Morgunblaðið - 13.10.2002, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 13.10.2002, Qupperneq 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 2002 45 Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk mánudagskvöld kl. 20 í kórkjallara. Laugarneskirkja. Dótasöludagur mánu- dag kl. 13-15 til styrktar Hjálparstarfi kirkj- unnar. Foreldrafélag Laugarnesskóla og Laugarneskirkju efna til dótasölu í safn- aðarheimilinu í tilefni af starfsdegi kenn- ara. Börn í 1. til 6. bekk selja heilleg leik- föng á hagstæðu verði og afrekstur sölunnar rennur allur til styrktar „fóstur- systkina“ frá Indlandi, sem TTT krakkar hafa ákveðiða að taka að sér með hjálp fé- laga sinna í hverfinu. Safnaðarheimilið verður opnað kl. 13. Sölu lýkur kl. 15 en kl. 16 verður húsinu lokað. Tólf spora hóp- ar koma saman í safnaðarheimilinu mánu- dag kl. 20. Umsjón Margrét Scheving sál- gæsluþjónn. (Sjá síðu 650 í Textavarpi). Neskirkja. Kirkjustarf fyrir 6 ára börn mánudag kl. 14. Söngur, leikir, föndur og fleira. 10-12 ára starf (TTT) mánudag kl. 16.30. Tólf sporin, andlegt ferðalag. Litli kórinn, kór eldri borgara, þriðjudag kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Allir velkomnir. Seltjarnarneskirkja. Æskulýðsfélag kl. 20 (8.-10. bekkur). Árbæjarkirkja. Æskulýðsfélagið Lúkas með fund í safnaðarheimilinu kl. 20. Mánudagur: Kl. 15.15 TTT í safnaðarheim- ilinu. Fella- og Hólakirkja. Mánudagur: Kl. 13- 16.30 kirkjustarf fyrir fullorðna í safnaðar- heimili kirkjunnar í umsjón Lilju djákna. Farið verður frá Fella- og Hólakirkju kl. 13 í heimsókn í Félags- og þjónustumiðstöðina í Árskógum. Hægt er að kaupa sér kaffi og meðlæti í Árskógum. Fyrirbænaefnum má koma til djákna í síma 557 3280. Þeir sem óska eftir akstri láti vita í sama síma fyrir hádegi á mánudögum. Æskulýðsstarf fyrir 8.-10. bekk á mánudagskvöldum kl. 20. Grafarvogskirkja. Sunnudagur: Bænahóp- ur kl. 20. Tekið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 9-17 í síma 587 9070. Mánudagur: Kirkjukrakkar fyrir börn 7-9 ára í Engjaskóla kl. 17.30-18.30. KFUK fyrir stúlkur 9-12 ára í Grafarvogskirkju kl. 17.30-18.30. TTT fyrir börn 10-12 ára í Engjaskóla kl. 18.30-19.30. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10. bekk kl. 20. Mánudagur: Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mánudagur: Ung- lingar 16 ára og eldri kl. 20-22. Bessastaðasókn. TTT-starf fyrir 10-12 ára drengi og stúlkur kl. 17.30-18.30 í stofu 104 í Álftanesskóla. Rúta ekur börnunum heim að loknum fundi. Skemmtileg dag- skrá. Mætum öll. Vídalínskirkja. Fjölbreytt æskulýðsstarf fyrir 9-12 ára drengi í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 17.30-18.30 í umsjón KFUM. Lágafellskirkja. Mánudagur: Al-Anon-fund- ur í kirkjunni kl. 21. Bænahópur á mánu- dagskvöldum í Lágafellskirkju kl. 20. Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnudag kl. 19.30. Keflavíkurkirkja. Fjöskylduguðsþjónusta kl. 11. Undirleikari: Helgi Már Hannesson. Prestur sr. Sigfús Baldvin Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organisti Hákon Leifsson. Landakirkja Vestmannaeyjum. Mánudag- ur: Kl. 16 æskulýðsstarf fatlaðra, yngri hópur. Hulda Líney, Ingveldur Theódórs- dóttir og sr. Þorvaldur Víðisson. Akureyrarkirkja. Mánudagur: Kirkjusprell- arar, 6-9 ára starf, kl. 16. Allir 6-9 ára krakkar velkomnir. Ingunn Björk Jónsdótt- ir, djákni. TTT-starf kl. 17.30. Allir 10-12 ára velkomnir. Ingunn Björk Jónsdóttir, djákni. Krossinn. Almenn samkoma í Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir. Vegurinn. Fjölskylduhátíð vegna 20 ára af- mælis kirkjunnar kl. 16.30. Trúðar, leikir, dans o.fl. sniðugt. Boðið upp á gos og kök- ur á eftir. Allir velkomnir. Minnum á að miðasalan er í fullum gangi vegna matar- og skemmtikvöldsins 19. okt. nk. KEFAS, Vatnsendabletti 601. Sunnudag- ur: Samkoma kl. 14. Björg R. Pálsdóttir talar. Bænastund fyrir samkomu kl. 13.30. Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt barnastarf fyrir 1-5 ára börn og 6-12 ára. Þriðjud: Bænastund kl. 20.30. Miðvikud.: Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Lofgjörð, hugleiðingar, fróðleiksmolar og vitnisburðir. Allir velkomnir. KFUM & KFUK. Samkoma kl. 17. Friðrik Hilmarsson byrjar samkomuna með upp- hafsorðum. Sr. Ólafur Jóhannsson talar út frá yfirskriftinni: Maðurinn sem þekkti Guð. Barnastundir á sama tíma. Heitur matur seldur eftir samkomuna. Vaka kl. 20. Loftgjörð, fræðsla og fyrirbæn. Allir velkomnir. Biblíulestur í Landakoti. Sr. Halldór Grön- dal heldur áfram biblíulestri sínum mánu- daginn 14. október kl. 20 í safnaðarheim- ili kaþólskra á Hávallagötu 14. Safnaðarstarf NÚ er kórastarfið í Hafnarfjarð- arkirkju að fara í gang og er nýr kórstjóri, Antonia Hevesi, tekin til starfa. Framundan eru skemmtileg verkefni í vetur. Starfræktur verður kórskóli og haldnar raddæfingar. Laust pláss er fyrir fleiri söngvara í öllum röddum, sérstaklega alt, tenór og bassaröddum. Greitt er fyrir starf í kórnum. Málþing PRÓFASTSDÆMIN í Reykjavík kynna málþingið: Umburðarlyndi og ólíkar lífsskoðanir í skóla- starfi sem verður haldið í Kenn- araháskóla Íslands, stofu M-391, þriðjudaginn 15. okt. nk. kl. 16.30-19. Framsögumenn eru sr. Sig- urður Pálsson og Hanna Ragn- arsdóttir, lektor. Fundarstjóri er Gísli Tryggvason, framkvstj. BHM og formaður foreldrafélags eins leikskólans í Kópavogi. Einn- ig munu heyrast raddir ólíkra hópa. Fanny K. Tryggvadóttir talar fyrir Hvítasunnumenn, Sig- urður Hólm Gunnarsson fyrir Siðmennt og Svanberg K. Jak- obsson fyrir Votta Jehóva. Málþingið er öllum opið og að- gangur ókeypis. Morgunblaðið/Sverrir Hafnarfjarðarkirkja og Tónlistarskóli Hafnarfjarðar. Kórastarf Hafnarfjarðarkirkju KIRKJUSTARF ✝ Marta Vilbergs-dóttir fæddist á Hvalnesi 27. október 1913. Hún lést 24. september síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Vilbergur Magnússon, bóndi og sjómaður á Hvalnesi í Stöðvarhreppi, f. 31.7. 1881, d. 26.12. 1956, og Ragnheiður Þorgrímsdóttir hús- freyja á Hvalnesi, f. 19.2. 1884, d. 26.9. 1968. Systkini Mörtu eru Sigurborg, f. 21.4. 1906, d. 1.4. 1992, Þorgrím- ur, f. 27.9. 1907, d. 15.10. 1979, Magnús, f. 1909, dó ungbarn, Hall- dóra, f. 26.3. 1911, d. 12.9. 1989, Aðalheiður, f. 2.6. 1915, d. 2.5. 1982, Þórarinn, f. 11.7. 1919, Kjartan, f. 6.3. 1921, d. 20.4. 1993, Ari, f. 6.5. 1925, d. 10.8. 1988, og Anna, f. 8.4. 1928. Á lífi eru Þór- arinn og Anna. Marta eignaðist ekki börn en tók í fóstur ársgamla Guðbjörgu Reimars- dóttur, f. 14.2. 1937. Maður hennar var Sverrir Þorgríms- son, f. 9.5. 1928, d. 25.5. 1988. Börn þeirra eru: Ragn- heiður Bergrún f. 27.10. 1953, Þor- grímur, f. 9.1. 1957, Þórarinn Daði, f. 11.7. 1961, Marta Stefanía, f. 8.7. 1963, og Oddný Þórunn, f. 19.9. 1968. Núver- andi sambýlismaður Guðbjargar er Tryggvi Ingvarsson, f. 11.9. 1920. Marta hóf búskap 1943 með Stef- áni Þórðarsyni í Ási á Breiðdals- vík og bjó þar þangað til hann lést 1970. Eftir það fluttist hún til Stöðvarfjarðar og bjó þar þar til hún fluttist á Hjúkrunarheimilið á Fáskrúðsfirði. Útför Mörtu var gerð frá Stöðv- arfjarðarkirkju 1. október síðast- liðinn. Fyrstu minningar mínar um vin- konu mína, Mörtu Vilbergsdóttur, eru frá barnaskólanum á Stöðvarfirði. Við höfðum lent í sömu deild þetta haust. Þá voru nú bara tvær deildir, setið við langborð og bekkir sitt hvor- um megin. Það var komin sprenglærð kennslukona norðan úr Þingeyjar- sýslu, Unnur Jakobsdóttir, og frést hafði að hún ætlaði ásamt öðru að kenna Íslandssögu eftir Jónas frá Hriflu. Hefst nú fyrsti skóladagur, kenn- arinn birtist og heilsar öllum með handabandi. Síðan setjast allir, hún skrifar niður nöfn okkar og fer að rabba við okkur og spyrja um ýmis- legt, hvort við kynnum einhver kvæði eða sálma og hvort einhver treysti sér til að fara með sálm er hann kynni. Við sátum eins og dæmd, dauð- feimin, og var lítið um svör. Hún snýr sér þá að Mörtu og spyr hana hvort hún vilji fara með einhvern sálm sem hún kunni. Henni hefur sjálfsagt litist best á hana, og hún varð heldur ekki fyrir vonbrigðum. Ekki stóð á Mörtu. Hún flutti svo fallega sálminn „Þú guð sem stýrir stjarnaher og stjórnar ver- öldinni“. Það var dauðaþögn á meðan, og ég efast um að nokkurn tíma hafi verið hlustað eins vel. Enda fékk hún hrós fyrir. Hún var sannarlega til fyr- irmyndar og átti eftir að vera það allt sitt líf. Marta kom úr stórum systkinahópi frá Hvalnesi í Stöðvarfirði, dóttir hjónanna Ragnheiðar Þorgrímsdótt- ur og Vilbergs Magnússonar er þar bjuggu. Kynni okkar Mörtu héldu áfram. Hún var lánuð að Hóli, næsta bæ við heimili mitt. Við hittumst þeg- ar við vorum að sækja kýrnar, það var nú ekki alltaf gott að finna þær þegar þokan var að angra okkur. Þá lágu þær kannski í einhverjum hvammin- um svo lítið bar á og létu fara vel um sig. Það þýddi ekkert að fara heim og kvarta, okkur var skipað af stað aftur og sagt að leita betur. Hún þurfti einnig að sækja geiturnar sem þar voru og marga ferðina fór hún eftir strákunum á heimilinu sem voru að stelast að heiman. Hún var sívinnandi því margt var að gera á stóru sveita- heimili. Marta var stundum lánuð í önnur byggðarlög, því alls staðar var þörf fyrir duglega unglinga. Hún var líka sérsaklega dugleg og samvisku- söm og barngóð, enda eftirsótt. Marta giftist Stefáni Þórðarsyni, sjómanni og afgreiðslumanni hjá Kaupfélaginu á Breiðdalsvík, áður hafði hún tekið í fóstur litla stúlku, Guðbjörgu Reimarsdóttur, og voru þá báðar á Hvalnesi. En nú fylgdust þær að til Breiðdalsvíkur. Stefán hafði búið með móður sinni sem var orðin lasburða. Marta reyndist henni mjög vel og annaðist hana meðan hún þurfti með. Það var alltaf jafn gaman að koma að Ási, en svo hét hús þeirra. Þau voru samhent um að taka vel á móti gestum og láta þeim líða vel, enda leið varla sá dagur að ekki væru einhverj- ir aðkomumenn þar og kostgangarar í lengri eða skemmri tíma. Eftir fráfall Stefáns flutti Marta aftur til Stöðvarfjarðar. Guðbjörg, eða Gugga eins og hún var alltaf köll- uð, var þá gift og farin þar að búa og átti börn og yndislegt heimili og þar var ákaflega friðsælt og gott að koma. Mér fannst Marta alltaf sjá eftir því að fara frá Breiðdalsvík. Þar átti hún marga góða vini og fyrsta heimilið. Þar verður alltaf eitthvað eftir af manni. En hún bar harm sinn í hljóði, lagði ekki í vana sinn að kvarta yfir neinu. Hún hélt áfram að taka á móti fólki, allir alltaf jafn velkomnir. Sér- staklega hændust börn að henni, þeim þótti gott að koma við hjá henni og hlýja sér, þá voru vettlingar vel þegnir. Frændi minn er oft búinn að segja mér hve góð Marta sé, henni fannst sjálfsagt hann eiga stundum erfitt. Hún var fundvís á þá sem áttu í erfiðleikum eða voru minni máttar. Guðbjörg, dóttir mín, sagði er ég tilkynnti henni lát Mörtu: – Mamma, manstu þegar þið pabbi komuð einu sinni að heimsækja mig, þá komuð þið með svo falleg brúðuföt frá henni sem hún hafði prjónað handa börnunum mínum. Fleiri gætu sagt frá slíku, því hún hafði yndi af að gefa og ekki vantaði myndarskapinn. Ég á marga fallega dúka frá henni. Ég leit oft inn hjá henni eftir að hún flutti í Hátún og alltaf var hún að vinna að einhverju listaverki eða þá að lesa, því hún hafði yndi af bókum og gat nú veitt sér það, var alltaf með eitthvert lesefni á borð- unum og hjá sófanum. Með bljúgum huga læt ég hugann reika. Mér finnst hún Marta hafa átt stóran hóp af börnum í orðsins fyllstu merkingu. Með hjartans þakklæti frá mér og mínum. Innilega samúð flyt ég öllum börnunum og öðru venslafólki. Þorbjörg Einarsdóttir frá Ekru. MARTA VILBERGSDÓTTIR ✝ Jóhann Vilhjálm-ur Guðlaugsson fæddist á Steinstúni í Árneshreppi á Ströndum 6. júní 1906. Hann lést á Hrafnistu í Reykja- vík 6. október síð- astliðinn. Hann var þriðji yngsti tíu barna hjónanna á Steinstúni, Guðlaugs Jónssonar og Ingi- bjargar Jónsdóttur. Hinn 19. október 1935 giftist Jóhann Sigríði Ingibergs- dóttur frá Vestmannaeyjum, f. 31. maí 1911, d. 29. janúar 2002. Þau eiga tvo syni, Guðlaug, f. 24.4. 1936, d. 26.2. 1942, og Guð- laug Reyni, f. 25. ágúst 1944, maki hans er Berglind Oddgeirs- dóttir og börn þeirra eru Sigríð- ur, Hanna og Jóhann. Fyrir hjónaband átti Sig- ríður: 1) Ármann Jónsson, f. 27. ágúst 1928, maki Margrét Einarsdóttir, þau skildu. Börn þeirra eru Haukur, Val- garður, Guðbjörn og Einar, d. 1992. 2) Edda Jóhannsdótt- ir, f. 7. febrúar 1932, fyrri maki hennar var Brandur Brynjólfsson, þau skildu. Börn þeirra: Sigríður Inga og Jó- hann. Seinni maki Eddu er Magnús Magnússon. Síðustu æviárin dvöldu þau Jó- hann og Sigríður á Hrafnistu í Reykjavík. Útför Jóhanns verður gerð frá Fossvogskapellu á morgun, mánudaginn 14. október, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Svo lengi sem ég man eftir var nafn föðurbróður míns Jóhanns Vil- hjálms Guðlaugssonar frá Steinstúni í Árneshreppi og tilvera hluti af veruleikanum, þó ég muni hann ekki á æskuheimili okkar Steinstúni, nema sem gest, enda var aldursmun- ur okkar svo mikill að hann hafði lagt af stað út í heiminn um það leyti sem ég fór að muna eftir mér. Jóhann ólst upp hjá foreldrum sín- um á Steinstúni. Hann missti föður sinn þegar hann var 15 ára og var því fljótlega þörf fyrir krafta hans við hin ýmsu störf á heimilinu. Af þessu leiddi að hann fór snemma að vinna og þótti strax með afbrigðum mikill verkmaður, enda var hann eftirsótt- ur starfsmaður hvar sem hann fór. Sláttumaður var hann svo mikill að fáir stóðu honum á sporði í þeirri „íþrótt“. Hann bjó á Kirkjubóli í Skutulsfirði í nokkur ár um miðjan fjórða áratuginn. Líklega blundaði bóndinn lengi í brjósti Jóhanns þó vettvangurinn yrði annar. Síðan fluttist hann til Reykjavíkur og var verkamaður meðan starfsævin ent- ist. Jóhann skipaði sér strax í fylk- ingarbrjóst í verkalýðsbaráttunni og var lengst af félagi í Iðju, félagi verk- smiðjufólks í Reykjavík. Hann er ótvírætt einn af þeim sem með virkri þátttöku lögðu grunninn að þeim kjörum sem íslensk verkalýðsstétt býr við í dag. Ekki er hægt að tala um ævi og starf Jóhanns Guðlaugssonar án þess að nefna lífsförunaut hans, hana Sigríði Ingibergsdóttur, þá yndis- legu konu. Áður og fyrr kom ég ósjaldan á heimili þeirra. Þar mætti maður ævinlega sama glaða og elskulega viðmótinu hjá þeim hjón- um. Ástríkið milli þeirra fór heldur ekki milli mála. Þau höfðu mikið yndi af að spila bridge og stunduðu þá íþrótt lengi. Síðustu árin urðu þeim hjónum þung í skauti. Eftir að Sigríður veiktist var aðdáunarvert að fylgjast með þeirri nærgætni og umhyggju sem Jóhann sýndi konu sinni. Þegar eitthvað bjátaði á og Sigríður gat ekki tjáð sig, eða annað var að, tók- ust þau í hendur, horfðust í augu, og brostu hvort til annars. Og allt varð gott. Þegar ég heimsótti Jóhann frænda minn í síðasta sinn var ég ný- kominn norðan frá Steinstúni, hann vissi það, og sagði: ég var að bíða eft- ir að þú kæmir. Við töluðum ekki um annað en tilveruna þar, fyrr og nú. Mér fannst eins og hann væri kom- inn heim, í huganum. Heiðarlegur maður og einlægur er genginn. Ég og mitt fólk þakkar hon- um samfylgdina. Far þú í friði kæri frændi. Guðlaugur Gíslason. JÓHANN V. GUÐLAUGSSON Legsteinar Vönduð íslensk framleiðsla Fáið sendan myndalista Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 MOSAIK  Marmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.