Morgunblaðið - 22.10.2002, Qupperneq 42
MINNINGAR
42 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Guðrún Þor-steinsdóttir Rice,
Dúna, var fædd í
Reykjavík 15. nóv-
ember 1922. Hún lést
á heimili sínu í
Bloombury Dr. Rose-
ville í Kaliforníu 9.
október síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Þorsteinn Jó-
hann Finnsson, hafn-
sögumaður í Reykja-
vík, f. í Múlakoti í
Mýrasýslu 18. des.
1894, drukknaði á
sundunum í Reykja-
vík 1. júní 1948, og kona hans,
Ólafía Einarsdóttir, f. í Holti við
Skólavörðustíg 2. okt. 1897, d. 16.
apríl 1969. Foreldrar Þorsteins
voru Finnur Ólafsson, f. 25. júlí
1856, d. 7. jan. 1939, og Ásta Guð-
mundsdóttir, f. 29. ágúst 1857, d.
16. nóv. 1930. Foreldrar Ólafíu
voru Einar Ólafsson, steinsmiður
í Hafnarfirði, f. í Hraunprýði í
Hafnarfirði 15. des. 1869, d. í
Reykjavík 27. júlí 1952, og Guð-
rún Jónsdóttir, f. í Görðum í
Rangárvallasýslu 7. júlí 1866, d. í
Reykjavík 28. júní 1951. Systkini
Dúnu voru: Ólafur,
f. 5.7. 1918, kvæntist
Bryndísi Kristjáns-
dóttur, látin, Ásgeir,
f. 9.8. 1920, d. 9.8.
1996, kvæntist Ástu
Sigurðardóttur frá
Syðra-Langholti, f.
26.9. 1921, Þór, f.
18.6. 1925, kvæntur
Önnu Huldu Sveins-
dóttur, Ásta, f. 3.8.
1932, giftist Valdi-
mar Einarssyni, þau
slitu samvistir, og
Aðalsteinn, f. 23.7.
1938, d. 1999, en
hann fluttist með Guðrúnu til
Bandaríkjanna 10 ára gamall og
kvæntist Geraldine, þau skildu,
eftirlifandi kona hans er Elsie
Thorsteinsson Mc Cart.
Dúna giftist Jack Rice bygg-
ingaverktaka, f. 23.7. 1920, börn
þeirra eru: 1) Anita, f. 8.8. 1958,
gift Kevin Butler, börn þeirra eru
Justin, Jennifer og Joey. 2)
Dorothea, f. 10.8. 1961, gift Brett
Parent, börn þeirra eru Holly,
Holden og Christopher.
Útför Dúnu var gerð í Bloom-
bury 17. október.
Afburða glæsileg og vel af guði
gerð eru fyrstu orðin sem koma í
hugann um föðursystur mína
Dúnu, eins og hún var alltaf kölluð.
Dúna var ung að árum þegar
hún árið 1948 tók þá djörfu
ákvörðun að fara til Bandaríkjanna
til að mennta sig enn frekar í pí-
anónámi. Á þeim árum var það
mjög óvanalegt að ungar stúlkur
færu utan til listnáms, en fjölþætt-
ir hæfileikar Dúnu hefðu gert
henni kleift að ná árangri í hvaða
listgrein sem hún hefði valið sér.
Guðrún ólst upp á fallegu heimili
og systkinahópurinn fékk menn-
ingarlegt og ástríkt uppeldi. En
ferðin til Bandaríkjanna varð af-
drifarík. Dúna festi þar ráð sitt
með Jack Rice og stofnuðu þau
heimili í Kaliforníu. Í rúm 40 ár
starfaði Dúna sem organisti. Hún
tók einnig þátt í öllu kirkjustarfinu
með þeirri ásköpuðu ástríðu sem
einkenndi allt hennar líf.
Þegar Dúna kom til Íslands bjó
hún ævinlega hjá foreldrum mín-
um og ég man enn þegar ég barn
að aldri sá hana í fyrsta sinn. Mér
fannst hún sem af öðrum heimi,
fallegasta kona sem ég hafði séð og
klædd eins og kvikmyndastjarna.
Dúna hélt þessum einstaka glæsi-
leika allt sitt líf.
Sem betur fer auðnaðist henni
að koma til Íslands nokkrum sinn-
um með fjölskyldu sína. Síðasta
ferð hennar til Íslands var sumarið
2000. Eins og gjarnan er með
brottflutta Íslendinga naut hún
þess til fulls að koma til Íslands og
hitta fjölskyldu sína hér og upplifa
íslenska náttúru.
Hún stökk um eins og tindilfætt
stelpuskotta milli blóma og var
alltaf jafn heilluð af sterkum litum
íslenskrar náttúru, græna grasinu,
bláa himninum og gulu blómunum.
Náttúrubarnið í Dúnu lifði alltaf og
gleðin yfir því fagra var einkenn-
andi fyrir hennar lífsýn.
Dúna var mikill vinur vina sinna
og var alltaf reiðubúin að rétta
hjálparhönd. Sendibréf Dúnu voru
lýsandi fyrir hæfileika og áherslur
hennar í lífinu sem voru ást, vand-
virkni og trú. Þau eru hvert um sig
ótrúleg, listavel skrifuð, innihalds-
rík og villulaus þrátt fyrir 55 ára
búsetu erlendis, fjarri íslensku
málumhverfi. Dúna var glæsilegur
fulltrúi Íslands á erlendri grund og
það eru forréttindi að hafa fengið
að kynnast henni, læra af henni og
hafa notið ástríkis hennar sem hún
var svo rík af. Með djúpum trega
en miklu þakklæti kveð ég ein-
staka konu.
Guðrún Þórsdóttir.
GUÐRÚN
ÞORSTEINSDÓTTIR
RICE
Ég ætla ekki að
þykjast hafa þekkt
Sigríði Ingibjörns-
dóttur vel en mig
langar að minnast hennar með
nokkrum orðum. Nafn Sigríðar var
einatt sagt í sömu andrá og yf-
irkennari. Hún var og verður lík-
lega ætíð Sigríður yfirkennari í
huga nemenda á mínum aldri sem
hún kenndi. Hún var mjög öguð og
í augum margra strangur kennari.
Það gustaði af henni þegar hún
mætti í skólastofuna í pilsinu sínu
og maður passaði sig á því að hafa
allt sitt á hreinu. Það var alltaf
lært fyrir tíma hjá Sigríði og það
SIGRÍÐUR
INGIBJÖRNSDÓTTIR
✝ Sigríður Ingi-björnsdóttir
fæddist á Flanka-
stöðum í Sandgerði
17. júní 1926. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja
4. október síðastlið-
inn og var útför
hennar gerð frá Út-
skálakirkju 11. októ-
ber.
sem krakkar reyndu
að komast upp með
hjá öðrum kennurum
var ekki einu sinni
reynt hjá henni. En
það var alls ekki
vegna hræðslu heldur
vegna virðingar að ég
held. Það er einmitt
með virðingu og hlýju
sem ég minnist Sigríð-
ar í dag.
Sjálfsagi, skipulag
og vandvirkni eru
meðal þeirra vinnu-
bragða sem ég tek
með mér frá kennslu
Sigríðar. Það voru síðan litlu hlut-
irnir sem skiptu máli því hún hafði
sannarlega hjartað á réttum stað.
Til dæmis var alltaf passað upp á
það að við sætum rétt við borðin
okkar svo við yrðum ekki hokin eða
fengjum í bakið. Þessi litlu augna-
blik sýna það að henni var annt um
nemendur sína.
Það var svo eitt sinn að hún hafði
verið að sýna okkur lausn á stærð-
fræðidæmi þar sem ég var ekki
samþykk útkomunni og leyfði mér
að andmæla. Útkoman væri ein-
faldlega ekki rétt þar sem ég hafði
fengið aðra niðurstöðu. Það kom
svolítið á Sigríði þar sem þessi
unga hnáta var að efast um dæmið
hennar. Hvorug okkar vildi sjá það
rétta hjá hinni og á endanum þurfti
Erna kennari að hringja í mömmu
og biðja hana að ná í mig. Það var
brosað út í annað þegar mamma
kom því þarna mættust stálin
stinn. Auðvitað hafði Sigríður rétt
fyrir sér og hún hefur líklega sjálf
brosað út í kant vegna mótmæla
minna. En það hvað hún var fylgin
sér kenndi mér slíkt hið sama. Það
að ég hafði rangt fyrir mér í það
skiptið varð að aukaatriði. Hún
kenndi mér í raun að finna kjark-
inn til að standa upp og styðja
skoðanir mínar.
Ég man vel eftir brosinu hennar
og hversu langt það náði til augn-
anna. Sem barn á maður oft erfitt
með að greina á milli hlutverks
kennara og manneskjunnar sem
býr að baki. Í barnslegum augum
er kennari fyrirmynd sem maður
lærir af, lítur upp til og ber virð-
ingu fyrir. Sigríður var einmitt sá
kennari og það er í dag sem ég sé
hversu rík hún var sem manneskja.
Blessuð sé minning hennar.
María Erla Pálsdóttir,
nemandi í Grunnskóla
Njarðvíkur ’81–’90.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að
fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími)
fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær
berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn ein-
stakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur hlý-
hug og samúð við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður og afa,
ERLENDAR JÓNSSONAR,
Kópavogsbraut 1a,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar
Sunnuhlíðar fyrir góða umönnun.
Kristján Erlendsson, Elísabet Baldvins,
Valdís Jóna Erlendsdóttir,
Ævar Þorberg Erlendsson,
Þorbjörg Erlendsdóttir, Bjarni Bogason Melsted
og barnabörn.
Hjartans þakkir færum við öllum, sem sýndu
okkur og fjölskyldum okkar samúð og hlýhug
við andlát og útför
HULDU SIGURJÓNSDÓTTUR,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður til heimilis á Miðvangi 16,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
deildar 4b á Hrafnistu fyrir góða umönnun og samveru við hina látnu þessa
mánuði, sem hún dvaldi þar. Einnig viljum við þakka Jóni Högnasyni og
starfsfólki hjartadeildar 7b á Landspítala háskólasjúkrahúsi góða umhyggju í
gegnum árin.
Páll Guðjónsson,
Sigurjón Pálsson, Þuríður Gunnarsdóttir,
Jóhanna I. Pálsdóttir Lund, Axel Lund,
Kjartan Pálsson, Ástrún Lilja Sveinbjarnardóttir,
Rannveig Pálsdóttir, Sumarliði Guðbjörnsson,
Bára Sigurjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐNÝ G. SIGURRÓS GUÐMUNDSDÓTTIR
(Rósa),
Neðstaleiti 13A,
Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti föstudaginn
18. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Svanfríður S. Óskarsdóttir.
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur hlýju og samúð vegna fráfalls
elskulegrar eiginkonu, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ÖNNU INGADÓTTUR,
Hlíðarhúsum 3,
Reykjavík.
Það hefur verið okkur mikill styrkur að finna
þennan vinarhug frá ykkur öllum.
Ólafur Sverrisson,
Sverrir Ólafsson, Shameem Ólafsson,
Hulda Ólafsdóttir, Stefán Stefánsson,
Ingi Ólafsson, Ragnhildur Ásgeirsdóttir,
Ólafur Ólafsson, Ingibjörg Kristjánsdóttir,
Anna Elísabet Ólafsdóttir, Viðar Viðarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT JENNÝ VALGEIRSDÓTTIR
myndlistarmaður og fyrrv. blaðamaður,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
fimmtudaginn 17. október, verður jarðsungin
frá Garðakirkju, Garðabæ, fimmtudaginn
24. október kl. 10.30.
Birgitta Ósk Óskarsdóttir, Wally Hollyday,
Benedikt Ómar Óskarsson, Paulette Óskarsson,
Björgvin Ólafur Óskarsson,
barnabörn og aðrir aðstandendur.