Morgunblaðið - 01.12.2002, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 01.12.2002, Blaðsíða 38
FRÉTTIR 38 SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ EINBÝLI  Ásendi - vandað hús Erum með í einkasölu ákaflega vandað og fallegt einbýlishús á einni hæð u.þ.b. 150 fm auk 30 fm bílskúrs. Húsið er mjög vel skipulagt m.a. með fjórum herbergjum, stóru eldhúsi, góðum stofum o.fl. Flísa- lagður garðskáli með heitum potti. Eign- inni hefur verið haldið mjög vel við. End- urnýjað eldhús og baðherbergi. V. 24,5 m. 2843 4RA-6 HERB.  Flétturimi 4ra-5 herb. mjög falleg 117,7 fm endaíbúð með baðstofulofti. Íbúðin skiptist m.a. í stórt eldhús, 4 svefnherb., tvær saml. stofur, sjónvarps- hol o.fl. Stæði í opnu bílskýli. Fallegt út- sýni. V. 14,9 m. 2701 Fálkagata Vel skipulögð 4ra her- bergja íbúð á 1. hæð í fjölbýli. Íbúðin skiptist í 3 svefnh., bjarta og stóra stofu, eldhús og bað. Ný eldhúsinnr. og parket á gólfum. Suðursvalir. V. 12,3 m. 1360 3JA HERB.  Kaplaskjólsvegur 3ja herb. 70 fm hæð í þríbýlishúsi. Íbúðin skiptist í hol, 2 herb., stofu, eldhús og baðherb. Ný eld- húsinnr. Gler er nýlegt að mestum hluta og rafmagn hefur verið endurnýjað. Sér- geymsla fylgir í kjallara svo og sam. þvottah. o.fl. V. 9,9 m. 2912 Hofteigur - risíbúð Falleg og björt 3ja herbergja risíbúð. Íbúðin er skráð u.þ.b. 60 fm en gólfflötur er um 76 fm. Skiptist í hol, stofur, tvö herbergi, eldhús og baðherbergi. Snyrtileg eign á mjög grónum stað nálægt sundlaugun- um í Laugardal. V. 9,9 m. 2906 Kársnesbraut - útsýni 3ja her- bergja falleg og björt íbúð á 2. hæð (efstu) í litlu fjölbýli með glæsilegu útsýni. Íbúðin skiptist í hol, tvö herbergi, stofu, eldhús, sérþvottahús og baðher- bergi. Getur losnað fljótlega. V. 9 m. 2835 ATVINNUHÚSNÆÐI  Til leigu - Tryggvagata - götuhæð - Hafnarhvoll Höfum verið beðnir um að sjá um útleigu á þessari fallegu götuhæð í Hafnarhvoli við Tryggvagötu. Um er að ræða vand- aða u.þ.b. 387 fm hæð sem áður hýsti Kauphöll Íslands. Húsið er í góðu ástandi og hefur allt verið endurnýjað að utan. Á hæðinni er loftræsting, loftkælt tölvuherbergi með lagnagólfi fyrir tölvu- lagnir og eldtraust geymsla með stórum peningaskáp. Húsnæðið hentar vel hvers kyns starfsemi og gefur staðsetn- ing mikla möguleika vegna framtíðar- skipulagningar hafnarsvæðisins. 2599 Síðumúli - atvinnuhúsnæði Erum með í sölu gott u.þ.b. 195 fm at- vinnuhúsnæði á 2. hæð sem gæti hent- að vel undir skrifstofur eða þjónustu. Plássið er til afhendingar strax tilbúið til innréttinga. Gluggar eru á þrjár hliðar. V. 16,9 m. 2911 Falleg 90 fm 3ja-4ra herbergja íbúð á 6. hæð auk 30 fm bílskúrs við Gullsmára í Kópavogi. Íbúðin skiptist m.a. í baðherbergi, eldhús, stofu og 2-3 herbergi. Húsið er klætt að utan. Tvær lyftur. Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, mánudag og þriðjudag. Herdís, sími 868 5439, sýnir eignina. 2141 Gullsmári - eldri borgarar  Ársalir - fasteignamiðlun  Ársalir - fasteignamiðlun  Til sölu 340 fm vandað steinsteypt hús ásamt 30 fm samb. bílskúr. Mögul. að hafa séríbúð á neðri hæð. Húsið er vel staðsett, skammt frá Árbæjarsundlauginni. Ársalir ehf. - fasteignamiðlun 533 4200 Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali sími 892 0667 Opið hús í dag, sunnudag, frá kl. 15-18 Heiðarás 14 - einbýli/tvíbýli Sérhæfðir sölumenn í atvinnuhúsnæði! FRANZ@holl.is Hóll — Alltaf rífandi salaAGUST@holl.is FJÖLDI EIGNA TIL SÖLU OG LEIGU! Ekki hika við að hringja í okkur félagana, Franz, gsm 893 4284, Ágúst gsm, 894 7230. 38 FORMLEGAR rannsóknir hafa verið gerðar á vegum Rannsókn- arnefndar flugslysa á þessu ári. 90 mál varðandi flugóhöpp og -atvik hafa verið til skoðunar hjá nefnd- inni það sem af er árinu. Hefur nefndin aldrei áður rannsakað svo mörg mál á einu ári, flest hafa þau verið 35 talsins. Þormóður Þormóðsson, rann- sóknarstjóri hjá Rannsóknarnefnd- inni, segir að rekja megi fjölgunina m.a. til þess að fólk er duglegra að tilkynna óhöpp nú en áður. Þá hafi störf nefndarinnar verið áberandi í ár vegna stórra mála, t.d. alvarlegs flugatviks við Gardermoen flugvöll sem fékk mikla umfjöllun. Mikill áhugi á flugöryggi Þormóður fór yfir flugóhöpp og flugatvik ársins á fundi sem Flug- málafélag Íslands stóð fyrir í vik- unni. Að fundinum stóðu einnig Flugmálastjórn Íslands, Flug- björgunarsveitin og Öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflug- manna. Fundurinn var vel sóttur og að sögn Þormóðs voru þar sam- an komnir áhugamenn um flug- öryggi úr ýmsum áttum, t.d. flug- menn og flugumferðarstjórar. Þormóður rifjaði á fundinum sérstaklega upp nokkur flugatvik og slys á árinu og staðreyndir í rannsókn þeirra, t.d. mál vélar sem brotlenti á Akureyri, annarrar sem flaug á rafmagnslínu, nauð- lendingu vélar vegna hreyfilsstöðv- unar á Reykjanesi, mál vélar sem fór út af flugbraut í Vestmanna- eyjum, mál erlendrar vélar sem lenti í vandræðum vestur af land- inu og rannsókn á því þegar tvær vélar flugu mjög nálægt hvor ann- arri í aðflugi að Reykjavík, svo eitthvað sé nefnt. Á fundinum sköpuðust töluverðar umræður um einstök mál og störf nefndarinnar og sagði Þormóður ljóst að margir hefðu áhuga á öryggismálum í flugi og starfi Rannsóknarnefnd- arinnar. Hugmyndir um breytingar á flugi Sigurleifur Kristjánsson, deild- arstjóri verklagsstofu flugum- ferðarþjónustu hjá Flugumferðar- stjórn, kynnti á fundinum hugmyndir um fyrirhugaðar breyt- ingar á flugi um Reykjavíkurflug- völl til að draga úr hávaða í ná- grenni hans. Sagði Sigurleifur að tillögurnar miðuðu að því að dreifa hávaðanum og snertu t.d. breyt- ingar á aðflugs- og brottflugs- leiðum og vali flugbrauta. Þá hvatti Sigurleifur flugmenn til að draga úr óþarfa hávaða og varpaði t.d. fram þeirri spurningu hvort fullt vélarafl, sem ylli í sumum til- vikum töluverðum hávaða, væri alltaf nauðsynlegt í brottflugi véla sem t.d. væru ekki fullhlaðnar. Aldrei fleiri mál hjá Rann- sóknarnefnd flugslysa Morgunblaðið/Sverrir Vel var mætt á flugöryggisfund á Hótel Loftleiðum í gær. Þar kynnti Þormóður Þormóðsson hjá Rannsókn- arnefnd flugslysa (fyrir miðri mynd) m.a. rannsóknir sem nefndin hefur gert það sem af er árinu. JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að hækka gildandi gjald- skrá vegna endurgreiðslu tann- lækniskostnaðar um 20% frá og með 1. desember nk. og flýta með því boðaðri aukningu endur- greiðslna til sjúklinga. Samskipta- samningur Tryggingastofnunar rík- isins og Tannlæknafélags Íslands tekur gildi sama dag, en samninga- nefndir tannlækna og heilbrigðis- málaráðherra náðu samkomulagi um nýjan samning aðila fyrir skemmstu. Ný og gjörbreytt gjaldskrá sem var hluti af fyrrgreindum sam- skiptasamningi kemur svo í stað gildandi gjaldskrár um áramótin. Þegar sú gjaldskrá verður tekin upp hafa endurgreiðslur vegna tannlæknakostnaðar hækkað um 22% frá því sem var fyrir gerð sam- skiptasamningsins. Nýja gjaldskráin sem tekur gildi um áramótin er gjörbreytt frá því sem áður var. Gamla gjaldskráin samanstóð af yfir 350 gjaldliðum en sú nýja aðeins af 122 gjaldliðum. Þessi skipan er nær því sem gerist annars staðar á Norðurlöndum og er talin einfalda reikningsgerð og eftirlit með meðferð og þjónustu. Aukin réttindi 1. desember tekur einnig gildi ný reglugerð um tannlækningar sem eykur umtalsvert réttindi sjúklinga til tannlæknisþjónustu, segir í frétt frá ráðuneytinu. Helstu nýmæli reglugerðarinnar eru að nú er gefin heimild til greiðslu „implanta“, eða ígræðis, til lífeyrisþega, þegar um gómasmíði er að ræða, svo og til greiðslu fyrir „plantagóma“, sem á „implantana“ koma. Þá verður samþykkt að end- urgreiða 80% kostnaðar samkvæmt gjaldskrá ráðherra af alvarlegum tannskemmdum, sem leiða af skertri munnvatnsframleiðslu af völdum geislameðferðar, sjögrens- sjúkdóms eða lyfja. Enn fremur verða endurgreiðslur hækkaðar í 95% af gjaldskrá ráðherra þegar um er að ræða skarð í vör eða gómi sem leiðir til tannskekkju. Endurgreiðslur hækka strax um fimmtung HÆSTIRÉTTUR féllst í gær á kröfu bandaríska fyrirtækisins United Parcels Service að aug- lýsingaþjónustunni Úps! ehf. yrði óheimilt að nota í atvinnu- starfsemi lénið ups.is og netfangið ups@ups.is. Er fyrirtækinu gert að láta afskrá framangreint lén og netfang hjá Interneti á Íslandi inn- an 15 daga að viðlögðum dagsekt- um. Héraðsdómur hafði áður sýknað Úps! af kröfunni. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að United Parcels Service, sem rekur hraðsendingarþjónustu víða um heim, hafi mörg skráð vöru- merki hér á landi þar sem skamm- stöfunin UPS kemur fyrir. Í bréfi Einkaleyfastofunnar til lögmanns UPS kemur fram, að samkvæmt þessari skráningu njóti orðmerki áfrýjanda, UPS, verndar fyrir all- ar vörur og þjónustu í nokkrum vöruflokkum, þar á meðal auglýs- ingastarfsemi, allt þar til að end- urnýjun kemur árið 2007. Úps! hefur rekið auglýsingaþjónustu og skiltagerð undir firmanafninu Úps! ehf. frá árinu 1997. Fyrir hér- aðsdómi benti lögmaður Úps! m.a. á að vörumerkið ups væri ekki notað í starfsemi fyrirtækisins svo nokkru næmi auk þess sem fyr- irtækið stundaði allt önnur við- skipti en UPS. Á þetta féllst Hæsti- réttur ekki og verður Úps! því að finna sér annað lén og netfang. Hæstarréttardómararnir Guð- rún Erlendsdóttir, Garðar Gísla- son, Haraldur Henrysson, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Hafstein kváðu upp dóminn. Magnús H. Magnússon hrl. sótti málið f.h. UPS en Erla S. Árnadóttir hrl. var til varnar fyrir Úps! Úps! má ekki nota ups HIÐ íslenska Biblíufélag hefur gefið út jólamerki fyrir árið 2002 með mynd eftir listakonuna Gitte Engen. Jólamerkin notar félagið til fjáröflunar. Í ár er safnað til styrktar Biblíufélaginu í Bangla- desh. Hið íslenska Biblíufélag sendir jólamerkin hverjum sem þau vilja, óútfylltur gíróseðill fylgir með og er fólki frjálst að greiða þá upphæð sem það kýs. Peningarnir verða notaðir til að styrkja starf Biblíufélagsins í Bangladesh við að kenna fátæku fólki að lesa og skrifa með hjálp Biblíunn- ar og til að útvega nauðsynleg kennslugögn, segir í fréttatilkynningu. Jólamerki Biblíufélagsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.