Morgunblaðið - 07.12.2002, Page 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
• Af hverju geta karlar
bara gert eitt í einu?
• Af hverju þurfa konur
svo oft að ræða málin?
• Af hverju ættu karlar
aldrei að ljúga að konum?
• Af hverju káfa karlar
en konur ekki?
7. SÆTI
Mbl. ALMENNT EFNI
26. nóv – 2. des.
Fyrsta prentun
á þrotum!
Ítalskt fyrirtæki bauð lægst
Ítalska fyrirtækið Impregilo SpA
átti lægsta tilboðið í bæði stíflu og
aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkj-
unar. Tilboð voru opnuð í stjórnstöð
Landsvirkjunar í gær. Tilboð Impr-
egilo var undir kostnaðaráætlun í
bæði verkin sem boðin voru út. Mun-
ar þar alls um sex milljörðum kr.
Lent vegna tryllts hests
Flugstjóri á breiðþotu hollenzka
flugfélagsins KLM óskaði í gær eftir
að fá að skilja trylltan veðhlaupahest
eftir á Keflavíkurflugvelli, þar sem
vélinni var millilent síðdegis, en hún
var á leið vestur yfir haf. Yfir-
dýralæknir sagði ekki vera hægt að
verða við slíkri beiðni.
LSL stendur illa
Fjárhagsleg staða Lífeyrissjóðs
lækna hefur versnað til muna á síð-
ustu þremur árum en raunávöxtun
sjóðsins hefur verið neikvæð öll
þessi ár. Áfallnar skuldbindingar
sjóðsins eru metnar á tæp 15% um-
fram eignir hans. Því stefnir í skerð-
ingu lífeyrisréttinda sjóðfélaga.
Óánægja í Samfylkingu
Vegna óánægju með tillögu upp-
stillingarnefndar Samfylkingarinnar
í Norðausturkjördæmi að framboðs-
lista flokksins ætla félagar í Sam-
fylkingunni á Húsavík ekki að mæta
á fund kjördæmisráðs sem haldinn
verður á Akureyri í dag.
Spenna í Venesúela
Skot féllu á mótmælafundi gegn
Hugo Chavez, forseta Venesúela, í
Caracas í gær. Tveir dóu og yfir tug-
ur særðist. Mikil spenna er í landinu.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Messur 50/52
Viðskipti 15/16 Kirkjustarf 52/53
Erlent 20/24 Minningar 53/59
Höfuðborgin 26 Umræðan 60/76
Akureyri 28 Staksteinar 78
Suðurnes 30 Myndasögur 80
Landið 32 Bréf 80/81
Árborg 33/34 Dagbók 82/83
Listir 34/40 Leikhús 84
Heilsa 42 Fólk 84/89
Neytendur 44/45 Bíó 86/89
Forystugrein 46 Ljósvakamiðlar 90
Viðhorf 50 Veður 91
* * *
Kynningarefni – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablaðið „Jólablaðið“
frá Smáralind. Blaðinu er dreift um
allt land.
L a u g a r d a g u r
7.
d e s e m b e r ˜ 2 0 0 2
2002 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
MEISTARASLAGUR Á OLD TRAFFORD / B4
ÞRÍR þekktir erlendir íþróttamenn, sem allir hafa
leikið hér á landi í nokkur ár, fá að öllum líkindum
íslenskan ríkisborgararétt fyrir áramót. Þetta eru
Roland Eradze, markvörður Vals í handknattleik,
Damon Johnson, leikmaður Keflvíkinga í körfu-
knattleik og Aleksandrs Petersons, leikmaður
Gróttu/KR í handknattleik.
Allsherjarnefnd Alþingis lagði til á fimmtudag-
inn að ellefu einstaklingar fengju íslenskan rík-
isborgararétt fyrir áramótin en alls bárust nefnd-
inni 20 beiðnir um slíkt. Venjulega eru þetta
frumvarp frá alls-
herjarnefnd af-
greitt án mikillar
umræðu á Alþingi
og má því búast
við þessir ein-
staklingar verði
Íslendingar fyrir
áramótin.
Allir hafa þessir
leikmenn verið
orðaðir sem möguleigir leikmenn landsliða Íslands
á næstu árum. Eradze lék með Georgíumönnum
fyrir tæpum þremur árum og hann gæti orðið lög-
legur með íslenska landsliðinu í janúar. Reglan er
sú að hafi leikmaður leikið landsleik þurfa að líða
þrjú ár þar til hann leikur fyrir sitt nýja land og
auk þess þarf viðkomandi að hafa leikið í tólf mán-
uði í viðkomandi landi áður en hann getur leikið
landsleik með nýju þjóðinni.
Samkvæmt þessu gæti Eradze orðið löglegur
með íslenska landsliðinu á HM í Portúgal eftir ára-
mótin, þó ekki í fyrstu leikjum, en hann gæti farið
með til Portúgals og komið inn sem sextándi maður
á fjórða degi mótsins en þá eru síðustu forvöð að
bæta í hópinn og þá væru liðin þrjú ár frá síðasta
landsleik hans fyrir Georgíu að því er best er vitað.
Petersons lék með Lettum á þessu ári og þarf því
að bíða í þrjú ár og sama er að segja um Johnson.
Eradze löglegur
með Íslandi á
HM í Portúgal?
Aðal Álaborgarliðsins er öflugvörn og sökum þess skorar það
mikið úr hraðaupphlaupum,“ segir
Ágúst sem segist hafa safnað saman
miklu af upplýsingum um liðið og sé
því vel búinn undir leikinn. „Við
leggjum áherslu á að halda hraðan-
um niðri og freista þess þannig að
æsa Danina aðeins upp.
Okkar markmið í leiknum er skýrt,
við ætlum okkur að vinna til þess að
hafa eitthvað veganesti fyrir síðari
leikinn ytra eftir viku,“ segir Ágúst.
Aalborg HSH hefur í sínum röðum
tvo norska landsliðsmenn, Börge
Lund og Håvard Tvedten, og einn
danskan landsliðsmann, Bo Christan
Pedersen, sem leikur á línunni.
Norðmaðurinn Lund ætti að vera
Íslendingum að góðu kunnur því
hann lék með Bodö gegn Haukum í
Evrópukeppninni fyrir tveimur árum
og stóð sig vel auk þess sem hann átti
góða spretti með norska landsliðinu
gegn því íslenska í vináttulandsleikj-
um hér á landi í fyrrahaust. Lund er
alhliða leikmaður sem getur leikið á
miðjunni og eins í skyttustöðunum
bæði vinstra og hægra megin.
Tvedten er hins vegar vinstri horna-
maður. Ágúst segir Norðmennina
vera sterka og þeir leiki lykilhlutverk
í liði Aalborg HSH.
Aalborg HSH er eitt best rekna
handknattleikslið Danmerkur. Það
er nú í 5. sæti dönsku úrvalsdeild-
arinnar og hefur rétt úr kútnum und-
anfarnar vikur eftir að hafa byrjað
keppnistíðina illa í haust. Eftir að
skipt var um þjálfara um mánaða-
mótin október/nóvember er liðið
komið á sigurbraut.
„Okkar markmið er að reyna að
vinna leikinn, ekki að fara inn á völl-
inn og vinna með tíu mörkum, en að
sjálfsögðu munum við ekki slá hend-
inni á móti því að vinna með sem
mestum mun gefist möguleiki á því.
En þetta er sterkt lið og við förum
með báða fætur á jörðinni í leikinn,“
sagði Ágúst.
Það er skarð fyrir skildi hjá
Gróttu/KR að varnarmaðurinn
sterki, Einar Baldvin Árnason, getur
ekki tekið þátt í leiknum. Þá leikur
einnig vafi á því hvort Davíð Ólafsson
getur spilað með þar sem hann er í
prófi í Háskóla Íslands í dag sem
skarast við leikinn. „Þátttaka Davíðs
veltur á því hversu fljótur hann er
með prófið,“ segir Ágúst sem einnig
verður án Alfreðs Finnssonar í leikn-
um, en hann er meiddur á nára. Í
hans stað kemur Ingimar Jónsson,
sem verið hefur frá.
„Það vantar eitthvað í hópinn hjá
okkur, en það kemur maður í manns
stað og við erum staðráðnir í að
leggja okkur alla fram og vonumst
eftir öflugum stuðningi áhorfenda.
Þeir geta verið ómetanlegir í leik sem
þessum,“ sagði Ágúst Jóhannsson,
þjálfari Gróttu/KR.
Tilbúnir í orrustuna
við Aalborg HSH
„ÞETTA virðist vera sterkt lið sem leikur dæmigerðan danskan
handknattleik með 6/0 vörn og stuttum og hröðum sóknum,“ segir
Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR, um andstæðinga sína en í
dag mætir Grótta/KR liðið Aalborg HSH í Áskorendakeppni Evrópu í
handknattleik. Þetta verður fyrri leikur liðanna í 4. umferð keppn-
innar og fer hann fram í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Magnús Agnar
Magnússon, fyr-
irliði Gróttu/
KR, verður í
eldlínunni í dag
þegar félagið
mætir danska
liðinu Aalborg í
Áskorenda-
keppni Evrópu.
Roland Eradze markvörður.
FÉLAGAR í Samfylkingunni á
Húsavík ætla ekki að mæta á fund
kjördæmisráðs flokksins sem hald-
inn verður á Akureyri í dag en á
fundinum á að ganga frá fram-
boðslista flokksins í komandi al-
þingiskosningum. Samfylkingar-
félagið á Húsavík samþykkti
ályktun um að félagsmenn þess
mundu ekki mæta á fundinn, þar
sem þeir segjast ekki sætta sig við
að uppstillingarnefnd hafi breytt
niðurstöðu flokksvals og fært Ör-
lyg Hnefil Jónsson varaþingmann,
sem hafnaði í þriðja sæti, niður í
fjórða sæti á framboðslista flokks-
ins.
Tillaga uppstillingarnefndar um
uppstillingu í 3. til 20 sæti á listan-
um verður lögð fram við upphaf
fundarins kl. 14 í dag. Alþingis-
mennirnir Kristján L. Möller,
Siglufirði, og Einar Már Sigurð-
arson, Fjarðabyggð, hlutu bind-
andi kosningu í fyrsta og annað
sætið í flokksvalinu. Örlygur Hnef-
ill varð í þriðja sæti og Lára Stef-
ánsdóttir, frá Akureyri, í fjórða
sæti.
Segir Örlyg hafa verið skákað
út fyrir Láru Stefánsdóttur
,,Auðvitað vitum við að próf-
kjörið var ekki bindandi nema fyr-
ir tvö efstu sætin. Örlygur fékk nú
samt stuðning í þriðja sætið en
honum er skákað út fyrir Láru,
eins og kjörstjórnin leggur það
upp,“ segir Þorkell Björnsson, for-
maður Samfylkingarfélagsins á
Húsavík.
Gunnlaugur Stefánsson, formað-
ur uppstillingarnefndar, ætlar að
kynna tillögu uppstillingarnefndar
við upphaf fundar kjördæmisráðs-
ins í dag. Hann segir að einöngu
hafi verið kosið um tvö efstu sæti
listans í flokksvalinu og uppstill-
ingarnefnd sé ekki bundin af nið-
urstöðu flokksvalsins að öðru leyti.
Gunnlaugur segist ekki hafa fengið
nein formleg skilaboð um að Hús-
víkingarnir ætli ekki að mæta á
fundinn í dag.
Fundur kjördæmisráðs Samfylkingarinnar á Akureyri
Félagar á Húsavík mæta
ekki vegna óánægju
Átök eru um hver
eigi að skipa
þriðja sæti listans
GERT er ráð fyrir að báturinn, sem
sökk í Fossvogi fyrir um tveimur
mánuðum, verði fluttur á land um
helgina, en undirbúningsfram-
kvæmdir hófust í gær. Unnið verður
að málinu í dag og á morgun ef veður
leyfir.
Jóhannes Guðmundsson, hafnar-
vörður í Kópavogi, segir að þrjú tilboð
hafi borist í að fjarlægja bátinn og
hafi verið samið við Sjóverk ehf. í
Kópavogi um verkið.
Jóhannes segir að báturinn verði
dreginn inn í Straumsvík og fluttur
þaðan yfir Reykjanesbrautina á
geymslusvæði í Kapelluhrauni, en
gera megi ráð fyrir að verkið taki tvo
til þrjá daga. „Við þurfum að fá gott
veður og það er spáð góðu veðri um
helgina,“ segir hann.
Báturinn sökk 7. október og stóð til
að koma honum strax í burtu en Jó-
hannes segir að ágreiningur hafi risið
milli eiganda bátsins og trygginga-
félags hans og því hafi verkið dregist.
„Þetta er orðið ansi þreytandi og við
getum ekki beðið endalaust,“ segir
Jóhannes og bætir við að kostnaður-
inn falli á eigandann, sem þurfi síðan
að eiga við tryggingafélagið.
Um er að ræða 36 tonna eikarbát,
sem var smíðaður í Danmörku 1945,
og bar hann síðast nafnið Ólafur GK.
Báturinn
fjarlægður
úr Fossvogi
JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra fagnar því hversu jákvætt
læknar í Félagi íslenskra heimilis-
lækna tóku viljayfirlýsingu sem hann
gaf til lausnar deilu heimilislækna og
ríkisins, en félagið fjallaði um hana á
fundi á fimmtudag. Þar var kynnt nið-
urstaða úr könnun meðal fé-
lagsmanna þar sem 77% sögðust
læknanna sögðust vilja fara undan
kjaranefnd.
„Ég hef eindregið verið þeirrar
skoðunar að það eigi að semja við
heimilislækna með sama hætti og við
aðra lækna á vinnumarkaðnum. Af-
staða yfirgnæfandi meirihluta heim-
ilislækna fer saman við afstöðu mína í
þessu máli,“ segir Jón.
Fari félagið fram á að heimilis-
læknar verði teknir undan kjaranefnd
muni hann beina því til fjármálaráð-
herra að flytja frumvarp þess efnis.
Fagnar afstöðu
heimilislækna
FJÖLBREYTILEGT tónleikahald er fastur liður á
aðventunni í kirkjum og tónleikasölum um allt land.
Fátt skapar meiri stemningu í nálægð jólanna en
falleg tónlist tileinkuð hátíð ljóssins.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands æfði í gær, ásamt
um 60 suzuki-nemendum, fyrir aðventutónleika sem
haldnir verða í íþróttahúsi Glerárskóla á Akureyri á
morgun kl. 16. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Guð-
mundur Óli Gunnarsson.
Eins og sjá má á myndinni lögðu börnin sig fram
á æfingunni og ef að líkum lætur munu tónleikarnir
takast vel.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Æft fyrir aðventutónleika
SKIPSTJÓRINN á ms. Carlsberg
AK var undir áhrifum áfengis þegar
hann kom að landi í Reykjavíkurhöfn
með 17 farþega sem höfðu verið í sjó-
stangaveiði á Sundunum. Sam-
kvæmt blóðsýni var áfengi í blóði
hans 0,98 prómill. Hann var í gær
sviptur skipstjórnarréttindum í sex
mánuði af Héraðsdómi Reykjavíkur
og dæmdur til að greiða 75.000 krón-
ur í sekt.
Málavextir eru þeir að lögregla
var fengin að Reykjavíkurhöfn þar
sem tilkynnt hafði verið um að skip-
stjóri Carlsberg hefði ekki stjórn á
bátnum. Hafi litlu mátt muna að
hann rækist utan í bryggjuna og síð-
an lent utan í öðrum bát sem lá bund-
inn í höfninni. Við komuna til lands
viðurkenndi skipstjórinn áfengis-
neyslu daginn áður og að hafa
drukkið einn bjór um borð í skipinu.
Ákæru um að skipið hafi verið óhaf-
fært þegar því var siglt úr höfn, sök-
um ölvunar skipstjórans, var hafnað.
Í dómnum kemur fram að skipstjór-
inn hefur margoft hlotið refsingu
fyrir ölvunarakstur og umferðar-
lagabrot.
Valtýr Sigurðsson kvað upp dóm-
inn. Þorsteinn Skúlason, fulltrúi lög-
reglustjórans í Reykjavík, sótti mál-
ið en Guðmundur Ágústsson hrl. var
til varnar.
Skipstjóri
Carlsbergs var
undir áhrifum
KONAN sem slasaðist alvarlega
þegar bifreið hennar valt út í Hólmsá
í lok nóvember er enn í öndunarvél á
gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut. Samkvæmt upplýsing-
um frá lækni sýnir hún batamerki og
telst líðan hennar góð eftir atvikum.
Í öndunarvél en
sýnir batamerki
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦