Morgunblaðið - 01.12.2002, Side 64

Morgunblaðið - 01.12.2002, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Fyrsta heimilið Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga RJÚPNASKYTTUR á Norðaustur- landi hafa ákveðið að heita á hjúkr- unar- og dvalarheimilið Naust á Þórshöfn og láta tíunda hvern fugl sem þeir fella renna til heimilisins, í þeirri von að veiðin fari að glæðast. Frá þessu er greint á vefnum local.is og vitnað þar til dreifibréfs Þórshafn- arhrepps. „Þetta er fallega gert af drengj- unum,“ sagði Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands, við Morgunblaðið um áheit norðan- manna. Hann sagðist ekki hafa heyrt dæmi af svona áheitum skotveiði- manna áður, en hafði fullan skilning á því að ákveðin örvænting hefði gripið um sig meðal sumra þeirra. Rjúpnaveiðin hefði verið dræm til þessa sökum hlýinda, svo mikilla að elstu menn myndu vart annað eins. „Tíðin er því mjög góð fyrir rjúp- una en að sama skapi erfið fyrir veiðimenn. Ég hugsa að tómstunda- veiðimenn séu búnir að fá skammt- inn fyrir sig og sína en þeir sem ör- vænta eru hinar svonefndu magn- skyttur eða atvinnuveiðimenn sem ætluðu sér að græða drjúgan pening og hafa verið að bjóða rjúpuna á tvö þúsund kall stykkið.“ Rjúpnaskytt- ur heita á hjúkrunar- heimili SUMIR voru á leiðinni í samkvæmi, aðrir á leiðinni heim eftir vinnu eða voru að skjótast eftir hamborg- ara þegar lögreglan í Reykjavík stöðvaði þá á Gull- inbrú á föstudagskvöld. Ekki var annað að sjá en ökumenn væru ánægðir með aðgerðir lögreglu þó að hún tefði þá um nokkrar mínútur. Frá klukkan 23.30 til 1.30 aðfaranótt laugardags voru um 700 ökumenn stöðvaðir. Áfengi mældist í blóði tveggja, þrír voru án ökuréttinda og nokkrir tugir höfðu gleymt ökuskírteinunum. Í gegnum tíð- ina hefur ölvunarakstur verið algengastur í desem- ber. Mikið framboð er af hvers kyns samkvæmum og skemmtunum og virðist sem margir freistist til að aka heim eftir að hafa drukkið áfengi. Slíkt er að sjálf- sögðu bannað auk þess sem það er stórvarasamt. Von er á að lögregla setji upp vegatálma víðsvegar í borg- inni á næstu vikum til að kanna ástand ökumanna. Fylgjast vel með jóla- umferðinni Það komst enginn framhjá vegartálma lögreglunnar í Reykjavík á föstudagskvöld. Ökumenn tóku lögregl- unni vel og almenn ánægja var með aðgerðir hennar gegn ölvunarakstri. Hér reyndist allt vera í lagi. Morgunblaðið/Júlíus  Lögreglan eykur/4 MÖGULEIKAR fólks sem útskrif- ast úr starfsmenntaskólum landsins til atvinnu eru góðir í flestum grein- um og afkoma þess síst lakari en annarra í þjóðfélaginu. Þrátt fyrir þetta hefur sveinsprófum fækkað um 14% frá því um fyrri hluta tíunda áratugarins. Þetta veldur forsvars- mönnum iðnfyrirtækja áhyggjum. Magnús Þór Ásmundsson fram- kvæmdastjóri framleiðsluferils Mar- els segir að ef fram heldur sem horf- ir sé ljóst að verkefni muni tapast til útlanda með þeim verðmætum sem annars hefðu skapast hérna heima. „Við hjá Marel gerum ráð fyrir 10– 15% vexti á komandi árum. Er erfitt að sjá hvernig það fer saman við þá öfugu fylgni sem virðist vera við ný- liðun í röðum iðnlærðra, þá ekki síst í málmiðnaði.“ Hann segir að ef þensla sé á vinnumarkaði skapist erfitt ástand og eftirspurn eftir hæfu starfsfólki verði meiri en framboðið. „Hægt er að flytja inn erlent vinnu- afl eins og gert hefur verið undanfar- in misseri í ýmsum iðngreinum. Slíkt felur í sér tímabundna lausn og skapar ekki metnað eða hefð í ís- lenskum iðnaði.“ Svipaðar skoðanir er að finna hjá Ingólfi Sverrissyni hjá Samtökum iðnaðarins sem segir að útflutningur á hug- og verkviti verði ekki nema að verkmenntaskólunum sé gert kleift að sinna hlutverki sínu og viðhorf til verkmenntunar breytist hér á landi. Nýliðun iðnlærðra lítil  Verknám/B1 KONAN, sem ók bifreið sem lenti út í Hólmsá á Suðurlandsvegi á föstu- dag, hefur verið flutt á Landspítal- ann við Hringbraut þar sem hún fær viðeigandi meðferð en henni er hald- ið sofandi í öndunarvél. Þriggja ára dóttir hennar sem var undir eftirliti á gjörgæsludeild er á góðum bata- vegi. Vegfarendur á Suðurlandsvegi sýndu mikið snarræði og unnu þrek- virki þegar þeir skáru á öryggisbelti og björguðu fjölskyldunni út úr bif- reiðinni. Fyrst náðu þeir börnunum þremur út og í þann mund sem þeim hafði tekist að losa konuna úr bílnum komu tveir óeinkennisklæddir lög- reglumenn úr fíkniefnadeild lögregl- unnar í Reykjavík á vettvang og gátu veitt aðstoð. Rannsókn heldur áfram Að sögn Karls Steinars Valssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns hélt vett- vangsrannsókn slysarannsóknar- deildar lögreglu áfram í gær. Í apríl 2000 varð alvarlegt slys þegar bifreið valt yfir vegriðið og lenti á hvolfi ofan í Hólmsá. Meira var þá í ánni og fór bíllinn næstum á kaf. Kona á þrítugsaldri var allt að hálftíma í bifreiðinni áður en tókst að bjarga henni á þurrt. Jónas Snæbjörnsson, umdæmis- stjóri Vegagerðarinnar á Reykja- nesi, segir að vegagerðarmenn muni strax eftir helgi kanna aðstæður og leggja mat á hvort ástæður séu til úrbóta við brúna. Að hans sögn eru aðeins um þrjú ár síðan vegrið og brúarhandrið var sett þarna upp. Enn í önd- unarvél eftir slys við Hólmsá Vegagerðin mun kanna hvort ástæður séu til úrbóta við ána FUNDNAR eru minjar sem taldar eru vera frá landnámsöld, skammt frá Kirkjuvogskirkju í Höfnum, að öllum líkindum skáli og útihús. For- stöðumaður Byggðasafns Reykja- nesbæjar telur ekki fráleitt að fundinn sé bústaður Herjólfs Bárð- arsonar. Bjarni F. Einarsson fornleifa- fræðingur stjórnar skráningu forn- minja í Reykjanesbæ. Þegar farið var að skoða loftmyndir af Höfnum taldi hann sig strax sjá móta fyrir landnámsskála. Í fyrradag var grafin hola ofan í miðjan skálann og þar fengust vísbendingar um að kenning Bjarna væri rétt þótt frek- ari rannsóknir eigi eftir að fara fram. Komið var niður á heillegt gólf frá landnámsöld og hleðslu sem talið er að geti verið úr lang- eldinum. Þarna fannst brot úr brýni og af járnhring, viðarkol og soð- steinar. Bjarni telur allar líkur á að þarna hafi verið skáli og útihús á land- námsöld. Hann sér móta fyrir 5 öðr- um tóttum á svæðinu og garði. Fyrsti Vogsbærinn? Jón Borgarsson, sem lengi hefur búið skammt frá þessum stað, sagði að nú áttuðu menn sig á því hvað þeir hefðu verið vitlausir að vera ekki búnir að sjá þetta út fyrir löngu. Allt Reykjanesið tilheyrir land- námi Ingólfs Arnarsonar. Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðumaður Byggðasafns Reykjanesbæjar, rifj- ar það upp að Ingólfur hafi gefið vini sínum og fóstbróður, Herjólfi Bárðarsyni, landið milli Vogs og Reykjaness. Hann hafi búið í Vogi sem menn hafi til þessa helst talið að væri gamli Kirkjuvogur, sem er norðan Ósabotna. Fornleifafund- urinn geti bent til þess að Herjólfur hafi byggt bæ sinn þar sem nú eru Hafnir en hann verið fluttur yfir Ósbotna 100 árum síðar. Fyrir liggi að bærinn hafi á 16. öld verið flutt- ur til baka en Kirkjuvogsbærinn stóð eftir það skammt frá kirkjunni og þá um leið gömlu tóttunum. Sigrún Ásta segir að þetta sé mikilvægur fornleifafundur. Mik- ilvægt sé að hefja viðamikla rann- sókn á staðnum og víðar því Reykjanesið hafi lítið verið rann- sakað. Tóttirnar eru inni í miðju byggðahverfinu í Höfnum og þær gætu nýst við uppbyggingu menn- ingartengdrar ferðaþjónustu. Skáli og útihús frá landnámsöld fundin í Kirkjuvogi í Höfnum Hugsanlegt að þar sé bær Herjólfs Bárðarsonar fóstbróður Ingólfs Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Bjarni F. Einarsson með stein sem talinn er vera úr langeldi skálans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.