Morgunblaðið - 01.12.2002, Page 34
SKOÐUN
34 SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐBERGUR Bergsson komst
einhverju sinni svo að orði að það
væri hlutverk vinstri manna að bera
fram hugmyndir en það kæmi svo í
hlut hægri manna að framkvæma
þær.
Þessi orð skjótast upp í hugann
þegar skoðuð er deila sem risin er á
milli Morgunblaðsins og Steingríms
J. Sigfússonar, fomanns Vinstri
grænna, um velferðarsamfélag og
höfundarrétt að því.
Í ritstjórnargreinum Morgun-
blaðsins segir að Alþýðuflokkurinn
hafi haft frumkvæði um að koma á al-
mannatryggingakerfi á Íslandi. En
Sjálfstæðisflokkurinn hafi undir for-
ystu Ólafs Thors tekið þá afstöðu að
taka virkan þátt í uppbyggingu vel-
ferðarkerfisins og kannski tekið að
sér forystuhlutverk í henni. Hinsveg-
ar hafi sósíalistarnir, eða þeir sem
róttækastir töldust á hverjum tíma,
lítið komið þar við sögu, þar eð þeir
voru svo uppteknir af sínum útópísku
draumum um allt annað þjóðfélag.
Steingrímur J. Sigfússon andmælti
þessu með ýmsum ágætum dæmum
af verkum ráðherra Sósíalistaflokks
og Alþýðubandalags, umsvifum liðs-
manna þessara flokka í bæjarstjórn-
um og verklýðshreyfingu og með því
að minna á að hinn hugmyndafræði-
legi grundvöllur að kröfugerð um fé-
lagslegt jafnrétti kemur af vinstri
væng stjórnmálanna.
Íslenskir vinstrimenn
Í þessari höfundaréttardeilu eru
allir sammála um að Alþýðuflokkur-
inn komi fyrstur að velferðardæminu
– og er þó réttmæt kurteisi hjá Stein-
grími að minna á samvinnuhreyfing-
armenn sem á undan fóru. Enda var
Alþýðuflokkurinn fyrsta pólitíska
hreyfingin sem reis af verklýðshreyf-
ingu og sameinaði í fyrstu alls konar
sósíalista, jafnt norðurlandakrata
sem bolsevíka. Að því er varðar þá
sem síðar skipuðu sér til vinstri við
Alþýðuflokkinn, þá er það rétt að
ýmsir þeirra (ekki síst kommúnistar
kreppuáranna og seinna róttækling-
ar af 68-kynslóð) voru svo alteknir af
byltingardraumnum, að þeim fannst
varla taka því að hugsa um barna-
bætur eða verkamannabústaði. En á
hitt er að líta að Sósíalistaflokkurinn
varð öflugri hreyfing en Alþýðuflokk-
urinn einmitt vegna þess að flestum
sósíalistum tókst furðuvel að sameina
útópíska drauma um öðruvísi sam-
félag og hvunndagsraunsæi sem
fékkst af kappi og þolinmæði við hin
praktísku viðfangsefni sem sneru að
kjörum alþýðu hér og nú: barnaheim-
ili, kjör aldraðra, atvinnuleysistrygg-
ingar, almenna menntunarbyltingu
og fleira. Ef sósíalistar hefðu ekki
staðið sig dável í þessum málum
hefðu þeir aldrei orðið sú stærð sem
þeir urðu, þeir hefðu líkst hinum
smáu kommúnistaflokkum Dan-
merkur og Noregs og verið, eins og
þeir, í miklu ríkara mæli verið bundn-
ir áhuga manna á frammistöðu Sov-
étríkjanna eða ótta við þau.
Í leiðurum Morgunblaðsins um
þessi efni segir, að íslenskir sósíal-
istar hafi helst komið að þessum mál-
um sem áhrifamenn í verklýðshreyf-
ingu. Þetta er að því leyti rétt að þar
voru áhrifin augljósust og samfelld-
ust. Verklýðshreyfingin var raun-
verulegt afl og stöðugt að verki, hún
gaf jafnt og þétt færi á að knýja á um
ýmisleg brýn réttindamál í tengslum
við kjarasamninga. Steingrímur Sig-
fússon nefnir ýmisleg dæmi um fram-
lag ráðherra úr liði hinna róttæku til
velferðarkerfis. En stjórnarsetur
voru ekki margar (ekki síst vegna
kalda stríðsins) og á þingi og t.d. í
borgarstjórn Reykjavíkur voru hinir
róttæku í þeirri minnihlutastöðu að
hverri þeirra hugmynd var hafnað
umsvifalaust sem lýðskrumi og yfir-
boði á félagslega sviðinu. En urðu þó
að gagni: Adda Bára Sigfúsdóttir,
sem mjög lengi sat í borgarstjórn fyr-
ir Sósíalistaflokkinn og Alþýðu-
bandalagið, sagði mér frá afar þreyt-
andi reynslu í borgarstjórn: hún og
félagar hennar koma fram með til-
lögur, meirihluti sjálfstæðismanna
hafnar þeim snarlega, en tekur þær
upp síðar í nokkuð breyttri mynd og
gerir að sínum. Þetta er guðbergska
mynstrið sem fyrr var nefnt: hug-
myndirnar koma frá vinstri en það
fer eftir því hvort hægrimenn óttast
um sína stöðu hvort þær verða fram-
kvæmdar eða ekki.
Kröfur tímans
Það er svo rétt hjá Guðbergi og
Morgunblaðinu, að hreyfing eins og
Sjálfstæðisflokkurinn stekkur ekki
upp í velferðarstrætó fyrr en hann er
kominn á nokkra ferð. Sá flokkur var
vissulega tortrygginn í garð fé-
lagshyggju sem var talin skerða frelsi
einstaklinga og taka frá þeim ábyrgð
á sjálfum sér. En það er líka rétt að
Ólafur Thors sá það fyrr en til að
mynda íhaldsforingjar á Norðurlönd-
um, að velferðarkerfið var krafa tím-
ans og að flokkur hans gæti ekki stór
verið áfram ef hann setti sig gegn
þeirri þróun. Gleymum því heldur
ekki að þetta gerðist á stríðsárunum
– og Sjálfstæðisflokkurinn var þá í
samstarfi bæði við sósíalista og Al-
þýðuflokk sem gátu bent á þá póli-
tísku samstöðu sem þá hafði myndast
á Vesturlöndum um að samfélagið
sem tæki við eftir stríð yrði að bjóða
upp á félagslegt öryggi og varnir
gegn skelfingum atvinnuleysis.
M.ö.o. – velferðarkerfið átti að vera
eitt af því sem kæmi í veg fyrir end-
urvakningu fasisma í Evrópu. Auk
þess voru vissulega kristilega þenkj-
andi menn til í hinum stóra borgara-
lega flokki sem fundu tengsl á milli
síns siðaboðskapar og velferðarhug-
myndanna.
En andóf gegn velferð, viðleitni til
að takmarka það kerfi, skera það svo
niður – hún kemur, eins og eðlilegt
er, helst fram í Sjálfstæðisflokknum.
Hún þarf ekki að vera ríkjandi: til
þessa hafa þeir verið raunsæismenn
sem réðu mestu í flokknum og þeir
hætta ekki á að hrista of mikið upp í
því sem er orðinn fastur þáttur í til-
veru manna. En ég man sjálfur svo
langt að þegar almannatrygginga-
kerfi var að fæðast voru ýmisr Sum-
arhúsabjartar Sjálfstæðisflokksins,
kotkarlar jafnt sem smáborgarar,
hundfúlir yfir því að það ætti að pína
þá inn í samtryggingu með allskyns
lýð. Og svo núna – á dögum nývak-
innar markaðshyggju – þá eflist þessi
afstaða aftur og er mest hjá yngri
sjálfstæðismönnum. Þaðan koma
mestu breiðsíðurnar gegn velferðar-
kerfi sem taki frá mönnum persónu-
lega ábyrgð, svipti þá efnahagslegu
frelsi, ali fólk upp í sníkjulífshugsun-
arhætti, og trufli heilög markaðslög-
mál. Eitt dæmi af mörgum: grein eft-
ir pistlahöfund í Morgunblaðinu á
dögunum. Hann vildi leyfa „óheftan
flutning fólks til landsins “ – en fyrst
yrði að skera niður velferðarkerfið.
Því hann vildi „duglegt“ (og undan-
skilið er ódýrt og ekki kröfuhart)
vinnuafl en ekki þá „sem hafa áhuga á
að lifa á kostnað annarra í áhyggju-
leysi velferðarkerfisins“ eins og hann
kemst að orði.
Sagan og framtíðin
Þegar Íslandi sleppir má vitanlega
leita langt aftur í söguna að þeim sem
eigi „höfundarrétt“ að hugsjónum
velferðarríkis og félagshyggju. Það
er sjálfsagt að minna á gyðing-kristi-
lega hefð og minna á það, að fyrir
2000 árum voru bæði gyðingasöfnuð-
ir og síðar kristnir vinsælir meðal
hinna fátæku í Rómarveldi vegna
þess að þar var að finna huggun
þessa heims, vísi að skipulagðri sam-
hjálp og samábyrgð. Kirkjur fóru
með ýmisleg velferðarmál og vissa
samtryggingu öldum saman. Verk-
lýðshreyfing 19. aldar tekur svo
dæmið upp með nýjum hætti: Rétt-
leysi og örbirgð þess fólks sem bar
iðnbyltinguna á herðum sér knúði á
að í orði og á borði væri risið gegn
þeim sósíaldarvinisma sem þá ríkti:
hin geypilegi munur á ríkum og fá-
tækum var réttlættur sem einskonar
náttúrulögmál – þeir sem tapa í lífs-
baráttu allra við alla geta sjálfum sér
um kennt. Brautryðjendur verklýðs-
hreyfingarinnar gerðu gamlar og
nýjar hugmyndir um réttlæti að kröf-
um um mannréttindi, sem ekki væru
lengur háð velvild hinna efnuðu eða
duttlungafullu örlæti við góðgerða-
starfsemi. Síðan koma allskonar hug-
myndastraumar jafnaðarstefnu við
sögu þessara mála, hvort sem kennd-
ar væru við Kautsky eða Bernstein,
Branting eða Gramsci. Og meira að
segja sá skelfilegi sovétkommúnismi
líka. Hann kom tiltölulega snemma
upp vissu velferðarkerfi, sem var
hvergi nærri eins glæsilegt og opin-
berar tölur og pólitískar hátíðaræður
lýstu, en var engu að síður til staðar.
Þar var ögrun sem einnig andstæð-
ingar lenínisma tóku mark á: ekki
mátti það sannast að þeir hundheiðu
og ólýðræðislegu Rússar hefðu eitt-
hvað það í velferðarmálum sem vest-
ræn þjóðfélög hefðu ekki. Þessi ögr-
un auðveldaði umbótasinnuðum
jafnaðarmönnum að koma hugmynd-
um sinum í framkvæmd og gera þær
að sjálfsögðum greinum í óskrifuðum
sáttmála um sambýli manna.
Hér er margt að rifja upp og
reyndar nauðsynlegt, ekki síst á okk-
ar dögum þegar margt í velferðar-
kerfi er orðið svo sjálfsagt að mörgu
ungu fólki finnst það ekki skipta máli,
enda veit það ekki af eigin raun hvað
til þurfti til að knýja ýmisleg mann-
réttindi fram og hvers er í misst þeg-
ar velferðarkerfi er skorið niður.
Gleymi menn því ekki heldur, að hvað
sem um galla velferðarkerfisins má
segja, þá er það eina vörnin sem kost-
ur er á nú gegn herfilegustu afleið-
ingum þeirrar markaðsvæðingar
allra hluta, sem hefur svo mjög aukið
mun á forríkum og fátækum bæði í
vanþróuðum löndum og okkar heims-
hluta. Sú þróun hlýtur að skerpa á
næstunni átök milli hreintrúarmark-
aðssinna, sem helst vilja afnema alla
pólitík sem skiptir sér af lífskjara-
mun þegnanna og þá sem vita að
breikkandi djúp milli forríkra og
þeirra sem standa höllum fæti gerir
illa líft í samfélagi. Og þau átök verða
ekki leyst innan eins flokks, hve stór
sem hann er – því það er vissulega
rangt sem stundum hefur verið hald-
ið fram í Morgunblaðinu að Sjálf-
stæðisflokkurinn sé „eðlilegur vett-
vangur málamiðlana í þjóðfélaginu“.
HVER Á HÖFUNDARRÉTT AÐ
VELFERÐARÞJÓÐFÉLAGI?
Eftir Árna
Bergmann
„Þegar Ís-
landi sleppir
má vitan-
lega leita
langt aftur í
söguna að þeim sem
eigi „höfundarrétt“ að
hugsjónum velferðar-
ríkis og félagshyggju.“
Höfundur er rithöfundur.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Skógarás - Rvík - einbýli
Nýkomið stórglæsilegt tvílyft einbýli með
innbyggðum bílskúr, samtals 240 fm. Sér-
smíðaðar innréttingar, parket, náttúru-
steinn á gólfum, 100 fm verönd með
nuddpotti. Arkitektateikningar, frábær
staðsetning og útsýni. Eign í sérflokki.
Áhv. hagstæð lán. Verð 39 millj. 9456
Laufrimi - Rvík - raðhús
Nýkomið í einkas. sérl. fallegt, einlyft
endaraðh. m. innb. bílskúr, samtals ca
140 fm. Vandaðar innréttingar. Suður-
garður. Góð staðs. í enda botnlanga.
Áhv. húsbr. Verð 19,5 millj. 83230
Berjarimi - Rvík - m. bílskýli
Nýkomið í einkasölu sérlega falleg 85 fm
endaíbúð á neðri hæð í góðu fjölbýli. Frá-
bær staðsetning á barnvænum stað, allt
sér, stæði í góðu bílskýli fylgir íbúðinni.
Áhv. húsbréf. Verð 12,9 millj. 94480
Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala
Ef þú vilt búa og starfa í miðbænum þá höfum
við glæsilega íbúð á besta stað, þá máttu ekki
missa af þessari.
Íbúðin er með sérinngangi, 2 til 3 herbergi,
stofa, baðh. m. sturtu, eldhús, þvottaaðstaða
innan íbúðar. Íbúðin er nýlega endurgerð og
með nýrri eldhúsinnréttingu.
Það er ekki amalegt að geta flutt inn fyrir jólin
og upplifa aðventustemmninguna beint í æð á
rómantískum stað í miðbænum. Verð 12,4 millj.
Valdimar, sölumaður Bakka, býður þig velkomin/n í dag milli kl. 16 og 18
Fasteignasalan Bakki, s. 533 4004, Skeifunni 4, Reykjavík
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 16-18
101 Reykjavík - Ingólfsstræti 8
Árni Valdimarsson
lögg. fast.sali.
Opið hús í dag
á milli kl. 14 og 16
Um er að ræða falleg 74,6 fm
íbúð á efstu hæð (3.) í þesu góða
húsi, parket og flísar á gólfum
fallegar innréttingar.
Ingi og Soffía munu taka vel á
móti ykkurútsýni spillir ekki.
Verð 11,3 áhv. 4,1 í byggsj og
húsbr.
VESTURGATA 69
Skúlagata 17
Sími 595 9000
Fax 595 9001
holl@holl.is - www.holl.is
www.avon.is
Snyrtivöruverslun
opin allan sólarhringinn
Góðir skór
Skóbúðin
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300
Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15.