Morgunblaðið - 04.12.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.12.2002, Blaðsíða 32
UMRÆÐAN 32 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í ÁRARAÐIR hafa forsvarsmenn tónlistariðnaðarins leitað eftir við- urkenningu á því að þessi grein at- vinnu- og menningarlífs sé til staðar í landinu og að hún fái notið sann- mælis og jafnréttis til jafns við aðrar greinar. Aðrar starfsgreinar eiga t.a.m. sínar skúffur á Hagstofu Ís- lands og þær er hægt að mæla í hag- kerfinu, bæði í töldum störfum og veltu. Á meðan bækur, bæði innlendar og erlendar, bera aðeins 14% virð- isaukaskatt neyðast þeir sem setja hugverk sín á geisladiska að bæta 24,5% við andvirði afurða sinna. Það er löngu tímabært að úthluta tónlistar- og afþreyingariðnaðinum í heild sinni sérstakan lykil í bók- haldskerfi Hagstofu íslands, þó ekki væri nema til þess að geta séð hversu umfangsmikill þessi iðnaður er orðinn hér á landi. Það er tónlistargeiranum í land- inu afar dýrmætt þegar einn virtasti fjölmiðill landsins, sjálft Morgun- blaðið, leggur lóð sín á vogarskál- arnar eins og gert var í umræddu Reykjavíkurbréfi. Höfundur bréfs- ins víkur nokkuð að útflutnings- og þróunarsjóði sem lengi hefur verið barist fyrir með það í huga að nýta hin augljósu sóknarfæri íslenskrar tónlistar á erlendum mörkuðum í kjölfar hins mikla meðbyrs. Frum- varpið um þann sjóð virðist nú vera týnt eftir 6 ára mótun. Svíar hafa staðið að baki tónlistar- iðnaði sínum af miklum myndarskap og uppskorið eftir því. Þeir skilja að það kann að þurfa að verja fé til að geta síðan aflað fjár. Sú fjárfesting sem Svíar gerðu í eigin tónlistariðn- aði hefur skilað sér margfalt til baka inn í sænska hagkerfið. Frammáamenn íslensku þjóðar- innar hafa reyndar ekki alveg snið- gengið þennan nýja iðnað. Þeir geta hans á tyllidögum sem sönnunar um blómlegt og fjölskrúðugt menning- arlíf sem beri að fagna. En tónlistar- iðnaðurinn þarf ekki aðstoð við að fagna, heldur aðstoð við að hrinda stórum og metnaðarfullum verkum í framkvæmd sem síðan má fagna. Við skulum ekki byrja á öfugum enda. Margir stórhugar þessa geira hafa mátt standa straum af sínum tilraunum alfarið upp á eigin spýtur og nokkrar fasteignirnar hafa lent á uppboði í framhaldi af dýrum land- vinningahernaði. En afraksturinn, þar sem vel hefur tekist til, er glæsi- legur og dugir að nefna Björk, Sig- urrós, Leaves, Quarashi og Emel- íönu Torrini. Þau íslensku fallvötn sem okkur ber skylda til að virkja eru ekki endilega uppi á heiðum – heldur kannski miklu fremur hér á mölinni. Virkjum listamennina okkar. Við getum öll verið sammála um að slík- ar virkjanir munu renna hratt og örugglega í gegnum hvers kyns um- hverfismöt. Ég vil að lokum þakka Morgun- blaðinu heilshugar fyrir það að vekja athygli á þessu máli og gera starfsgreininni svo góð skil, en það átti hún fyllilega skilið. Það mætti lýsa því svo, að með þessu framtaki sínu hafi Morgunblaðið gengið í hljómsveitina og náð samstundis góðum takti við tíðarandann á Nýja- Íslandi. Mogginn slær taktinn Eftir Einar Bárðarson „Það var mér og öðrum þeim sem starfa innan ís- lenska tónlistargeirans mikið ánægjuefni að lesa Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins sunnu- daginn, 17. nóvember.“ Höfundur er framleiðandi og framkvæmdastjóri íslensku tónlistarverðlaunanna. MIKILL hvellur varð á dögunum, þegar út kom skýrsla Ríkisendur- skoðunar um kaup ríkisins á sér- fræðiþjónustu og önnur um stjórn- sýsluúttekt á Heilsugæslunni í Reykjavík (HR). Í fyrra kom einnig út skýrsla Ríkisendurskoðunar um greiðslur hins opinbera til lækna í heild. Ríkisendurskoðun hefur verið dugleg á liðnum árum við að koma staðtölum um lækna í skýrslur og jafnvel fjallað um þá eina, þegar hún hefur verið beðin um annað. Það verður að taka undir með umkvört- unum hjúkrunarfræðinga að þessu leyti, þegar þeir gerðu formlega at- hugasemdir við skýrsluna um HR og bentu Ríkisendurskoðun á, að ýmis- legt annað færi fram innan og utan veggja HR en lækningarnar. Fátt kom á óvart í skýrslum þess- um; meðaltekjur læknanna voru eins og við hafði verið búist, en fáir afla- menn í þeirra hópi vöktu almenna at- hygli eins og oft vill verða. Það, sem hins vegar vakti athygli okkar lækna, voru skjót viðbrögð stjórn- málamanna og annarra aðilja í op- inberu lífi, sem hneyksluðust á 133% hækkun á greiðslum til sérfræðinga á árunum 1997 til 2001 og að greiðslur þessar hlytu margir læknar, sem ynnu jafnframt á sjúkrahúsum í eigu ríkisins. Enn á ný voru læknar kallaðir sjálftöku- menn, látið í veðri vaka að verð og magn þeirra verka, sem þeir inntu af hendi, yrði ekki til í samningum þeirra og ríkisins, heldur væri um að ræða einhliða ákvarðanir læknanna. Kallað var eftir frekari stýringu og girðingum. Lítil málefnaleg umræða fór fram um heilbrigðisþjónustu þá, sem sjálfstætt starfandi sérfræði- læknar veita, innihald hennar og gæði og kostnað í samanburði við aðra þjónustu, sem ríkið tryggir þegnunum. „Þetta er orðið alltof dýrt.“ „Þetta verður sífellt dýrara og dýrara.“ Enginn hirti um að líta bak- sviðs á það, sem Ríkisendurskoðun segir sjálf á heimasíðu sinni: „Tæp- lega helming aukningarinnar eða 42% megi rekja til fjölgunar lækn- isverka, 24% til hækkunar á gjald- skrá og 32% til þess að kostnaðar- hlutdeild sjúklinga hefur lækkað. Útgjaldavöxtinn rekur Ríkisendur- skoðun m.a. til samninga við sér- fræðilækna á árinu 1998, er fólu í sér að Tryggingastofnun fór að greiða þeim fyrir ýmsar aðgerðir á eigin stofum, sem áður voru aðeins gerðar á sjúkrahúsum. Þá hækkaði gjald- skrá fyrir læknisverk til samræmis við launahækkanir sjúkrahúslækna. Einnig rekur stofnunin útgjaldaþró- unina til framfara innan læknisfræði ...“ Ríkisendurskoðun verður ekki kennt um ómálefnaleg viðbrögð við skýrslu sinni; vinna hennar er al- mennt góð og framsetningin mál- efnaleg eins og fyrrgreind tilvitnun ber með sér. Það er afar mikilvægt, þegar fjallað er um útgjöld til heilbrigðis- mála, að gætt sé hófs um orð, skýr markmið séu höfð í huga, studd rök- um, sem eiga sér traustar rætur í þeim fátæklegu staðtölum, sem við eigum um heilbrigðiskerfið. Heil- brigðiskerfið er gríðarlega stórt á okkar mælikvarða en jafnframt brot- hætt. Það hefur þróast á liðnum ár- um, ómarkvist og eins og rekald fyrir pólitískum vindum samtímans, en þó náð að mæta býsna vel þörfum þjóð- arinnar á hverjum tíma, á verði, sem enn er þjóðinni viðráðanlegt. Læknar vilja gjarnan taka þátt í um- ræðum um skipulag heilbrigðisþjón- ustunnar, kostnað við hana og fjár- mögnun. En þeir óska eftir því, að sú umræða sé málefnaleg og laus við sleggjudóma og pólitísk yfirboð og atkvæðaveiðar. Staðreyndin er sú, að ríkið veit ná- kvæmlega hve mikla þjónustu það ætlar að kaupa af sjálfstætt starfandi sérfræðingum frá ári til árs og við hvaða verði. Um þetta allt er samið og einnig um það, með hvaða hætti starfandi sérfræðingar á sjúkrahús- um koma að þessari þjónustu. Ríkið veit nákvæmlega um læknisverka- fjöldann, hvað hvert læknisverk kostar og hverjir eru kostnaðarlið- irnir. Og það veit að í þessum verðum er allur kostnaðurinn, laun læknis- ins, aðstoðarfólks, tæki, efni og af- skriftir af fasteignum. Ég fullyrði að slíkar upplýsingar eru ekki til í jafn tæmandi mæli um sambærilegan rekstur á vegum ríkisins sjálfs t.d. sjúkrahús og heilsugæslu, því miður. Er heilbrigðisþjónusta sjálfstætt starfandi sérfræðinga óeðlilega dýr, óhagstæð fyrir almenning og ef hún er almenningi nauðsynleg, er þá hægt að fá hana annars staðar við betra verði? Kostnaður við sérfræði- þjónustu er eins og hvert annað úr- lausnarefni, sem þarf að nálgast með þessum hætti. Og læknar vilja gjarn- an leggja sitt af mörkum til að skyn- samleg svör finnist. Því vil ég ekki svara þessum spurningum mínum að sinni, heldur opna umræðuna og hlakka til að fá svör þeirra, sem telja sig geta lagt e-ð það til, sem færir okkur nær skynsamlegri niðurstöðu. Til fróðleiks hef ég tekið saman upplýsingar úr fjárlögum yfirstand- andi árs (mynd 1), þar sem fram koma áætlanir löggjafans um kostn- að þjóðarinnar við ýmsa þætti heil- brigðisþjónustunnar á árinu og til viðbótar kostnaðarupplýsingar frá Tryggingastofnun ríkisins. Vissu- lega er hér ekki um alveg sambæri- legar tölur að ræða, þar sem í rekstr- arkostnaði heilsugæslunnar er varðstaða lækna um allt land og heimahjúkrun, svo dæmi séu tekin. Þar vantar hins vegar afskriftareikn- ing fjárfestinga, sem kemur fram að fullu hjá sérfræðingum. Tölur f. tannlækna koma á óvart, þar sem landsmenn njóta takmarkaðrar tryggingaverndar, þegar til tann- lækninga er litið. Það, sem kemur hins vegar mest á óvart er, að kostn- aður landans vegna sérfræðilækna skuli ekki vera meiri, þegar annars vegar er litið til stóru orðanna, sem látin hafa verið falla á opinberum vettvangi og hins vegar, þegar höfð er í huga hin mikla og margvíslega heilbrigðisþjónusta, sem sérfræði- læknarnir veita. Viðfangsefni okkar er auðvitað að ræða þetta úrlausnarefni meðan sú þörf er til staðar. Happadrýgst er að byggja þá umræðu á traustum grunni, á málefnalegum forsendum og með skýr markmið í huga. Sjálf- stætt starfandi sérfræðilæknar og almenningur, sem nýtur þjónustu þeirra, eiga það skilið. Og öll erum við í ríkri þörf fyrir, að ekki séu framdar óbætanlegar skemmdir á heilbrigðisþjónustunni, grundvallað- ar á fljótfærni og illa grunduðum for- dómum. Raunveruleikinn um sérgreinalækna Eftir Sigurbjörn Sveinsson „Læknar vilja gjarnan taka þátt í umræðum um skipulag heilbrigðisþjónust- unnar, kostnað við hana og fjármögnun. “ Höfundur er heilsugæslulæknir, fyrrv. formaður Félags íslenskra heimilislækna og núv. formaður Læknafélags Íslands. '@A BA     !     " #$ "  % !  & "& "& & &               AÐ undanförnu hefur umræða um skuggahliðar Netsins verið áberandi, fjallað hefur verið um innlent klám á Netinu, menn sem tæla til sín börn á spjallrásum og bera fé á unglinga til að fækka föt- um á þessu nýja markaðstorgi. Er- lent klám á Netinu og aðgengi að því hefur lengi verið áhyggjuefni uppalenda, en það sem veldur um- ræðunni nú er að lágkúran er að festa sig í sessi á Íslandi þar sem íslenskar dætur eru skotmörk vef- þrjótanna. Nei þýðir nei Skuggalega margir íslenskir vef- arar gangast upp í því að birta kyn- ferðislegar myndir eða myndskeið sem yfirleitt eru af konum eða ung- lingsstúlkum, hvort sem er með eða án þeirra samþykkis. Til eru mörg dæmi þess að kynferðislegar mynd- ir af stúlkum teknar við ýmis tæki- færi, hvort sem er undir áhrifum áfengis í „partíi“, á skemmtistöð- um, annarsstaðar eða hreinlega til- búnar í teikniforritum hafa verið settar á Netið án samþykkis og jafnvel þrátt fyrir mótmæli þess sem á myndunum er. Eiginleikar hins rafræna heims eru þeir að dreifing með tölvupósti getur geng- ið sem eldur í sinu og borist til mjög stórs hóps á mjög skömmum tíma. Þannig tekur, sem dæmi, ekki nema nokkrar sekúndur að brjóta niður mannorð stúlku í einum framhaldsskóla og gera hana að að- hlátursefni misþroskaðra samnem- enda sinna. Athæfið á myndunum getur verið ýmiss konar, hold getur sést óvart, áskorun í „partíi“ sem aldrei átti að vera neitt meira en staðbundið grín, tímabundin órökrétt hegðun eða jafnvel einlægt kynferðislegt athæfi. Skömm þess er verður fyrir því að slíkt efni er birt á Netinu er oft svo mikil að viðkomandi blygð- ast sín, fremur en að finna til rétt- látrar reiði, missir sjálfsvirðinguna fremur en að fordæma óréttlætið. Að mínu viti er aðeins stigsmunur á því viðhorfi sem oft heyrðist til nauðgana „hún bauð upp á þetta, með klæðnaði eða rænuleysi“ og því sem við erum nú að heyra „hún gerði þetta, hún var svona“ og að slík órök eigi að rétlæta það, að slíkt efni sé sett á Netið án sam- þykkis og jafnvel gegn einörðum mótmælum þess sem á myndunum er. Ábyrgð netnotenda Ef þú, lesandi góður, hugsar til baka átt þú eflaust þínar stundir sem þú vildir ekki sjá á Netinu og það á sjálfsagt við um okkur öll. Að notfæra sér ástand annarrar mann- eskju, lítillækka og brjóta niður sjálfsvirðingu hennar hlýtur alltaf að vera rangt. Að gera það á Net- inu í viðurvist allra sem aðgang hafa að því hlýtur að vera enn verra. Þeir sem hafa ánægju af því að leggja með þessum hætti líf ann- arrar manneskju í rúst eru ann- aðhvort hjálparþurfi eða siðblindir og þeir sem taka þátt í að dreifa slíkum sora eru lítt skárri. Netnot- endur verða að vera meðvitaðir um afleiðingar gjörða sinna. Að taka þátt í múgsefjuninni, brosa í kamp- inn, hafa gaman af niðurlægingu annarra og senda slíkan póst á net- fangaskrána sína er ábyrgðarhluti og aðeins stigsmunur á slíku fram- ferði og hópnauðgun. Sá sem verður fyrir slíkum árás- um getur aldrei talist eiga það skil- ið, að aðhafast eitthvað í einkalífi sínu er eitt, að gera það sama frammi fyrir alþjóð er annað og á ekki að vera á annarra manna vald- sviði að opinbera. Það er nauðsyn- legt fyrir alla að taka afleiðingum gjörða sinna á þeim forsendum sem þær eru framkvæmdar. Það er hins vegar ekki hægt að ætlast til þess að fólk sitji uppi með hinn óhemj- anlega skaða sem vefþrjótar valda með sínum meiðandi athöfnum. Þeir sem með slíku rafrænu ofbeldi brjóta af sér gegn öðrum mann- eskjum ættu í siðuðu þjóðfélagi, byggðu á mannvirðingu, að þurfa að sæta refsingu fyrir slíkt athæfi. Hvort sem slík refsing er uppkveð- in í dómsölum eða knúin fram með fordæmingu þjóðfélagsins. Hópnauðgun á Netinu? Eftir Sigríði Bríeti Smáradóttur „Ekki tekur nema nokkr- ar sekúndur að brjóta niður mann- orð stúlku í einum fram- haldsskóla.“ Höfundur er framhaldsskóla- nemandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.