Morgunblaðið - 01.12.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 01.12.2002, Blaðsíða 42
MINNINGAR 42 SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Elsku mamma. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, SVANHVÍT L. GUÐMUNDSDÓTTIR ✝ Svanhvít Ljós-björg Guð- mundsdóttir fæddist í Geitdal í Skriðdal í Suður-Múlasýslu 9. ágúst 1908. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Seljahlíð 24. nóvember síðastlið- inn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 29. nóvember. fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði’ er frá. Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur tefja í dauðans dimmum val. Úr inni harms og hryggða til helgra ljóssins byggða far vel í Guðs þíns gleðisal. (V. Briem.) Takk fyrir allt sem við áttum sam- an. Þitt ljós mun lýsa í hjarta mínu um ókomna tíma. Guð geymi þig en ég varðveiti minningu þína. Þín dóttir Guðríður. Eiginmaður minn, THEODÓR RAGNAR EINARSSON, lést á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, þriðjudag- inn 12. nóvember síðastliðinn. Útför hans fór fram í kyrrþey að ósk hans. Hjartans þakkir vil ég færa læknum og starfs- fólki St. Jósefsspítala fyrir alúð og umhyggju í veikindum hans. Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins færi ég einnig hjartans þakkir fyrir alla aðstoð okkur veitta. Blóm og hlýjar kveðjur þakka ég einnig af alhug. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd barna hans, Kristín Kristinsdóttir. Elskulega frændfólk og vinir, við þökkum ykkur hjartanlega fyrir hlýhug og samúð sem hefur yljað okkur og stutt við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVÖVU BERNHARÐSDÓTTUR, Hrauntungu 50, Kópavogi. Guð blessi ykkur öll. Bernharður Guðmundsson, Rannveig Sigurbjörnsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Kristján Guðmundsson, Margrét Hjaltadóttir, Þórhallur Guðmundsson, Herdís Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og stuðning við andlát og útför ástkærs sonar og bróður okkar, mágs og frænda, JÓNS KRISTJÁNS KJARTANSSONAR, Kirkjuteigi 9 og Tjaldanesi. Kjartan Ingimarsson, Þóra Kjartansdóttir, Guðmundur H. Karlsson, Ingimar Kjartansson, Kristinn Árni Kjartansson, Guðrún Ágústsdóttir, Björg Vigfúsína Kjartansdóttir. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa, sonar og bróður, GESTS JÓNSSONAR loftskeytamanns, Ljósheimum 18a, Reykjavík. Þóra Þorgrímsdóttir, Heiða Sigurrós Gestsdóttir, Stefán Þór Magnússon, Svanur Þór Stefánsson, Gestur Magnús Stefánsson, Inga Sigríður Gestsdóttir, Gerða S. Jónsdóttir, Sigríður Jónsdóttir, Guðbjörg Jónsdóttir. Vegna veikinda og andláts elsku eiginkonu, móður og ömmu okkar, NÍNU HEIÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR frá Seyðisfirði, Sævangi 24, Hafnarfirði, sendum við öllum þeim, er sýndu samúð og vináttu við útför hennar, innilegar þakkir. Starfsfólk kvennadeildar Landspítala háskólasjúkrahúss fær þakkir fyrir einstaka nærgætni, hjúkrun og umönnun. Guð veri með ykkur öllum. Trausti Hólm Jónasson, Inga Jóna Traustadóttir, Trausti Rúnar Egilsson, Sigurður Benedikt Egilsson, Berglind Ósk. Hugborg vinkona mín er dáin eftir stutt og strangt sjúkdóms- stríð. Ég kynntist henni þegar ég var unglingur og vann hjá þeim hjónum, henni og Óla, og var þá einnig í fæði hjá þeim. Kynni okkar Hugborgar endur- nýjuðust svo í kvenfélaginu hérna, en þar vorum við í stjórn saman og einnig í fjáröflunarnefnd félagsins í nokkur ár, með nokkrum góðum konum. Við héldum basara, stóðum fyrir kvennahlaupi og síðast en ekki síst gáfum við út dagbókina Jóru. Oft var mikið að gera hjá okkur í þessu fjáröflunarstarfi, en þetta var skemmtilegt og gefandi samstarf, sem við höfðum gaman af að rifja upp. HUGBORG ÞURÍÐUR BENEDIKTSDÓTTIR ✝ Hugborg Þuríð-ur Benedikts- dóttir fæddist á Kambsnesi í Laxár- dal í Dalasýslu 27. febrúar 1922. Hún lést á Sjúkrahúsi Suðurlands á Sel- fossi 23. október síð- astliðinn og var útför hennar gerð frá Sel- fosskirkju 2. nóvem- ber. Hugborg var áhuga- söm, jákvæð, glaðlynd og hreinskiptin, hafði ákveðnar skoðanir en tróð þó ekki á skoðun- um annarra. Kappsemi hennar var smitandi, svo og jákvæðnin og áhrif hennar í hópnum voru góð, sem skilaði sér í frjóum hugmynd- um og góðum fram- kvæmdum. Mér þótti vænt um hana og sakna hennar, samskiptanna við hana, heimsóknanna og spallsins hér og þar. Hún hafði svo mikið af hlýju og umhyggju, það var gott að eiga hana að vini. Ég sendi Óla og fjölskyldunni allri mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Guð blessi Hugborgu og allar góðu minningarnar um hana. Erna. Hugborg amma mín er látin. Hún hafði um nokkurt skeið barist hetju- lega við sjúkdóm sem að lokum hafði betur. Þær eru margar minningarnar um hana ömmu sem leita upp í huga minn þessa dagana. Við barnabörn- in þeirra ömmu og afa höfum alltaf verið aufúsugestir á Lækjartúni. Þegar við systkinin í Hlöðutúni vor- um lítil vorum við mikið á Lækj- artúni hjá afa og ömmu. Amma gaf sér alltaf tíma til þess að lesa fyrir okkur er við vorum yngri og kenndi hún okkur líka að spila og margt fleira Það var alltaf gaman á Lækj- artúni og óteljandi minningar sem hægt er að rifja upp. Það er þó ein minning sem er mér efst í huga. Í minni fjölskyldu er hefð að hafa rjúpur í matinn á aðfangadagskvöld. Ég og amma höfðum það fyrir venju að hittast á Þorláksmessumorgun til þess að hamfletta og gera að rjúp- unum. Hún kenndi mér öll nauðsyn- leg handtök sem þurfa þykir í þeim efnum og þá spjölluðum við um dag- inn og veginn og ýmis framtíðar- áform. Ég mun aldrei gleyma þess- um Þorláksmessumorgnum, þessar stundir mun ég varðveita og búa að um aldur og ævi. Amma hafði mikinn karakter, hún var dugleg og greind kona. Fjöl- skyldan var henni mjög mikilvæg og ræktaði hún fjölskylduböndin af mikilli alúð. Amma var óeigingjörn og ætíð tilbúin að aðstoða þá sem á þurftu að halda. Það er með söknuði sem ég kveð ömmu í hinsta sinn en þó er það mér huggun að vita að nú er hún í góðum höndum Guðs. Ég bið Guð um að vaka yfir afa og veita honum styrk í sorg hans. Þinn sonarsonur, Hjalti Jón Kjartansson. Mig langar að minn- ast Guðbjargar Guð- mundsdóttur í nokkrum orðum. Guðbjörg var gift Björgvini Krist- jánssyni og áttu þau fjóra syni, Guðmund, Indriða, Trausta og Halldór. Ég kynntist Guð- björgu eða Guggu eins og við kölluð- um hana alltaf þegar ég var lítil stelpa í Bolungarvík, 6 eða 7 ára gömul, þeg- ar tókst vinskapur milli foreldra minna og Guggu og Bjögga. Þegar ég var 9 ára urðum við nágrannar þegar við fluttum inn á grundir, eins og sagt er. Við yngstu börnin, ég og Halldór, lékum okkur mikið saman og þegar Sýta systir mín og Gummi urðu kær- ustupar varð samgangurinn ennþá meiri. Mamma mín vann mikið og þá sótti GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR ✝ Guðbjörg Guð-mundsdóttir fæddist í Hafnarfirði 8. júlí 1942. Hún lést í Malmö í Svíþjóð 16. október síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Hafnar- fjarðarkirkju 12. nóvember. ég mikið yfir til Guggu og þótt strákarnir væru ekki heima dundaði ég mér bara hjá henni og hún virtist aldrei kippa sér upp við það, þótt eft- ir á að hyggja geti mað- ur ímyndað sér að hún hefði þegið friðinn, með fjóra stráka á heimilinu. Hún leyfði mér líka allt- af að koma með sér inn á Ísafjörð fyrir jólin, að kíkja í Neista, það þóttu mér voða merkilegar ferðir. Gugga og Bjöggi eignuðust líka fljótt lita- sjónvarp og ég mátti alltaf fara yfir og horfa á Prúðuleikarana í lit hjá þeim. Það var margt brallað á heimilinu og oft mikið fjör, Gugga og Bjöggi kölluðu hvort annað „mömmu og pabba“, ég hafði aldrei heyrt það fyrr og fannst það voðalega sætt. Sýta og Gummi eignuðust dóttur, Öldu Björgu, sem í dag er ung og fal- leg kona og má glöggt sjá svip af ömmu hennar á henni. Þótt samvera Sýtu og Gumma yrði ekki löng og fjöl- skyldan öll flytti fyrst suður og svo til Svíþjóðar fylgdist Gugga alltaf með Öldu og sendi henni gjafir og nú síð- ast kom Bjöggi afi með brúðargjöf frá ömmu og afa, sem ég veit að gladdi Öldu mikið. Mig langar, fyrir hönd fjölskyldu Öldu Bjargar, að þakka Guggu allar góðu stundirnar og biðja guð að geyma hana. Bjöggi, Gummi, Indriði, Trausti og Halldór og fjöl- skyldur, tuttugu ár eru fljót að líða, en við viljum senda ykkur innilegar sam- úðarkveðjur. Fjölskylda Ingu og Haraldar. Mig langar að minnast Guðbjargar Guðmundsdóttur í nokkrum orðum. Guðbjörg var gift Björgvini Krist- jánssyni og áttu þau fjóra syni. Guð- mund, Indriða, Trausta og Halldór. Ég kynntsist Guðbjörgu eða Guggu eins og við kölluðum hana alltaf, þeg- ar ég var lítil stelpa í Bolungarvík, sex eða sjö ára gömul, þegar tókst á vin- skapur milli foreldra minna og Guggu og Bjögga. Þegar ég var níu ára urð- um við nágrannar þegar við fluttum inn á grundir, eins og sagt er. Við yngstu börnin, ég og Halldór, lékum okkur mikið saman og þegar Sýta systir mín og Gummi urðu kærustu- par varð samgangurinn ennþá meiri. Mamma mín vann mikið og þá sótti ég mikið yfir til Guggu og þó strák- arnir væru ekki heima þá dundaði ég mér bara hjá henni og hún virtist aldrei kippa sér upp við það, þó að eft- ir á að hyggja geti maður ímyndað sér að hún hefði þegið friðinn, með fjóra stráka á heimilinu. Hún leyfði mér líka alltaf að koma með sér inn á Ísa- fjörð fyrir jólin, að kíkja í Neista. Það þóttu mér voða merkilegar ferðir. Gugga og Bjöggi eignuðust líka fljótt litasjónvarp og ég mátti alltaf fara yf- ir og horfa á Prúðuleikarana í lit hjá þeim. Það var margt brallað á heim- ilinu og oft mikið fjör, Gugga og Bjöggi kölluðu hvort annað „Mömmu og Pabba“, ég hafði aldrei heyrt það fyrr og fannst það voðalega sætt. Sýta og Gummi eignuðust dóttur, Öldu Björgu, sem í dag er ung og fal- leg kona og má glöggt sjá svip af ömmu hennar í henni. Þótt samvera Sýtu og Gumma yrði ekki löng og fjöl- skyldan öll flytti fyrst suður og svo til Svíþjóðar, fylgdist Gugga alltaf með Öldu og sendi henni gjafir og nú síð- ast kom Bjöggi afi með brúðargjöf frá ömmu og afa, sem ég veit að gladdi Öldu mikið. Mig langar, fyrir hönd fjölskyldu Öldu Bjargar að þakka Guggu allar góðu stundirnar og biðja guð að geyma hana. Bjöggi, Gummi, Indriði, Trausti og Halldór, og fjölskyldur, tuttugu ár eru fjlót að líða, en við viljum senda ykkur innilegar samúðarkveðjur. F.h. fjölskyldu Ingu og Haraldar, Helga Haraldsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.