Morgunblaðið - 01.12.2002, Blaðsíða 30
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MYNDLISTARSÝNINGIN Milli
goðsagnar og veruleika stendur yf-
ir í Listasafni Reykjavíkur – Hafn-
arhúsi um þessar mundir, en hún er
hingað komin frá Konunglega fag-
urlistasafninu í Jórdaníu. Á sýning-
unni er veitt yfirlit yfir nútíma-
myndlist frá arabaheiminum og í
tengslum við opnun hennar kom
hingað til lands dr. Khaled Khreis,
safnstjóri fagurlistasafnsins í Jórd-
aníu.
Khreis er menntaður myndlist-
armaður, hann nam fyrst í Kaíró en
síðar á Spáni þar sem hann var bú-
settur um margra ára skeið. Auk
myndlistarmenntunarinnar lauk
Khreis doktorsgráðu í listasögu við
Háskólann í Barcelona. Hann tók
við stjórn fagurlistasafnsins, Jordan
National Gallery, fyrir ári og hefur
verið önnum kafinn við reksturinn
síðan. Sjálfur á Kreis verk á sýning-
unni Milli goðsagnar og veruleika,
en segist þó lítinn tíma hafa til að
sinna málverkinu samhliða safn-
stjórninni. „Fagurlistasafnið í Jórd-
aníu var stofnað árið 1980 og hefur
eignast 1.800 listaverk eftir lista-
menn úr hinum gamla arabaheimi
og þróunarlöndunum. Safnið hefur
lagt mikla áherslu á sýningarhald
utan Jórdaníu og er sýningarverk-
efnið í Reykjavík liður í því starfi,“
segir Khreis og bætir því við að
safnið standi einnig fyrir sýningum
í Jórdaníu er fengnar eru frá öðrum
löndum.
Samskiptin við Ísland komust á í
gegnum Hannes Sigurðsson, for-
stöðumann Listasafnsins á Akur-
eyri, en sýningin Milli goðsagnar og
veruleika var fyrst haldin þar í sum-
ar.
„Við höfum lagt mikla áherslu á
menningarlegt samstarf milli aust-
urs og vesturs. Hugmyndin er ekki
síður að veita innsýn í menningu og
hugmyndaheim íslamska heimsins í
gegnum listræna tjáningu ein-
staklinga. Eftir hryðjuverkaárás-
irnar 11. september í fyrra hefur
ímynd araba og múslima beðið mik-
inn hnekki í augum vestræna
heimsins. Þá er oft dregin upp mjög
neikvæð mynd af fólki frá þessum
heimshluta í vestrænum fjölmiðlum
og erum við að leitast við að snúa
þessari þróun við með þessum sam-
skiptum. Sýningin millli goðsagnar
og veruleika veitir innsýn í hefð og
samtímalegar skoðanir listamanna
frá jafnólíkum löndum og Alsír,
Egyptalandi, Írak, Jórdaníu, Kúv-
eit, Líbanon, Marokkó, Palestínu,
Sádi–Arabíu, Súdan, Túnis og Sam-
einuðu furstadæmunum. Um þessar
mundir stendur jafnframt yfir sýn-
ing í Grikklandi úr safneign okkar
er nefnist „Breaking the Veils“ (Í
gegnum blæjuna) og samanstendur
af verkum íslamskra kvenna,“ segir
Khreis.
Sýningin Milli goðsagnar og
veruleika – nútímalist frá araba-
heiminum telur 60 myndverk eftir
46 listamenn. Sýningin skiptist í tvo
hluta sem endurspegla ákveðnar
nálganir í arabískri myndist á því
tímabili sem sýningin spannar, þ.e.
frá 1950 til samtímans. Þannig er
fjallað um úrvinnslu listamanna á
arabísku skrautritunarhefðinni
annars vegar og óhlutbundna mál-
verkið hins vegar. „Skrautrit-
unarhefðin er mjög sterk í arab-
ískri menningu og hefur hún sett
mark sitt á listsköpunina,“ segir
Khreis. „En listamennirnir nálgast
hefðina út frá ólíkum forsendum,
hvort sem það er í trúarlegum skír-
skotunum eða formrænum efnum.
Módernisminn í verkunum í hinum
hluta sýningarinnar tengist vest-
rænum áhrifum, er bárust með
listamönnum er höfðu sótt nám til
Evrópu, Bandaríkjanna eða Rúss-
lands og færðu áhrifin með sér inn í
arabískan listheim. Þessi áhrif
blönduðust auðvitað þeirri hefð
sem var fyrir í menningunni, og
fundu listamenn þar farveg til að
tjá staðbundin hugðarefni í sam-
hengi við hinn vestræna módern-
isma. En óhlutbundin tjáning á sér
líka rótgróna hefð í íslamskri
menningu. Hún tengist skrautrit-
uninni og hinni lífrænu skreytihefð
sem áberandi er í arabískum stíl.“
Khaled segir margvíslega hug-
myndafræðilega tjáningu birtast í
verkunum á sýningunni. „Listin er
mikilvæg pólitísk tjáningarleið fyr-
ir marga unga listamenn í mörgum
arabalöndunum til að gagnrýna
ríkjandi ástand í eigin landi. Verk
Lailu Shawa frá Palestínu er t.d.
sterk tjáning á stöðu kvenna í ísl-
amskri menningu. Um leið er listin
mikilvægt tungumál til þess að
fjalla um hið almenna og alþjóðlega
og auka skilning fólks milli ólíkra
menningarheima,“ segir Khreis að
lokum.
Morgunblaðið/RAX
„Hugmyndin er ekki síður að veita innsýn í menningu og hugmyndaheim
íslamska heimsins í gegnum listræna tjáningu einstaklinga,“ segir dr.
Khaled Khreis, safnstjóri Konunglega fagurlistasafnsins í Jórdaníu, um
sýninguna Milli goðsagnar og veruleika sem stendur yfir í Hafnarhúsinu.
Samtal milli menningarheima
heida@mbl.is
SAMTÖK um leikminjasafn heiðra
minningu Indriða Waage leikstjóra
og leikara, sem hefði orðið 100 ára 1.
desember, með því að opna vefsíðu
um hann og af-
hjúpa veggspjald
í Iðnó í dag kl. 17.
Umsjón með
samantekt um
Indriða og dag-
skránni hefur
Sveinn Einars-
son. Indriði lést
árið 1963.
Indriði Waage
leikari og leik-
stjóri var fæddur
í Reykjavík 1. desember 1902, sonur
Jens B. Waage leikara og leikstjóra
og síðar bankastjóra og konu hans
Eufemiu Waage leikkonu. Afi hans
og nafni var Indriði Einarsson,
frumkvöðull í leikritun og mestur
baráttumaður þess að Íslendingar
eignuðust Þjóðleikhús. Indriði
Waage var því alinn upp í leikhús-
umhverfi og snemma beygðist hugur
hans í þá átt, þó að hann þyrfti sem
flestir aðrir af hans kynslóð að sinna
ýmsum öðrum daglegum störfum
sér til lífsviðurværis. Tvítugur að
aldri þreytir hann frumraun sína á
leiksviði. Um þetta leyti urðu kyn-
slóðaskipti hjá Leikfélagi Reykjavík-
ur, ung kynslóð er að taka við og
Indriði er þar í forystusveit sem leik-
ari og leikstjóri. Hann er fyrstur til
að færa upp leikrit Shakespeares á
Íslandi, fyrir hans tilstilli er Piran-
dello sýndur hér á sama tíma og
hann kemur fram í öðrum löndum og
hann kynnir landsmönnum hug-
myndir um alþýðuleikhús með leik-
gerðum á sögum Jóns Thoroddsens.
Indriði Waage
sem Galdra-Loftur
árið 1933.
Aldarminn-
ing Indriða
Waage