Morgunblaðið - 13.10.2002, Page 34

Morgunblaðið - 13.10.2002, Page 34
SKOÐUN 34 SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ALLNOKKUÐ er umliðið síðan ungur prestsnemi kom heim frá námi í Frakklandi og hafði hvorki farkost né förunaut til ferðarinnar annan en kölska sjálfan, sem þekktur er fyrir það, að geta breytt sér í allra kvikinda líki. Kölski brá yfir sig selsham og synti með guðfræðinginn á bakinu til Íslands. Í fjörunni fyrir Suðurlandi dró guðsmaðurinn ritninguna upp úr pússi sínu og endurgalt ferðafélaga sínum samfylgdina með því að keyra hana í höfuðið á honum. Það höfuð- högg hefur frægast orðið á Íslandi, fyrr og síðar, nema ef vera skyldi það axarhögg sem skildi að höfuð og háls Jóns Arasonar biskups á Hólum. Svo minnisstætt varð þetta högg, að ástsæll listamaður þjóðarinnar greypti atvikið í líkneskju sem nú stendur framan við Háskóla Íslands og hefur orðið að táknmynd þeirrar stofnunar, jafnvel íslensku þjóðarinn- ar. Íslendingar voru stoltir af þessu höggi Sæmundar prests og hafa sagt af því sögur allt fram á okkar daga. Fleiri guðsmönnum hefur orðið laus höndin í gegnum söguna og voru þó sumir teknir í dýrlingatölu eða hafnir á stall síðar. Páll postuli þótti slyngur að kasta grjóti og Símoni Pétri lék sverðið vel í hendi er hann hjó eyrað af þjóni æðstaprestsins til þess að verja meistara sinn og eru þeim báðum helgaðar höfuðkirkjur hér á landi og erlendis. Ekki þóttu prestar heldur neinar liðleskjur með- an vopnaburður var leyfður í landinu og dugðu stundum vel. Ögmundur Pálsson sparði hvorki vín og vopn né latti menn sína til verka þegar losna þurfti við Dani úr Skálholti á sínum tíma og var hann þó biskup. Allt fram á 19. öld voru prestar enn taldir til mennskra manna og þannig minnist Geir biskup Vídalín kunn- ingja síns og kollega í sendibréfi. „[Dáinn] er gamli sira Eggert Eiríks- son, áður prestur í Glaumbæ. Hann var mestur reiðmaður allra Skagfirð- inga alla sína tíð, áflogamaður við betri kost, skáld sæmilegt, þó heldur níðskælinn.“ Þessi ummæli lýsa tepruleysi biskupsins gamla í Reykja- vík enda var Geir ekta maður og nefndur í daglegu tali „hinn góði“. Hann bjó við alþýðukjör og vissi hvað það var að basla í þessu lífi. Prestur getur ekki sett sig á stall eins og guð- dómlega veru, afneitað mannlegum kjörum sínum, hann er þáttakandi í hráum hversdagsleikanum þar sem ýmislegt ber við, sumt óvænt og óskemmtilegt. Prestsvígslan er ekki og hefur aldr- ei verið trygging fyrir hreinleika og sakleysi, hún er hvorki fullkomin vörn gegn freistingum, né óbrigðult meðal gegn mistökum. Sú mynd er ný, tilbú- in og fölsk að prestar séu eða eigi að vera öðru vísi en annað fólk, lifandi helgimyndir, ósnortnir á sálu og lík- ama eins og óspjallaðar meyjar. Hvaðan skyldi sú fabúla vera ættuð? Úr rauðum ástarsögum sem gefnar eru út í lélegu bandi fyrir jólin? Það er undarleg sýn manna á presta í sam- tímanum. Þeir eiga helst ekki að vera af alþýðukyni, ekki venjulegir menn heldur upphafnir öðlingar, atvinnu- góðmenni. Ræðumenn miklir, eigi síðri en meistarinn forðum á fjallinu, fullkomnir fræðarar, fagrir við altar- ið, góðir börnum og ungmennum, eft- irlæti aldraðra og allra hugljúfi. Og ekki þykir verra að þeir séu öllum sammála, alls engum andsnúnir, þægilegir og meðfærilegir í hvívetna, frjálslyndir og alþýðlegir niður fyrir sig. Andsnúnir syndinni en engum syndara. Með öðrum orðum, það má helst ekki sjást, að þeim renni heitt blóð um æðar, með mannlegar hvatir og viðbrögð og gætu þess vegna allt eins verið úr pappa, rétt eins og lög- regluþjónarnir hennar Sólveigar sem koma átti fyrir við þjóðvegi landsins. Færi sjálfsagt vel á að hafa þannig presta í kirkjunni eins og ástandið er. Á þetta er minnst vegna þess, að prestur af holdi og blóði lenti fyrir nokkru í þeim vanda að stilla til friðar en var barinn í höfuðið fyrir af reiðum listamanni og bar hönd fyrir höfuð sér. Það heitir nú á tímum auðvitað líkamsárás af prestsins hálfu enda sprakk fyrir og hann hvorki smiður né sjómaður, né ölvaður unglingur á rölti um miðbæinn. Ekki var hann heldur Pétur eða Páll né Sæmundur fróði. Prestur í samtíðinni er auðvitað maður ef hann sýnir mannleg við- brögð og háttu. Nú eru sem sé nýir tímar. Og það eru tímar hraðfleygra, kitlandi og lif- andi frétta, tímar afhjúpana, þegar allt hið myrka og soralega í mannlegu atferli er leitt fram í dagsljósið. Ekki er verra að fréttin fjalli um mann sem er, eða reynir að vera, fyrirmynd ann- arra og hefur atvinnu af því að boða sannleikann. Slíkar fréttir eru góðu heilli fljótunnar í tímahraki fjöl- miðlanna, og þó þær séu ekki endi- legar nákvæmar og réttar eru þær skrambi sláandi og seljast vel. Það getur þá annar leiðrétt þær seinna ef hann nennir og þorir. Mestu skiptir, að í þeim sé safi og bragð og óþokkinn náist af stallinum. Fréttamenn, stundum með tepru- legan uppgerðar hreinleikasvip og þó nokkuð ábyrgðarfullir í fasi, takast einarðir á við ósómann, sjálfskipaðir siðgæðisverðir og dómarar í málefn- um líðandi stundar. Þeir vinna jú á fréttastofu. Og gott ef þeir eru ekki reiðivöndurinn og refsingin líka. Enda hóta menn nú gjarnan því, þeg- ar þeir eiga í illindum hver við annan, „að fara með málið í blöðin.“ Á Vesturlandi starfar fréttaritari RÚV, Gísli Einarsson, og ritar þarf- lega grein í Skessuhornið nýlega í til- efni rætinnar fréttar af alvarlegu máli. Þar á lítilmagni í hlut. Hann kallar þar óvandaðar fréttir „gapa- stokk nútímans“. Hann segir: „Gall- inn er hins vegar sá að með því að stilla sakamanninum upp á almanna- færi og opinbera þannig hver hann er og niðurlægja hann um leið er ekki aðeins verið að láta refsinguna bitna á þeim sem til hennar hefur unnið held- ur um leið hans aðstandendum sem í fæstum tilfellum hafa neitt til saka unnið. Það sama er uppi á teningnum þegar fjölmiðlar ákveða að birta nöfn ÞEGAR MAÐUR BÍTUR HUND… „Já, það þykir dauð- ans alvara þegar prest- ur ber hönd fyrir höfuð sér í ósjálf- ráðu fáti þegar til hans er barið.“ Eftir Flóka Kristinsson  Ársalir- fasteignamiðlun  Ársalir- fasteignamiðlun  Til sölu vandað ca 135 fm einbýlishús ásamt 40 fm bílskúr og sólstofu. Húsið er mikið end- urnýjað, klætt að utan með áli og með nýlegu hallandi þaki. Eigendur taka á móti áhugasömum kaup- endum í dag, sunnudag, frá kl. 14-18. Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali. OPIÐ HÚS VORSABÆR 6 ÖLDUGATA 29 Opið hús í dag kl. 14-18 Sérstaklega falleg, rúmgóð og mikið endurnýjuð um 100 fm, 3ja herbergja íbúð á 1. hæð (jarðh.) í góðu steyptu fjórbýli á þessum vinsæla stað. Parket og flísar á gólfIi. Endurnýjaðar lagnir. Sér inngangur. Áhv. um kr. 4,4 millj. húsbr. og lífsj. Verð 13,5 millj. VERIÐ VELKOMIN HEIMSENDI - HESTHÚS Suðurlandsbraut 54, við Faxafen, 108 Reykjavík. Sími 568 2444, fax 568 2446. Til sölu er 51 hesta hesthús á besta stað á Heimsenda í Kópavogi. Húsið er full- innréttað á mjög vandaðan hátt. Undir húsinu er tað- og spónakjallari. Taðkjall- arinn er vélmokaður. Stórt gerði. Í dag er húsinu skipt niður í eina 6 hesta einingu, fjórar 8 hesta einingar og eina 13 hesta einingu. Húsið selst í einu lagið eða hlutum og er til afhendingar strax. Ingileifur Einarsson löggiltur fasteignasali EINBÝLI  Brekkuland í Mosfellsbæ - glæsilegt Um 340 fm glæsilegt einbýlishús í útjaðri byggðar. Húsið er eitt athylisverðasta húsið á markaðnum í dag og skiptist í mjög stórar stofu með arni og mikilli loft- hæð, 3-4 svefnherb., mjög stórt eldhús, bað o.fl. Í sérstakri viðbygginu er tvö- faldur 42 fm bílskúr og 42 fm vinnustofa eða séríbúð. Húsið stendur á stórri lóð með fallegu útsýni. 2703 PARHÚS  Svöluás m. útsýni. Tvílyft um 228 fm parhús með innb. bíl- skúr og sólstofu. Tvennar svalir. Mjög fallegt útsýni. Húsið afh. frágengið að ut- an en fokhelt að innan. V. 14,6 m. 2777 RAÐHÚS  Ásholt - vandað raðhús Gott raðhús á tveimur hæðum ásamt stæði í bílageymslu. Eignin skiptist þannig að á neðri hæð er forstofa, gestasnyrting, stofa og borðstofa með litlum garðskála og eldhús. Á efri hæð er sjónvarpshol, þrjú herbergi og baðher- bergi. Stæði í bílageymslu fylgir og sér- geymsla í bílakjallara. V. 18,9 m. 2749 4RA-6 HERB.  Tunguvegur, fimm svefnher- bergi - efri sérhæð Erum með í einkasölu snyrtilega og bjarta efri sérhæð. Eignin er skráð í heild 174 fm og þar af íbúð um 140 fm. Fimm herbergi, tvö baðherbergi. Suðursvalir. Tvö baðherbergi. Mjög rúmgóð íbúð á góðum stað. Hentar vel fyrir stóra fjöl- skyldu. V. 15,8 m. 2775 Keilugrandi með bílskýli Erum með í einkasölu mjög fallega og bjarta u.þ.b. 100 fm íbúð á 3. hæð (2. hæð frá götu) ásamt stæði í bíla- geymslu. Íbúðin er með parketi og fal- legum innréttingum. Tvennar svalir. Hús og sameign í góðu ástandi. V. 14,5 m. 2757 3JA HERB.  Írabakki - standsett 4ra herb. mjög falleg og björt íbúð í barnvænu umhverfi. Íbúðin skiptist í 3 herbergi, stofu, standsett eldhús og standsett bað. Í kjallara fylgir aukaherb. með aðgangi að snyrtingu. V. 11,8 m. 2754 2JA HERB.  Austurströnd + stæði í bíla- geymslu Falleg 2ja herbergja íbúð með glæsilegu útsýni. Íbúðin skiptist þannig: Stofa, eld- hús, herbergi og baðherbergi. Sameigin- legt þvottahús. Merkt stæði í bíla- geymslu. Nýbúið er að yfirfara blokkina að utan. V. 9,5 m. 2770 Sérlega glæsileg 4ra herbergja Mótás íbúð á 2. hæð (efstu) með sérinngangi við Starengi. Íbúðin skiptist m.a. í þrjú her- bergi, stofu, eldhús, baðher- bergi og sérþvottahús í íbúð. Vandaðar innréttingar. V. 13,9 m. 2685 Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, milli kl. 14 og 18. Starengi 8, 2.h.t.v. - OPIÐ HÚS Í dag á milli kl. 13 og 15 verður þetta fallega parhús f. eldri borgara, á einni hæð u.þ.b. 70 fm sýnt. Eignin er í mjög góðu ástandi og er allt sér m.a. sérbíla- stæði. Góð suðurverönd. Húsið stendur við þjónustumiðstöð eldri borgara við Hjallasel þar sem ýmsa þjónustu er hægt að fá. Laus fljótlega. V. 14,3 m. 2769 Hjallasel 29 - parhús f. eldri borgara - OPIÐ HÚS 5 herb. glæsileg 149 fm íbúð á einni hæð sem snýr til allra átta. Íbúðin skiptist í gang, þrjú her- bergi, hol, baðherbergi, þvotta- hús/geymslu og óvenju stórar og glæsilegar stofur. Fallegt útsýni. V. 19,8 m. 2650 Gunnhildur og Hermann sýna íbúðina í dag, sunnudag, milli kl. 14 og 17. Naustabryggja 26, 2.h.t.h. - glæsileg - OPIÐ HÚS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.