Morgunblaðið - 22.10.2002, Qupperneq 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 21
HUGO Chavez, forseti Venesúela,
hélt því fram á sunnudag, að and-
stæðingar hans hefðu ætlað að
myrða hann er hann sneri aftur
heim um helgina frá ferð um Evr-
ópu. Verkalýðsfélög og atvinnurek-
endur efndu til 12 stunda allsherj-
arverkfalls í landinu í gær til að
krefjast þess, að Chavez segði af sér
eða boðaði fljótt til kosninga.
Chavez sagði, að öryggislögregl-
an hefði komið í veg fyrir samsærið,
sem fólst í því að skjóta niður flug-
vél hans er hún kæmi inn til lend-
ingar á Maiquetia-flugvellinum fyrir
utan höfuðborgina, Caracas. Hefði
flugvélinni þess í stað verið beint til
Libertador-herflugvallarins.
Forsetinn sagði, að öryggissveit-
irnar hefðu komið að vopnuðum
mönnum nálægt Maiquetia aðfara-
nótt laugardagsins og hefði þá kom-
ið til vopnaviðskipta. Sagði Chavez,
að samsærismennirnir hefðu sloppið
en skilið eftir sig flugskeytabyssu
og kort, sem sýndi áætlun forseta-
flugvélarinnar. Einnig hefði fundist
poki með farsíma og mynd af hon-
um, forsetanum, og flugvélinni.
Chavez sagði, að nokkur símtal-
anna, sem skráð væru í farsímanum,
hefðu verið við nokkra þá, sem
skipulagt hefðu allsherjarverkfallið
í gær en nefndi þó engin nöfn. Að
verkfallinu í gær stóðu stærsta
verkalýðssambandið í Venesúela og
samtök atvinnurekenda, sem standa
að 70% þjóðarframleiðslunnar. Hóta
þau að halda verkfallsaðgerðum
áfram verði Chavez ekki við kröfum
um afsögn eða nýjar kosningar.
Andstæðingar Chavez segja, að
með óstjórn og getuleysi beri hann
ábyrgð á efnahagslegri upplausn í
landinu auk þess sem hann hafi tek-
ið sér næstum alræðisvöld undir því
yfirskini, að hann sé að berjast gegn
spillingu.
Á þremur stjórnarárum Chavez
hefur erlend fjárfesting í landinu
gufað upp, hættulegur klofningur er
kominn upp í hernum og blóðug
átök milli andstæðinga og stuðn-
ingsmanna stjórnarinnar eru al-
geng.
Verkfall til að krefjast afsagnar Venesúelaforseta
Chavez segir að morðtil-
ræði hafi verið afstýrt
Caracas. AP, AFP.
Reuters
Herinn var með mikinn viðbúnað í Caracas í gær vegna boðaðs allsherj-
arverkfalls gegn Chavez forseta.
SAMSTEYPA stjórnarflokkanna í
Svartfjallalandi vann öruggan sigur
í þingkosningunum á sunnudag og
fékk hreinan meirihluta. Boða úr-
slitin um leið endalok sambandsrík-
isins Júgóslavíu en sigurvegararnir
stefna að fullu sjálfstæði Svartfjalla-
lands.
Ekki átti að birta fyrstu opinberu
tölurnar úr kosningunum fyrr en
seint í gær en þá þegar lá fyrir, að
Lýðræðislistinn fyrir evrópsku
Svartfjallalandi, flokkur Milos
Djukanovic forseta, hafði unnið 39
þingsæti af 75 alls. Hafði helsti
stjórnarandstöðuflokkurinn, sem
styður áframhaldandi samband við
Serbíu, fengið 30 þingsæti. Binda
þessi úrslit enda á margra mánaða
óvissu um framtíð sambandsríkis-
ins.
Djukanovic fagnaði úrslitunum í
gær og sagði þau mikilvægt skref í
átt að stöðugleika og evrópskri sam-
einingu. Hét hann að vinna að nýju,
lauslegu sambandi við Serbíu, sem
bæði ríkin, Serbía og Svartfjalla-
land, gætu sagt upp að þremur ár-
um liðnum.
Kosningar
í Svartfjallalandi
Sigur
sjálfstæð-
issinna
Podgorica. AFP.
Suma bruna verður ekki við ráðið
en aðra er hægt að fyrirbyggja!
Sjálfvirk slökkvitæki fyrir sjónvörp
H. BLÖNDAL ehf.
Auðbrekku 2 - Sími 517 2121