Morgunblaðið - 22.10.2002, Side 12

Morgunblaðið - 22.10.2002, Side 12
Morgunblaðið/Árni Sæberg Katrín Harðardóttir, dýralæknir á Dýraspítalanum í Víðidal, ásamt hund- inum Missý. Þær eru sammála um að endurskinsólar séu nauðsynlegar á gæludýr heimilisins þegar myrkrið skellur á. KISURNAR í borginni eru tæpast par ánægðar með skammdegið. Að minnsta kosti hafa þær þurft að leita sér þjónustu í ríkari mæli en áður hjá dýralæknum borg- arinnar þar sem ákeyrslum á þessa ferfættu vini mannskepn- unnar fer fjölgandi með haustinu. Að sögn Katrínar Harð- ardóttur, dýralæknis hjá Dýra- spítalanum í Víðidal, er nú sá tími þar sem slysum á dýrum fjölgar. „Þetta eru kettir sem verða fyrir bíl því ökumenn sjá þá hreinlega ekki og við erum að gera endalausar beinbrotaað- gerðir. Það er gríðarlega mik- ilvægt að setja endurskinsólar á dýrin og merkja þau vel. Svo á maður helst ekki að hleypa kött- unum út í myrkri því þeir sjást svo illa.“ Aðspurð segir hún sjálf- lýsandi kattaraugun ekki duga í þessu sambandi. Hún segir slysunum alltaf fjölga á haustin annars vegar og svo á vorin þegar tekur að hlýna í veðri. Hún segir þó eigendur lít- ið þurfa að huga að dýrum sínum vegna kuldans sem nú er að ganga í garð og til dæmis sé ekki nauðsynlegt að breyta fóðri. „Hross eru öll í útigöngu enda hefur verið ofboðslega góð tíð að undanförnu og nánast ekkert þurft að hugsa um þau. En nú er nánast bara að verða sina eftir og það fer að líða að því að það þurfi að gefa þeim úti.“ Hún bendir fólki einnig á að nú sé rétti tíminn til að gefa hross- unum ormalyf. Fáir hundar í kápum En hvað um hundana, sem margir hverjir eru snöggklipptir samkvæmt nýjustu hundatísku. Verður þeim ekkert kalt svona hálfhárlausum? „Yfirleitt ekki,“ segir Katrín, „Það er alls ekki slæmt að snyrta dýrin. Hundar fylgja yfirleitt eigendum sínum hér innanbæjar og þeir hundar sem fara í snyrtingu eru yfirleitt heimilishundar sem fara út í sín- ar göngur en koma svo inn aft- ur.“ Hún segir lítið um að hundar hérlendis klæði sig sérstaklega upp fyrir slíkar gönguferðir með eigendum sínum. „Það eru helst litlu hundarnir sem ná ekki að halda á sér hita og þeim sem eru mjög stutt- hærðir verður náttúrlega ískyggilega kalt. En þú hefur svoleiðis hund ekkert úti í garði allan daginn eða fyrir utan eins hús og honum verður ekki meint að svolitlum göngutúr.“ Endurskinsólar eru lífsnauðsynlegar ferfættum vinum mannanna í myrkrinu Endalausar beinbrota- aðgerðir á köttum Víðidalur HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ FJÖLBÝLISHÚS, sem fyrirhugað er að reisa í Stakkahlíð 17 í Reykjavík hefur vakið hörð við- brögð íbúa í nágrenninu sem segja húsið allt of stórt að umfangi og rýri þannig gæði eigna sinna. Teikningar að húsinu voru sam- þykktar í skipulags- og bygginga- nefnd Reykjavíkur á miðvikudag en búist er við að borgarráð fjalli um málið í dag. Forsaga málsins er sú að í des- ember síðastliðunum var íbúum í hverfinu kynnt fyrirhuguð hækkun einnar hæðar verslunarmiðstöðvar sem stendur á umræddri lóð auk þess sem húsið var lengt til suðurs. Stóð til að breyta nýtingu hússins í íbúðir. Vegna mótmæla íbúa voru þessar tillögur endurskoðaðar og í stað þess að byggja eina hæð ofan á húsið var lagt til að það yrði rifið og byggt yrði tveggja hæða fjöl- býlishús, sem stæði neðar í lóðinni en gamla húsið. Þær tillögur voru svo kynntar íbúum í vor. Eftir það var ákveðið að færa bílastæði undir húsið og það var fært til í lóðinni þannig að það yrði fjær húsum við Bogahlíð. Þá var íbúðum fækkað úr tólf í tíu samhliða því sem þær stækkuðu. Þannig var húsið grenndarkynnt íbúum í hverfinu með bréfi í sumar. Skuggavarp mikið og útsýni hverfur Að sögn Benedikts Guðbjarts- sonar, formanns húsfélagsins í Bogahlíð 2–6, eru íbúar við götuna mjög andvígir þeim tillögum sem nú liggja fyrir. „Þetta hús stendur mjög nálægt öðrum húsum, sér- staklega húsum númer 8 og 10 og skemmst vegalengd á milli er inn- an við 20 metrar. Þar er fólk með sínar svalir á móti suðri sem fær tvær hæðir með þétta gluggaröð allt yfir þá hlið. Þetta leiðir til þess að skuggavarpið verður mjög mik- ið enda er styttra á milli húsa þarna en í nokkru öðru hverfi sé miðað við bakhlið húsa á móti framhlið.“ Hann segir ekki hægt að miða við fjarlægð á milli gafla húsa í þessu sambandi, eins og fulltrúar borgarskipulags hafi gert. Þá segir hann mjög alvarlegt að húsið hækki frá því sem verið hef- ur. „Það eru ansi margir sem missa þarna útsýni. Ég, sem er á annarri hæð í Bogahlíð 6, sé greinilega Öskjuhlíðina og Perluna en það mun allt hverfa.“ Benedikt segir ljóst að þetta muni rýra verðgildi eigna þeirra sem þarna búa. Þá er umfang hússins gagnrýnt en að sögn Benedikts eykst grunnflötur þess úr 339 fermetrum eins og nú er og í 545,2 fermetra. „Það má alls ekki skilja það sem svo að við séum á móti húsi. Þetta er ekki nema 1.388 fermetra lóð og það á að byggja á henni 1.090 fermetra hús ofanjarðar að báðum hæðum með- töldum og 6–700 fermetra neðan- jarðar. Þannig að þarna er verið að byggja allt of stórt hús.“ Deiliskipulag vantar Hann segir einnig að samráði við íbúa og kynningu hafi verið mjög ábótavant. „Það er gjarnan sagt að húsið hafi tvisvar sinnum verið grenndarkynnt en það er ekki rétt því við vorum með allt aðra teikn- ingu og allt annað hús í desember og það þýðir ekkert að tala um margar grenndarkynningar ef þú ert alltaf með nýja og nýja tillögu.“ Þá bendir hann á að ekki sé til deiliskipulag af svæðinu þannig að ekki hafi verið um að ræða eðlilegt breytingarferli á skipulagsstigi. Að sögn Benedikts hefur verið erfitt að átta sig á raunverulegri stærð hússins af teikningum og það hafi ekki verið fyrr en í sept- ember síðastliðnum, eftir grennd- arkynningu, sem endanlegir út- reikningar hafi legið fyrir. Benedikt undirstrikar að íbúar séu ekki á móti því að þarna verði byggt en þeir vilji að strangar regl- ur gildi um bygginguna. „Það hef- ur því miður verið þannig að í hvert sinn sem eitthvað er gert stækkar húsið og nú er það orðið miklu stærra en það var þegar það var grenndarkynnt í desember í fyrra.“ Hann segist sannfærður um að úrskurðarnefnd skipulags- og byggingamála muni fella bygging- arleyfi úr gildi en íbúar hyggist kæra ákvörðunina verði henni ekki breytt. „Fundargerð skipulags- og bygginganefndar á eftir að fara fyrir borgarstjórn. Ég hef trú á því að fulltrúar minnihlutans muni þá taka málið upp auk þess sem við munum hugsanlega skrifa borgar- stjóra bréf til að benda á að þarna sé ekki löglega að hlutum staðið.“ Lægra en blokkir í kring Margrét Þormar, hverfisstjóri hjá Skipulags- og byggingasviði Reykjavíkur, segir að mótmæli íbúa hafi leitt til þess að upphaf- legu tillögunni var breytt. „Þegar maður skoðar heildina sér maður að það verður ekki styttra á milli húsa þarna en gengur og gerist í hverfinu,“ segir hún. Aðspurð hvort nauðsynlegt hafi verið að stækka húsið svo mikið að grunnfleti miðað við þá byggingu sem til stendur að rífa segir Mar- grét að þetta hafi verið ósk bygg- ingaaðila sem hafi viljað gæta hag- kvæmni við bygginguna. Húsið hafi ekki verið talið í ósamræmi við um- hverfi sitt og það verði einungis tæplega einum metra hærra en verslunarbyggingin sem fyrir er á lóðinni. Skýrist það af því að eldra húsið er með óvenju mikla lofthæð auk þess sem það stendur hærra í lóðinni en nú er gert ráð fyrir. Í kring séu allt að fjögurra hæða blokkir og því ætti tveggja hæða fjölbýlishús ekki að stinga í stúf. Ekki venja að halda fundi Hún vísar á bug gagnrýni um að samráðsferli hafi verið ábótavant. „Þegar svona erindi kemur inn á borð til okkar er ekki venjan að halda fundi með íbúum heldur grenndarkynnum við það með því að senda bréf í hús. Svo getur fólk óskað eftir að hitta okkur og það var gert í þessu tilfelli með fundi í febrúar og svo aftur í maí. Þarna voru tveir fundir haldnir og seinni tillagan var sýnd fólkinu og hún var ekki mikið breytt þegar hún var svo síðan grenndarkynnt.“ Margrét staðfestir að ekkert deiliskipulag sé til af svæðinu en segir að svo sé um fleiri staði í borginni. Byggingin sé í samræmi við nýtt aðalskipulag sem bíði eftir staðfestingu ráðherra en þar sé gert ráð fyrir íbúðabyggð. Í eldra aðalskipulagi hafi lóðin hins vegar verið skilgreind sem verslunar- svæði en því hafi verið breytt í íbúðasvæði. Hvað varðar stærð hússins segir Margrét ekki rétt að hún hafi breyst meðan á kynningarferli stóð. „Þegar verið er að teikna bygginganefndarteikningar af húsi fer bygginganefndarfulltrúi yfir allar stærðir og það er algengt að tölur séu lagfærðar á meðan á hönnunarferlinu stendur. Það er ekki það að húsið hafi breyst að umfangi því málin eru þau sömu.“ Margrét segir næsta skref vera það að borgarráð taki málið fyrir á fundi sínum í dag. „Þetta mál er búið að vera ótrúlega langvarnadi og margir íbúar ósáttir,“ segir hún. „Það er mjög leiðinlegt þegar mál fara svona en við höfum reynt að gera það sem við getum til að kynna þetta á réttan hátt.“ Fyrirhugað fjölbýlishús við Stakkahlíð veldur deilum Teikningar samþykktar í síðustu viku Teikning/Zeppelin-arkitektar Vesturhlið hússins eins og það kemur til með að líta út við hliðina á húsi númer 10 við Bogahlíð. Hönnuður byggingarinnar er Zeppelin-arkitektar. Hlíðar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.