Morgunblaðið - 22.10.2002, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.10.2002, Blaðsíða 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 19 nemur rúmlega 2.022 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall er 99% og innra virði hlutafjár 1,74 á hverja krónu nafnverðs. Hlutafé félagsins nam 540,7 millj- ónum króna í ársbyrjun. Hlutafé fé- lagsins var hækkað um 621 milljónir króna á fyrsta og öðrum ársfjórð- ungi, vegna kaupsamninga sem gerðir voru við Nýsköpunarsjóð at- vinnulífsins og Landsbankann Fjár- festingu hf., auk sameininga við Tal- entu Hátækni og Talentu Internet. Engin hækkun hefur orðið á hlutfé ÍSHUG síðan. Heildarhlutafé félags- ins í lok september 2002 nemur því um 1.163,4 milljónum króna, en þar af á ÍSHUG eigin bréf að nafnverði tæplega 2,2 mkr. Eignasafn breyttist eftir 9 mánaða uppgjör Á þriðja ársfjórðungi urðu engar breytingar á eignasafni ÍSHUG. Tvær markverðar breytingar hafa hins vegar orðið á eignasafninu það sem af er októbermánuði. Áhrifa þessara breytinga mun gæta í árs- uppgjöri ÍSHUG fyrir árið 2002. Hinn 11. október 2002 samþykktu hluthafafundir Skýrr hf. og Teymis hf. samrunaáætlun þessara félaga. Við samrunann eignaðist ÍSHUG, sem áður átti 26,4% hlut í Teymi, sem nemur 6,5% hlut í Skýrr hf.. Með þessu verður ÍSHUG þriðji stærsti hluthafinn í sameinuðu fé- lagi. Þennan sama dag var tilkynnt í Kauphöll Íslands að ÍSHUG og Landssími Íslands hf. hefðu undir- ritað samkomulag um kaup ÍSHUG á eignasafni Símans í upplýsinga- tæknifyrirtækjum. Ásamt því að selja ÍSHUG hlutabréf í óskráðum upplýsingatæknifyrirtækjum að verðmæti 270 m.kr., samdi Síminn jafnframt um 140 m.kr. beina fjár- festingu í ÍSHUG. Til þess að mæta skuldbindingunni mun ÍSHUG m.a. gefa út nýtt hlutafé sem nemur um 218,4 m.kr., að fengnu samþykki hluthafafundar. SAMKVÆMT óendurskoðuðum árshlutareikningi Íslenska hugbún- aðarsjóðsins hf. nam heildarhagnað- ur þriðja ársfjórðungs 43,3 milljón- um króna. Innleyst tap félagsins á þriðja árs- fjórðungi nam 20,2 milljónum króna, samanborið við 17,5 milljónir á öðr- um ársfjórðungi þessa árs. Samtals nemur innleyst tap á fyrstu níu mán- uðum ársins 2002 um 61 milljón króna. Óinnleyst gengishækkun á skráðum hlutabréfum í eigu ÍSHUG nemur hins vegar 63,5 milljónum og er heildarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi því 43,3 milljónir króna. Heildareignir rúmir tveir milljarðar Heildareignir félagsins þann 30. september námu 2.039 milljónum króna. Þetta er um 502 milljón króna hækkun frá áramótum. Eigið fé Heildarhagnaður 43 milljónir Afkoma ÍSHUG á þriðja ársfjórðungi GENGI krónunnar hækk- aði töluvert í gærmorgun, en hækkunin gekk að nokkru leyti til baka þegar leið á daginn. Síðdegis hafði gengisvísitalan lækk- að um 0,5% og stóð í 130,25. Sem kunnugt er miðast gengisvísitalan við gengi erlendra gjaldmiðla og því þýðir hækkun henn- ar að krónan lækkar í verði og öfugt. Velta á gjaldeyrismarkaði var í meðallagi, en síðdegis var hún orðin um 4 milljarðar króna. Eftirvænting var nokk- ur við opnun markaða í gærmorgun, enda var á laugardag tilkynnt um sölu ríkisins á ráðandi hlut í Landsbanka Íslands til Samsonar ehf. Samið var um að kaupverðið, 12,3 milljarðar króna, yrði reitt fram í bandarískum doll- urum og tilkynnt að féð yrði nýtt til að borga niður erlendar skuldir ríkis- sjóðs. Uppi voru vanga- veltur um að gengi krónunnar myndi e.t.v. lækka, þar sem mark- aðsaðilar hefðu tekið stöðu í von um að krónur myndu streyma inn í landið við söluna. Í gærmorgun var svo tilkynnt að Moody’s hefði bætt lánshæfismat ríkissjóðs og breytt því úr Aa3 í Aaa. Sérfræðingar voru flestir þeirrar skoðunar að báðar fréttir ættu að styrkja gengi krónunnar, þegar til langs tíma væri litið. Krónan styrkt- ist í gærmorgun HAGNAÐUR J.P. Morgan Chase- bankasamsteypunnar dróst saman um 91% á þriðja fjórðungi ársins vegna minnkandi tekna og hækkandi fjármagnskostnaðar. Fjárfestingar- bankahluti J.P. Morgan Chase var rekinn með miklum halla og nú er áformað að segja upp 2.000 starfs- mönnum þess hluta bankans. Vegna erfiðleika bankans hafa helstu mats- fyrirtæki lækkað mat sitt á honum. Hagnaður fjármálafyrirtækisins Merrill Lynch á þriðja fjórðungi árs- ins hækkaði um 64% milli ára, þrátt fyrir lækkun hlutabréfa á fjórðungn- um. Hagnaður hjá fyrirtækinu jókst um 22% ef tekið er tillit til óreglu- legra liða, meðal annars kostnaðar vegna 11. september í fyrra. Erfið- leikar hjá J.P. Morgan Chase
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.