Morgunblaðið - 04.12.2002, Side 43

Morgunblaðið - 04.12.2002, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 43 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake BOGMAÐUR Afmælisbörn dagsins: Þú vilt umfram allt hafa nægan tíma fyrir sjálfan þig en kannt því samt vel að at- hygli annarra beinist að þér er þér hentar. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Reyndu að komast hjá því að munnhöggvast við sam- starfsmenn þína. Leggðu áherslu á jákvætt hugarfar. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú færð tækifæri til að leita ráða hjá einhverjum í dag. Kannaðu staðreyndir máls- ins áður en þú lætur til skarar skríða. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Láttu ekki hávaða og fyrir- gang vinnufélaga þíns slá þig út af laginu. Það hjálpar þér að ná sem bestum árangri. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú ert í ójafnvægi og veist ekki í hvorn fótinn þú átt að stíga. Þú hefðir gott af því að gera þér dagamun með góðu fólki. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ert fullur af orku þessa dagana. Mundu bara að þú verður að vera sjálfum þér samkvæmur. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Flest virðist ganga þér í haginn og haldir þú vöku þinni ætti ekki að verða breyting þar á. Nú ríður á að þú látir ekki deigan síga. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Svo virðist sem allir séu mjög hrifnir af áætlunum þínum. Andstæðingar þínir munu gefast upp og þá stendur þú uppi með pálm- ann í höndunum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þolinmæðin kemur þér til góða þegar þú færð fréttir sem munu hreyfa við þér. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Stundum gerast hlutirnir þegar maður á síst von á þeim. Vertu vakandi fyrir möguleikum í dag, því að þér gætu áskotnast pening- ar. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Leggðu ekki út í neitt, sem þú hefur ekki efni á. Það er ekki þess virði að hleypa sér í erfiðleika til langs tíma. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Einhvern veginn er eins og allt og allir fari í taugarnar á þér þessa stundina. Láttu hrokann ekki ná yfirhönd- inni í samskiptum þínum við aðra. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Láttu ekki verkefni safnast fyrir á skrifborði þínu óleyst. Taktu þér tak og bættu úr þessum ágalla. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. BRIDSFÉLAG Reykja- víkur fagnaði 60 ára afmæli sínu um helgina með miklu mótshaldi. Hátíðin hófst með „stórfiskaleik“ á föstudags- kvöldið, en síðan var haldinn tvímenningur á laugardag og sveitakeppni á sunnudag. Í orðabók Menningarsjóðs segir að stórfiskaleikur sé leikur þar sem einn þátttak- enda leiki hval, en aðrir skip. Í orðabók Gylfa Baldursson- ar, formanns BR, er stór- fiskaleikur hins vegar keppni milli stórkarla þjóðlífsins og stórmeistara í brids. Fjórtán pör spiluðu tvímenning, þar sem hvert par var sett saman úr einum stórkarli og einum stórmeistara. Suður gefur; NS á hættu. Norður ♠ 6 ♥ Á943 ♦ D76543 ♣K7 Vestur Austur ♠ D3 ♠ 872 ♥ KD87652 ♥ G ♦ ÁK ♦ 10982 ♣106 ♣DG842 Suður ♠ ÁKG10954 ♥ 10 ♦ G ♣Á953 Spiluð voru forvalin spil og í mótslok fengu keppendur útskrift af spilunum með at- hugasemdum Gylfa Baldurs- sonar. Gylfi segir í skýring- um sínum um þetta spil: „Ekki er ósennilegt að nokkrir spilarar í vestur reyni fórnina yfir fjórum spöðum og uppskeri þá skelfilegu tölu -800. Lunkinn (eða heppinn) sagnhafi í fjór- um spöðum gæti hins vegar nælt sér í tólf slagi. Líklegast er að vestur komi út með há- mann í tígli og skipti yfir í hjarta. Ef sagnhafi kýs nú að trompa tígul, fellur hitt há- spilið. Nú toppar sagnhafi spaðann og gleypir drottn- inguna. Þá er öllum tromp- unum spilað og austur lendir í óverjandi kastþröng í láglit- unum. Ef sagnhafi kýs hins vegar að nota hjartainnkom- una til þess að svína í spaða eru tökuslagirnir allt í einu orðnir aðeins níu. Sennilega verða fleiri til að fara þá leið.“ Þegar til kom var fórnin í fimm hjörtu reynd á fjórum borðum. Þrjú pör greiddu fullt gjald, -800, en eitt par slapp þrjá niður og uppskar vel fyrir -500. Enginn sagn- hafi í fjórum spöðum fékk hins vegar tólf slagi. Jón Steinar Gunnlaugsson, félagi Davíðs Oddssonar, fékk út hjartakóng. Hann drap með ás og spilaði laufi þrisvar með því hugarfari að trompa. Í vestur var Þórður Harðar- son læknir og hann stakk með trompdrottningu, lagði niður tígulkóng og trompaði svo út. Vörnin fékk þannig þrjá slagi. Stórfiskaleiknum lauk með yfirburðasigri Valdi- mars Grímssonar handbolta- manns og Sverris Ármanns- sonar. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla 70 ÁRA afmæli. Ámorgun, fimmtudag- inn 5. desember, verður sjö- tugur Jóhannes Bergsveins- son, yfirlæknir, Bárugötu 35, Reykjavík. Hann og eig- inkona hans, Auður Garð- arsdóttir, taka á móti gest- um á afmælisdaginn kl. 16–19 í Kirkjuhvoli, safnað- arheimili Vídalínskirkju í Garðabæ. 70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 4. desember, er sjötug Ragn- heiður Sigurðardóttir, Herjólfsgötu 16, Hafnar- firði. Hún tekur á móti ætt- ingjum og vinum í dag milli kl. 20 og 22 í veitingasal Skútunnar, Hólshrauni 3, Hafnarfirði. 1. d4 Rf6 2. c4 d6 3. Rc3 Rbd7 4. e4 e5 5. Rf3 c6 6. Be2 a6 7. O-O b5 8. b4 bxc4 9. Bxc4 Be7 Staðan kom upp á Ólymp- íuskákmótinu í Bled sem lauk fyrir skömmu. Vlastimil Babula (2590) hafði hvítt gegn Fernando Braga (2434). 10. Bxf7+!!? Kxf7 11. Rg5+ Kg6? Færi hvíts fyrir fórnina væru þó nokkur eftir 11... Ke8 12. Db3 Hf8 13. Re6 Db6 14. Rxg7 Kd8 15. Re6+ en engu að síður var það framhald mun skynsamlegri kost- ur en textaleikur- inn. 12. f4! exf4 13. Re2! Kxg5 14. Rxf4 De8 15. Dd3 Re5 16. dxe5 Rg4 17. exd6 Bf6 18. e5 Rxe5 19. Re6+ Kh5 20. Df5+ g5 21. Rg7+ Kh6 22. Dxf6+ og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Nýliðakvöld – vanir/ óvanir – kaffi og kökur Síðasta nýliðakvöld ársins verður í Síðumúla 37, 3. hæð, fimmtudaginn 5. desember kl. 20. Nokkrir vanir keppnisspilarar frá Bridsfélagi Reykjavíkur koma og spila við nýlið- ana. Það eru allir bridsspilarar vel- komnir, bæði vanir og óvanir. Allir spila einfaldan Standard eins og kenndur er í Bridsskólanum. Þátttaka er ókeypis og kaffi og smá- kökur í boði hússins. Tvímenningur í Kópavogi Nk. fimmtudag hefst þriggja kvölda tvímenningur hjá Bridsfélagi Kópavogs. Fyrirtækið Bergplast veitir vegleg peningaverðlaun fyrir tvö efstu sætin. Það er því kjörið tækifæri fyrir bridsspilara að fjöl- menna og létta kostnaðinn við jóla- undirbúninginn. Félag eldri borgara í Kópavogi Það mættu 22 pör til keppni þriðjudaginn 26. nóvember. Keppnin var að venju hörkuspennandi en lokatölur efstu para urðu þessar í N/S: Vilhjálmur Sigurðss. – Þórður Jörundss. 251 Brynja Dýrborgard. – Þorl. Þórarinss. 243 Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 243 Hæsta skorin í A/V: Anton Sigurðss. – Hannes Ingibergss. 267 Halla Ólafsd. – Magnús Halldórss. 265 Ingibjörg Halldórsd. – Sigríður Pálsd. 255 Sl. föstudag mættu svo 20 pör og þá urðu úrslitin þessi í N/S: Magnús Halldórss. – Þorsteinn Laufdal 256 Ernst Backman – Garðar Sigurðsson 241 Ólafur Ingvarsson – Þórarinn Árnason 240 Hæsta skorin í A/V: Guðjón Kristjánss. – Magnús Oddsson 290 Vilhjálmur Sigurðss. – Þórður Jörundss. 279 Helga Helgadóttir – Sigrún Pálsd. 223 Albert Þorsteinss.– Sæmundur Björnss. 223 Sunnudaginn 24. nóvember var spiluð sveitakeppni milli Gjábakka og Gullsmára. Spilað var á 9 borðum og sigraði Gjábakki á 7, jafnt var á einu og Gullsmári vann á einu borði. Úrslitin 181–81. Félag eldri borgara í Hafnarfirði Eldri borgarar í Hafnarfirði spila tvímenning í Hraunseli, Flatahrauni 3, tvisvar í viku, þ.e. á þriðjudögm og föstudögum. Mæting kl. 13.30. Spilað var 26. nóv. Þá urðu úrslit þessi: Bragi Björnss. – Auðunn Guðmundss. 165 Árni Guðmundss. – Sigurður Hallgríms. 149 Hermann Valsteinss. – Jón V. Sævaldss. 139 Sigtryggur Ellertss. – Þórarinn Árnas. 132 29. nóv. Árni Bjarnason – Þorvarður Guðmundss. 76 Guðni Ólafsson – Ásgeir Sölvason 59 Jón Gunnarsson – Sigurður Jóhannsson 52 Maddý Guðmundsdóttir – Guðm. Árnas. 48 Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK Gullsmára spil- aði tvímenning á ellefu borðum mánudaginn 2. desember sl. Miðl- ungur 220. Beztum árangri náðu: NS Karl Gunnarsson – Ernst Backmann 274 Halldór Jónsson – Valdimar Hjartars. 245 Kristjána Halldórsd. – Eggert Kristinss. 240 AV Björn Björnsson – Heiðar Þórðarson 268 Jóna Kristinsdóttir – Sveinn Jensson 267 Guðjón Ottósson – Guðm. Guðveigss. 246 Spilað mánu- og fimmtudaga. Mæting kl. 12.45 á hádegi. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Hlutavelta Morgunblaðið/Kristinn. Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 3.050 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita: Helena Sól Ómarsdóttir, Aþena Örk Ómarsdóttir, Jóhanna Elísa Skúladóttir, Ragnheiður Lilja Ófeigsdóttir og Guðríður Bjartey Ófeigsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík LJÓÐABROT Jólakveðja til Herdísar húsfreyju í Flatey, á aðfangadagskvöld 1859 Þú, sem um daga dúki hefir tíðum daggfögur strokið tár af sárum hvörmum, þegar að dauðinn dró úr þínum örmum dáfríðu börnin, sóttar örmædd hríðum, á guma’ og engla gleðiaftni fríðum gleðstu nú, systir! – þreyttum fyrir anda ljósanna faðir láti opinn standa himininn, – sjá þar sjónum trúar blíðum hópinn þinn allan, helgum undir meiði: jólatré því á jörð er fegurst runnið af Jesse rót, en himinblómgað stendur, og dýrðlegar limar börn þín yfir breiðir; þá muntu segja: „Á sorg ég hefi unnið sigur, minn guð! og fel mig þér á hendur.“ Jón Thoroddsen. Töskur og belti Bankastræti 11 • sími 551 3930 Fjórir gullsmiðir þjóna skartgripahönnun í sérflokki. Viðgerðarþjónusta, módelsmíði, áletrun, breytingar á skartgripum. Vinnum ljósmyndir í málma. Kveðja - Gull í grjóti Hjördís G. Kristín G. Ingibjörg P. Pasquale Skólavörðustíg 4, 101 • sími 551 5050 Ertu að kaupa eða selja fasteign? Vantar þig fagmann til að skoða fyrir þig eignina? Viltu lágmarka áhættuna á óvæntum kostnaði? Sími 892 0053. www.astandsskodun.is Ástandsskoðun eigna ehf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.