Morgunblaðið - 13.10.2002, Side 58
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Árni Gústafsson útskrifaðist úr School of Audio Engineering í London
árið 1990 og hefur starfað sem hljóðmaður síðan.
HLJÓÐMENN eru ekki allir jafn
heppnir og Árni Gústafsson, sem
fékk tækifæri til að vinna að gerð
nýjustu myndar hins þekkta leik-
stjóra Peters Greenaways, sem
leikstýrði m.a. myndinni Kokk-
urinn, þjófurinn, konan hans og
elskhugi hennar. Árni er nýkom-
inn frá Lúxemborg þar sem hann
vann við hljóðupptökur á The
Moab Story, fyrstu myndinni í þrí-
leiknum um Tulse Luper, The
Tulse Luper Suitcases.
Framleiðandi myndarinnar er
hollenska kvikmyndafyrirtækið
Kasander Film. Árni vann að ann-
arri mynd fyrirtækisins, Saved by
the Whales, sem tekin var upp
hérlendis. „Ég bað þau svona í
hálfgerðu gríni að redda mér ein-
hverju að gera úti. Mánuði seinna
fæ ég tölvupóst um að ég eigi að
mæta til Lúxemborgar í tökur á
nýjustu mynd Peters Greenaways.
Mér dauðbrá en að sjálfsögðu
dreif ég mig út og sé ekki eftir
því,“ segir hann.
Sögur hinna öfundsjúku
Árni var úti í þrjár vikur og
kom heim um miðjan september.
Tökurnar fóru fram í upp-
tökuverum í Lúxemborg en um
var að ræða innitökur fyrir mynd-
ina. Hann segist hafa heyrt ýmsar
sögur um Greenaway en ber hon-
um vel söguna eftir samstarfið.
„Þetta eru bara sögur hinna öf-
undsjúku að ég tel. Það kom á
daginn að hann er mikill herra-
maður og kurteis með afbrigðum,“
segir hann og lýsir Greenaway
einnig sem rólegum og yfirveg-
uðum.
„Hann var líka með allt á hreinu
og vissi hvað hann vildi. Þrátt fyr-
ir það var hann samt til í að
hlusta á stoðanir annarra og taka
mark á þeim,“ segir Árni enn-
fremur um leikstjórann. Hann
bætir því þó við að Greenaway sé
einfari og hafi oftast setið einn til
borðs í matmálstímum.
Árni útskrifaðist úr School of
Audio Engineering í London árið
1990 og hefur starfað sem hljóð-
maður síðan. Hann starfaði með
reyndum hljóðmanni að myndinni
og segir það hafa verið gefandi
reynslu. „Við vorum tveir hljóð-
menn sem tókum þetta verkefni
að okkur, ég og Hugo Helmog,
sem er hollenskur og búinn að
starfa við þetta í 20 ár. Það var
stórkostlegt að vinna með manni
með þessa reynslu. Ég átti að
vera aðstoðarmaður hans og var
alveg sáttur við það en hann lét
mig strax vita að svo væri ekki.
Við gerðum þetta í sameiningu og
gekk samstarfið mjög vel. Hann
hafði svör við öllu,“ segir Árni.
Teiknaði á veggina
Greenaway er þó ekki laus við
sérvisku og leitar ávallt fullkomn-
unar, að sögn Árna. „Einn daginn
mætti ég til vinnu og þá voru út-
litshönnuðurinn og aðstoðarmenn
búnir að vinna alla nóttina og búið
var að eyða fjórum tímum í að
lýsa settið um morguninn. Allir
voru til í tökur og tæki og tól voru
yfirfarin. Þá mætti Greenaway
með kolaliti í hendi og fór að
teikna á veggina. Á meðan sat 50
manna tökulið og horfði þegjandi
á hann í fimm tíma. Svona er hann
og fólk er einfaldlega búið að gera
sér grein fyrir því. Leikmyndin
varð miklu betri á eftir,“ segir
hann.
Greenaway sagði tökuliðinu
sögu frá sínum yngri árum þar
sem í ljós kom að hann var ekki
alltaf jafn þolinmóður. Sagan fjall-
aði um viðbrögð leikstjórans þegar
illa gekk og tækin virkuðu ekki
sem skyldi. „Þegar þess háttar
gerðist á hans yngri árum átti
hann það til að æsa sig,“ segir
Árni og útskýrir að eitt skiptið
hafi ungur drengur öskrað á móti.
Drengurinn sagði að þarna væru
40 manns að vinna fyrir hann og
allir gerðu þeir sitt besta. Hann
sagði leikstjóranum að hætta
þessum látum og vera þakklátur
fyrir það sem hann hefði. „Hann
hló mikið að sögunni og hefur
greinilega haft þessi orð að leið-
arljósi síðan.“
Saga Tulse Luper, rithöfundar
með meiru, spannar yfir 60 ár síð-
ustu aldar og fjalla myndirnar
þrjár um ævintýri hans um víða
veröld. Luper situr oftar en einu
sinni í fangelsi og lærir að nýta
tímann í margvíslega listsköpun.
Myndin verður frumsýnd á næsta
ári og er hægt að lesa meira um
hana á vef Kasander Film.
Níu myndavélar voru notaðar
við tökur á myndinni en Árni hafði
ekki kynnst því áður. „Hver ein-
asti rammi í myndinni er eins og
málverk og ótrúlega miklum tíma
eytt í hverja senu,“ segir hann.
Ennfremur var allur aðbúnaður í
upptökuverinu góður og vel hugs-
að um tökulið og leikara.
Árni segist hafa fengið góð við-
brögð við vinnu sinni við myndina
og vonast til að fá fleiri verkefni
af þessu tagi.
Mikill aðdáandi
Ingvars
J.J. Feild leikur aðalsögu-
persónuna, Tulse Luper, en hann
lék einnig með Ingvari E. Sigurðs-
syni í kafbátamyndinni K-19.
„Hann var ekki mikið að leyna að-
dáun sinni á Ingvari og sagðist
hafa lært mikið af honum. Hann
sagðist hafa unnið í marga mánuði
við K-19 og endaði með eina setn-
ingu eða svo í myndinni. Hann var
ekkert alltof hress með það en
bætti því við að heimur kvik-
myndanna væri harður,“ segir
Árni.
Leikstjórinn mætti með kolaliti í hendi og teiknaði á veggina. Á meðan
sat 50 manna tökulið og horfði þegjandi á hann í fimm tíma.
TENGLAR
.....................................................
www.kasanderfilm.nl
ingarun@mbl.is
Vann við
mynd Peters
Greenaways
Morgunblaðið/Árni Gústafsson
58 SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 13.30
Sýnd kl. 2, 4 og 6. með ísl. tali.
Mánudag kl. 4 og 6
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Ný Tegund Töffara
Frá John Woo leikstjóra Face Off og MI:2
Sannsöguleg stórmynd um mögnuð stríðsátök.
Missið ekki af þessari!
Nicholas Cage hefur aldrei verið betri!
Sýnd kl. 2 með ísl. tali. Mán 4.
Sýnd kl. 8 og 10.50. B.i. 16.Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20. B. i. 16. Mán kl. 5.30, 8 og 10.20.
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd 5.15, 8 og 10.40. B.i. 14.
3, 5.30, 8 og 10.20. Mán 5.30, 8 og 10.20.
1/2Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 3.30, 5.50, 8 og 10.10.
Mánudagur kl. 5.50, 8 og 10.10.
„DREPFYNDIN“
ÞÞ. FBL
Yfir 15.000 manns!
Maðurinn sem getur ekki
lifað án hennar leyfir henni
ekki að lifa án hans. Hvernig
flýrðu þann sem þekkir þig
best? Magnaður spennutryllir í
anda Sleeping With the Enemy.
Einn
óvæntasti
spennutryllir
ársins!
Sýnd 5.50. B.i. 14.
Sýnd kl. 8.
1/2Kvikmyndir.is
„DREP
FYNDIN“
ÞÞ. FBL
Yfir 15.000 manns!
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B. i. 16.
JENNIFER LOPEZ
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
Maðurinn sem getur ekki
lifað án hennar leyfir henni
ekki að lifa án hans. Hvernig
flýrðu þann sem þekkir þig
best? Magnaður spennutryllir í
anda Sleeping With the Enemy.
Einn
óvæntasti
spennutryllir
ársins!
Sun. kl. 4. með ísl. tali. Sun. kl. 4. með íslensku tali.
HL Mbl