Morgunblaðið - 22.10.2002, Side 14
ELDSVOÐINN Á LAUGAVEGI
14 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
UM tíma var óttast að eldurinn myndi
dreifast í samliggjandi hús við Lauga-
veg og er ljóst að slökkviliðsmenn
unnu mikið þrekvirki þegar þeir náðu
að koma í veg fyrir að eldurinn bærist
yfir í timburhús, sem var nánast búið
að afskrifa. Fyrst um sinn voru
slökkviliðsmenn ekki fullvissir um að
enginn hefði verið í bakhúsum sem
gjöreyðilögust í eldinum. Minniháttar
skemmdir urðu af völdum reyks og
hugsanlega vatns á húsum númer 42
og 38, sem standa sitt hvorum megin
við húsin sem urðu eldinum að bráð.
Hús númer 40 er gjörónýtt og 40a
mikið skemmt ef ekki ónýtt. Á Lauga-
vegi 40a var undirfataverslunin Misty
til húsa og áður Iðunnarapótek. Á
Laugavegi 40 voru gleraugnaverslun-
in Sjáðu og Verslunin hennar. Á
Laugavegi 42 er verslunin Noa Noa
og Laugavegi 38 skóverslunin Ecco.
Alls voru á annað hundrað manns
við störf á vettvangi stórbrunans. Allt
tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæð-
inu var kallað á vettvang, auk þess
sem aðstoð var fengin frá Brunavörn-
um Suðurnesja. Þá voru hátt í 40 lög-
reglumenn á vettvangi, sem höfðu í
nógu að snúast til að halda fólki sem
vildi komast inn á brunavettvanginn í
skefjum, en einn var handtekinn og
gisti fangageymslur.
Kapphlaup við tímann
Tilkynnt var um eldinn rétt fyrir
miðnætti og þegar fyrstu þrír slökkvi-
liðsmennirnir komu á vettvang úr
Skógarhlíð hafði eldurinn, sem kom
upp í porti milli húsa númer 40 og 40a
á Laugavegi, náð að læsa sig í bakhús
auk þess sem eldtungur sleiktu suð-
urhlið Laugavegs 40a. Segir Birgir
Finnsson, framkvæmdastjóri útkalls-
deildar sem stjórnaði aðgerðum á
vettvangi, að næst hafi slökkviliðs-
menn af Tunguhálsi borið að og þeir
hafi byrjað að berjast við eldinn að
sunnanverðu, þ.e. frá Grettisgötu. Þá
komu menn af stöðinni í Hafnarfirði
og síðan barst aðstoð frá Brunavörn-
um Suðurnesja.
„Þarna var kominn mikill eldur
sem augljóslega var ekki viðráðanleg-
ur fyrir þá sem fyrstir komu. Við vor-
um í kapphlaupi við tímann. Menn
byrjuðu að sprauta á eldinn að sunn-
anverðu með nokkrar slöngur og síð-
an var alltaf verið að bæta mönnum
við þar. Þar vorum við með meira
vatn og meiri mannskap. Um leið og
menn komu á vettvang tóku þeir við
slöngum sem var búið að leggja fyrir
þá,“ segir Birgir. Einnig hafi ein-
hverjir farið í það verkefni, ásamt lög-
reglu, að hlaupa í hús og brjóta upp
hurðir til að fullvissa sig um að enginn
væri í húsum sem óttast var að gætu
orðið eldinum að bráð
Lögregla og reykkafarar fóru um
húsin til að fullvissa sig um að enginn
væri í húsunum, en ekki náðist að fara
í bakhúsin. „Það var búið að fara í
húsin þarna í kring, númer 42 og 38.
Einnig var búið að fara í hús númer
40, en við vorum aldrei vissir um
hvernig væri með bakhúsin og má
segja líka með hús númer 40a.“ Íbúi á
efstu hæð þar komst af sjálfsdáðum
út úr íbúðinni með því að stökkva nið-
ur af svölum og þá náðist í aðra íbúa
hússins, sem ekki voru heima, í síma.
„Við vorum ekki fullvissir um að við
hefðum náð að leita allar þær íbúðir
sem þarna voru, það var erfitt að gera
sér grein fyrir því hvernig húsaskipan
var þarna á bak við. Við áttum erfitt
með að komast þangað inn, með lang-
ar árásarleiðir að framanverðu og
ógjörningur að ráðast til inngöngu
aftan megin frá. Við höfðum miklar
áhyggjur.“
Segir Birgir að unnið hafi verið að
því að fá yfirlit yfir vettvanginn og
átta sig á því hvort öllum hefði verið
bjargað út með því að púsla upplýs-
ingum frá lögreglu, reykköfurum og
íbúum sem höfðu komist út úr hús-
unum saman. „Við töldum okkur vera
búna að fá upplýsingar um að það
væri enginn þarna inni en höfðum
samt áhyggjur af því að svo gæti ver-
ið. Við vorum í þeirri stöðu að það var
orðið ljóst að ef einhver hefði verið
þarna inni í bakhúsunum hefði ekki
verið hægt að bjarga viðkomandi. Við
gerðum okkur grein fyrir þeirri stöðu
og þetta hvíldi þungt á mönnum
þarna um nóttina.“
Forðuðu sér út á hlaupum
Fljótlega eftir að lögregla kom á
vettvang sprakk rúða í versluninni
Misty, sem var í húsi númer 40a. „Það
hefur ekki verið neinn smáþrýstingur
þar inni fyrst rúðurnar sprungu. Það
var þó kostur, hvað slökkvistarfið
varðar, að rúðan skyldi fara. Þá
komst reykurinn út og auðveldara að
fara að eldinum að sunnanverðu.“
Segir Birgir að menn hafi velt því fyr-
ir sér hvort eldurinn hafi byrjað á
tveimur stöðum, þar sem eldurinn
hafi svo fljótt verið kominn inn í versl-
unina Misty, en hann gæti einnig hafa
dreifst svo hratt. „Í portinu voru
ruslatunnur og mikill eldsmatur
þannig að eldurinn hefur magnast
mikið. Þarna voru þakskýli byggð yfir
sem hefur gert það að verkum að
álagið var meira á veggina þar við
hliðina og þá verða meiri líkur á að
eldurinn nái að brjótast inn í versl-
unina og sjálfsagt hefur verið lager á
bak við og mikill eldsmatur, þannig að
þetta er fljótt að gerast.“
Segir Birgir að þegar bakhúsið við
hús númer 40 var orðið alelda hafi
slökkviliðsmenn þurft að forða sér
þaðan út á hlaupum. „Það var aldrei
möguleiki að standa þar inni í húsinu,
heldur þurftu menn að hörfa og fóru
jafnvel út á svalirnar sunnanmegin og
þaðan yfir á þakið í húsi númer 38.
Þeir komust ekki út sömu leið og þeir
fóru inn og brunnu slöngur í sundur.“
Búslóð flutt á brott
Birgir segir að ótrúlegt sé hversu
vel veggurinn milli húsa númer 40 og
38 hafi haldið eldinum í skefjum. Hús-
in eru bæði timburhús, en náði
slökkviliðið að koma í veg fyrir að eld-
urinn næði þarna yfir. Einnig náðu
þeir að hindra að eldurinn færi í hús
númer 42. Fyrir aftan hús númer 38
er lítið einbýli úr tré og óttaðist lög-
regla að færi eldurinn í hús númer 38
myndi hann dreifast þaðan í einbýlið.
Því fór lögregla í það ásamt fólki úr
Björgunarsveitinni Ársæli að bera
búslóðir úr húsunum tveimur og var
um helmingur skólagers úr verslun-
inni Ecco, sömuleiðis fjarlægður. Alls
fóru fjórir flutningabílar frá Lauga-
veginum.
„Við erum ánægð með að við náð-
um að verja þessi tvö hús. Í heild telj-
um við okkur hafa náð þarna góðum
árangri, miðað við aðstæður.“ Birgir
segir að eldvarnareftirlitið muni
skoða hvernig búið var að eldvörnum
þarna og í framhaldinu verði skoðað
hvað megi læra af þessu en víða í
gamla miðbænum eru tengibygging-
ar og gömul hús áföst við önnur hús.
Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri
segir að alls hafi um 100 manns verið
að störfum á vegum Slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins þessa nótt. „Jafn-
framt þessu þurftum við að sinna öðr-
um verkefnum. Við náðum að sinna
öllum sjúkraflutingum þessa nótt og
vorum með mannaðar stöðvar ef eitt-
hvað annað hefði komið upp,“ segir
Hrólfur. Hann segir að vel hafi gengið
að skipta út mönnum, sumir hafi þó
staðið vaktina samfleytt í tólf tíma, frá
miðnætti til hádegis á sunnudag. Mik-
il vinna hafi verið við að halda utan
um mannskapinn, senda blauta og
kalda menn heim og fá einhverja í
staðinn fyrir þá.
Lögregla átti fullt í fangi með að
halda ágengu fólki í skefjum
Mikill fjöldi fólks safnaðist saman
við vettvang brunans og átti lögregla
fullt í fangi með að halda fólki frá vett-
vanginum, bæði drukknu fólki og for-
vitnu, að sögn Geirs Jóns Þórissonar
yfirlögregluþjóns. Fyrst um sinn hafi
lögregla farið í að loka vettvanginum
og ganga í nærliggjandi hús, þannig
að fólk gæti verið í viðbragsstöðu ef
það þyrfti að yfirgefa hús sín snögg-
lega og tryggja að enginn væri í þeim
húsum sem voru í mestri hættu.
Einnig ráðlögðu þeir nágrönnum að
loka vel gluggum, en mikinn reyk
lagði frá eldinum yfir Skólavörðuholt.
Lögregla hafi átt í fullu fangi með að
halda drukknu fólki, sem var að koma
af skemmtistöðum, frá vettvangi sem
og forvitnu fólki sem kom aðvífandi,
sumir vopnaðir myndavélum. Einn
ágengur vegfarandi var handtekinn og
gisti hann fangageymslur lögreglu.
Segir Geir Jón að þetta hafi verið við-
varandi alla nóttina, þó mest meðan
skemmtistaðir voru enn opnir.
„Þetta er frekjugangur, það er ljóst
að það þarf að koma líka í veg fyrir
það að fólk fari sér að voða. Ég er klár
á því að lögreglumenn hefðu getað
verið að huga að ýmsu öðru. Það er
dapurt og sorglegt að þetta skuli
margendurtaka sig með þessum
hætti að óagaður lýður geti ekki látið
okkur vera til að vinna í friði við mjög
erfiðar og hættulegar aðstæður, það
er alveg með ólíkindum.“ Geir segir
að lögregla hefði heldur viljað nota
kraftana til að bjarga frekari verð-
mætum, huga betur að vettvangi auk
þess að hlúa að íbúum húsanna.
Á annað hundrað manns við störf á vettvangi stórbruna á Laugavegi aðfaranótt sunnudags
Ekki fullvissa um að
bakhúsin væru mannlaus
Morgunblaðið/Hallfríður
Mestur var eldurinn í bakhúsum sunnan megin við húsin og barst eldurinn þannig fljótt milli húsanna við Lauga-
veg 40 og 40a. Hér má sjá hversu stutt var frá logunum að einbýlinu við Laugaveg 38b, en óttast var að eldurinn
myndi berast í húsið og var búslóðin því borin út og flutt á brott í flutningabíl.
Morgunblaðið/Júlíus
Björgunarsveitin Ársæll var kölluð út til að aðstoða lögreglu við björgun
verðmæta. Var búslóð úr húsunum á Laugavegi 38 og 38b flutt á brott
auk lagers skóverslunarinnar Ecco.
Fimm íbúðir í tveimur
samliggjandi húsum við
Laugaveg eyðilögðust
aðfaranótt sunnudags í
mesta eldsvoða sem hef-
ur orðið í íbúðabyggð í
Reykjavík í áratugi.