Morgunblaðið - 04.12.2002, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 04.12.2002, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 37 ar Lárusdóttur og Guðfríðar Lilju Grét- arsdóttur, núverandi Íslandsmeistara. Að þessu sinni er teflt í fimm manna lokuðum flokki þar sem fimm sterkustu skákkonur landsins mætast í tvö- faldri umferð. Mótið er eitt allra sterkasta Íslandsmót kvenna sem fram hef- ur farið. Þátttakendur eru allir fulltrúar Ís- lands í kvennaliði Ól- ympíuskákmótsins auk Guðlaugar Þor- steinsdóttur, fyrrum Íslandsmeist- ara, sem nú tekur þátt í sínu fyrsta Íslandsmóti í mörg herrans ár. Með- al keppenda eru einnig Íslands- meistarar síðustu tveggja ára, þær Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, tífald- ur Íslandsmeistari kvenna, og Harpa Ingólfsdóttir. Þá taka þær Anna Björg Þorgrímsdóttir og Aldís Rún Lárusdóttir einnig þátt. Seinni hluti Íslandsmótsins mun fara fram um næstu helgi og ráðast þá úrslitin. Þar verður einnig B- flokkur kvenna og er hann opinn konum á öllum aldri. Tefldar verða atskákir og hefst B-flokkurinn kl. 20:00 á föstudag eða á sama tíma og 3. Guðmundur Kjartansson 5 v. 4.-5. Guðni Stefán Pétursson , Björn Ívar Karlsson 4½ v. 6.-7. Atli Freyr Kristjánsson, Ágúst Bragi Björnsson 4 v. 8.-9. Elsa María Þorfinns- dóttir, Sverrir Þorgeirsson 3 v. 10.-12. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, Senbeto Ge- beno Guyola, Svanberg Már Pálsson 2 v. Guðlaug Þorsteins- dóttir efst á Íslands- móti kvenna Eftir fimm umferðir á Íslandsmóti kvenna er Guðlaug Þorsteinsdóttir efst með fjóra vinn- inga, en þar sem stendur á stöku í mótinu sat hún yfir í fyrstu umferð. Guðlaug sigraði einn helsta keppi- naut sinn um Íslandsmeistaratitil- inn, Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, í fimmtu umferð. Þegar fyrri hluta mótsins er lokið er staðan þannig: 1. Guðlaug Þorsteinsdóttir 4 v. 2. Harpa Ingólfsdóttir 3 v. 3. Guðfríður Lilja Grétarsd. 2 v. 4.-5. Aldís Rún Lárusdóttir og Anna Björg Þorgrímsdóttir ½ v. Keppni á Íslandsmótinu hófst á því, að Páll Pétursson félagsmála- ráðherra lék fyrsta leik í skák Aldís- DAVÍÐ Kjartansson er Íslands- meistari 20 ára og yngri eftir sigur á Unglingameistaramóti Íslands um helgina. Baráttan um sigurinn var hörð og spennandi og luku þeir Dav- íð og Halldór B. Halldórsson mótinu með jafnmarga vinninga, eða sex af sjö mögulegum. Þeir urðu því að tefla tveggja skáka einvígi um það hvor hlyti titilinn. Davíð hafði hvítt í fyrri skákinni, sem lauk með jafn- tefli. Í síðari skákinni hafði hann hins vegar betur og sigraði því 1½-½ í einvíginu. Í 3. sæti varð Guðmund- ur Kjartansson með 5 vinninga en í 4.-5. sæti voru jafnir með 4½ vinning þeir Guðni Stefán Pétursson og Björn Ívar Karlsson. Bestum árangri stúlkna náði hin efnilega Elsa María Þorfinnsdóttir, en hún er stúlknameistari Íslands. Hún fékk þrjá vinninga. Davíð Kjartansson hefur teflt af miklum krafti að undanförnu og náð frábærum árangri. Fyrr á þessu árivarð hann Norðurlandameistari unglinga (20 ára og yngri) og bætir nú Íslandsmeistaratitlinum í safnið. Þeir Stefán Kristjánsson munu leggja land undir fót í lok vikunnar og halda til keppni á heimsmeistara- móti 20 ára og yngri, en mótið verð- ur haldið á Indlandi. Röð efstu manna á unglingameistaramótinu varð þessi: 1. Davíð Kjartansson 6 v. (+1½) 2. Halldór B. Halldórsson 6 v. (+½) seinni hluti A-flokksins. Skráning fer fram hjá Skáksambandi Íslands. Teflt verður í húsnæði TR í Faxafeni 12. Björn Jónsson hraðskák- meistari Garðabæjar Hraðskákmóti Garðabæjar lauk með öruggum sigri Björns Jónsson- ar, sem hlaut 15½ vinning af 18 mögulegum. Í öðru sæti varð Sæ- björn Guðfinnsson með 14½ vinning og fleiri stig en Jóhann H. Ragn- arsson sem fékk sömu vinningatölu. Páll Sigurðsson varð í 4. sæti með 11 vinninga. Alls tóku 9 skákmenn þátt í mótinu og tefldu tvöfalda umferð, allir við alla. Skákhátíð í Ólafsvík á laugardag Taflfélag Snæfellsbæjar efnir til skákhátíðar í Ólafsvík laugardaginn 7. desember. Tilefni hátíðarinnar er 100 ára afmæli félagsheimilis Ólafs- víkur og 40 ára afmæli skákfélags- ins. Jafnframt verður minning Ottós Árnasonar heiðruð, en hann var stofnandi félagsins. Mótið er öllum opið, en meðal þátttakenda verða stórmeistararnir Friðrik Ólafsson, Jóhann Hjartarson, Margeir Péturs- son og Hannes Hlífar Stefánsson. Teflt verður í félagsheimilinu Klifi og eru mjög vegleg verðlaun í boði. Fyrstu verðlaun eru 100 þúsund krónur, önnur verðlaun 40 þúsund og þriðju verðlaun 30 þúsund. Þá verða veitt þrenn 10 þúsund króna verðlaun fyrir bestan árangur skák- manna með minna en 2.200 stig, fyr- ir bestan árangur stigalausra skák- manna og fyrir bestan árangur kvenna. Þá mega ýmsir keppendur eiga von á nýjum og glæsilegum bókum frá útgáfufélaginu Eddu. Rútuferðir verða frá BSÍ klukkan 9:30 laugardaginn 7. desember, en mótið sjálft hefst svo í Klifi klukkan 13. Fargjald er þúsund krónur báðar leiðir, en innifalið er þátttökugjald á mótinu, kaffi og meðlæti. Börn og unglingar, 18 ára og yngri, fá ókeyp- is rútuferðir og eru undanþegin þátttökugjaldi. Á mótinu verða tefldar átta um- ferðir, fyrst fjórar hraðskákir og síð- an fjórar atskákir. Að mótinu loknu tekur við kvöldverður fyrir þá sem vilja og síðan er rútuferð til Reykja- víkur. Prýðileg gistiaðstaða er fyrir hendi í Ólafsvík fyrir þá sem vilja staldra við lengur. Helstu styrktaraðilar skákhátíð- arinnar eru Snæfellsbær, Fiskmark- aður Íslands, Deloitte & Touche, OLÍS, útgáfufélagið Edda og Lands- banki Íslands. Skákáhugamenn eru beðnir að skrá sig til leiks, í síðasta lagi fimmtudaginn 5. desember, hjá Tryggva Óttarssyni í síma 436 1646 eða 893 4746. Einnig er hægt að skrá sig með því að senda póst á netfangið tryggvi@fmis.is. Davíð Kjartansson Íslandsmeistari unglinga Daði Örn Jónsson SKÁK Skáksamband Íslands UNGLINGAMEISTARAMÓT ÍSLANDS 29. nóv. – 1. des. 2002 Davíð Kjartansson dadi@vks.is ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Rangárþing eystra auglýsir: Laust starf skólastjóra Rangárþing eystra auglýsir laust starf skóla- stjóra Seljalandsskóla, Vestur-Eyjafjöllum. Um er að ræða afleysingu í barnsburðarleyfi frá 1. febrúar nk. Nánari upplýsingar veita: Elvar Eyvindsson, formaður skólanefndar, í síma 487 8720 og Ágúst Ingi Ólafsson, sveitarstjóri, í síma 487 8124. Sveitarstjóri. Akraneskaupstaður Tónlistarskólinn á Akranesi Við skólann er laus staða saxafón- og klarinett- kennara. Um er að ræða fullt starf frá og með 1. janúar nk. Nánari upplýsingar veitir Lárus Sighvatsson skólastjóri í síma 431 2109. Umsóknarfrestur er til 13. desember. Sviðsstjóri menningar- og fræðslumála. R A Ð A U G L Ý S I N G A R FÉLAGSSTARF Sorg í ljósi jóla Jólafundur Nýrrar dögunar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð, og Kirkjugarða Reykjavík- urprófastsdæma verður í Fossvogskirkju fimmtudaginn 5. desember kl. 20. Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona, hugleiðir sorgina og jólin. Erna Blöndal og Örn Arnarson flytja tónlist. Ókeypis aðgangur, allir velkomnir. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur Frjálsa flugmannafélagsins verður haldinn laugardaginn 14. desember nk., í sal A, 2. hæð, Radisson SAS, Hótel Sögu kl. 14.00. Dagskrá: 1. Kosning í trúnaðarmannaráð. 2. Kosning stjórnar. 3. Önnur mál. Stjórnin. Jólafundur FKA 2002 Jólafundur FKA verður haldinn í Veitingahús- inu Iðnó, fimmtudaginn 5. desember nk. kl. 12:00—14:00. Gestur jólafundar verður séra Jóna Hrönn Bolladóttir, miðborgarprestur. Tilkynna þarf þátttöku til Elínar á Impru á fka@fka.is eða í síma 570 7267, í síðasta lagi 4. desember. Athugið að í fyrra komust færri að en vildu. STYRKIR Umsóknir óskast um styrki til jarðhitaleitar Iðnaðarráðuneyti, Orkuráð og Byggðastofnun halda áfram sérstöku átaki til leitar jarðhita til húshitunar á svæðum þar sem hitaveitur eru ekki nú. Átakinu er einkum ætlað að vera hvati að rannsóknum og jarðhitaleit á svæðum þar sem jarðhiti er lítt eða ekki þekktur á yfirborði. Ekki er veittur styrkur fyrir kostnaði sem var áfallinn áður en átakið hófst. Um er að ræða tvenns konar styrki samkvæmt nánari reglum þar um: A) Styrkir til almennrar jarðhitaleitar með hita- stigulsborunum og jarðvísindalegum að- ferðum, gegn eðlilegu mótframlagi umsækj- anda. B) Styrkir vegna þróunar og prófunar á nýjum aðferðum við vinnslu jarðvarma og nýting- ar, s.s. skáborun, örvun á borholum, niður- dælingu o.fl. Styrkir standa til boða sveitarfélögum og orku- fyrirtækjum, en við forgangsröðun verkefna verður einkum tekið tillit til eftirtalinna atriða: 1) Að verkefnið sé þjóðhagslega arðbært, m.a. með tilliti til flutnings- og dreifikerfis raf- orku. 2) Að verkefnið efli byggð í landinu. Umsóknarfrestur vegna annars áfanga þessa átaks er til þriðjudags 17. desember 2002. Umsóknir skulu sendar Orkustofnun á þar til gerðum eyðublöðum sem þar fást og merktar þannig: Jarðhitaleit á köldum svæðum, Auðlindadeild, Orkustofnun, Grensásvegur 9, 108 Reykjavík. Fyrirspurnir b.t. Orkustofnunar, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík (www.os.is), s. 569 6000, fax 568 8896 og milli kl. 16.00 og 18.00 í 899 0868. Netfang átaksins er: heto@os.is TILBOÐ / ÚTBOÐ Ræsting í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Opið útboð Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli hf. auglýsir eftir tilboðum í ræstingu flugstöðv- arinnar. Ræst flatarmál er um 17.500 m2. Útboðsgögn liggja frammi á skrifstofu Flug- stöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og hjá VSÓ Ráðgjöf, Borgartúni 20, Reykjavík, frá og með miðvikudeginum 4. desember. Gögnin verða afhent gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Vettvangsskoðun er fyrirhuguð þriðjudaginn 10. desember 2002. Tilboðum skal skila til VSÓ Ráðgjafar og verða þau opnuð þar fimmtudag- inn 19. desember 2002 kl. 11:00. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 18  1831248  I.O.O.F. 9  1831247½  Bh  HELGAFELL 60021210419 IV/V  Njörður 6002120419 III I.O.O.F. 7  18312047½ 8.III.*  GLITNIR 6002120419 I Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í Kristniboðssaln- um í kvöld kl. 20.30. „Friðarsáttmáli“ Kjartan Jónsson talar. Heitt á könnunni á eftir. Allir hjartanlega velkomnir. Í kvöld kl. 20.00 Jólafundur Hjálparflokksins. All- ar konur hjartanlega velkomnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.