Morgunblaðið - 01.12.2002, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 01.12.2002, Blaðsíða 25
varð mikil breyting þegar deildin flutti á Borgarspítalann, þá komu hingað slösuð börn, sum mikið slös- uð, sem flutt höfðu verið á slysadeild spítalans. Á Sjúkrahúsi Landspítala í Fossvogi er háls-, nef- og eyrna- deild og heilaskurðdeild. Einnig hef- ur verið mjög öflugt samstarf við Greiningardeild ríksins, ekki síður eftir að deildin flutti í Fossvoginn. Þetta hefur mótað starfið töluvert.“ Hvað með ný lyf og nýjar lækn- ingaaðferðir? „Það hefur margt breyst í þeim efnum. Þegar ég kom til starfa voru mjög mörg börn lögð inn með slæm- an astma. Það er að verða fátítt að þessi börn séu lögð inn vegna til- komu miklu öflugri astmalyfja sem gerir meðhöndlun utan sjúkrahúss mögulega. Annað hefur ekki síður breyst. Nú er bólusett gegn bakt- eríu sem heitir hemophilus influ- ensae sem er mjög skæð og ein or- sök fyrir heilahimnubólgu og sýkingum í lungum og víðar, þessi baktería er nánast horfin úr um- hverfinu sem hefur létt á bráðavökt- um. Nú er verið að bólusetja fyrir vissri tegund heilahimnubólgubakt- eríu, sem og lungnabólgu og fleiri sýkingum. Fyrirbyggjandi starf er farið að skila verulegum árangri og hefur gjörbreytt starfsvettvangi barna- deildanna á síðustu 20 árum. Um- hverfið er orðið gerólíkt. Að sjálf- sögðu koma inn fárveik börn með heilahimnubólgur, sýkingar og heilabólgur en ekki svipað því eins oft og áður var. Eitt er þó af því gamla sem skýt- ur alltaf af og til upp kollinum og það er kíghósti. Orsökin er kannski sú að til er að fólk hafni því að láta sprauta börn sín við þessum sjúk- dómi af ótta við mögulegar auka- verkanir. Þetta hefur á köflum verið nokkuð algengt t.d. í Svíþjóð og í Skotlandi. En það sýnir sig að ef fólk hættir að láta bólusetja börn þá verða mörg dauðsföll af völdum þeirra sjúkdóma sem bólusett er fyrir. Kíghósti er mjög hættulegur sjúkdómur fyrir ungbörn.“ Stöðugar framfarir eiga sér stað í barnalækningum Verður hin nýja sameinaða barna- deild á Landspítalanum við Hring- braut mjög öflug? „Já, ég tel svo vera. Við eigum öfl- ugan mannskap sem vinnur við barnalækningar. Við eigum sér- fræðinga í næstum öllum undir- greinum barnalækninga. Enn fara íslenskir læknar víða og tileinka sér nýjungar. Læknar sem starfa hér hafa starfað á góðum háskólasjúkra- húsum erlendis, bæði í Bandaríkj- unum, á Norðurlöndum og víða í Evrópu. Barnalækningar eru í mik- illi þróun í öllum greinum. Stöðugar framfarir eiga sér stað, bæði með fyrirbyggjandi aðgerðum og nýjum lyfjum og lækningaaðferðum. Við erum hins vegar að sjá ým- islegt nýtt á barnadeildum sem bregðast þarf við. Eftir að sjálfræð- isaldur var færður upp koma í aukn- um mæli inn unglingar með vímu- efnavandamál og ýmislegt annað sem ekki kom til kasta barnadeilda áður. Við vitum ekki enn hvort hin nýja deild verður í stakk búin til að mæta slíkum vanda. Annað vanda- mál er sívaxandi, það er sykursýki, hún verður æ algengari í börnum en ekki er vitað hvers vegna. Norður- lönd eru með hátt nýgengi af syk- ursýki, þetta er langvinnur og erf- iður sjúkdómur. Það er því af nógu að taka þótt tekist hafi að fyrir- byggja eða minnka nýgengi hvað suma sjúdóma snertir.“ Leggst af öll starfsemi varðandi börn á Landsspítala – háskóla- sjúkrahúsi í Fossvogi þegar barna- deildin flytur á brott héðan? „Nei, eins og málin standa núna er gert ráð fyrir að halda opinni að- stöðu fyrir börn. Tveir barnalæknar verða starfandi hér og séð verður fyrir vaktþjónustu fyrir börn. Börn sem fara í aðgerð á bæklunarskurð- deild, heilaskurðdeild eða á háls-, nef- og eyrndadeild fá inni á þessum stofum. Ekki er hins vegar gert ráð fyrir langlegum. Þau börn sem þurfa að liggja inni í lengri tíma verða flutt þangað sem betri þjón- usta er, t.d. kennsla og fleira.“ Veldur fyrirhuguð sameining blendnum tilfinningum hjá starfs- fólki deildarinnar hér? „Það hefur ríkt hér mjög góður starfsandi og samheldni og því er ekki að neita að blendnar tilfinn- ingar láta á sér kræla vegna þessara breytinga.Yfirgnæfandi er þó sú til- finning spennu að fá að taka þátt í skipulagningu starfsins á nýjum stað með góðu fólki við góðar að- stæður. Deildin verður starfrækt í glæsilegu og nýju húsnæði.“  MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 2002 25 www.urvalutsyn.is Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum um land allt Úrval-Úts‡n Borgarveisla ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 1 95 57 11 /2 00 2 *Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting me› morgunver›i í 3 nætur og íslensk fararstjórn. Fer›ir til og frá flugvelli eru í bo›i á 1.600 kr. í Budapest og Prag og 1.700 kr í Barcelona. Barcelona 6. - 9. mars, 27. - 30. mars Vor 2003 49.970 kr. * á mann í tvíb‡li á hótel Expo. Prag 13. - 16. mars, 20. - 23. mars 48.070 kr. * á mann í tvíb‡li á hótel Corinthia Panorama. Budapest 27. - 30. mars, 3. - 6. apríl 52.270 kr. * á mann í tvíb‡li á hótel Novotel Centrum.- Perlan vi› Dóná - Ein fegursta borg Evrópu - Heillandi heimsborg Helgarfer›ir í beinu leiguflugi til Barcelona, Budapest og Prag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.