Morgunblaðið - 04.12.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.12.2002, Blaðsíða 10
SIV Friðleifsdóttir umhverfis- ráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi til laga sem mið- ast að því að taka upp tímabund- ið bann við sölu á rjúpum og rjúpnaafurðum. „Óheimilt er að flytja út, bjóða til sölu eða selja rjúpur og rjúpnaafurðir,“ segir í fyrstu grein frumvarpsins. Lagt er til að bannið hefjist 15. októ- ber 2003 og falli úr gildi 15. októ- ber 2008. Það nær þó ekki til inn- fluttra rjúpna og rjúpnaafurða. Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að notkun vélsleða og fjórhjóla við veiðar verði óheimil. Í máli ráðherra kom m.a. fram að frumvarpið væri lagt fram í kjölfar nýlegrar skýrslu Nátt- úrufræðistofnunar Íslands um ástand rjúpnastofnsins. „Að mati stofnunarinnar hefur rjúpum fækkað verulega á liðnum ára- tugum, stofnsveiflur eru að slétt- ast út og rjúpnastofninn virðist vera í sögulegu lágmarki,“ segir í athugasemdum með frumvarp- inu. Lagði stofnunin því annars vegar til að sala á rjúpum á al- mennum markaði yrði bönnuð og hins vegar að veiðitími rjúpu yrði styttur. „Samkvæmt veiðiskýrslum veiða um 10% veiðimanna um helming allra veiddra rjúpna. Bann við sölu á rjúpu myndi draga úr þessum veiðum sem stundaðar eru í atvinnuskyni og þar með úr heildarfjölda veiddra rjúpna,“ segir ennfremur í at- hugasemdum frumvarpsins. Í umræðum um frumvarpið á Alþingi í gær tóku flestir þing- menn undir efni þess. Sala á rjúpum verði bönnuð FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞINGFUNDUR hefst kl. 13.30 í dag. Að loknum atkvæða- greiðslum verða eftirfarandi mál á dagskrá: 1. Endurreisn Þingvalla- urriðans. 2. Endurskoðun viðskipta- banns á Írak. 3. Hjúkrunardeild fyrir aldraða í Árborg. 4. Öldrunarstofnanir. 5. Eyrnasuð. 6. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. 7. Krabbameinssjúkdómar í meltingarvegi. 8. Safn- og tengivegir. 9. Hækkun póstburðargjalda. 10. Umferðaröryggi á Gemlufallsheiði. 11. Samkeppnisstaða háskóla. 12. Hvalveiðar. 13. Réttarstaða bifreiðastjóra sem aka eftir vegöxlum. 14. Ættleiðingar. 15. Úrskurðarnefnd skipu- lags- og byggingarmála. 16. Ummæli um evrópskan vinnumarkað. 17. Rafmagnseftirlit. HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra ítrekaði í utandagskrár- umræðu á Alþingi í gær að það hefði aldrei komið til tals að setja íslenskar farþegaflugvélar í hættu kæmi til aðgerða á vegum Atlants- hafsbandalagsins (NATO). Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, var málshefjandi utan dagskrár, en hann gerði m.a. að umtalsefni skuldbindingu Íslands um að verja allt að 300 milljónum kr. til þess að leigja flugvélar und- ir herflutninga á vegum NATO kæmi til aðgerða á vegum banda- lagsins. Halldór Ásgrímsson sagði m.a. um það mál: „Ég hef skuldbundið okkur til þess að útvega flugvélar fyrir okkar 300 milljónir kr. En það er að sjálfsögðu undir flug- félögum komið, þegar þar að kem- ur, hvort þau séu tilbúin að taka þessi verkefni að sér. Þetta eru þó væntanlega verkefni sem öll flug- félög í heiminum myndu taka að sér. Það hlýtur því að vera okkar hlutverk að reyna að tryggja að ís- lensk flugfélög komi þar fyrst og fremst við sögu.“ Síðan sagði Halldór, eins og áð- ur kom fram, að aldrei hefði komið til tals að setja farþegaflugvélar í hættu. Hann benti þó á að ýmsir væru komnir á undan sjálfum sér í þessari umræðu; væru farnir að blanda inn í hana hugsanlegum átökum við Írak. Halldór sagði ástæðulaust að gera það og ala þar með á ótta og hræðslu í garð ís- lenskra flugfélaga. „En það er ljóst að við erum í Atlantshafsbandalaginu. Við höf- um skuldbindingar gagnvart því. Við höfum skuldbindingar til að taka þátt í að varðveita friðinn í heiminum. Með þessum yfirlýsing- um erum við Íslendingar að standa undir sjálfsögðum skuldbinding- um …“ Íslendingar taki frekar þátt í þróunarsamvinnu Steingrímur J. Sigfússon fjallaði um nýliðinn leiðtagafund NATO í Prag í framsöguræðu sinni og gagnrýndi forsætisráðherra, Davíð Oddsson, og utanríkisráðherra fyr- ir að hafa gefið út yfirlýsingar á fundinum um aukin fjárútlát Ís- lands og „aukna þátttöku Íslands í hernaðarlegri eða hernaðartengdri starfsemi“, eins og Steingrímur orðaði það. Þá gagnrýndi hann ráðherrana fyrir að hafa ekki haft neitt samráð um þessi málefni við utanríkismálanefnd þingsins. Steingrímur spurði utanríkisráð- herra m.a. að því hvort verið væri að hverfa í áföngum frá yfirlýstri stefnu Íslands um herleysi og vopnaleysi, en sú stefna hefði verið forsenda þátttöku Íslendinga í NATO og Sameinuðu þjóðunum. Þá spurði hann ráðherra að því hvort ekki hefði komið til greina að bjóða fram aukin framlög á leiðtogafundinum til að mæta kostnaði vegna þróunarsamvinnu. „Og kom ekki til greina að bjóða fram aukin framlög […] til þróun- arsamvinnu eða eingöngu borgara- legra verkefna; við uppbyggingu á hrjáðum svæðum í stað þess að tengjast inn í hugsanlegar hern- aðaraðgerðir á vegum NATO?“ spurði Steingrímur ennfremur. Utanríkisráðherra svaraði því m.a. til að Atlantshafsbandalagið hefði ákveðið að taka þátt í því að berjast gegn hryðjuverkastarfsemi sem og að taka þátt í því að varð- veita frið í heiminum. „Eigum við Íslendingar að standa utan við það?“ spurði hann. Sagði hann síð- an að svar Íslendinga hefði verið að efla friðargæslu sína sem og að útvega flugvélar fyrir um 300 milljónir kr. „Hugtakið hernaðar- aðgerðir hefur verið notað hér í þessari umræðu skipti eftir skipti,“ sagði hann, „við höfum tekið þátt í aðgerðum í Bosníu- Herzegóvínu á síðari stigum, við höfum tekið þátt í aðgerðum í Kos- ovo, við höfum tekið þátt í aðgerð- um í Afganistan. Allar þessar að- gerðir hafa miðað að því að koma á friði. Hins vegar liggur ljóst fyrir að það hefur enginn beðið Íslend- inga að koma að þessum aðgerðum á fyrstu stigum enda höfum við hvorki til þess búnað né her. Það sem við höfum lagt af mörkum er með borgaralegum hætti.“ Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði að eng- um blandaðist hugur um að leið- togafundurinn í Prag hefði markað tímamót; þá hefðu sjö ný ríki verið tekin inn í bandalagið. „Ég fagna því og Samfylkingin fagnar því. Við erum sérstaklega ánægð með það að Eystrasaltsríkin skuli nú vera orðin fullgildir þátttakendur í Atlantshafsbandalaginu. Þau höfðu lengi barist fyrir því og íslenskir jafnaðarmenn höfðu stutt þá bar- áttu heima og erlendis,“ sagði hann. „Það vakti hins vegar athygli,“ bætti hann við „að forráðamenn Íslendinga töluðu ekki mjög skýrt um nýjar skuldbindingar Íslend- inga eftir fundinn í Prag. Ummæli þeirra um 300 milljóna framlag til að flytja hergögn, jafnvel herlið, til ótilgreindra átakasvæða gáfu til kynna að það væri búið að skuld- binda Íslendinga til beinnar þátt- töku í hernaðaraðgerðum eins og t.d. í Írak. Samfylkingin hefur sterkar efasemdir um það. Hæst- virtur utanríkisráðherra hefur hins vegar borið það til baka í fjöl- miðlum. Hann hefur sagt það að túlkun fjölmiðla í þessa veru sé á algjörum villigötum. Og ég tek það auðvitað trúanlegt. Við höfum ákveðna sérstöðu inn- an Atlantshafsbandalagsins. Sú sérstaða felst í því að við erum herlaus þjóð. Og það hefur verið grundvallarregla að við höfum ekki tekið þátt í beinum hernaðar- aðgerðum. Þá grundvallarreglu á að heiðra.“ Undarleg umræða Sigríður Anna Þórðardóttir, for- maður utanríkismálanefndar þingsins, sagði að undarleg um- ræða hefði farið fram á síðustu vikum um hlut Íslendinga í eigin öryggisgæslu. „Á síðustu vikum hefur farið fram undarleg umræða hér á landi um hlut Íslendinga í eigin öryggisgæslu og þátttöku okkar í sameiginlegum vörnum á alþjóðavettvangi. Hefur sú um- ræða einkennst af rangfærslum og því að gera tortryggileg þau áform íslenskra stjórnvalda að íslenskar flugvélar verði til taks á kostnað stjórnvalda ef hætta skapast. Þessi ábyrgðarlausi málflutningur hefur gengið allt of langt og hefur þegar skaðað íslensku flugfélögin út á við. Það er ekkert tilefni til orð- ræðu af þessu tagi. Hún er al- gjörlega fráleit. Íslenskar flugvél- ar verða aldrei þátttakendur í beinum hernaðaraðgerðum. Þær eru ekki til þess búnar og flug- menn þeirra hafa ekki hlotið þjálf- un til slíkra aðgerða.“ Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði að þegar Íslendingar hefðu gengið í NATO hefðu þeir gert það á þeim forsendum að þeir skyldu ekki eiga aðild að hernaðaraðgerðum. „Með því að lofa að gangast undir og gegna herkvaðningu Bush Bandaríkjaforseta hafa forystu- menn ríkisstjórnarflokkanna á Ís- landi framið ótrúleg afglöp. Um aldir hefur verið óbifanleg sam- staða á Íslandi um þá afstöðu að Íslendingar skyldu aldrei eiga að- ild að hernaðaraðgerðum neins konar gegn neinum.“ Sverrir sagði að nú hefðu íslenskir ráðamenn á hinn bóginn lýst því yfir að þeir myndu gangast undir „herútboð stríðsmannsins vestra þegar hon- um hentaði“, eins og hann orðaði það. „Við erum hér komin inn á mjög alvarlega braut og ástæðulaust að þvarga og blanda inn í þetta aðild okkar að NATO. Við lýstum yfir stöðu okkar í þessum málum þegar við gengum í NATO og það var forsenda fyrir því að samþykkt var að ganga í NATO.“ Að lokum sagði Sverrir: „Það verður að vísu af mörgu merku og mikilvægu að taka í komandi kosn- ingum. En það verða líka greidd atkvæði um þessi málefni ásamt með deCODE-vitfirringunni.“ Aldrei komið til tals að setja farþegavélar í hættu Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Davíð Oddsson forsætisráðherra ræða saman. Morgunblaðið/Þorkell HÆGT væri að stytta hringveg- inn milli Reykjavíkur og Ak- ureyrar um samtals 19 km, eða úr 388 km í 369 km, með því að leggja hann sunnan Blönduóss og sunnan Varmahlíðar. Kostn- aður við þá vegagerð er áætl- aður um 1.400 milljónir króna en miðað við ákveðnar forsendur yrði sparnaður vegfarenda sam- tals um 400 milljónir króna á ári. Þetta kemur fram í skriflegu svari samgönguráðherra, Sturlu Böðvarssonar við fyrirspurn Ör- lygs Hnefils Jónssonar, vara- þingmanns Samfylkingarinnar á Alþingi. Örlygur spurði hvar helst væri hægt að stytta þjóð- veg 1 milli Akureyrar og Reykjavíkur, hversu mikil stytt- ingin gæti orðið og hver væri líklegur kostnaður og einnig hvaða sparnaður yrði á kíló- metra við styttingu vegarins miðað við núverandi umferð. Í svarinu kemur fram að mið- að við umferðina á Norðurlandi vestra, sem er áætluð um 870 bílar á dag að meðaltali, og ýms- ar gefnar forsendur gæti spar- ast um 20 milljóna króna akst- urskostnaður á ári við að stytta veginn á þessum slóðum um 1 km. Ekki er um að ræða þjóð- hagslegan sparnað eins og hann er venjulega reiknaður. Stytting hringvegar gæti sparað vegfar- endum milljónir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.