Morgunblaðið - 22.10.2002, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 22.10.2002, Qupperneq 1
247. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 22. OKTÓBER 2002 AÐ minnsta kosti fjórtán manns týndu lífi og um 45 slösuðust í sjálfs- morðsárás við bæinn Pardes Hanna í Norður-Ísrael í gær. Var bíll hlað- inn sprengiefni sprengdur upp við hliðina á strætisvagni. Lýstu palest- ínsku Jihad-samtökin yfir ábyrgð á ódæðinu en talsmaður Ariels Shar- ons, forsætisráðherra Ísraels, sagði, að Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, bæri í raun ábyrgð á því þótt hann hefði fordæmt það strax. Fjölmiðlar í Ísrael sögðu, að jeppa með 60 til 80 kílóum af sprengiefni og olíubrúsum hefði ver- ið ekið upp að strætisvagninum er hann hafði stanzað til að taka far- þega. Við sprenginguna varð hann strax alelda og gerði það lögreglu og björgunarmönnum erfitt fyrir í fyrstu með að nálgast hann og koma fólki til hjálpar. Vagninn og bíll til- ræðismannanna, sem voru tveir, brunnu til kaldra kola. Voru 38 manns fluttir á sjúkrahús í þremur bæjum en talið var, að fjórtán manns og hugsanlega fleiri hefðu látizt. Hörð viðbrögð Arafat fordæmdi hryðjuverkið harðlega í gær og lagði áherzlu á, að palestínska heimastjórnin væri al- gerlega andvíg morðum á óbreytt- um borgurum. Zalman Shoval, ráð- gjafi Sharons í utanríkismálum, kenndi hins vegar Arafat um og sagði, að hann bæri í raun ábyrgð á því. Annaðhvort hefði hann beinlínis heimilað ódæðið eða látið vera að banna það. Hryðjuverkið í gær er það blóð- ugasta í Ísrael í nokkra mánuði og búist við hörðum viðbrögðum Ísr- aelsstjórnar. Uzi Landau, almannavarnaráð- herra Ísraels, hvatti til þess að leif- arnar af öryggissveitum heima- stjórnar Palestínumanna yrðu leystar upp. „Við megum ekkert slá af og verðum að halda áfram að- gerðum af fyllstu hörku alls staðar þar sem hryðjuverkaöfl Palestínu- manna eru að verki,“ sagði Landau. Aðaltalsmaður Ísraelshers, Ruth Yaron hershöfðingi, sagði ekki hver yrðu líklegustu viðbrögðin við til- ræðinu af hálfu hersins, en setti það í samhengi við að herinn hefur á síð- ustu dögum slakað á útgöngubanni í nokkrum borgum og bæjum á Vest- urbakkanum. Tilræðið átti sér stað innan við 10 km frá markalínunni að yfirráðasvæði Palestínumanna á Vesturbakkanum, en Ísraelsher endurhertók flesta bæi þar í júní sl., í nafni þess að uppræta starfsemi palestínskra hryðjuverkamanna. Að minnsta kosti fjórtán manns farast í sjálfsmorðstilræði í Ísrael Bíl hlöðnum sprengiefni ekið að strætisvagni Jerúsalem, Karkur. AP, AFP. Reuters Strætisvagninn brann til kaldra kola. Þrjátíu farþegar voru um borð, auk bílstjórans, sem þeyttist út úr vagninum. BANDARÍSKIR rannsóknarlög- reglumenn sögðust í gær hafa fengið símhringingu frá leyniskyttunni sem valdið hefur skelfingu á svæðinu í og í kringum Washington-borg undan- farnar vikur, en ekki hefði verið hægt að skilja röddina í símanum. Hvöttu þeir manninn til að hafa aftur samband. „Sá sem þú hringdir í heyrði ekki allt sem þú sagðir. …Hringdu aftur í okkur svo við náum þessu örugg- lega,“ sagði Charles Moose, lög- regluforingi í Montgomery-sýslu í Maryland, á fundi með fréttamönn- um. Nokkrum tímum fyrr höfðu lög- reglumenn í Virginíuríki umkringt stóran hvítan bíl við almenningssíma við benzínstöð í bænum Richmond og handtekið tvo menn. Kom í ljós við yfirheyrslur að mennirnir tengd- ust raðmorðunum ekki á neinn hátt; þeir munu vera ólöglegir innflytj- endur frá Mið-Ameríku og ekki sak- aðir um annað. „Þeir voru á röngum stað á röngum tíma,“ hefur AP eftir háttsettum rannsóknarlögreglu- manni í Washington, sem ekki vildi láta nafns síns getið. Lögreglan staðfesti í gær að skot- ið var úr sama riffli og í fyrri skot- árásum leyniskyttunnar er maður fékk skot í magann er hann fór út af veitingastað í Ashford í Virginíu sl. laugardagskvöld. Er þetta í tólfta sinn sem leyniskyttan skýtur mann á færi frá því 3. október sl. Níu liggja í valnum og þrír hafa særzt alvarlega. Franskur liðhlaupi? Annars komu fleiri upplýsingar fram úr öðrum áttum í gær sem kunna að tengjast leyniskyttumál- inu. Frönsk yfirvöld tilkynntu Int- erpol um ungan, franskan herskóla- nema sem ekkert hefði spurzt til frá því í ágúst sl. en þá var hann í Banda- ríkjunum. Maðurinn kvað vera æfð skytta. Rannsóknin á raðmorðunum í Bandaríkjunum Símhringing barst frá leyniskyttunni Richmond í Virginíu. AP, AFP. SKÓSMIÐIR í borginni Marikina á Filippseyjum leggja lokahönd á risaskó, sem gerðir voru í því augnamiði að fá parið skráð í Heimsmetabók Guinness sem stærstu skó í heimi, og til að vekja athygli umheimsins á getu filipps- eyskra skósmiða. Marikina er þekkt sem „höfuðborg skósmíð- innar“ á Filippseyjum. Hvor skór er 5,5 m að lengd og 2,25 m breiður. Er fullyrt að þrjátíu manns kæmust fyrir inni í þeim. Smíði þeirra tók rúma tvo mánuði. Reuters Heimsins stærstu skór? NORÐUR-Kóreumenn gáfu til kynna í gær að þeir væru tilbúnir að hefja samningaviðræður við Banda- ríkjastjórn um að þeir hættu að þróa kjarnavopn gegn því að þeir fengju efnahagsaðstoð, að sögn suður-kór- eskra embættismanna. Kim Young-Nam, næstæðsti emb- ættismaður N-Kóreu, sagði að stjórn landsins væri tilbúin að hefja við- ræður um „áhyggjur Bandaríkja- stjórnar í öryggismálum“. Er þetta í fyrsta sinn sem stjórnvöld í Pyong- yang svara ásökunum Bandaríkja- stjórnar um að N-Kóreumenn hefðu viðurkennt að þeir væru að þróa kjarnavopn á laun í trássi við samn- ing við Bandaríkin frá 1994. Kim, forseti framkvæmdanefndar þings N-Kóreu og hægri hönd Kims Jong- Ils, leiðtoga landsins, lét þessi orð falla þegar hann svaraði áskorun suður-kóreskra ráðherra, sem voru í heimsókn í Pyongyang, um að N-Kóreumenn hættu að þróa kjarnavopn. Sérfræðingar í málefnum N-Kór- eu í Seoul sögðu ólíklegt að stjórn Bandaríkjanna tæki tilboði Kims. „Bandaríkjastjórn hefur framfylgt of harðri stefnu til að tilslakanir í deilunni um kjarnavopnin geti komið til greina,“ sagði einn þeirra, Ko Yu- Hwan, prófessor við Dongkak-há- skóla í Seoul. Bush bjartsýnn George W. Bush Bandaríkjafor- seti kvaðst í gærkvöld telja að unnt yrði að fá fram afvopnun Norður- Kóreumanna með friðsamlegum hætti. Colin Powell, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, hafði fyrr um daginn sagt að samningurinn frá 1994 væri ekki lengur í gildi þar sem N-Kóreumenn hefðu viðurkennt að þeir hefðu brotið hann. Hann sagði þó að Bandaríkjastjórn myndi ekki grípa til tafarlausra aðgerða gegn N-Kóreumönnum. N-Kóreu- menn til- búnir til viðræðna Seoul. AFP. TÍUNDI hver Breti getur ekki nefnt einn einasta erlendan stjórnmálaleiðtoga en nærri því helmingur þjóðarinnar getur nefnt minnst fimm persónur úr vinsælustu sjónvarpsþáttaröð- inni, eftir því sem fram kemur í niðurstöðum nýrrar könnunar. Könnunin, sem tímaritið Whitaker’s Almanac birti undir yfirskriftinni „Er Bretland að forheimskast?“, sýndi enn- fremur að 42% aðspurðra voru ófær um að nefna einn einasta ráðherra úr brezku ríkisstjórn- inni. „Fólk er almennt farið að missa sjónar á heimsfréttunum en sökkvir sér aftur á móti í glansheim fræga fólksins,“ sagði ritstjórinn, Lauren Hill. Stjörnur en ekki stjórnmál Lundúnum. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.