Morgunblaðið - 13.10.2002, Síða 55
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 2002 55
með Maríu Björk, Siggu Beinteins og Helgu
Skipt í hópa eftir aldri, 5 í hópi.
Einum kennt í einu, sungið í hljóðnema.
Kennsla í raddbeitingu og sungið
við undirleik. Hljóðnematækni.
Aukið sjálfstraust og sjálfsöryggi!
Allir fara á skrá fyrir væntanleg verkefni.
Tónleikar í lok námskeiðs og upptaka á snældu.
Barnaborg og Barnabros
Flikk Flakk
Söngvaborg
Jabadabadú
Bugsy Malone
Greace
Litla Hryllingsbúðin
Jóhanna Guðrún
Christina Aguilera
Whitney Houston
Mariah Carey
Atomi Kitten
Nelly Furtato
Monica
Brandy
Leann Rimes
N´Sync
Boyzone
Backstreet Boys
Red Hot Chilli Peppers
TLC
Eminem
Beastie Boys
M.C. Hammer
Bobby Brown
Fat Boys
L.L. Cool J.
Abba
The Beatles
Tina Turner
Elton John
Eric Clapton
Patsy Cline
og margt fleira...
Allt það nýjasta frá:
Britney, Destiny´s Child,
Macy Gray, Pink,
Kylie Minogue,
Jennifer Lopes, Dido,
Shakira, Alicia Keys,
Gwen Stefani, Celine
Dion, Alanis Morisette,
Creed og No Doubt
Byrjenda- og framhaldsnámskeið 5-12 ára
R’n’B og rapp fyrir stráka og stelpur
Söngnámskeið fyrir unglinga og fullorðna
Langar þig að læra að syngja? Nú er tækifærið. Yfir 500
ný og gömul lög í boði, dægurlög, popplög, jazz og rokk.
Upplýsingar og innritun í síma 575 1512.
Námskeiðin hefjast síðustu vikuna í október
Kennt verður í Valsheimilinu, Hlíðarenda.
Jóhanna Guðrún ég sjálf
10
Lögin sem í boði eru: (Allt það nýjasta!)
Nemendum gefst kostur á að fara í hljóðver og syngja inn
á geisladisk.
Erum alltaf að leita eftir börnum og unglingum í
væntanleg verkefni t.d. leikhús kvikmyndir ofl.
Viltu ráða því í hvaða framhaldsskóla þú ferð næsta haust?
Ertu með nógu góðar einkunnir til að geta það?
Ef ekki þá bjóðum við þér
NÁMSAÐSTOÐ
svo þú getir náð þér á strik í náminu
Nemendaþjónustan sf.
s. 557 9233
www.namsadstod.is
EKKI er það bara að meira erum að vera í hiphopi vestanhafs en nokkru sinni heldureru menn innan þess að
beita nýjum leiðum og aðferðum til
að koma sér í samband við áheyr-
endur. Víst eru margir enn að eltast
við peninga og frægð, setja sig í
stellingar og þykjast vera bófar og
bísar, rappa um byssur, kvensur og
dóp, en þeir eru fleiri sem eru með
veigameiri yrkisefni, pólitík, sam-
félagsmál og innviði mannshjartans.
Nýjar gerðir hiphopara nýta sér
gjarnan Netið til að ná sambandi við
áheyrendur sína, byrja á því að gefa
út diska og snældur sjálfir og gera
tónlistina jafnvel aðgengilega á Net-
inu eða þeir láta afskiptalaust að
menn séu að skiptast á mp3-skrám.
Non Phixion er flokkur hiphopara
sem hafa verið áberandi undanfarin
fjögur til fimm ár en ekki tekist að
koma frá sér skífu fyrr en nú fyrir
skemmstu að The Future is Now
kom út. Fjórmenningar skipa
sveitina, þrír rímnamenn, Ill Bill,
Goretex Medinah og Sabac Red, og
einn taktsmiður, DJ Eclipse. Þeirra
er fyrst getið hjá útgáfunni Wild
Pitch Records fyrir fjórum árum (en
stjóri þess fyrirtækis var MC Serch
úr 3rd Bass). Hjá Wind Pitch gaf
Non Phixion út snældu og var á
safnsnældu frá fyrirtækinu en aldrei
kom eiginleg breiðskífa. Næstu ár
voru þeir félagar hjá ýmsum fyr-
irtækjum, gáfu út snældur og stök
lög, en innihald textanna þótti flest-
um fullharkalegt og tónlistin hrá.
Fyrsta smáskífan, Legacy, kom út
1998 og í kjölfar hennar gerði sveitin
samning við Geffen-útgáfuna. Þar á
bæ vissu menn aftur á móti ekkert
hvað átti að gera við svo eldfima
sveit og þegar Non Phixion skilaði
inn smáskífulaginu I Shot Reagan
gafst Geffen upp og rifti samningum.
Non Phixion-félagar færðu sig um
set og sömdu við Matador-útgáfuna
sem hefur sérhæft sig í framúr-
stefnurokki, en um það leyti sem
fyrsta breiðskífan var tilbúin slitnaði
upp úr því samstarfi líka.
Á næstu mánuðum komu út fleiri
smáskífur en engin plata, aukin-
heldur sem þeir félagar komu við
sögu á plötum annarra listamanna,
en alls hafa Non Phixion-félagar
sent frá sér sautján smáskífur hjá
níu fyrirtækjum. Síðasta haust gerði
sveitin svo samning við Warner-
útgáfuna og loks virtist sem breið-
skífa kæmi út. Ekkert varð úr,
samningum var sagt upp og aftur
voru þeir félagar lausir allra mála.
Gerðu þeir svo samning við enn eina
útgáfuna, að þessu sinni smáfyr-
irtæki, og þá fóru hjólin að snúast,
The Future Is Now kom út fyrir
skemmstu. Frábærlega kraftmikil
skífa með beittum textum sem gegn-
sýrðir eru af nöpru háði.
Kanadískt rímnaskáld
Ákveðinn þáttur í því hve hiphop
hefur verið að breytast undanfarin
ár er að rímnasmiðir koma frá fleiri
stöðum en helstu stórborgum
Bandaríkjanna og til að mynda er
mikið líf með kanadískum rímna-
skáldum. Margur kannast eflaust við
kanadískt hiphop í gegnum safnskíf-
una skemmtilegu Battle Axe Warr-
iors, en einnig eru Swollen Members
kanadískir, Buck65 og Noah 23 sem
sendi frá sér fyrirtaks skífu, Quick-
sand, fyrir skemmstu.
Noah Brickley, sem kallar sig
Noah23 er frá háskólabænum
Guelph í Ontario-fylki í Kanada, en
býr í Toronto. Líkt og alsiða er á
hann sér fjölmörg aukasjálf, Scuzz-
bucket, Andy Warhol, The Hall
Monitor, Fuzzy Logic, Knee High
Sesscity, Lampshade Panorama,
Yukon Dawn, Thudbug og svo má
telja. Hvað tölurnar fyrir aftan nafnið
varðar segir hann þær hafa valið sig
er hann las Illuminatus-þríleikinn.
Meðal sérkenna Noah23 er hvern-
ig hann kryddar hiphopið með drum
’n’ bass, hefur reyndar látið þau orð
falla í viðtölum að framtíð hiphops-
ins liggi meðal annars í því að menn
séu ófeimnir við að leita fanga í öðr-
um tónlistarstefnum, enda segir
hann að hiphop eigi eftir að kvíslast í
ótal áttir líkt og rokkið.
Sitthvað er til af tónlist með
Noah23 þótt ekki sé hlaupið að því
að komast í hana. Netfróðir geta vit-
anlega sótt sér skífur og lög, til að
mynda Neophyte Phenotype, en
einnig er hægt að kaupa diskana á
Netinu. Á þessu ári kom út safn-
diskur, Tau Ceti, með úrvali af eldri
lögum, fimm laga stuttskífa sem
kallast Andy Warhol and the
orphan, nokkuð af stamstarfs-
verkefnum, meðal annars með
Baracuda félaga sínum undir nafn-
inu Bourgeois Cyborgs og svo
Quicksand sem getið er.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Nýir hljómar
Mikið hefur komið út af hiphopi hér á landi á árinu og
meira í vændum. Vestan hafs eru menn líka iðnir, sjá
til að mynda nýjar skífur Non Phixion og Noah23.
Non Phixion-kvartettinn.
Noah Brickley, sem kallar sig
Noah23.