talsvert á
undanförnum árum. Nýja húsnæðið er um
það bil tvöfalt stærra en núverandi
húsnæði og því ljóst að fara mun vel um
starfsfólk Hönnunar á Grensásvegi 1.
Síðumúli 1 til sölu eða leigu
Hönnun flytur á Grensásveg 1
Um er að ræða húsnæði í tveimur
byggingum að Síðumúla númer 1 og hluta
hússins að Síðumúla 3-5.
• Síðumúli 1 – 1130 m2 á þremur hæðum
• Síðumúli 1 – 140 m2, á 2. hæð
• Síðumúli 3-5 – 325 m2
Nánari upplýsinga er hægt að leita hjá
neðangreindum fasteignasölum:
Sími 595 9000
FASTEIGNASALA
Sími 552 6000 Sími 530 1500
NÚTÍMALJÓSMYNDIR eftir 36
þýska ljósmyndara eru nú til sýnis í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Ljós-
myndirnar koma frá Nytjalistasafn-
inu í Gera í Þýskalandi og eiga það
sameiginlegt að hafa verið í verð-
launasamkeppni kenndri við lista-
konuna Aenne Biermann sem bjó og
starfaði í Gera frá árinu 1921 en lést
langt fyrir aldur fram árið 1933.
Tilgangur Aenne Biermann verð-
launasamkeppninnar er að stuðla að
framgangi frjórrar og frumlegrar
nútímaljósmyndunar og er það vel.
Þó er fátt mjög frumlegt, frjótt eða
nýstárlegt að sjá á þessari sýningu
séu verkin borin saman við margt af
því sem gert hefur verið á sviði ljós-
myndunar á 20. öldinni og það sem af
er þessari öld.
Ljósmyndin sem miðill hefur farið
í gegnum svo margar umbyltingar í
meðförum listamanna að það að
dæma verk í ljósmyndasamkeppni út
frá frumleika verður sífellt erfiðara,
hugtakið er of víðfeðmt. Það er frek-
ar að myndverkið sem slíkt í heild-
stæðri mynd sinni, hugmynd, úr-
vinnsla, framsetning í rými og
ólíkindi geti þegar allt kemur saman
verið frumlegt eða frjótt í mjög
ákveðnu samhengi.
Allt slíkt er víðsfjarri á sýningunni
þar sem allar myndirnar eru eins
rammaðar inn á svörtum bakgrunni í
grönnum álramma. Framsetning
myndverka á sýningu er gríðarlega
mikilvæg og sama framsetningin
passar langt því frá öllum myndun-
um, því hver þeirra hefur jú sinn
persónulega stíl.
Þær myndir sem athyglisverðast-
ar eru á sýningunni eru New Albania
eftir Norbert Enker frá Essen, þar
sem hann teflir saman börnum að
leik í tívólítækjum og mönnum að
hengja upp dýraskrokka framan við
blóði drifinn slátrunarvöll. Stefanie
Grebe frá Krefeld er með tvö
portrett af konum sem njóta sín vel,
en titlar myndanna eru Simulate
yourself. Jeanette Abee frá Berlín
sýnir listræna takta í Frosthörkum
og jafnframt eru tvær myndir Nina
Schmitz af konum á ýmsum aldri
listrænar og minna á margt úr nú-
tímamyndlistarljósmyndum sem aft-
ur vísa í tískuljósmyndun. Síðast en
ekki síst ber að nefna myndina Barki
söngvarans, þar sem teflt er saman
mynd af bláum rósum og mynd af
Maríulíkneski, með áhrifamiklum
hætti.
Flestar ljósmyndirnar eru snotrar
og vel unnar, nokkrar komast ná-
lægt því að vera góð listaverk en
Barki Söngvarans og New Albania
ná því að verða eftirminnilegar.
MYNDLIST
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Opið virka daga frá kl. 12-17 og um helg-
ar frá kl. 13-17. Til 15. október.
LJÓSMYNDIR
ÝMSIR LISTAMENN
Frumleg-
ar nú-
tímaljós-
myndir?
Án titils eftir Ninu Schmitz. Verkið hlaut önnur verðlaun í verðlauna-
samkeppni Aenne Biermann árið 2001.
Þóroddur Bjarnason
Frida er eftir
Bárbara Mujico í
þýðingu Helgu Þór-
arinsdóttur.
Í kynningu segir
m.a.: „Mexíkóska
listakonan Frida
Kahlo hefur í tím-
ans rás orðið að
átrúnaðargoði
kvenna um allan
heim. Málverk hennar eru táknmynd-
ir um sköpunarmátt og sigurvilja
kvenna og ævi hennar er sveipuð
goðsögulegum ljóma. Hún giftist
öðrum frægum myndlistarmanni,
Diego Rivera, og ástríðuþrungið
hjónaband þeirra einkenndist af ást,
afbrýðisemi og svikum. Sagan er
lögð í munn Cristinu, yngri systur
Fridu, sem alla ævi stendur í skugga
systur sinnar, en þær systur sóttust
báðar eftir ástum sama mannsins.“
Bárbara Mujico er rithöfundur,
gagnrýnandi og prófessor í spænsku
við háskólann í Georgetown. Hún
hefur tvisvar verið tilnefnd til Push-
cart-verðlaunanna, sigrað í al-
þjóðlegri bókmenntasamkeppni sem
kennd er við E.L. Doctorov og hlotið
Pangolin-verðlaunin ásamt fleiri við-
urkenningum.
Bókin er prýdd fjölda ljósmynda úr
lífi Fridu og einnig litmyndum af
verkum hennar.
Nýverið var frumsýnd kvikmynd
byggð á ævi Fridu þar sem Salma
Hayek leikur Fridu og verður hún
sýnd hér á landi í nóvember.
Útgefandi er JPV-útgáfa.
Skáldsöguleg
ævisaga