Morgunblaðið - 04.12.2002, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
GENGIÐ hefur verið frá samn-
ingi á milli Réttindastofu Eddu –
útgáfu og breska ríkisútvarpsins
BBC um flutning á leikgerð á
Brekkukotsannál eftir Halldór
Laxness. Verkið verður flutt á
Rás 4 í þætti sem nefnist Classic
Serial, sem flytur leikgerðir á
verkum sem ýmist eru orðin sí-
gild eða eru við það að verða það.
Skáldsagan Brekkukotsannáll
kom út á enskri tungu í þýðingu
Magnúsar Magnússonar á sjö-
unda áratugnum, í Bretlandi 1966
og Bandaríkjunum 1967. Magnús
yfirfór gömlu þýðinguna sína fyr-
ir nýja útgáfu sem kom út fyrir
stuttu í Bretlandi hjá Harvill
Press. Brekkukotsannáll, sem
fyrst kom út árið 1957, hefur birst
lesendum í 16 löndum í hátt í
fjörutíu útgáfum en auk þess var
myndaflokkur fyrir sjónvarp
byggður á bókinni gerður 1972.
BBC flytur
Laxness
Brekkukotsannáll/23
og erfiður. Uppsagnir starfsfólks Tals og Íslands-
síma séu verulga slæm tíðindi en jákvætt sé þó að
stjórnendur Íslandssíma ætli að gera það sem í
þeirra valdi stendur til að aðstoða þá sem láta af
störfum hjá félögunum.
Gunnar Páll Pálsson, formaður Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur, segir að honum lítist
illa á þessi tíðindi. Samkvæmt upplýsingum sem
hann hafi fengið sé að stærstum hluta um að ræða
starfsmenn sem séu félagsmenn í VR en einhverj-
ir séu í Rafiðnaðarsambandinu. Fólkinu verði boð-
in öll sú aðstoð sem félagið geti veitt.
Hann segir að atvinnuleysið hafi samfellt
minnkað frá júlí til nóvember, en þá hafi það auk-
UM fjórðungi starfsmanna Íslandssíma og Tals
var sagt upp störfum í gær, samtals 76 starfs-
mönnum. Þar af eru 45 starfsmenn Íslandssíma og
31 starfsmaður Tals. Uppsagnirnar taka gildi um
áramótin. Þá var greint frá því í gær að tíu starfs-
mönnum ACO-Tæknivals hefði verði sagt upp fyr-
ir síðustu mánaðamót.
Fram kemur í tilkynningu frá Íslandssíma að
vegna samruna Íslandssíma og Tals hafi verið ráð-
ist í víðtæka endurskipulagningu á rekstri fyrir-
tækjanna. Fækkun starfsmanna sé liður í þeirri
endurskipulagningu.
Lykke Bjerre Larsen, trúnaðarmaður VR hjá
Tali, segir að gærdagurinn hafi bæði verið langur
ist. Hefðbundið sé að atvinnulausum fjölgi í nóv-
ember, desember og janúar. „Við höfum ekki orðið
vör við almennar uppsagnir núna og leyfum okkur
því að líta á þetta sem einstök tilvik,“ segir Gunnar
Páll.
Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðar-
sambands Íslands, segir hörmulegt þegar það
komi til að segja þurfi starfsfólki upp störfum.
Hins vegar verði að horfast í augu við staðreyndir.
Rafiðnaðarsambandið geti lítið annað gert en að
aðstoða þá sem lendi í þessu með að komast í
gegnum þessi mál.
76 starfsmönnum sagt upp
hjá Íslandssíma og Tali
Um fjórðungi/15
VEGAGERÐIN hefur ákveðið að lengja
vegrið beggja vegna brúarinnar yfir Hólmsá
á Suðurlandsvegi í kjölfar þess að bifreið
valt út af brúnni í síðustu viku. Fram-
kvæmdir hefjast væntanlega á næstu vikum.
Jónas Snæbjörnsson, umdæmisstjóri
Vegagerðarinnar á Reykjanesi, segir að
vegriðin verði lengd um 50–100 metra. Einn-
ig komi til greina að hækka vegriðin en
ákvörðun um það hafi ekki verið tekin.
Vegrið lengd
við Hólmsá
ALLT sem ég sé, plata hljómsveitarinnar
Írafárs, er söluhæsta geislaplatan aðra
vikuna í röð, samkvæmt nýjasta Tónlist-
anum. Hann er unninn
vikulega í samstarfi við
helstu sölustaði geisla-
platna í landinu.
Salan á plötu Birgittu
Haukdal og félaga í Íra-
fári hefur aukist jafnt og
þétt síðan hún kom út
fyrir fjórum vikum en
síðustu vikuna jókst sal-
an til muna og er hún nú
sú langsöluhæsta ásamt nýrri jólaplötu Jó-
hönnu Guðrúnar sem er næstsöluhæst en
báðar seldust í vikunni sem leið í tæplega
800 eintökum.
Írafár á sölu-
hæstu plötuna
Jólafár/48
Allt sem/44
NÝTT samkomulag um breytingar
á fjármálalegum samskiptum ríkis
og sveitarfélaga verður undirritað
fyrir hádegi í dag. Samkvæmt því
leggur ríkið fram 410 milljónir
króna á þessu ári á grundvelli fjár-
aukalaga og 400 milljónir á næsta
ári umfram það sem gert var ráð
fyrir í fjárlögum. Eru þetta
greiðslur vegna fasteignaskatts-
bóta og húsaleigubóta. Að sögn Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar, for-
manns Sambands íslenskra
sveitarfélaga, felur samkomulagið í
sér fimm meginatriði.
Í fyrsta lagi fellst ríkið á að
greiða á þessu ári 260 milljónir
króna vegna fasteignaskattsbóta til
meiriháttar viðhaldi og tækjakaup-
um heilsugæslustöðva og almennra
sjúkrahúsa. Kostnaðurinn er met-
inn á 100 milljónir króna í fjárhags-
legu uppgjöri ríkis og sveitarfélaga.
Í fjórða lagi er gert samkomulag
um að frá og með 1. janúar verði
stjórnarfrumvörp og reglugerðar-
drög sem undirbúin eru í félags-
málaráðuneytinu og umhverfis-
ráðuneytinu, og aðeins eða að
verulegu leyti hafa bein áhrif á
sveitarfélögin, kostnaðarmetin. Um
er að ræða tilraunaverkefni til 30.
júní 2004.
Í fimmta lagi er gert ráð fyrir
formlegu samráði ríkis og sveitar-
félaga um kjaramál.
að sveitarfélögin verið jafnsett. Í
öðru lagi er kveðið á um að ríkið
greiði á þessu ári þær 150 milljónir
króna sem upp á vantar til að halda
óbreyttu hlutfalli ríkis og sveitarfé-
laga í greiðslu húsaleigubóta, en
hlutfall ríkisins hefur verið um 55%
á móti um 45% hlutdeild sveitarfé-
laga. Gert er ráð fyrir að greiddur
verði alls um einn milljarður í húsa-
leigubætur 2003 og felur samkomu-
lagið jafnframt í sér 555 milljóna
króna framlag ríkisins af þeirri
upphæð.
Í þriðja lagi er verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga breytt með
því að ríkið tekur yfir 15% hlutdeild
sveitarfélaga í stofnkostnaði og
Samið um fjármálasamskipti ríkis og sveitarfélaga
Framlag ríkis auk-
ið um 800 milljónir
JÓN Arnar Magnússon, Íslandsmethafi í
tugþraut úr Breiðabliki, er fjórði besti tug-
þrautarmaður heims á þessu ári samkvæmt
árlegum styrkleikalista
hins virta frjálsíþrótta-
tímarits Track & Field
News, en listinn var birt-
ur í desemberhefti blaðs-
ins nú um mánaðamótin.
Jón er eini Íslending-
urinn á lista tímaritsins
þetta árið.
„Ég er afar ánægður
með að fá staðfestingu á
því að vera kominn í hóp þeirra bestu á ný
eftir nokkur erfið ár þar sem margir voru
búnir af afskrifa mig, ég er ekki dauður úr
öllum æðum,“ segir Jón Arnar. Hann býr nú
með fjölskyldu sinni í Gautaborg og æfir þar
fyrir átök næsta árs. Jón Arnar var síðast á
lista tímaritsins árið 1998, þá í þriðja sæti.
Kominn aftur
í fremstu röð
Jón Arnar/B3
ÞAÐ varð vart þverfótað fyrir ungbörnum í
húsakynnum Símans við Ármúla í gær þegar
starfsmönnum fyrirtækisins, sem eignast hafa
börn á árinu, var boðið með afkvæmi sín til
kaffisamsætis. Það má svo sannarlega segja að
framleiðni starfsmannanna hafi verið með
góðu móti á árinu, en alls fóru 60 starfsmenn af
1.300 í fæðingarorlof, eða tæp 5%.
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, var
einn þeirra sem eignuðust barn á árinu og
mætti hann stoltur með son sinn, Brynjólf Jón,
sem fæddist hinn 24. ágúst. Aðspurður sagðist
Brynjólfur hafa tekið fjóra daga í feðraorlof,
snemmt að dreifa alvöru GSM-símum þó að
krakkarnir byrji að nota síma ungir,“ segir
Brynjólfur og kímir. Hann segir að í barna-
skaranum leynist örugglega framtíðarstarfs-
menn Símans, ef fyrirtækinu gangi vel í fram-
tíðinni, sem og framtíðarviðskiptavinir.
Forstjórinn hvatti starfsmenn sína til dáða á
barneignasviðinu þegar hann bauð foreldrana
velkomna með börn sín í gær og óskaði þeim til
hamingju. „Ég tel við eigum að vera dugleg við
barneignir. Við höfum þá sérstöðu að geta alið
upp börn í góðu umhverfi og góðu þjóðfélagi,“
sagði Brynjólfur sem sjálfur á sex börn.
en hinn 28. ágúst, fjórum dögum eftir fæðingu
sonarins, slitnaði Cantat-3 sæstrengurinn og þá
varð forstjórinn að mæta aftur til vinnu. Hann
segir að það gangi ágætlega að samræma for-
eldrahlutverkið og að stýra svo stóru fyrirtæki.
„Ég er svo heppinn að konan mín sinnir heim-
ilinu að mestu og ég eftir því sem ég hef burði
til. Það gengur ágætlega hjá okkur. Við eigum
líka sjö ára stelpu heima og átján ára strák,“
segir Brynjólfur. Að því komi örugglega að
Brynjólfur Jón komi með pabba í vinnuna.
Börnin fengu gefins plastbolla við komuna í
gær og plast GSM-síma. „Það er aðeins of
Morgunblaðið/Bragi Þór
Það var margt um manninn þegar þeir starfsmenn Símans, sem eignast hafa börn á árinu, komu saman með afkvæmi sín í gær.
Frjósamir Símastarfsmenn
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦