Morgunblaðið - 04.12.2002, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í FRÉTTABLAÐI Fulltrúaráðs
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er
viðtal við háttvirtan þingmann og
hjúkrunarfræðing frú Ástu Möller,
með fyrirsögninni „Fólk á að fá
þjónustu sem það þarf!“ Í viðtalinu
kemur fram að bakgrunnur hennar
liggi í heilbrigðismálum, eðlilega
sem lærður hjúkrunarfræðingur og
hún leggur áherslu á að það sé henn-
ar hugsjón að fólk fái nauðsynlega
heilbrigðisþjónustu og talar hún þar
af þekkingu og reynslu og hefur
áreiðanlega unnið gott starf á því
sviði bæði heima og erlendis. En
hver hafa verið baráttumál þing-
mannsins og hjúkrunarfræðingsins
frú Ástu Möller? Í greininni og við-
talinu kemur fram að hún hafi verið
stuðningsmaður frumvarpsins að
lögleiða áhugamanna-hnefaleika
(árásaríþrótt) og svo var sjálfur
hjúkrunarfræðingurinn meðflutn-
ingsmaður að leyfa sölu víns og
áfengs bjórs í matvöruverslunum,
en slíkir drykkir eru ekkert annað
en vímuefni og nú nýlega hafa fjöl-
miðlar skýrt frá því að þessi vágest-
ur sé kominn inn í nokkra grunn-
skóla og ég spyr hjúkrunarfræð-
inginn, foreldri með þrjú börn á
grunnskólaaldri: Er nema eðlilegt
að allir foreldrar með börn eða ung-
linga á þessum aldri séu áhyggju-
fullir, að heyra þessar dapurlegu
staðreyndir? Þekktur og virtur
þingmaður segir nýlega í blaðagrein
í Mbl: „Flestir þeir sem farnir eru
að neyta eiturlyfja byrjuðu neysluna
á bjór eða öðrum alkóhóldrykkjum
en það eru vímugjafar sem ríkið
sjálft selur og fær miklar tekjur af
þessum vímuefnabissness og ætti að
leggja „hagnaðinn“ af þessum um-
svifum í forvarnirnar, aukna lög-
gæslu og meðferðarúrræði.“ Maður
skyldi ætla að hjúkrunarfræðingur-
inn frú Ásta Möller væri fyrst og
fremst málsvari heilbrigðisstétt-
anna með áherslu á bætt heilbrigði
og líferni og mjög á móti öllu sem
skaðar og er í andstöðu við slíkan
lífsmáta! Ég skora á og hvet hátt-
virtan þingmann og hjúkrunarfræð-
ing, sérstaklega í krafti síns mik-
ilvæga líknarstarfs, að hætta
stuðningi sínum við „óheillafrum-
varpið“ um að leyfa sölu áfengs víns
og bjórs í matvöruverslunum. Með
þeirri ákvörðun sinni leggur hún
drjúgan og heillavænlegan skerf til
heilbrigðismálanna og það er áreið-
anlega vænlegra fyrir hana til öfl-
unar atkvæða!
Með vinsemd og virðingu,
GUÐMUNDUR J. MIKAELSSON,
75% öryrki.
Opið bréf til
Ástu Möller
Frá Guðmundi J. Mikaelssyni:
TÖLUVERT hefur gengið á síðan
grein mín Óskabarnið birtist í
Morgunblaðinu í síðustu viku. Mér
var endanlega gert að taka pokann
minn. Finnst mér það sjálfum
nokkuð harkaleg viðbrögð frá
skiparekstrardeildinni, því að það
ráðslag að selja m.s. Lagarfoss og
taka eins skip á leigu mannað út-
lendingum er örugglega ekki
þeirra. Þær ákvarðanir hafa líklega
verið teknar á æðri stöðum.
Ekki þarf þeim að þykja und-
arlegt að einhver af þeim sem
misstu vinnuna í hendur útlend-
inga tjái sig með einhverjum hætti.
Þeir ættu frekar að líta á það sem
upphefð fyrir félagið að afskipta-
laus maður skuli sjá svo mikið eftir
vinnunni sinni að hann sjái sig knú-
inn til þess að skrifa grein í blað út
af því.
Tel ég mig ekki eiga þessa refs-
ingu skilið þar sem grein mín var
kurteislega orðuð að mínu áliti og
ekki vera merki um slæma innstill-
ingu, eins og er haft eftir forstjóra
skiparekstrardeildar Eimskips í
Fréttablaðinu. Athugasemd hans
um að Bandaríkin séu of viðkvæmt
svæði fyrir mig að sigla á fær eng-
inn skilið.
Við sjómenn getum alveg skilið
að skipafélag sem siglir fyrir Ís-
lendinga þurfi að hafa hluta flota
síns leiguskip í hagræðingarskyni
vegna mikilla sveiflna í flutningum
eftir því hvort þjóðin telur að það
sé góðæri eða ekki. Því væri samt í
lófa lagið og skylt að manna þau
Íslendingum.
Sjómenn hafa af skiljanlegum
ástæðum ekki áhuga á að taka und-
ir áskorun mína um að labba í land,
því að atvinnurekendur hika ekki
við að refsa þeim sem ekki eru
þægir við þá. Og ekki er hlaupið að
því að finna aðra vinnu þessa dag-
ana.
Skora ég á þá þingmenn sem eru
búnir að tryggja sér öruggt og
þægilegt sæti að skikka skipafélög
landsins að flagga skipum sínum
inn og manna þau öll Íslendingum.
Það þarf varla að hvetja hina sem
missa vinnuna eftir kosningar, því
að þeir hljóta að finna til sam-
kenndar með okkur.
Þetta væri kannski réttlætanlegt
ef útgerðin stæði svo illa að það
væri verið að bjarga henni undan
hamrinum. Það á ekki við um Eim-
skip ef marka má fréttir um fjár-
festingar félagsins undanfarið.
Það er hluti af sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar að við Íslendingar
sjáum um okkar vöruflutninga
sjálfir. Svo hugsaði allavega alda-
mótakynslóðin sem stóð fyrir því
að stofna íslenskt skipafélag.
Það er hart að rúmlega manns-
aldri síðar skuli vera til menn sem
hafa geð í sér að svíkja þær hug-
sjónir.
BALDVIN ÞORLÁKSSON,
stýrimaður, Vesturtúni 11,
225 Bessastaðahreppi.
Óskabarnið
2. hluti
Frá Baldvini Þorlákssyni: