Morgunblaðið - 01.12.2002, Síða 27

Morgunblaðið - 01.12.2002, Síða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 2002 27 Full búð af nýjum gjafavörum Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090 Jól 2002 Öðruvísi aðventukransar Sjón er sögu ríkari Aðventugjöfin okkar til þín 2 fyrir 1 á hið landsfræga jólahlaðborð Naustsins Auðveldar þvaglát 1 tafla á dagEinn , t v e ir o g þ r ír 2 8 5. 0 0 3 Fæst í apótekum Náttúruleg aðferð fyrir karlmenn Listasafn Íslands Leiðsögn um sýninguna Íslensk myndlist 1980– 2000 verður kl. 15–16. Yfirskriftin er Samtal við listaverk og fjalla nokkrir listamenn um verk sín: Anna Líndal, Birgir Andrésson, Ilmur María Stefánsdóttir, Jón Óskar, Ólöf Nordal. Ben-hópurinn stendur fyrir dag- skrá í forsal Borgarleikhússins kl. 16.30. Dagskráin er blanda af orð- um og tónum, m.a. verður litið inn hjá Mozart, Gísla á Uppsölum, Matthíasi Jochumssyni og fleirum. Hópurinn kennir sig við Einar Ben, en þar eru í forsvari þau Guðrún Ásmundsdóttir leikkona og Eyvind- ur Erlendsson, leikstjóri. Auk þeirra koma fram þau Guð- ríður Júlíusdóttir, söngkona, Hauk- ur Guðlaugsson, organisti og Gunn- ar Kvaran, sellóleikari. Bíósalur MÍR, Vatnsstíg 10 Kvik- myndin Síberíuhraðlestin verður sýnd kl. 15. Myndin var gerð í Kaz- akhstan á áttunda áratugnum, leik- stjóri Eldar Urazbajev. Myndin er talsett á ensku. Aðgang- ur er ókeypis. Þá stendur yfir í félagsheimili MÍR sýning listakonunnar Alena Los á grafikmyndum. Sýningin er opin á sunnudögum, mánudögum og þriðjudögum kl. 15-17. Jólaharmonikutónleikar nemenda Almenna músíkskólans verða í Ráð- húsinu kl. 14, en tónleikarnir eru einnig á vegum Harmonik- umiðstöðvarinnar. Harmoniku- tónleikar verða kl. 16 þar sem fram koma þrjár hljómsveitir og Matth- ías Kormáksson leikur. Barna- og unglingakór Hallgríms- kirkju heldur aðventutónleika kl.15 í kirkjunni. Unglingakórinn flytur m.a. Ceremony of Carols eftir Ben- jamin Britten við undirleik Sophie Scoonjans hörpuleikara. Tónleik- arnir eru á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Háteigskirkjukórinn heldur að- ventutónleika í kirkjunni kl. 20. M.a. verður frumflutt hér á landi aðventumótett eftir Josef Rhein- berger og frumflutt Fyrsti söngur Jesaja eftir Jack Noble White. Þá mun nýstofnaður kvennakór flytja lag við undirleik Moniku Abend- roth hörpuleik- ara. Vídalínskirkja Sýningin á verk- um Helga Þorgils Friðjónssonar og Helga Gíslasonar verður opnuð að lokinni messu kl. 11. Sýningin stendur til 6. janúar og verður opin alla daga kl. 10-20. Þá verða aðventutónleikar kirkju- kórsins, ásamt hljóðfæraleikurum kl. 20. Stjórnandi er Jóhann Bald- vinsson organisti. Möguleikhúsið við Hlemm sýnir tvö jólaleikrit fyrir börn: Jólarósir Snuðru og Tuðru kl. 14 og Hvar er Stekkjarstaur? kl. 16. Leikarar eru Ingrid Jónsdóttir og Bjarni Ingv- arsson. Snuðru og Tuðru leika Ingi- björg Stefánsdóttir og Aino Freyja Järvelä. Cafe Prestó, Hlíðarsmára Lína Rut sýnir olíuverk til 18. desember. Smiðjan - Listhús Jólasýning verð- ur opnuð kl. 16. Álafosskvos Opnar vinnustofur verða í gamla Álafossverksmiðju- hverfinu í Mosfellsbæ frá kl. 14-18. Listamenn staðarins verða að störf- um. Ash gallerí, Varmahlíð Hrefna Harðardóttir frá Akureyri sýnir hluta af sýningu sinni Afturhvarf kl.13. Hrefna hefur haldið þrjár einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga. Sýning er opin kl. 11- 18 fram að jólum. Sankti Paulskirkja, Kaupmanna- höfn Smári Vífilsson heldur tón- leika kl. 20. Þetta eru þriðju tón- leikar Smára í Kaupmannahöfn. Hann starfaði tímabundið við óp- eruna í Malmö og Konunglegu óp- eruna í Kaupmannahöfn sl. vetur. Á efnisskránni eru m.a. verk eftir Schubert, Händel, Sigvalda Kalda- lóns og Sigurð Bragason. Undir- leikarar eru Guðný Einarsdóttir og Sigrún Steingrímsdóttir. Kirkjukór Íslenska safnaðarins í Kaupmannahöfn, undir stjórn Dilj- ár Sigursveinsdóttur, tekur þátt í flutningi nokkurra laganna. Í DAG Smári Vífilsson Honk! Ljóti andarunginn Um- ræðukvöld verður í Borgarleikhús- inu kl. 20 um Ljóta andarungann sem verið er að sýna í leikhúsinu um þessar mundir. Fjórir „svanir“ sitja í pallborði og gefa innsýn í þá veröld þar sem undursamlegt er að breytast í svan, og hve fal- legt það er að komast að því að maður skuli búa við fegurð og full- nægju. Svanirnir eru Ásdís Þór- hallsdóttir, leikstjóri, Guðrún Ög- mundsdóttir, alþingiskona, Jón Björnsson, sálfræðingur og Sig- urdór Halldórsson, sjómaður. Að- gangur ókeypis. Listaháskóli Íslands Finna B. Steinsson flytur fyrirlestur kl 12.30 í Laugarnesi og kynnir verk sín frá síðustu 10 árum og hug- myndir að baki þeirra. Finna Birna tók hún m.a. þátt í sýning- unni MHR 30 í Listasafni Reykja- víkur á þessu ári með verkinu „Ég finn það á lyktinni“. Tónlistarskóli Garðabæjar Jóla- tónleikar nemenda hefjast í dag og verða alla vikuna fram til 7. desember. Tónleikar hefjast allir kl. 17.30 en tónleikarnir for- skóladeildar verða á laugardaginn 7. desember kl. 10 og 11. Jóla- tónleikum lýkur síðan föstudaginn 13. desember kl. 20 með söng- tónleikum nemenda Snæbjargar Snæbjarnardóttur. Á MORGUN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.