Morgunblaðið - 04.12.2002, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 04.12.2002, Qupperneq 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 39       Sérstaða íslenska skólakerfisins í ljósi PISA-rannsóknarinnar. Júlíus K. Björnsson, forstöðumaður Náms- matsstofnunar, heldur fyrirlestur á vegum Rannsóknarstofnunar KHÍ í dag miðvikudaginn 4. desember kl. 16.15. Fyrirlesturinn verður haldinn í sal 2 í nýbyggingu Kennaraháskóla Íslands v/Stakkahlíð og er öllum op- inn. PISA-rannsóknin er alþjóðleg rannsókn á getu 15 ára nemenda í lestri, stærðfræði og náttúrufræði sem framkvæmd var árið 2000. Fjallað verður m.a. í erindinu um sérstöðu Íslands í þessari rannsókn og greint nánar frá ýmsum nið- urstöðum úr hinum íslenska hluta rannsóknarinnar. Rifjaðar verða upp helstu niðurstöður alþjóðlegs samanburðar í PISA-rannsókninni þar sem íslenskir nemendur stóðu sig rúmlega yfir meðaltali OECD landanna. Stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli verður með að- ventufund í húsi Krabbameins- félagsins að Skógarhlíð 8 í Reykja- vík, í dag, miðvikudaginn 4. desember kl. 17. Á dagskrá verður upplestur, tónlistaratriði, kynning á nýjum bókum og fl. Heitt súkkulaði og smákökur á boðstólum. Í DAG Betri tímastjórnun Þekking- armiðlun ehf. stendur fyrir nám- skeiði í tímastjórnun miðvikudaginn 11. desember kl. 8.30–13 í Ásbyrgi á Hótel Íslandi. Námskeiðið er fyr- ir þá sem vilja læra að stjórna tíma sínum og sjálfum sér betur. Þátt- takendur fá innsýn í hvernig þeir verja tíma sínum í dag og læra að forgangsraða verkefnum. Farið er í mikilvægi þess að skapa tíma fyrir mikilvægustu verkefnin með góðri skipulagningu og takast á við trufl- anir af ýmsum toga. Tekin eru fyrir atriði eins og algengir tímaþjófar, frestun, skipulagning og áætl- anagerð, að segja nei, jákvætt hug- arfar og sjálfstjórn. Leiðbeinandi er Ingrid Kuhlman, þjálfari og ráð- gjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf. Skráning og frekari upplýsingar hjá ingrid@thekkingarmidlun.is Í Heilsustofnun NLFÍ, Hveragerði, eru haldin fjögurra vikna námskeið reglulega fyrir svonefndan verkja- hóp. Meginmarkmiðið er að hjálpa fólki að finna jafnvægi milli hreyf- ingar og slökunar, efla líkamsvit- und sína og beitingu líkamans. Næsta námskeið fyrir verkjahóp verður haldið frá 15. janúar til 9. febrúar 2003, segir í fréttatilkynn- ingu. Námskeið í Garðyrkjuskólanum fyrir áhugafólk um jólaskreytingar og jólakonfekt/jólaeftirrétti verður haldið laugardaginn 7. desember kl. 10–16. Leiðbeinandi í blómaskreyt- ingunum verður Júlíana Rannveig Einarsdóttir, fagdeildarstjóri á blómaskreytingabraut skólans og Sólveig Eiríksdóttir á Grænum kosti mun kenna fólki að útbúa syk- urlaust jólakonfekt og eftirrétti, t.d. úr ís, kökum og fleira. Skráning og nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans eða á heimasíðu hans; www.reykir.is Á NÆSTUNNI AFS á Íslandi býður alla velkomna á opið hús á morgun, fimmtudaginn 5. desember kl. 16–19 sem er haldið í tilefni af alþjóðadegi sjálfboðaliða. Veitingar eru í boði og erlendir skiptinemar sjá um tónlistaratriði. Málstofa í læknadeild verður hald- in á morgun, fimmtudginn 5. desem- ber, í læknadeild í sal Krabbameins- félags Íslands, efstu hæð og hefst kl. 16.15. Arndís Björnsdóttir flytur er- indið Retinitis Pigmentosa, leit að meingenastökkbreytingum. Kaffi- veitingar eru frá kl. 16. Handverkssala iðjuþjálfunar geð- deildar verður haldin á morgun, fimmtudaginn 5. desember kl. 12– 15.30 á 1. hæð í geðdeildarhúsi Landspítalans við Hringbraut. Til sölu verða handunnar vörur sem gerðar hafa verið í iðjuþjálfun í vet- ur. Kaffisla verður á staðnum. Styrkur, samtök krabbameins- sjúklinga og aðstandenda þeirra, verður með jólafund í Kiwanishúsinu við Engjateig í Reykjavík á morgun, fimmtudaginn 5. desember kl. 20. Rósa Kristjánsdóttir, djákni á Land- spítalanum, flytur jólahugvekju. Barnakór Varmárskóla syngur jóla- lög, undir stjórn Guðmundar Ómars Óskarssonar. Heiðursgestur á jóla- fundinum er Vigdís Finnbogadóttir, verndari Krabbameinsfélags Íslands og fyrrverandi forseti. Veitingar eru í boði Kiwanisklúbbsins Esju. Allir velunnarar félagsins eru velkomnir. Reykjavíkurdeild RKÍ gengst fyrir námskeiði í almennri skyndihjálp á morgun fimmtudaginn 5. desember kl. 19, í Fákafeni 11, 2. hæð. Þátt- taka er heimil öllum 15 ára og eldri. Námskeiðið er 16 kennslustundir. Jólafundur Kvennadeildar Reykjavíkudeildar Rauða krossins verður haldinn í Víkingasal Hótels Loftleiða, á morgun, fimmtudaginn 5. desember kl. 18.30. Irma Sjöfn Óskarsdóttir flytur jólahugvekju, „5 ára nælur“ verða afhentar, upp- lestur úr ljóðabók, Brynhildur Björnsdóttir sópransöngkona syng- ur við undirleik Jóns Möllers, Sig- urður Jónsson leikur á píanó og Jó- hannes Kristjánsson eftirherma skemmtir, einnig verður happ- drætti. Jólaglögg og jólahlaðborð. Verð er kr. 3.200. Tískusýning á Café Kristó Garða- torgi Garðabæ, verður á morgun, fimmtudaginn 5. desember kl. 21. Sýndur verður undirfatnaður, nátt- fatnaður og sloppar frá Vanity Fair, V.O.V.A. og Lauma, frá Versluninni Ynju, Hamrabrog 7, Kópavogi. Laufey Baldursdóttir frá Hár- greiðslustofunni Space sér um hárið á módelunum. Snyritskólinn No Name sér um að farða stúlkurnar. Einnig verður sýnt naglaskraut frá „Professional Nails“. Allir velkomn- ir. Á MORGUN Rangt föðurnafn Rangt var farið með föðurnafn Oddfríðar Steindórsdóttur leik- skólastjóra í Hafnarfirði í Morg- unblaðinu í gær, en hún skipar 15. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Þá var farið rangt með starfs- heiti Sólveigar Pálsdóttur sem skipar 11. sæti framboðslistans. Sólveig er bókmenntafræðingur en ekki bókasafnsfræðingur eins og kom fram í tilkynningu frá kjör- nefnd Sjálfstæðisflokksins. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT FUNDUR í stjórn stóriðjudeildar Verkalýðsfélags Akraness, haldinn 26. nóv. 2002, lýsir yfir þungum áhyggjum af rekstrarvanda Sem- entsverksmiðjunnar. Sementsverk- smiðjan hefur í áratugi gegnt mik- ilvægu hlutverki í atvinnulífi Akraness. Í ályktun fundarins segir: „Það er skoðun stjórnar stóriðjudeildar Verkalýðsfélags Akraness að Sem- entsverksmiðjan sé ekki í samkeppni á jafnréttisgrundvelli þar sem stór- fyrirtæki í Danmörku flytur inn og selur sement á verði sem er langt undir kostnaðarverði. Íslensk stjórn- völd verða að grípa til viðeigandi ráð- stafana, til að koma í veg fyrir að danski sementsrisinn geti lagt Sem- entsverksmiðjuna að velli, og um leið gert tugi manna atvinnulausa.“ Þar segir ennfremur: „Það er því enginn vafi á að hlutverk Sements- verksmiðjunnar er þjóðhagslega hagkvæmt þegar á heildina er litið. Það er augljóst að stjórnvöld verða að grípa til þeirra ráðstafana sem nauðsynleg eru til að Sementsverk- smiðjan geti haldið áfram rekstri. Það er pólitísk ákvörðun að Sem- entsverksmiðjunni verði gert kleift að starfa áfram. Akurnesingar munu fylgjast grannt með viðbrögðum stjórnmálamanna við þessum vanda.“ Áhyggjur vegna rekstr- arvanda Sements- verksmiðj- unnar VERÐLAUNASJÓÐUR Bergþóru og Þorsteins Scheving Thorsteins- sonar lyfsala veitir nú í fyrsta skipti viðurkenningu fyrir rannsóknir á sviði lyfjafræði. Rektor Háskóla Ís- lands ákveður um úthlutun úr sjóðnum hverju sinni, og að þessu sinni eru verðlaunahafarnir fjórir doktorsnemar í lyfjafræði við Há- skóla Íslands, þau Hákon Hrafn Sigurðsson, Sesselja Sigurborg Ómarsdóttir, Þorsteinn Þor- steinsson og Þórunn Ósk Þorgeirs- dóttir. Bent Scheving Thorsteinsson stofnaði sjóðinn í maí árið 2001 til minningar um föður sinn Þorstein Schveing Thorsteinsson lyfsala í Reykjavíkurapóteki og eiginkonu hans Bergþóru Patursson. Sjóð- urinn er í vörslu Háskóla Íslands og er ætlað að styrkja vísindaleg afrek á sviði lyfjafræði, rannsóknir og framhaldsnám í faginu. Þorsteinn Scheving Thor- steinsson var lyfjafræðingur og apótekari í Reykjavíkur Apóteki frá því hann lauk námi 1918 og fram til ársins 1962. Verðlaunasjóður Bergþóru og Þorsteins Scheving Thorsteins- sonar er einn þriggja sjóða sem Bent Schving Thorsteinsson hefur stofnað við Háskóla Íslands. Hinir eru Verðlaunasjóður Óskars Þórð- arsonar barnalæknis sem úthlutað var úr síðastliðið haust og styrkt- arsjóður Margaret og Bent Schev- ing Thorsteinssonar sem ætlað er að styðja við rannsóknir á sviði ein- eltis. Úr þeim sjóði verður úthlutað í fyrsta skipti næsta vor. Doktorsnemar í lyfjafræði hljóta viðurkenningu EFTIRFARANDI tillaga var samþykkt samhljóða á stjórn- arfundi í Verkalýðsfélaginu Hlíf í Hafnarfirði: „Fundur haldinn í stjórn Verkalýðsfélagsins Hlífar, fimmtudaginn 28. nóvember 2002, skorar á alþingismenn og ráðherra að sjá til þess að hverjum og einum elli- og ör- orkulífeyrisþega, sem einungis hefur opinberan lífeyri sér til framfærslu, verði send desem- bergreiðsla núna fyrir jólin. Upphæð greiðslunnar á að vera kr. 36.000 en það er sama upp- hæð og launafólk fær samkv. al- mennum kjarasamningum. Áskorunina rökstyður fundur- inn með því að benda þing- mönnum á eigin laun og styrki.“ Vilja desem- bergreiðslu OPNUÐ hefur verið heilsumið- stöðin Hómópatar og heilsulausnir í Ármúla 17, 2. hæð. „Í heilsumiðstöðinni starfar fag- menntað fólk sem býður upp á heildræna valkosti í heilsuvernd. Í heildrænni meðferð er unnið með alla þætti einstaklingsins sem samstæða heild. Markmiðið er að efla náttúrulegt orkustreymi lík- amans, að virkja eigin heilunar- kraft hans. Lífsgæði og vellíðan eru háð heilsulæsi einstaklingsins. Meðferðarformin sem eru í boði eru; hómópatía, höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð, heilun, ým- iss konar nudd, nálastungur, blómadropameðferð, svæða- og viðbragðsmeðferð, NLP og öldu- vinna,“ segir í fréttatilkynningu. Meðferðaraðilar eru Ásdís Kára- dóttir, Birna Imsland, Elín Mar- grét Gunnarsdóttir, Eva Dís Snorradóttir, Guðfinna Steinunn Svavarsdóttir, Guðmunda Stein- grímsdóttir, Guðrún Óladóttir, Ingibjörg Karlsdóttir, Jóhanna Þormar, Kristín Kristjánsdóttir, Linda Konráðsdóttir, Ragnheiður Þormar, Sigrún Sigurðardóttir, Sigurður Sigurðsson, Unnur G. Kristinsdóttir og Þórkatla Sigur- geirsdóttir. Heilsumiðstöð opnuð Félag ungra framsóknarmanna í Hafnarfirði heldur opinn fund um landbúnaðarmál fimmtudaginn 5 desember kl. 20 í framsókn- arheimilinu Dalshrauni 5 í Hafn- arfirði. Gestur fundarsins er Sveinbjörn Eyjólfsson, aðstoðarmaður land- búnaðarráherra. Allir velkomnir. Á MORGUN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.