Morgunblaðið - 22.10.2002, Page 22
ERLENT
22 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HATTURINN hans Saddams Huss-
eins er brynvarinn og íraski ein-
ræðisherrann borðar ekki mat án
þess að einhver annar hafi bragðað
hann fyrst til að ganga úr skugga
um hvort hann sé eitraður. Hermt
er að Saddam hafi einnig látið út-
búa svefnklefa á hjólum til að geta
flúið og falið sig, auk þess sem hann
hafi ráðið nokkra tvífara til að villa
um fyrir þeim sem kynnu að reyna
að ráða hann af dögum.
Fyrirskipi Bandaríkjastjórn inn-
rás í Írak er ljóst að markmið henn-
ar verður að losna við Saddam.
Hann hefur því gert fjölmargar
ráðstafanir til að verja sig, að sögn
fyrrverandi samstarfsmanna hans
og vestrænna leyniþjónustumanna.
Saddam Hussein hefur ekki kom-
ið fram meðal almennings frá því í
desember 2000 og kemur ekki fram
í sjónvarpi nema á mjög öruggum
stöðum. Hann var til að mynda um-
kringdur vopnuðum vörðum þegar
ræðu hans á íraska þinginu var
sjónvarpað í vikunni sem leið.
„Allt talið um stjórnarskipti er
draumur. Vilji þeir tala um morð
eða eitthvað annað er það bara
draumur,“ sagði íraski þingmaður-
inn Mohammed Mudhafr al-
Adhamy og skírskotaði til frétta
um að Bandaríkjamenn hygðust
reyna að ráða Saddam af dögum.
„Þeir margreyndu þetta í 30 ár
og gátu það ekki,“ sagði al-
Adhamy. „Þeir reyndu það árið
1991 en gátu ekki gert neitt.“
Stjórn George W. Bush Banda-
ríkjaforseta dregur enga dul á að
markmið hennar er að losa Íraka
við Saddam Hussein, annaðhvort
með hernaði, sem áætlað er að kosti
andvirði 780 milljarða króna á
mánuði, eða ódýrari leiðum.
„Ein byssukúla kostar miklu
minna, ef íraska þjóðin tekur það
sjálf að sér,“ sagði Ari Fleischer,
talsmaður Bandaríkjaforseta, fyrr í
mánuðinum og virtist hvetja Íraka
til að ráða Saddam af dögum.
Hefur lært af reynslunni
Fjölmargir aðrir hafa reynt að
losna við Saddam. Reynt hefur ver-
ið að minnsta kosti níu sinnum að
myrða hann eða steypa honum af
stóli, að því er fram kemur í ævi-
sögum hans.
Saddam hefur dregið lærdóma af
þessum morðtilraunum. „Þið þurfið
að bíða í röð eftir því að ná mér.
Þúsundir annarra, sem vilja myrða
Saddam Hussein, eru á undan ykk-
ur í röðinni,“ er Saddam sagður
hafa sagt við höfðingja eyðimerk-
urættbálks í Írak fyrir áratug þeg-
ar höfðinginn hugði á blóðhefndir
vegna manndráps sem fjölskyldu
Saddams var kennt um.
Saddam tók sjálfur þátt í mis-
heppnaðri morðtilraun árið 1959,
þegar hann var 22 ára. Hann reyndi
þá að myrða einræðisherra lands-
ins, Abdel Karim Kassem hershöfð-
ingja, þegar hann ók niður helstu
umferðaræð Bagdad, Al Rashid-
götu. Saddam og félagar hans voru
of æstir, skutu eins og vitfirringar
og misstu marks. Kassem komst
undan en Saddam varð sjálfur fyrir
skoti frá félaga sínum.
Saddam hefur æ síðan talað um
þetta óhapp sem dæmi um mikil-
vægi góðrar skipulagningar.
Skjótast milli halla í
ómerktum bílum
Nú þegar Bandaríkjamenn virð-
ast vera að undirbúa innrás er það
írösku þjóðinni hulinn leyndar-
dómur hvar Saddam heldur sig.
Hann kom ekki fram opinberlega í
vikunni sem leið þegar samþykkt
var í þjóðaratkvæðagreiðslu að
hann yrði áfram við völd næstu sjö
árin.
Elsti sonur Saddams, Udai, var sá
eini í fjölskyldu Saddams sem sást í
grennd við kjörstaðina. Hann ók að
einum þeirra í glæsibifreið, afhenti
sex ára dreng kjörseðil, bað hann
að stinga honum í kjörkassann og
hraðaði sér síðan í burtu.
Reynt var að ráða Udai af dögum
í desember 1996 en hann komst
naumlega undan. Síðan hefur fjöl-
skylda Saddams forðast bílalestir
og notað ómerkta bíla til að skjótast
milli hallanna.
Said Aburish, Palestínumaður
sem starfaði fyrir Íraksstjórn á ní-
unda áratugnum, fyrrverandi yfir-
maður írösku leyniþjónustunnar og
fleiri íraskir útlagar hafa veitt
ýtarlegar upplýsingar um varúðar-
ráðstafanir Saddams.
Þeir segja að matur sé eldaður í
öllum höllum Saddams og ekki sé
skýrt frá því fyrr en á síðustu
stundu hvar hann borði. Áður en
leiðtoginn setjist að snæðingi þurfi
alltaf einhver að bragða á matnum
til að ganga úr skugga um hvort
hann sé eitraður.
Gestum Saddams er ekið um í
margar klukkustundir áður en þeir
hitta hann til að rugla þá í ríminu
og koma í veg fyrir að þeir geti vís-
að á leynilegu fundarstaðina. Abur-
ish segir að flókahattur, sem Sadd-
am notaði síðast þegar hann kom
fram opinberlega, sé brynvarinn og
skotheldur.
Þúsundir sérþjálfaðra
öryggisvarða
Hermt er að Saddam hafi notað
nokkra tvífara síðustu tvo áratugi
og þeir hafi stundum orðið fyrir
árás launmorðingja.
Þúsundir öryggisvarða hafa
fengið sérþjálfun í því að vernda
Saddam. Þeir eru allir súnnítar eins
og Saddam, fá ýtarlega fræðslu um
baráttuna gegn „niðurrifsstarf-
semi“ og eru látnir lesa um öll
valdarán og allar byltingar 20. ald-
arinnar.
Í Persaflóastyrjöldinni árið 1991
faldi Saddam sig á heimilum venju-
legra borgara í Bagdad í margar
nætur og forðaðist hallir sínar, lík-
leg skotmörk flugvéla Bandaríkja-
hers, að sögn Abeds Hameeds
Hahmouds, fyrrverandi ritara
Saddams. Hefji Bandaríkin hernað
í Írak er talið að Saddam feli sig í
Bagdad eða nálægt æskustöðvum
sínum í grennd við borgina Tikrit í
norðurhluta landsins. Fréttamenn
sáu skotbyrgi og loftvarnabyssur á
sléttum nálægt Tikrit þegar þeir
voru þar í vikunni sem leið.
Svefnklefar í flutningabílum
Vestrænir leyniþjónustumenn
segja að Saddam geti haldið sig í
neðanjarðarbyrgjum hersins og
segjast einnig hafa fengið upplýs-
ingar um að hann hafi látið útbúa
svefnklefa í flutningabíla sem hann
geti notað til að flýja og fela sig.
Í „Zabiba og kónginum“, róman-
tískri skáldsögu sem talið er að
Saddam hafi skrifað, gagnrýnir
Zabiba, falleg smábóndadóttir, kon-
unginn fyrir að eingangra sig frá
þjóðinni og loka sig inni í höllunum.
„Loka ég mig inni, Zabiba?“ spyr
þá konungurinn. „Verðirnir sem þú
sást eru ekki hér til að loka mig
inni, heldur til að vernda mig og
sýna mér virðingu.“
„Öllu er hagað þannig að þú hitt-
ir engan,“ segir Zabiba.
„Hagað þannig að hægt sé að
fullnægja kröfum um öryggi og
völd,“ svarar konungurinn og suss-
ar blíðlega á ungu bóndadótturina.
Brynvarinn hattur og
svefnklefar á hjólum
Bagdad. AP.
Saddam Hussein gerir ráðstaf-
anir til að verjast morðtilræðum
AP
Saddam Hussein bregður forláta sverði sem honum var gefið áður en hann
sór eið sinn sem forseti landsins í vikunni sem leið.
’ Þúsundir annarra,sem vilja myrða
Saddam Hussein,
eru á undan ykkur í
röðinni. ‘
LUCIO Gutierrez, fyrrverandi
uppreisnarleiðtogi, og auðjöf-
urinn Alvaro Noboa virtust í
gær hafa
tryggt sér
þátttöku í
annarri um-
ferð forseta-
kosninga í
Ekvador. Þeg-
ar hátt í 92%
atkvæða úr
fyrstu um-
ferðinni höfðu
verið talin hafði Gutierrez
fengið um 20% fylgi og Noboa
17,5%. Sósíalistinn Leon Rold-
os var þriðji með 15,6 af
hundraði. Gutierrez hrósaði
sigri á sunnudagskvöldið og
kvaðst hann ekki myndu eiga í
neinum erfiðleikum með að
hafa betur í annarri umferð
kosninganna, sem fer fram 24.
nóvember.
Tveir myrtir
í Melbourne
MAÐUR vopnaður nokkrum
skammbyssum hóf skothríð í
Monash-háskólanum í borg-
inni Melbourne í Ástralíu í gær
og myrti tvo og særði átta
aðra, að því er lögregla greindi
frá. Maðurinn er á fertugsaldri
og höfðu nokkrir nemendur
hann undir eftir að hann hóf
skothríð í kennslustofu í skól-
anum, og handtók lögreglan
hann skömmu síðar. Einn
hinna særðu var í lífshættu.
Lögregla greindi ekki frá því
hvers vegna maðurinn hefði
hafið skothríðina.
Landnemar
hvika hvergi
UM 200 ísraelskir landnemar
neituðu í gærmorgun að yfir-
gefa ólöglegt landnám á pal-
estínsku svæði skammt frá
Nablus á Vesturbakkanum.
Fyrir viku gaf varnarmálaráð-
herra Ísraels, Binyamin Ben-
Eliezer, fyrirmæli um að land-
námið, Havat Gilad, skyldi lagt
niður og rifið. Um fimmtíu
manns særðust í átökum þar
um helgina milli landnemanna
og Palestínumanna, sem mót-
mæltu því, að landið væri frá
þeim tekið. Var kveikt í þrem-
ur palestínskum bifreiðum og
einnig í akri, sem Ísraelar hafa
erjað á þessum slóðum. Land-
nemarnir eru flestir undir tví-
tugu og voru í gær byrjaðir að
endurbyggja hús sem ísraelski
herinn hafði rifið, þar á meðal
bráðabirgðabænahús.
Sakaðir um
vopnahlésrof
FRANSKIR hermenn tóku
sér í gær stöðu á mjórri land-
ræmu um miðbik Fílabeins-
strandarinnar til þess að hafa
eftirlit með brothættu vopna-
hléi sem stjórnarherinn í land-
inu hefur þegar sakað upp-
reisnarmenn um að hafa rofið.
Samið var um vopnahléið að
tilhlutan nokkurra Vestur-
Afríkuríkja sl. fimmtudag, en
þá hafði uppreisn staðið í land-
inu í tæpan mánuð. Frakkar
tóku að sér að hafa eftirlit með
því að vopnahléinu yrði fram-
fylgt uns vestur-afrískt friðar-
gæslulið verður skipað.
STUTT
Önnur
umferð í
Ekvador
Gutierrez
DORA Bakoyannis bar sigur úr být-
um í síðari umferð borgarstjóra-
kosninganna í Aþenu á sunnudag og
verður hún fyrsta
konan til að
gegna því emb-
ætti. Vegnaði
flokksbræðrum
hennar, hægri-
mönnum í Nýja
lýðræðisflokkn-
um, almennt vel í
sveitarstjórnar-
kosningunum í
Grikklandi, en
ríkisstjórn sósíalista er þó sögð hafa
sloppið með skrekkinn.
Bakoyannis fékk á milli 57,5 og
62% atkvæða í Aþenu og lýsti því yf-
ir er það var orðið ljóst, að „vanda-
málin í borginni eru eini andstæð-
ingur minn“. Þau væru líka ærin.
Andstæðingur hennar, sósíalistinn
Christos Papoutsis, fékk á milli 38
og 42,5%. Bakoyannis, sem er fyrr-
verandi menntamálaráðherra, hefur
heitið að taka til hendinni í Aþenu en
þar verða Ólympíuleikarnir haldnir
árið 2004.
Nýi lýðræðisflokkurinn vann
einnig sigur í Þessalóniku og hafn-
arborginni Piraeus og það stefndi í
sigur hans í kosningum um 32 rík-
isstjóra á móti 20 fyrir sósíalista.
Höfðu hægrimenn lýst því yfir, að
kosningarnar væru jafnframt at-
kvæðagreiðsla um vantraust á rík-
isstjórnina en svo virðist sem hún
hafi þó sloppið fyrir horn hvað það
varðar. Til dæmis sigraði sósíalist-
inn Fofi Yennimatra á stór-
höfuðborgarsvæðinu, utan Aþenu og
Piraeus, með um 53% atkvæða en
þar eru meira en tvær milljónir kjós-
enda.
Mikið verk framundan
Bakoyannis er dóttir Konstantins
Mitsotakis, fyrrverandi forsætisráð-
herra, og var fyrst kjörin á þing fyr-
ir 13 árum þegar liðsmenn hryðju-
verkasamtakanna 17. nóvember
höfðu myrt fyrri eiginmann hennar,
þingmanninn Pavlos Bakoyannis.
Bíður hennar erfitt verk í Aþenu en
borgin er kunn fyrir mikla loftmeng-
un, umferðaröngþveiti og skrif-
finnsku. Á það þátt í því, að ferða-
fólki hefur fækkað þar mikið á
síðustu árum.
„Vandamálin eru andstæðingurinn“
Aþenu. AP.
Kona hlýtur yfirburðakosningu
sem borgarstjóri í Aþenu
Dora Bakoyannis