Morgunblaðið - 04.12.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
afsláttur af allri innimálningu
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
19
59
3
1
2/
20
02
Jól í öllum
litum20-40%
Jotaproff 10 ltr
Aðeins
3.990 kr.
Nú fer málningar-
dögum að ljúka
Málningarrúlla+bakki
Verð áður: 1.360 kr.
Nú 780 kr.
Vonandi njóta farþegar þessarar óvissuferðar undir öruggri leiðsögn og fararstjórn
varnarmálaráðherra landsins hr. Halldórs Ásgrímssonar.
Menntasmiðja KHÍ fær nýtt húsnæði
Forsenda fyrir
bættri kennslu
Nýbygging Kenn-araháskóla Ís-lands verður tekin
formlega í notkun nk.
föstudag, en Menntasmiðja
skólans verður með alla
sína starfsemi þar.
Menntasmiðja Kennarahá-
skólans er fjölþætt og
margslungið setur, en
Kristín Indriðadóttir er
framkvæmdastjóri
Menntasmiðju KHÍ og
svaraði hún nokkrum
spurningum Morgunblaðs-
ins er eftir því var leitað.
– Hvað er Mennta-
smiðja?
„Árið 2000 voru innan
Kennaraháskólans fjórar
misstórar þjónustudeildir
sem heyrðu beint undir
rektorsembættið. Nýsam-
einað bókasafn fjögurra skóla,
Fósturskólans, Íþróttakennara-
skólans, Þroskaþjálfaskólans og
KHÍ, var langstærst en auk þess
voru þar gagnasmiðja, kennslu-
miðstöð og tölvukerfisþjónusta.
Ólafur Proppé rektor vildi sam-
hæfa þjónustu allra þessara ein-
inga og sameinaði þær þrjár fyrst
nefndu formlega 1. mars árið 2000
með því að setja þeim sameigin-
legan framkvæmdastjóra. Hin
nýja skipulagsheild fékk heitið
Menntasmiðja Kennaraháskóla
Íslands. Síðastliðið sumar voru svo
bæði kerfisþjónusta og vefstjórn
færðar inn í Menntasmiðjuna.“
– Hvað mun fara fram innan
veggja Menntasmiðjunnar?
„Menntasmiðjan veitir stúdent-
um og starfsfólki skólans sér-
hæfða þjónustu vegna náms,
kennslu og rannsókna en veitir
einnig ýmsa þjónustu út fyrir skól-
ann og á samstarf við aðrar stofn-
anir. Núna fer starfsemin fram í
tveimur deildum, safni með rúm-
lega 85.000 gögnum í Stakkahlíð
og íþróttafræðasetri KHÍ á Laug-
arvatni og smiðju til gagnagerðar
sem einnig hefur umsjón með öll-
um tölvurekstri skólans. Safnið er
sérfræðisafn á sviði uppeldis,
kennslu, umönnunar og þjálfunar
en einnig kennslugagnasafn þar
sem veitt er ráðgjöf um kennslu-
gögn og kennsluaðferðir. Öll gögn
bókasafnsins eru skráð í bóka-
safnskerfið Gegni sem er á Net-
inu, þar er veittur aðgangur að
rafrænum gagnasöfnum og tíma-
ritum og aðstoð og leiðbeiningar
við upplýsingaleit. Smiðjan er eins
konar verkstæði þar sem nemend-
ur og kennarar skólans geta feng-
ið kennslufræðilega leiðsögn og
aðstoð við notkun almenns hug-
búnaðar og fjarkennslubúnaðar og
við hljóð- og myndvinnslu. Auk
þess sér smiðjan um öll innkaup
og lán á tækjum, hefur umsjón
með tæknibúnaði, rekur tölvunet-
ið og setur upp allan tölvubúnað
skólans. Þar er einnig séð um vef
skólans og unnin ýmis sérverkefni
á sviði upplýsinga- og samskipta-
tækni.“
– Hve stórt húsnæði er nú verið
að taka í notkun?
„Alls er nýja húsið
3.600 fermetrar á
þremur hæðum og þar
af hefur Menntasmiðj-
an 1.450 fermetra. Hús-
næði hennar hefur meira en tvö-
faldast og vinnuaðstaða stúdenta
verður öll önnur en áður. Þar geta
bæði einstaklingar og hópar fund-
ið sér samastað hvort sem þeir
vilja vera í hringiðunni miðri eða
meira afsíðis.“
– Hversu mikilvægt er þetta
rými fyrir starfsemi KHÍ?
„Það er í raun forsenda þess að
hægt sé að kenna öllum þeim
fjölda stúdenta sem nú stunda
nám í KHÍ. Þar eru í fyrsta sinn
vel búnir fyrirlestrasalir sem taka
70, 200 og 300 manns í sæti og sér-
búnar kennslustofur til upptöku
og fjarkennslu. Það er mikill kost-
ur að hafa Menntasmiðju á sömu
slóðum því hún hefur umsjón með
öllum tæknibúnaði og á auk þess
að vera upplýsinga- og athafna-
miðja byggingarinnar. Allir há-
skólar eru farnir að leggja miklu
meiri rækt við að skapa gott náms-
umhverfi fyrir stúdenta, starfs-
menn sína og alla sem nýta sér sí-
menntunartilboð þeirra. Við KHÍ
starfa nú um 170 starfsmenn og í
grunn- og framhaldsdeild skólans
eru meira en 200 nemendur. Rúm-
lega helmingur þeirra stundar
fjarnám og þarf mikla þjónustu
sem nú er hægt að sinna betur en
áður vegna aukins tæknibúnaðar
og betri starfsskilyrða. Stúdentar
í staðnámi fá fjölbreytta aðstöðu
bæði til upplýsingaöflunar og
framsetningar og miðlunar á eigin
efni. Þeir geta unnið í byggingunni
til klukkan 11 á kvöldin og m.a.
komist í tölvustofur og lestrarsal
sem er aðskilinn frá bókasafninu.“
– Í hverju er starf fram-
kvæmdastjóra Menntasmiðju
fólgið?
„Hann á að móta stefnu
Menntasmiðjunnar í
samráði við rektor og
háskólaráð, fylgja eftir
framkvæmdum, meta
árangur og stuðla að
umbótum og þróun á
starfseminni.“
– Hvenær verður húsið form-
lega tekið í notkun?
„Það verður hátíðleg athöfn
föstudaginn 6. desember þegar
menntamálaráðherra opnar bóka-
safnið á nýjum stað. Laugardag-
inn 7. desember verður húsið til
sýnis almenningi frá klukkan 13 til
16. Gengið er inn um norðurinn-
gang frá Háteigsvegi.“
Kristín Indriðadóttir
Kristín Indriðadóttir er fram-
kvæmdastjóri Menntasmiðju
Kennaraháskóla Íslands. Hún er
fædd á Blönduósi 14. nóvember
1947. Lauk BA-prófi í íslensku
og bókasafnsfræði frá Háskóla
Íslands 1973 og framhaldsnámi í
bókasafns- og upplýsingafræði
frá University College í London
1977. Er nú að ljúka þriggja
anna rekstrar- og viðskiptanámi
við Endurmenntun Háskóla Ís-
lands. Yfirbókavörður bókasafns
KHÍ 1972–2000, tók þá við fram-
kvæmdastjórn Menntasmiðj-
unnar. Eiginmaður Kristínar er
Bjarni Ólafsson íslenskufræð-
ingur og framhaldsskólakennari.
Samtals eiga þau sex börn og
fimm barnabörn.
Rúmur helm-
ingur stundar
fjarnám