Morgunblaðið - 22.10.2002, Page 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
HAUSTFUNDUR Soroptimista-
sambands Íslands í Munaðarnesi
var haldinn 28. september sl. Fund-
inn sóttu 120 konur víðsvegar af
landinu. Alþjóðasamband Soroptim-
ista eru samtök starfsgreindra
þjónustuklúbba, sem ná yfir heims-
byggð alla. Það sameinar dugandi
konur úr öllum starfsgreinum til
þess að vinna að eflingu hugsjóna
soroptimista og til samstarfs við
önnur samtök um að stuðla að góð-
vild, skilningi og friði meðal þjóða.
Höfuðmarkmið soroptimista er að
vinna að betra mannlífi í hverfulum
heimi. Soroptimistar á Íslandi eru
420 í 15 klúbbum. Á næsta ári mun
bætast við fyrsti Soroptimista-
klúbburinn á Austurlandi.
Á haustfundunum fer fram þjálf-
un embættismanna klúbba, rædd
eru mál, sem efst eru á baugi í þjóð-
félaginu hverju sinni og fróðlegir
fyrirlestrar eru fluttir. Nú voru
sagðar fréttir af sendifulltrúafundi
Evrópusambandsins í Danmörku í
sumar, sagt frá norrænum vinadög-
um í Kalmar og flutt mjög fróðlegt
erindi um Litháen. Hansína B. Ein-
arsdóttir hélt námskeið „Menntun
sem leið til árangurs“ og vöknuðu
ýmsar spurningar hjá fundarkonum
um tengsl menntunar og árangurs
og um notagildi menntunar og jafn-
framt hver staða kvenna er í raun
og veru í samfélagi 21. aldarinnar.
Ræddar voru m.a. leiðir til að ná ár-
angri í lífinu, gildi símenntunar og
mikilvægi tengslaneta. Landssam-
bandsforsetar sitja í 2 ár í embætti,
á þessum fundi fóru fram stjórn-
arskipti og tók Hafdís Karlsdóttir,
Kópavogsklúbbi, við sem forseti til
næstu tveggja ára af Höllu L.
Loftsdóttur, Húsavíkurklúbbi.
Soroptimistasambandið hefur
m.a. nýlega staðið að gerð fræðslu-
efnis um getnaðarvarnir, sem dreift
hefur verið á allar heilsugæslu-
stöðvar á landinu. Er það framlag
íslenskra soroptimista til verkefnis
Evrópusamtakanna „Inn í 21. öldina
með æskunni“. Há tíðni ótímabærra
þungana og fóstureyðinga hér á
landi var hvatinn að þessu verkefni
og sameinuðust öll verkefnasvið ís-
lenskra soroptimista um að styrkja
útgáfu fræðslumappanna.
Staða kvenna hefur vissulega
breyst mikið hjá flestum þjóðum á
þeim 81 ári sem liðið er frá stofnun
fyrsta Soroptimistaklúbbsins 3.
október 1921 í Oakland í Kaliforníu.
Í dag eru um 95.000 félagar í 3000
klúbbum í 123 löndum. Undanfarin
ár hefur útbreiðsla verið einna mest
í Austur-Evrópu og Afríku. Al-
þjóðasamband Soroptimista starfar
með ýmsum stofnunum Sameinuðu
þjóðanna og fleiri frjálsum félaga-
samtökum og á m.a. ráðgefandi full-
trúa hjá aðalstöðvum SÞ í New
York, París, Genf og Vínarborg.
Fyrsti íslenski Soroptimistaklúbb-
urinn var stofnaður 1959 í Reykja-
vík og var landssamband Soroptim-
ista stofnað 1974. Hafa þessi ár
verið notuð til margvíslegra góðra
verka í þágu þeirra sem minna
mega sín.
Tvö höfuðmarkmið Soroptimista-
hreyfingarinnar hafa ætíð verið:
Hið besta handa konum – hið besta
frá konum. Þessi markmið felast í
sjálfu nafni hreyfingarinnar soror,
sem þýðir systir og optime, sem
þýðir bestur. Nafnið Soroptimisti
þýðir því besta systir.
HILDUR HÁLFDANARDÓTTIR,
upplýsingafulltrúi
Soroptimistasambands Íslands.
Haustfundur
Soroptimista
Frá Hildi Hálfdanardóttur:
Halla L. Loftsdóttir, fráfarandi forseti, og Hafdís Karlsdóttir, núverandi
forseti Soroptimistasambands Íslands.
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930