Morgunblaðið - 01.12.2002, Page 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 2002 43
Aldrei þinni útför lýkur,
þó engin klukka hringi
lengur.
Blærinn sem um brjóstið
strýkur,
á brott með hjartað aldrei gengur.
ELLEN ÞÓRA SNÆ-
BJÖRNSDÓTTIR
✝ Ellen Þóra Snæ-björnsdóttir
fæddist í Reykjavík
6. maí 1935. Hún lést
á líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 23.
maí síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Hallgríms-
kirkju 6. júní.
Þinni útför aldrei lýkur,
þótt enginn sjái föllnu
tárin.
Dauði þinn er dropum
ríkur,
og drjúpa þeir í grafar
sárin.
Aldrei þinni útför lýkur,
sem áfram haldi sorg að
moka.
Af leiði þínu laufið fýkur,
en lengi mun þar hjartað
doka.
Ingimar Erlendur
og Margrét
Blöndal.
✝ Þuríður (Dúa)Elíasdóttir
Mountain var fædd á
Fossi í Mýrdal 5.
mars 1919. Hún lést í
Edinborg í Skotlandi
20. nóvember síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Sigríður Vigfúsdótt-
ir, f. 1893, d. 1972, og
Elías Einarsson, f.
1893, d. 1922. Bræð-
ur Dúu eru Ragnar f.
1917, og Einar, f.
1921. Elías faðir
þeirra dó þegar Dúa
var þriggja ára og leystist þá
heimilið upp og syskinahópurinn
tvístraðist. Dúa fluttist með ömmu
sinni og afa til Vestmannaeyja og
ólst þar upp. Hún fluttist 14 ára til
Reykjavíkur, bjó hjá föðursystur
sinni Höllu Einarsdóttur og Þor-
leifi manni hennar þar til hún flyt-
ur til útlanda. Hún gekk í Versl-
unarskólann og lauk þaðan námi.
Vann nokkur ár í
Laugavegsapóteki.
Á stríðsárunum
gekk Dúa í hjóna-
band með Raymond
Mountain, f. 1915.
Hann er látinn. Ray-
mond var yfirforingi
í breska hernum og
lögfræðingur að
mennt. Hún fluttist
til Englands 1944.
Börn þeirra Ray-
monds urðu fjögur:
Robert, f. 18. apríl
1944, Þorey Erla, f.
5. feb. 1946, Linda
Alison, f. 25. ágúst 1950, d. 1998,
og Karen, f. 3. júní 1959. Eftir að
börnin voru uppkomin vann hún í
verslun í London í nokkur ár. Dúa
og Ray slitu samvistum og fluttist
hún þá til Edinborgar í Skotlandi
árið 1984, þar sem dætur hennar
búa.
Útför Þuríðar fór fram í Edin-
borg 26. nóvember.
Okkur langar að minnast vinkonu
okkar Dúu Montain með þakklæti
og virðingu. Oft er gildi hins lifaða
lífs hugleitt, þegar aflvakinn sem
knúði huga og hönd er hættur að
starfa. Því vekja hugleiðingar okk-
ar nú við lát hennar margar minn-
ingar enda spannar vinátta okkar
og fjölskyldu hennar áratugi. Við
kynntumst Dúu fyrst árið 1953.
Hún bjó þá í Bromley í Kent ásamt
eiginmanni sínum Ray og börnun-
um sem voru þá þrjú. Robert, Þor-
ey og Linda.
Við vorum nýútskrifaðir hjúkrun-
arfræðingar og fórum til Englands
til náms og starfa. Byrjuðum að
vinna á Bromley Hospital sem er
sunnan við London. Það varð okkur
til mikillar gæfu að kynnast fljót-
lega Dúu og fjölskyldu hennar. Þau
reyndust okkur afar vel. Dúa
kynnti okkur fyrir íslenskum kon-
um, sem bjuggu í London og ná-
grenni. Þau hjónin voru óþreytandi
að upplýsa okkur og benda á marga
merka staði. Ógleymanleg er ferð
með þeim um Kent vorið 5́4. Kent
er kallaður aldingarður Englands
vegna mikillar ávaxtaræktar og
blómaskrúðs. Eins eru minnisstæð-
ar fallegu rósirnar í garðinum
þeirra í Bromley.
Dúa var falleg kona og þau hjón-
in voru glæsilegt par. Hún var góð
kona, vel að sér og skemmtileg.
Heimilisbragurinn er okkur minn-
isstæður. Dúu tókst á einstakan
hátt að blanda saman íslenskum og
enskum siðum. Börnin voru frjáls-
leg, en kurteis og háttvís. Aldrei
heyrðum við Dúu hækka róminn við
þau. Samskiptin gengu eitthvað svo
ljúflega og átakalaust fyrir sig.
Seinna eignuðust Dúa og Ray
fjórða barnið, Karen.
Við fluttumst eftir árið í Bromley
til Edinborgar og unnum þar annað
ár, en fórum í fríum til Bromley og
bjuggum þá hjá Dúu og Ray.
Þau áttu miklu barnaláni að
fagna og eru þau öll vel gerð og
menntað fólk.
Fyrir fjórum árum varð hún fyrir
þungu áfalli, þá dó dóttursonur
hennar af slysförum og Linda dótt-
ir hennar dó þremur vikum seinna,
úr illkynja sjúkdómi. Dúa var
óvenju sterk kona. Börn hennar og
tengdabörn voru henni mikill styrk-
ur og stóðu þau öll þétt saman í
þessari miklu raun og einnig í hinu
daglega lífi. Studdu þau hana með
ráðum og dáð, til hinstu stundar.
Dúa var stolt af þeim og þeirra fjöl-
skyldum. Barnabörnin voru henni
mikill gleðigjafi og talaði hún oft
um þau.
Hún var mikill Íslendingur alla
tíð en það heyrðist aldrei á mæli
hennar, að hún hefði búið mikinn
hluta ævi sinnar í útlöndum. Hún
og börnin heimsóttu oft Ísland og
styrktu vináttuböndin við ættingja
og vini.
Að endingu þökkum við Dúu fyrir
alla vináttuna og tryggðina sem
hún sýndi okkur og biðjum guð að
blessa börn hennar, tengdabörn og
afkomendur alla.
Sigurlín Gunnarsdóttir,
Þorgerður Brynjólfsdóttir.
ÞURÍÐUR (DÚA)
ELÍASDÓTTIR
MOUNTAIN
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284
frá kr. 29.000
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
útfararstjóri
Önnumst allt er lýtur að útför.
Hvítar kistur - furukistur
- eikarkistur.
Áratuga reynsla.
Símar 567 9110 & 893 8638
utfarir.is
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför föður míns, tengda-
föður, afa og langafa,
KÁRA S. JOHANSEN
fyrrverandi deildarstjóra í KEA.
Sérstakar þakkir færum við félögum í "Gamla
Geysi "fyrir góðan söng og tryggð þeirra og
ánægjustundir er þið veittuð honum, svo og
starfsfólki á Dvalarheimilinu Hlíð fyrir frábæra umönnun.
Gunnar Kárason, Svana Þorgeirsdóttir,
Gréta Aðalsteinsdóttir,
Kári Árnason Johansen,
Herborg Árnadóttir Johansen, Örn Marinó Arnarson
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
SIGRÍÐUR GYÐA SIGURÐARDÓTTIR
myndlistarkona,
Miðbraut 29,
Seltjarnarnesi,
andaðist á Landspítala við Hringbraut að kvöldi
föstudagsins 29. nóvember.
Sigurgeir Sigurðsson,
Margrét Sigurgeirsdóttir, Héðinn Valdimarsson,
Sigurður Ingi Sigurgeirsson, Lóa S. Hjaltested,
Þór Sigurgeirsson, María Björk Óskarsdóttir
og barnabörn
Elsku afi, nú er
komið að kveðjustund.
Á tímamótum sem
þessum leitar hugurinn til þeirra
stunda sem við áttum saman. Rifj-
ast þá upp ferðirnar okkar til Nor-
egs þegar við fórum öll fjölskyldan
að heimsækja Helgu frænku og fjöl-
skyldu þar sem við áttum frábærar
stundir saman. Eins er mér ofar-
lega í huga fallega brosið þitt sem
ég og Viktor fengum alltaf þegar við
komum í heimsókn til þín. Það var
líka svo gaman að sjá hversu
ánægður þú varðst þegar ég kom til
þín í sumar og tikynnti þér að þú
værir að verða langafi. Þú varðst
strax svo áhugasamur um þennan
litla einstakling sem væntanlegur er
í heiminn. Eitt skiptið þegar ég kom
þá spurðir þú hvort þú mættir finna
litla krílið sparka, þú settist við hlið-
ina á mér í sófanum og lagðir hönd-
ina á litlu kúluna og fannst litla
langafabarnið þitt sparka á fullu, og
við ljómuðum bæði af gleði yfir
þessu nýja lífi. Fyrir rúmum tveim-
ur vikum sat ég svo á rúmstokknum
hjá þér og þú sagðir að þín heitasta
ósk þessa stundina væri að lifa fram
yfir áramót svo þú gætir séð barnið,
og vorum við þá svo ákveðin í að
ÁRNI
GUÐJÓNSSON
✝ Árni Guðjónsson,trésmíðameistari
frá Oddsstöðum í
Vestmannaeyjum,
fæddist 12. mars
1923. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
16. nóvember síðast-
liðinn og var útför
hans gerð frá Dóm-
kirkjunni 25. nóvem-
ber.
láta það takast. Á viss-
an hátt tókst það því
fyrir tveimur vikum
komum við með sónar-
myndir af litla krílinu
okkar og sýndum þér.
Það var gaman að sjá
spennuna og eftir-
væntinguna hjá þér
þegar þú rýndir í
myndirnar og sást litlu
puttana, nefið og lapp-
irnar.
Því miður verður
þetta það eina sem þú
færð að sjá af krílinu í
þessu lífi, en við erum
viss um að þú fylgist með okkur og
litla krílinu þegar það kemur í heim-
inn.
Mikið eigum við eftir að sakna
þess að fara með þér á hin árlegu
spilakvöld með stórfjölskyldunni
eða að eiga rólega stund með þér á
Sólvallagötunni. Eins hefði verið
gaman að taka rúnt í Skagafjörðinn
eins og við töluðum svo oft um. Því
miður varst þú orðinn of veikur til
að treysta þér í slíkt ferðalag síð-
asta sumar. Það kom okkur dálítið á
óvart að þú skyldir ekki treysta þér,
vegna þess að þú barst þig alltaf svo
vel og kvartaðir aldrei nokkurn tím-
ann þrátt fyrir allt.
Elsku afi, nú ert þú lagður af stað
í þitt hinsta ferðalag og líður von-
andi vel. Við munum aldrei gleyma
þér og þeim minningum sem við eig-
um um þig. Góða ferð.
Þín
Ingibjörg og Viktor Elvar.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að
fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími)
fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær
berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn ein-
stakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar).