Morgunblaðið - 22.10.2002, Page 17

Morgunblaðið - 22.10.2002, Page 17
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 17 SIGRÍÐUR Snæbjörnsdóttir fram- kvæmdastjóri verður skipuð fram- kvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, eftir því sem næst verður komist. Valið hefur einkum staðið á milli hennar og Skúla Thoroddsen framkvæmdastjóra en Skúli staðfesti það í samtali við Morgunblaðið í gær að ráðherra hefði tilkynnt honum að hann yrði ekki ráðinn. Átta sóttu um stöðu framkvæmda- stjóra Heilbrigðisstofnunar Suður- nesja (HSS) sem rekur meðal annars sjúkrahúsið í Keflavík en einn um- sækjandi dró sig til baka. Sérstök matsnefnd taldi alla umsækjendur hæfa en Sigríði og Skúla hæfust. Fulltrúar sveitarstjórnanna á Suður- nesjum í stjórn HSS, fjórir af fimm stjórnarmönnum, samþykktu tillögu til ráðherra um að Skúli yrði ráðinn en stjórnarformaðurinn, sem ráð- herra skipar án tilnefningar, mælti með Sigríði. Sigríður Snæbjörnsdóttir er hjúkr- unarfræðingur, fyrrverandi hjúkrun- arforstjóri Borgarspítalans og núver- andi framkvæmdastjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands. Skúli Thor- oddsen er lögfræðingur og starfar sem framkvæmdastjóri Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra skipar í stöðuna. Elsa B. Frið- finnsdóttir, aðstoðarmaður hans, sagði að í dag yrði gengið frá skipun framkvæmdastjórans og þá kæmi í ljós hver það yrði. Ráðherra kallaði Sigríði og Skúla á sinn fund í gær. Skúli segir að Jón Kristjánsson hafi tjáð sér að hann gæti ekki skipað sig í stöðuna vegna ákvæða jafnréttislaga. Þar sem tveir umsækjendur væru taldir jafn hæfir yrði konan ráðin í starfið. Skúli tekur fram að hann telji þessi rök ekki haldbær. Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja Sigríður verður skipuð í embættið Skúli Thoroddsen Sigríður Snæbjörnsdóttir Keflavík „FÓLKI þykir þetta sniðugt, þægi- legt til dæmis fyrir útivinnandi fólk að skilja þvottinn eftir á snúr- unum,“ segir Karl Njálsson, 14 ára nemandi í Gerðaskóla í Garði. Karl og bekkjarfélagi hans, Rúnar Freyr Hólm, unnu fyrstu verðlaun í uppfinningaþætti nýsköp- unarkeppni grunnskólanna fyrir Veðurvakt sína og tóku við verð- launum sínum úr hendi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Ís- lands, við athöfn í Kennarahá- skóla Íslands um helgina. Hugmynd þeirra félaga gengur út á það að tjald dregst yfir þvottasnúrur á sjálfvirkan hátt þegar byrjar að rigna. Hugmyndin kviknaði á þemaviku í Gerðaskóla á síðasta vetri. Af einhverjum ástæðum sem Jóhann Sigurður Víglundsson kennari kann ekki skil á fóru þrír hópanna að vinna með þvottasnúrur. Karl kom fram með hugmynd að vætuskynjara sem léti húsráðendur vita þegar það byrjaði að rigna svo hægt væri að taka þvottinn inn. Annar hópur vann með þá hugmynd Rún- ars Freys að setja tjald yfir þvottasnúrur til að fólk gæti þurrkað þvottinn sinn í friði. Hóp- arnir voru sameinaðir og Karl og Rúnar Freyr tengdu saman hug- myndir sínar. Útkoman varð sú að tjald dregst á sjálfvirkan hátt yfir þvottasnúrurnar þegar boð koma frá regnskynjaranum. Verkefnið var teiknað á vegg- spjald og haft til sýnis í skólanum, eins og önnur verkefni þemavik- unnar. Jóhann Sigurður kennari sendi hugmyndirnar í nýsköp- unarkeppni grunnskólanna, með leyfi höfundanna, en þeir áttu ekki von á að heyra neitt frekar af þeim. Sex mánuðum síðar hringdu aðstandendur keppninnar og létu vita að hugmynd þeirra væri kom- in í úrslit og síðar að hún hefði unnið í uppfinningaflokknum. Ekki segjast félagarnir vera farnir að undirbúa umsókn um einkaleyfi en segja að aðstand- endur keppninnar reyni að koma hugmyndunum á framfæri. Tím- inn verði að leiða í ljós hvort hún verði talin raunhæf til notkunar. Þeir sjá þann ókost við uppfinn- inguna, þótt reynt hafi verið að sjá fyrir honum í hönnuninni, að erfitt sé að koma í veg fyrir að þvott- urinn blotni í roki. Snúrurnar verði helst að vera í skjóli. Ekki sé því víst að uppfinningin henti að öllu leyti við íslenskar aðstæður. Unnu fyrstu verðlaun í nýsköpunarkeppni grunnskólanna Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Rúnar Freyr Hólm og Karl Njálsson halda á veggspjaldi sem þeir gerðu um uppfinningu sína. Þar er tæknin skýrð í texta og þó aðallega með myndum. Tjald yf- ir þvotta- snúrur Garður MIKIL ölvun var í Reykjanesbæ og nágrenni um helgina og annasamt hjá lögreglunni. Hún hafði meðal annars afskipti af fjölda unglinga vegna áfengisdrykkju. Þá voru út- köll á veitingahúsin vegna ölvunar og óláta og í einu tilvikinu voru tvær konur svo ósáttar að önnur sló hina í höfuðið með flösku þannig að af hlaust skurður á augabrún. Á föstudagskvöldinu, um klukkan hálfellefu, hafði lögreglan afskipti af tveim unglingspiltum, 14 og 15 ára, sem höfðu verið með háreysti og læti við verslun á Hringbraut í Keflavík. Þeir voru undir áhrifum áfengis og voru teknir af þeim 6 bjórar sem þeir höfðu í fórum sínum. Þeim var ekið á lögreglustöð og síðan til síns heima. Skömmu síðar var tilkynnt um ölv- aða unglinga við Hólmgarð í Kefla- vík. Þarna var reyndar aðeins einn mikið ölvaður 13 ára drengur og orð- inn veikur af áfengisdrykkju. Hann var færður á lögreglustöð þar sem faðir drengsins náði í hann. Lagt var hald á áfengispela sem drengurinn hafði meðferðis. Um nóttina var 17 ára stúlku vísað út af veitingastað í Keflavík sökum ungs aldurs. Skömmu síðar hafði lögreglan afskipti af tveim 15 ára stúlkum vegna útivistarbrots og þegar lögreglan kom að kastaði önn- ur stúlkan frá sér bjórflösku. Stúlk- unum var ekið heim og rætt var við foreldra. Um klukkan tvö um nóttina hafði lögreglan afskipti af tveim drengjum við Hólmgarð í Keflavík vegna útivistarbrota, 14 og 15 ára gömlum. Annar hljóp af vettvangi en þekktist og haft var samband við for- eldra vegna þessa. Hinn var færður á lögreglustöð þar sem móðir hans náði í hann. Á laugardagskvöldinu hafði lög- reglan afskipti af tveimur 12 ára pilt- um á gangi á Garðbraut í Garði. Þeim var ekið til síns heima og rætt við foreldrana. Um nóttina tilkynntu lögreglumenn að þeir væru á eftir 16 ára dreng sem hefði brotið rúðu í fyrirtæki á Hafnargötu í Keflavík. Lögreglan handtók piltinn og sökum þess að hann var ölvaður, æstur og óviðræðuhæfur var hann geymdur í fangaklefa þar til aðstandendur náðu í hann rúmum klukkutíma síðar. Höfðu afskipti af fjölda ölvaðra unglinga Keflavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.