Morgunblaðið - 22.10.2002, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 51
DAGBÓK
Handklæði & flíshúfur
.
Fáið sendan
myndalista Myndsaumur
Reykjavíkurvegur 62
220 Hafnarfjörður
Sími 565 0488
www.myndsaumur.is
YOGA
Námskeiðin hefjast 28. október.
Kennari er Arnhildur S. Magnúsdóttir sem m.a. byggir námskeiðin á sinni
eigin reynslu. Tilgangur námskeiðsins er að takast á við daglegt líf að nýju
með aðstoð yoga, styrkja sig líkamlega og andlega auk þess að sættast við
líkamann.
Námskeiðin verða haldin í sal Lífssýnar, Brautarholti 4, 4. hæð til vinstri.
fyrir alla sem eru að ganga
í gegnum eða hafa lokið
krabbameinsmeðferð
Skráning og upplýsingar eru hjá Arnhildi í síma 895 5848.
Álfhólsvegi 67, sími 554 5820.
Opið frá kl. 16.30-18 þri., mið., og fim.
síðan 1969
20% afsláttur af húðun á kaffikönnusettum
Gamlir ættargripir fá nýtt líf hjá okkur
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
Dragtadagar
20% afsláttur
þessa viku
Mikið úrval dragta í nr. 34-54
Verð frá kr. 6.480
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert djarfur og tekur þeim
áskorunum sem lífið hefur
upp á að bjóða. Gættu þess
samt að sýna fyrirhyggju.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú sérð lengra en margur
annar og átt stundum erf-
itt með að fá samferða-
menn þína til að trúa á það
sem þú segir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Viðbrögð fólks birtast ekki
hvað síst í svipbrigðum og
öðru sem ekki liggur í aug-
um uppi. Sýndu væntum-
þykju og þá mun allt fara
vel.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er alveg nauðsynlegt
að búa yfir sem flestum
upplýsingum þegar þarf að
taka ákvörðun í veigamiklu
máli.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er engin ástæða til
þess að leita uppi vand-
ræði svo farðu þér bara
hægt og sinntu því, sem
þér ber, en láttu aðra hluti
eiga sig.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Aðstoð maka eða einhvers
annars vinar mun færa þér
meiri sálarró. Ræktaðu
þinn innri mann vel því
það borgar sig.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft að koma þér upp
dagbók og skipuleggja
tíma þinn betur. Tíminn
mun leiða í ljós hvað stenst
og hvað ekki.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er töluvert álag á þér
núna bæði í einkalífi og
starfi. Reyndu því ekki að
troða málum þínum áfram.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú getur nýtt sannfæring-
arkraft þinn til að bæta að-
stæður þeirra sem minna
mega sín. Sýndu þeim það
í verki.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þér gengur allt í haginn og
aðrir undrast velgengni
þína. Þér er óhætt að
halda þínu striki ótrauður,
því þú stendur vel fyrir
þínu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú verður að ganga í það
að hreinsa til jafnvel þótt
þú hafir ekki valdið glund-
roðanum. Búðu þig undir
öfund og afbrýðisemi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Hvort sem þér líkar það
betur eða verr ertu öðrum
fyrirmynd. Taktu þér samt
tíma til þess að íhuga
stöðu þína í tilverunni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Frestaðu því ekki til morg-
uns sem þú getur klárað í
dag. Byrjaðu ótrauður upp
á nýtt og talaðu nú tæpi-
tungulaust.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4.
Rc3 Bb4 5. Bg5 Bb7 6. Rd2
h6 7. Bh4 c5 8. a3 Bxc3 9.
bxc3 d6 10. f3 e5 11. d5 Rbd7
12. e3 De7 13. Bd3 g5 14. Bf2
Kd8 15. a4 a5 16. Db3 Ba6
17. Bf5 Kc7 18. h4 e4 19. fxe4
Re5 20. Hb1 Hhb8 21. hxg5
hxg5 22. Bg3 De8 23. Hh6
Rfd7 24. Kd1 Rf8 25. Kc2
Rfg6 26. Bxg6 Rxg6 27. Hf1
Dg8 28. Hf6 Hd8
Staðan kom
upp á Mjólkur-
skákmótinu sem
lauk fyrir
skömmu á Hótel
Selfossi. Ivan
Sokolov (2684)
hafði hvítt gegn
Braga Þorfinns-
syni (2357). 29.
e5! Dg7
29...Rxe5 gekk
ekki upp vegna
30. Bxe5 dxe5
31. Dxb6+ og
hvítur mátar. 30.
Hhxg6! fxg6 31.
Re4 Bc8 32. e6 og svartur
gafst upp. Lokastaða Meist-
araflokks varð þessi: 1.-2. Iv-
an Sokolov (2684) og Predr-
ag Nikolic (2661) 6½ vinning
af 9 mögulegum. 3. Pavel
Tregubov (2594) 4.-5. Luke
McShane (2547) og Hannes
Hlífar Stefánsson (2566) 5½
v. 6.-7. Tomas Oral (2546) og
Helgi Ólafsson (2476) 4 v. 8.
Zbynek Hracek (2607) 3½ v.
9. Stefán Kristjánsson
(2431) 2 v. 10. Bragi Þor-
finnsson (2357) 1½ v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
Heyr, himna smiðr,
hvers skáldið biðr,
komi mjúk til mín
miskunnin þín.
Því heit eg á þig,
þú hefur skaptan mig;
eg er þrællinn þinn,
þú ert Drottinn minn.
Guð, heit eg á þig,
að þú græðir mig,
minnst, mildingr, mín,
mest þurfum þín.
Ryð þú, röðla gramr,
ríklyndr og framr,
hölds hverri sorg
úr hjarta-borg.
Kolbeinn Tumason
ÚLFUR Árnason er þekkt-
ur fyrir störf sín í erfðafræði
við háskólann í Lundi, en
færri vita að Úlfur er brids-
spilari af lífi og sál og tekur
virkan þátt í keppnisbrids í
Svíþjóð. Úlfur sló á þráðinn
til umsjónarmanns fyrir
stuttu og setti hann mála-
lengingarlaust í spor vest-
urs:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ Á109765
♥ G74
♦ 5
♣K76
Vestur
♠ K
♥ KD863
♦ KDG8762
♣--
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 2 lauf
2 tíglar Dobl * 4 tíglar 4 spaðar
5 tíglar 5 spaðar Pass Pass
6 tíglar Pass Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Kerfi mótherjanna er
Precision og því sýnir opnun
suðurs lauflit og 11–15
punkta. Dobl norðurs á
tveimur tíglum er neikvætt,
en framhaldið skýrir sig
nokkuð sjálft. „Þú ert í vest-
ur,“ segir Úlfur, „og spilar
út hjartakóng og átt slaginn.
Hvað svo?“
Úlfur er mikill blekking-
arsmiður við spilaborðið og
mig grunaði strax að hann
hefði setið í suður og dúkkað
með Áxx: „Nei, nei. Ég var í
austur,“ upplýsti Úlfur.
„Og engar reglur notað-
ar?“ spurði ég, því margir
líta svo á að kóngur út gegn
slemmu biðji um talningu.
„Þú færð enga hjálp,“ var
svarið.
„Jæja þá,“ sagði ég. „Ég
hefði nú heldur komið út
með hjartadrottningu til að
knýja makker til að drepa og
gefa mér laufstungu, en úr
því sem komið er spila ég
hjarta áfram.“
Norður
♠ Á109765
♥ G74
♦ 5
♣K76
Vestur Austur
♠ K ♠ 43
♥ KD863 ♥ Á1092
♦ KDG8762 ♦ Á1043
♣-- ♣1054
Suður
♠ DG82
♥ 5
♦ 9
♣ÁDG9832
„Rangt! Þú verður að
treysta makker,“ sagði Úlf-
ur. „Hann myndi örugglega
yfirdrepa með ásinn annan
eða þriðja og spila hjarta aft-
ur, en með fjórlit veit hann
ekki hvað rétt er að gera. Þú
getur því ályktað að hann sé
með ásinn fjórða og þá er
ekki um annað að ræða en að
skipta yfir í tígul.“
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Ljósmynd/Sig. J.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 24. ágúst sl. í Digra-
neskirkju af sr. Magnúsi
Birni Björnssyni þau Jó-
hanna Guðbjartsdóttir og
Viðar Heimir Jónsson.
Heimili þeirra er í Kópa-
vogi.
Ljósmynd/Myndrún
BRÚÐKAUP.
Laugardaginn
5. okt. sl. voru
gefin saman í
Akureyrar-
kirkju brúð-
hjónin Magn-
ea Guðrún
Karlsdóttir og
Sölvi Már
Sveinsson.
Prestur var
séra Svavar A.
Jónsson Heim-
ili þeirra er á
Akureyri. Á
myndinni með
þeim eru
börnin þeirra,
Auður Brynja
og nýskírður
Hákon Karl.
Ljósmyndastofa Erlings
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 20. júlí sl. í Dómkirkj-
unni í Reykjavík af sr.
Hjálmari Jónssyni þau Ólöf
Aðalsteinsdóttir og Einar
Örn Davíðsson.
Bridsfélag Kópavogs
Sveit Orkuveitunnar hélt sínu
striki á lokakvöldi hraðsveitakeppn-
innar og stóð að lokum uppi sem sig-
urvegari. Sveitina skipuðu Páll
Valdimarsson, Eiríkur Jónsson, Sig-
urbjörn Haraldsson, Sverrir G.
Kristinsson og Bjarni H. Einarsson.
Lokastaðan:
Orkuveitan 1448
Ragnar Jónsson 1416
Óskar Sigurðsson 1348
Sigurður Sigurjónsson 1338
Hæstu kvöldskor:
Sigurður Sigurjónsson 487
Orkuveitan 478
Ragnar Jónsson 469
Næsta fimmtudag verður eins
kvölds tvímenningur með rauðvíns-
bragði fyrir sigurvegarana. Spilað er
í Þinghóli, Hamraborg 11, og hefst
spilamennskan kl. 19.30.
Allir bridsspilarar eru velkomnir.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Félag eldri borgara
í Hafnarfirði
Eldri borgarar í Hafnarfirði spila
brids, tvímenning, í Hraunseli,
Flatahrauni 3, tvisvar í viku á þriðju-
dögum og föstudögum. Mæting kl.
13:30.
Spilað var 11. okt. Þá urðu úrslit
þessi:
Sigurlína Ágústsd. - Guðm. Guðmundss. 75
Guðni Ólagsson - Ólafur Guðmundsson 60
Árni Bjarnason - Þorvarður. S. Guðm. 58
Jón Gunnarsson - Sigurður Jóhannsson 57
15. okt.
Árni Bjarnason - Þorvarður. S. Guðm.. 90
Jón R. Guðmundsso - Jón Sævaldsson 81
Jón Gunnarsson - Sigurður Jóhannsson 79
Þórarinn Árnas. - Sigtryggur Ellertss. 78
18. okt.
Sævar Magnússon - Þorvarður S. Guðm. 86
Guðni Ólagsson - Ólafur Guðmundsson 79
Maddy Guðmundsd.- Guðm. Árnason 68
Hera Guðjónsdóttir - Árni Guðmundsson 66
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á tólf borðum
fimmtudaginn 17. október sl. Með-
alskor 220. Beztum árangri náðu:
NS
Sigtryggur Ellertss. – Þórarinn Árnas. 269
Guðmundur Helgas. – Haukur Guðm. 245
Karl Gunnarsson – Kristinn Guðm. 238
AV
Heiður Gestsd. – Þórdís Sólmundard. 254
Helga Haraldsd. – Halldóra Lárusd. 250
Filip Höskuldsson – Páll Guðmundss. 249
Spilað mánu- og fimmtudaga.
Mæting kl. 12.45 á hádegi.
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Það mættu 22 pör þriðjudaginn
15. október í Mitchell-tvímenninginn
og röð efstu para í N/S varð þessi:
Eysteinn Einarss. - Jón Stefánsson 269
Guðm. Þórðarson - Magnús Þorsteinss. 255
Lárus Hermannss. - Sigurður Karlss. 222
Jón Pálmason - Ólafur Ingimundars. 222
Hæsta skor í A/V:
Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 291
Vilhjálmur Sigurðss. - Þórður Jörundss. 272
Guðm. Magnússon - Magnús Guðmss. 252
Sl. föstudag mættu svo 24 pör og
þá urðu úrslitin þessi:
Jón Stefánss. - Eysteinn Einarsson 264
Rafn Kristjánss. - Oliver Kristófss. 263
Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 237
Og í A/V urðu eftirtalin pör efst:
Magnús Halldórss. - Þorsteinn Laufdal 257
Helga Haraldsd. - Einar Einarsson 244
Einar Markússon - Sverrir Gunnarsson 237
Meðalskor báða dagana var 216.
80 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 22.
október, er áttræð Sigríður
Jóna Ingólfsdóttir frá Borð-
eyri. Hún dvelur nú á Dval-
arheimili aldraðra í Borgar-
nesi.