Morgunblaðið - 13.10.2002, Side 30
SAMSÝNINGIN „Kuu“ var opnuð í
gær í Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar. Þar
sýna í Sverrissal og Apóteki fjórir
myndlistarmenn sem búsettir eru í
Eistlandi, þeir Jüri Ojaver, Paul
Rodgers, Jaan Toomik og Jan
Paavle.
Listamennirnir eru þekktir jafnt í
heimalandi sínu sem utan þess, en
Jaan Toomik er óhætt að kynna sem
einn þekktasta samtímalistamann
Eistlands. Toomik hefur m.a. verið
fulltrúi á Feneyja- og Sao Paulo-
tvíæringnum en verk hans hafa orð-
ið umdeild í Eistlandi vegna póli-
tískra skírkotana þeirra. Paul Rodg-
ers er Breti en hann hefur verið
búsettur í Eistlandi undanfarin ár.
Hann hefur líkt og þeir Ojaver og
Paavle sýnt víða í Eystrasaltslönd-
unum, á Norðurlöndum og í öðrum
Evrópulöndum. Listamennirnir fjór-
ir hafa starfað nokkuð saman, eink-
um Jaan Toomik og Paul Rodgers.
Um sýninguna segir m.a. í kynn-
ingu: „Orka einstaklingsins – hvern-
ig hún myndast og hvernig hún
eyðist. Ekki kraftur efnisins eins
heldur andans og tilfinninganna, það
er kjarni þessarar sýningar. Fjórir
listamenn eiga hér verk, mynd-
bandsverk, innsetningar og gern-
inga. Þeir starfa allir í Eistlandi og
starfa saman að listsköpun sinni sem
oft nálgast sviðslist, leiðir okkur á
nýjan sjónarhól þaðan sem útsýni er
ókunnuglegt og hleypir hrolli milli
skinns og hörunds, áhorfandinn fær
gæsahúð.“
Sýningin er styrkt af mennta-
málaráðuneyti Eistlands og mennta-
málaráðuneyti Íslands. Hún stendur
til 4. nóvember og er Hafnarborg
opin milli 11 og 17 alla daga nema
þriðjudaga.
Samtímalist frá Eistlandi
Eistneski myndlistarmaðurinn Jaan Toomik sýnir ásamt þremur öðrum
löndum sínum í Hafnarborg í Hafnarfirði um þessar mundir.
Morgunblaðið/Kristinn
KÁRI Svensson
og Eyðun af Reyni,
tveir færeyskir list-
málarar, sýna nú
verk sín hvor í sín-
um hluta sýningar-
salarins Húss mál-
aranna á Eiðistorgi.
Eyðun er fæddur í
Þórshöfn árið 1951
og nam á sínum
tíma listmálun við
Konunglegu aka-
demíuna í Kaup-
mannahöfn. Hann er
jafnframt sonur
Ingálvs af Reyni,
eins af þekktari list-
málurum sem Fær-
eyingar hafa átt.
Kári er fæddur í
Þórshöfn árið 1954
og er sjálfmenntað-
ur listamaður. Auk
listsköpunar er
hann í forsvari sam-
taka færeyskra
myndlistarmanna.
Báðir sækja listmálararnir innblást-
ur í náttúruna og vinna úr áhrif-
unum í óhlutbundið form. Formræn
nálgun þeirra er ekki ólík og báðir
vinna þeir í grófum expressjónísk-
um handtökum í anda eftirstríðs-
málverka á Norðurlöndum og
Þýskalandi, sem ríkt er í færeyskri
myndlistarhefð. Innan þess ramma
er þó dágóð vegalengd á milli verka
þeirra. Kári Svensson vinnur með
brúnleita jarðliti sem hann ýmist
teygir í gult eða svart. Skýr skil
eru á milli forma og vinnubrögðin
eru misjafnlega átakamikil, líkt og
listamaðurinn skipti skapi á milli
verka. Í tveimur myndanna, „Á
fjöllum“ og „Hugbirting“, krotar
hann útlínur af manneskjum í horn-
ið á verkunum. Gefur það allt ann-
an inngang að myndunum en þeim
sem eru að öllu óhlutbundnar. Festi
ég síður hald á þau verk þrátt fyrir
fígúrasjónina og að lokinni sýningu
sitja þau mér sterkar í minni en
önnur verk Kára.
Verk Eyðuns af Reyni eru litrík,
efnistökin laus og hröð. Mynda þau
samstæða heild, enda samskonar
uppbygging á þeim öllum. Lista-
maðurinn vinnur mörg lausleg form
en skiptir þó fletinum í þrjá hluta,
efri hluta, miðju og neðri hluta. Eru
formin gjarnan breiðust um miðjan
myndflötinn og þannig leiðir eitt
málverk mjög eðlilega af öðru í
rýminu.
Naumt er á milli verka á sýning-
unni, en þau standa það bærilega af
sér. Er hér á ferðinni sýning sem
aðdáendur ljóðrænnar abstraksjón-
ar ættu að heimsækja áður en yfir
lýkur.
MYNDLIST
Hús málaranna
Salurinn er opinn á
fimmtudögum til
sunnudags frá 14–18.
Síðasti sýningardagur
er 13. október.
OLÍUMÁLVERK
EYÐUN AF REYNI OG
KÁRI SVENSSON
Afstrakt jörð
Kári Svensson: Á fjöllum.
Vetrarsól eftir Eyðun af Reyni.
Jón B.K. Ransu
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Stærsti vinnustaður
heims er orðinn hljóðlaus
héð.gag
g
Ra
uð
ar
ár
st
íg
ur
Þv
er
ho
lt
lt St
Stan
Skipholt
Brautarholt
at
ún
Laugave
Hát
M
Sa
B
H
öf
ða
tú
n
Sæt
únSkúlatún
Skúlagata
eintún
HLEMMUR
M
jö
ln
is
h.
Sýning
um helgina
á milli
kl. 10-16
Invita sýnir nú um helgina nýja skúffu-
hemlunarbúnaðinn - „Ljúfskúffulokun-
ina“ - sem lokar skúffunum þínum leik-
andi létt og ljúft. Reyndu og hlustaðu -
upplifðu kyrrðina í eldhúsinu.
Tökum ennþá gömlu eldhúsinnrétting-
una upp í nýja.
Ýmis tilboð einungis um þessa helgi.
- persónulega eldhúsið
ELDASKÁLINN
Brautarholti 3 • 105 Reykjavík
Sími: 562 1420 • Fax: 562 1375
Netfang: eldask@itn.is
www.invita.com
Hér erum við:
Song Kurt Weils söng hún tromp-
etsóló Cliffords Brown með dygg-
um stuðningi Sonders bassaleikara
og minntu þau stundum á Slam
Stewart og Major Holley. Túlkun
sveitarinnar á My Funny Valentine
var óvenjuleg. Fyrst bjóst maður
við tangói en svo kom Valentinan
með latínfíling. Memories Of You
eftir gamla ragtæmpíanistann Eubi
Blake steinlá. Håkon Mjåset
bregst aldrei burstasveiflan og
Live Maria brá fyrir síg viskírödd.
Annars beitti hún röddinni spar-
lega þetta kvöld og náði mikilli ná-
lægð í túlkun söngdansanna án
þess að gefa nokkuð eftir í sveifl-
unni. Ýmis lög tengd Ellu Fitzger-
ald voru á efnisskránni, s.s. Mr.
Paganini, Let’s Do it og Love For
Sale og geislaði Live Maria af lífs-
gleði í þessum söngvum. Tvær ball-
öður voru sérstaklega eftirtektar-
verðar í túlkun hennar. Þar náði
hún inn að innstu kviku þeirra:
You’ve Changed sem Dexter Gord-
on blés allra manna best og Nature
Boy. Þarna fór ekki á milli mála að
fullþroskuð söngkona vélaði um.
Útsetningar Erlend Skomsvoll
voru hver annarri skemmtilegri, en
einna best var útsetning hans á My
Favorite Thing úr Sound Of Music
eftir Richard Rodgers og Hammer-
stein þriðja. Eftir að Coltrane lék
þennan söngdans í djassi hefur
verið erfitt að leika hann á annan
hátt með árangri, en skemmtileg
útsetning Skomsvoll, þarsem hall-
æri söngleiksins og ferskleiki
djasshugsunar hans blandaðist,
hitti beint í mark.
Skomsvoll er ansi sleipur píanisti
en ber þess merki að vera tónskáld
og útsetjari. Massívir hamrandi
hljómar skiptust á við einfaldan
einsfingursspuna og á stundum brá
fyrir impressjónískri tónhugsun af
skóla Jarretts og félaga. Flygillinn
var heldur vanstilltur þetta kvöld
og hljómblöndun í sal slæm, en það
kom ekki í veg fyrir að maður nyti
hvers tóns er Come Shine flutti og
Söndre var traustur í bassaleiknum
og Håkon er óefað einn fremsti
trommari Norður-Evrópu undir
þrítugu.
DJASS
Kaffileikhúsið
Live Maria Roggen, söngur, Erlend
Skomsvoll, píanó og útsetningar, Sondre
Meisfjord, bassi, og Håkon Mjåset Jo-
hansen, trommur.
COME SHINE
Gæða-
djass
ÞAÐ var gleðilega mikið um er-
lendar heimsóknir djasssveita í
september.
Fyrst kom japönsk bossasveit,
sem ekki var upp á marga fiska, þá
barrok og djass milli steins og
sleggju í túlkun tríós Jacques
Loussiers, en allt er þegar þrennt
er og norska hljómsveitin Come
Shine kom sá og sigraði. Margar
ungar norrænar söngkonur hafa
náð heimsfrægð undanfarin ár og
fetað í spor hinna miklu djassdíva;
Alice Babs og Karen Krog. Ég er
sannfærður um að Live Maria
verður í þeim hópi er fram líða
stundir. Klassískir söngdansar
báru upp efnisskrána þótt einstaka
nútímaverk flyti með s.s. The Saga
of Harrison Ceabfethers eftir
Steve Kuhn, sem Sheila Jordan
söng sem best með Arild Ander-
sen.
Það tók Live Mariu dálítinn tíma
að hita sig upp en í September Vernharður Linnet