Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 58
MINNINGAR 58 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Þórður Þórðar-son bifreiða- stjóri og fram- kvæmdastjóri á Akranesi fæddist 26. nóvember 1930. Hann lést á heimili sínu hinn 30. nóvem- ber síðastliðinn. For- eldrar hans eru Þórður Þ. Þórðarson fv. bifreiðastj. og framkvstj., f. 23. ágúst 1899, d. 22. nóvember 1989, og Sigríður Guðmunds- dóttir húsmóðir, f. 4. febrúar 1910. Systkini Þórðar eru: 1) Ástríður Þórey, f. 8. mars 1929, gift Guðmundi Magnússyni. 2) Ævar Hreinn, f. 8. apríl 1936, kvæntur Þóreyju Þórólfsdóttur. 3) Sigurður, f. 9. júlí 1947, kvæntur Maríu Lárusdóttur. Einnig ólust upp á heimili foreldra hans föð- ursystkinabörn hans, Þórður, Jóna og Ársæll Valdimarsbörn en móðir þeirra dó frá þeim korn- ungum. Hinn 12. apríl 1952 kvæntist Þórður Ester Teitsdóttur, f. 26. nesi og eignaðist síðan fyrirtækið og rak það til æviloka. Hann var einn af stofnendum Vöruflutn- ingamiðstöðvarinnar og sat í stjórn hennar til margra ára. Með sinni vinnu sinnti hann lög- gæslustörfum um skeið. Þórður var einn af frumkvöðl- um í knattspyrnunni á Akranesi og var alla tíð einn öflugasti stuðningsmaður alls íþróttalífs á Akranesi í orðsins fyllstu merk- ingu. Hann var einn þekktasti knattspyrnumaður landsins um árabil og ein af goðsögnum gull- aldarliðs ÍA. Hann lék alls 139 leiki með liðinu og varð Íslands- meistari með liðinu árin 1951, 1953, 1954, 1957, 1958 og 1960. Hann lék alla leiki íslenska lands- liðsins frá árunum 1951 til 1958 og gerði níu mörk í 18 landsleikjum. Þórður var í stjórn Knattspyrnu- ráðs Akraness frá 1947 til 1954. Hann var sæmdur silfurmerki KSÍ á 50 ára afmæli sínu, 1980, og sæmdur gullmerki KSÍ á 40 ára afmæli ÍA, 1986. Þá var Þórður sæmdur gullmerki ÍSÍ árið 1996. Hann var heiðursfélagi bæði í Íþróttabandalagi Akraness og Knattspyrnufélagi ÍA. Á sínum yngri árum starfaði hann í skáta- hreyfingunni á Akranesi. Útför Þórðar fer fram frá Akra- neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. september 1932. For- eldrar hennar eru Teitur Benediktsson, látinn, og Unnur Sveinsdóttir. Börn Þórðar og Esterar eru: 1) Þórður Þ., f. 27. október 1949, kvæntur Fríðu Sig- urðardóttur og eiga þau þrjú börn. 2) Teit- ur Benedikt, f. 14. jan- úar 1952, kvæntur Ás- dísi Dóru Ólafsdóttur og eiga þau tvö börn. 3) Lilja Þórey, f. 23. júlí 1954, gift Valgeir Valgeirssyni og eiga þau fjögur börn. 4) Guðni, f. 28. mars 1957, kvæntur Lindu Guðbjörgu Sam- úelsdóttur og eiga þau sex börn. 5) Sigríður, f. 9.maí 1963, maki Gör- an Håkanson, hún á tvær dætur. 6) Ólafur, f. 22. ágúst 1965, kvæntur Friðmey Barkar Barkardóttur og eiga þau þrjú börn. 7) Kristín, f. 20. júlí 1968, hún á tvö börn. Barnabarnabörnin eru orðin níu. Ungur hóf Þórður störf hjá fyr- irtæki föður síns, Bifreiðastöð Þórðar Þ. Þórðarsonar, á Akra- Það var aðfaranótt laugardagsins sem hringt var hjá okkur. Það voru mamma og pabbi. Þá vissum við að eitthvað alvarlegt hafði gerst. Og það var rétt. Afi á Sóló var dáinn, hann hafði bara sofnað. Hann hafði óskað þess að þegar hann færi að þá færi hann einmitt svona. Við fórum strax að hugsa um afmælisveisluna hans sem var sunnudaginn 24. nóvember. Þá sat Patrekur Orri lengi hjá lang- afa sínum og fékk Mackintosh kara- mellur. Hann var alveg æstur í bit- ana og beið með opinn munninn. Við hlógum og hlógum, sérstaklega afi Þórður sem fannst þetta svo gaman. Einnig minntumst við þess þegar afi Þórður og amma Ester komu í af- mælið hjá Röggu og ekki bjuggumst við við því að þau myndu stoppa lengi því að afi Þórður var alltaf að flýta sér. En viti menn, að þegar afi kom settist hann beint í lazy-boy stólinn og þau voru hjá okkur lengst af öll- um. Svo hugsuðum við strax um ömmu Ester og Roberto sem var eig- inlega frekar að missa pabba heldur en afa því að þeir voru svo nánir. En núna situr afi Þórður í hægindastóln- um sínum á himninum og horfir nið- ur og fylgist með okkur. Elsku afi Þórður, við þökkum kær- lega fyrir tímann sem við fengum að hafa þig. Við pössum öll ömmu Ester. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Unnar Örn, Ragnheiður og Patrekur Orri. Elsku afi. Við kveðjum þig með miklum söknuði. Erfitt er að minnast þín með fáum orðum. Allar þær stundir sem við áttum með ykkur ömmu og minningarnar um þig væru efni í margar bækur. Þú varst alltaf svo umhyggjusamur og tilbúinn að rétta öllum hjálparhönd. Við erum þakklát fyrir að hafa átt þig að, elsku afi. Stórt skarð er höggvið í líf okkar, sem aldrei verður hægt að fylla. En við verðum víst að reyna að læra að lifa með því, þótt erfitt sé. Elsku amma Ester, við biðjum Guð að styrkja þig í þessari miklu sorg. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi. Hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt lit og blöð niður lagði, – líf mannlegt endar skjótt. (Hallgr. Pét.) Við elskum þig, afi, og gleymum þér aldrei. Guð geymi þig. Þín Þórður Þórðarson, Stefán Þór Þórðarson, Anna María Þórðardóttir. Elsku afi Þórður. Ég trúi því varla ennþá að þú sért farinn frá okkur. Mér fannst bara eins og þú yrðir allt- af hérna. Þú varst svo stór, sterkur og hraustur. Í barnalegri trú minni taldi ég að þú gætir ráðið við hvað sem var, en hver ræður örlögum sín- um. Þetta er allt ákveðið fyrirfram, hvernig við komum í þennan heim og hvernig við yfirgefum hann. Þú fékkst að fara eins þú vildir, bara sofna í eigin rúmi. Enginn fyrirvari og þess vegna er erfiðara að skilja þetta allt. Ég veit að þú ert á góðum stað og munt taka á móti okkur þeg- ar okkar tími kemur. Elsku afi, takk fyrir allar stund- irnar sem við áttum saman. Ég bið Guð að vaka yfir ömmu Ester, ömmu Siggu, mömmu og systkinum hennar og okkur öllum sem eigum um sárt að binda. Elsku afi, Guð veri með þér. Þín Vilborg. Elsku hjartans góði bróðir minn. Aldrei hefði mér dottið í hug að þurfa að kveðja þig svona fljótt og án nokk- urs fyrirvara. Við vorum að gleðjast saman á afmælisdaginn þinn allt kvöldið 26. nóv. og nú ert þú ekki lengur hér. Það fer svo margt í gegn um hugann. Allir góðu dagarnir með ykkur Ester í sumarbústöðunum okkar. Á hverri helgi nánast allt árið vorum við svo nálægt hvert öðru og gerðum svo margt saman. Bústað- irnir okkar lágu í landi hlið við hlið svo þetta hefur verið svo notalegt. Þórður minn, þú vildir öllum hjálpa og aðstoða ef þess var þörf því góðmennskan var alltaf í fyrirrúmi hjá þér, og þess vegna eru svo marg- ir harmi slegnir yfir hve fljótt þú hvarfst okkur. Öllum sem þekktu þig þótti svo undur vænt um þig, t.d. finnst Guðmundi mínum hann hafa nú misst sinn besta og traustasta vin. Elsku Þórður, þú hefur alltaf verið henni mömmu svo góður og gerðir allt fyrir hana sem hægt var, fyrir það þökkum við þér, en nú þarf hún að kveðja þig, svo stuttu eftir að yngsta systir hennar lést. Þá hugsum við til hans litla Róbertó þíns, búinn að missa sinn besta vin og afa sem alltaf var reiðubúinn að aðstoða hann hvenær sem var og ósjaldan sem hann varð með í ferð í sumarbústaðn- um sem og annars staðar, og reyndar varstu það svo með öll þín barnabörn jafnt stór sem lítil. Þú áttir góða konu, hana Ester, þið voruð ætíð saman sem eitt og oftast nefnd bæði í einu. Þá eru sjö góðu börnin ykkar og tengdabörn sem nú sakna pabba síns. Þú hlustaðir á allar útvarpsmessur og varst svo mikið jólabarn. Alltaf þegar komið var til ykkar var karla- kór eða önnur falleg lög á fóninum. Elsku Þórður, ég sakna þín svo mikið. Góður guð gefi að þér líði vel. Elsku Ester og börnin, tengda- börn og barnabörn. Innilegar sam- úðarkveðjur sendum við Guðmundur til ykkar. Hver minning er dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Gleðin er aldrei ein á ferð, hún leiðir sorgina sér við hönd. Allt sem þú elskar vekur þér gleði og vekur þér sorg. Þín systir, Ástríður. Þórður frændi minn og ferming- arbróðir hefur kvatt okkur skyndi- lega. Það er stórt skarð sem hann skilur eftir sig, ekki síst hjá hans stóru fjölskyldu og starfsfólki. Þórði kynntist ég þegar á unga aldri, því mikil og góð vinátta var milli feðra okkar, var ég því oft gestur á Hvíta- nesi á þeim árum. Faðir Þórðar, Þórður Þorsteinn Þórðarson, rak um langt árabil bif- reiðastöð, í fyrstu voru flutningarnir aðallega mjólkurflutningar og vörur til og frá bændum hér úr nágrenninu. Þórður byrjaði ungur að aðstoða föður sinn í þessum flutningum, enda varð drengurinn fljótlega bæði stór og sterkur, þá þurfti að lyfta öllum flutningi á höndum upp á bílana, hvort sem það voru fullir mjólkur- brúsar eða fóðursekkir. Síðar hófu þeir feðgar vöruflutninga milli Akra- ness og Reykjavíkur, þá var vegur- inn fyrir Hvalfjörð bæði seinfarinn og hættulegur. Þar af leiðandi varð vinnudagurinn oft langur hjá Þórði á þessum árum, reyndar má segja að svo hafi verið hjá honum alla tíð, þótt bæði vegir og bílar hafi breyst til batnaðar. Á yngri árum æfði Þórður knatt- spyrnu, var hann einn af máttar- stólpum gullaldarliðsins á Akranesi, sem frægt var um árabil. Einnig lék hann í mörg ár með íslenska landslið- inu. Þessari erfiðu íþrótt bætti hann við sitt erfiða starf árum saman. Árið 1952 byrjuðum við Þórður báðir að byggja íbúðarhús okkar. Hófust þá samskipti okkar, hann flutti fyrir mig efni í húsið og ég smíðaði í húsið hans á móti, gengu þessi samskipti mjög vel. Eftir lát föður síns tók Þórður við rekstri fyrirtækisins, sem efldist með hverju árinu sem leið. Viðskipti fyrirtækja okkar hafa staðið yfir í meir en 40 ár. Oft gerði Akur hf. samninga við fyrirtæki Þórðar um töluverð verkefni. Aldrei þurfti að gera skriflega samninga, því orð- heldnari og traustari manni en Þórði hef ég ekki kynnst um dagana. Þórður og þeir feðgar ráku einnig fólksflutninga um árabil. Var Þórður sérstaklega eftirsóttur bifreiðastjóri í lengri og skemmri skemmti- og or- lofsferðir. Þótti hann bæði traustur og skemmtilegur ferðafélagi. Nú síðustu árin voru Þórði mjög erfið og ekki áfallalaus. Margur hefði kiknað í hans sporum, en hann var það sterkur að hann stóð af sér þá storma sem um hann blésu með góðri aðstoð eiginkonu og barna sinna. Framkoma Þórðar var stundum hrjúf, en innra með honum var mikil velvild til annarra og höfðingsskap- ur, sérstaklega gagnvart þeim sem bjuggu við skarðan hlut í lífinu. Barngóður var hann með afbrigðum. Fjölskylda mín vottar aldraðri móður og systkinum hans og þér, Ester, og fjölskyldunni allri dýpstu samúð. Stefán Teitsson. Hann Þórður bróðir er dáinn. Þessi orð voru átakanleg að heyra frá mömmu þegar hún hringdi að til- kynna okkur andlát Þórðar, elsta bróður hennar. Þórður sem hefur reynst bæði henni og pabba og öllum sem til hans þekktu svo vel. Þórður var einstaklega góður maður, hann mátti aldrei neitt aumt sjá eða vita af svo ekki hann reyndi að leggja sitt af mörkum til að létta undir. Hann var einstakt ljúfmenni sem mikil eftirsjá er að. Hann hafði mikið gaman af því að ferðast um landið sitt og eru ófáar ferðirnar sem hann og Ester hafa farið um landið á sumrin. Þórður og Ester eru hafsjór af fróðleik um flest alla kima landsins og ósjaldan buðu þau foreldrum okkar með sér. Öllum helgum eyddu þau í Stóra- Fjalli í bústaðnum sínum sem liggur að bústaðnum hjá mömmu og pabba og mikill samgangur var þar þeirra á milli, og höfðu mamma og pabbi mikla ánægju af. Það var ekki síst fyrir hvatningu Þórðar og Esterar að þau drifu sig í að byggja sinn bústað. Það verður tómlegt þar þegar hans nýtur ekki lengur við. En von- andi heldur þú, elsku Ester, áfram að vera í Stóra-Fjalli því þar leið ykkur svo vel saman. Þið voru búin að gera svo huggulegt hjá ykkur og gróður- setja heil ósköp og alltaf voruð þið að dytta að og framkvæma eitthvað til að gera þetta enn notalegra. Þórður var dugnaðarforkur til vinnu og gaf hann þeim yngri ekkert eftir, hann vann alla daga frá morgni langt fram á kvöld og hlífði sér aldrei til neinna verka, hann kvartaði aldrei þó hann örugglega oft fyndi til. Þórð- ur gekk í gegnum þungar raunir í gegnum tíðina sem fengu mjög á hann, en alltaf reyndi hann að láta á engu bera og bar sitt í hljóði. Ester sér ekki bara á eftir eigin- manni heldur miklum félaga, þau voru alltaf saman og studdu hvort annað svo aðdáun vakti. Mikill harmur er kveðinn að fjöl- skyldunni, Ester, börnunum og þeirra fjölskyldum, ömmu sem lifir son sinn, og systkinum Þórðar og þeirra fjölskyldum. Við sitjum eftir og drúpum höfði og vitum að tilveran verður ekki söm á eftir en lífið heldur áfram og minningin um góðan mann lifir í hjörtum okkar. Með þessum orðum viljum við kveðja elskulegan frænda okkar. Megi guð styrkja okk- ur öll í sorginni. Emil Þór, Sigríður, Inga og Þórey. Svo haga örlögin því að fyrirvara- laust er burt kallaður úr samfélagi okkar góður drengur og einn af þekktustu sonum Akraness. Bráð- kvaddur, langt um aldur fram, er Þórður Þórðarson, bifreiðastjóri og einn af gullaldardrengjum knatt- spyrnunnar á Akranesi. Sjónarsvipt- ir er að þeim merkilega manni, sem af dugnaði og elju vann hvert það verk sem hann tók sér fyrir hendur. Þórði verður ekki í fáum orðum lýst, en verðugt viðfangsefni hefði hann orðið söguriturum Íslendingasagna hefðu þeir átt þess kost að lýsa per- sónu Þórðar og atgervi. Eflaust hefðu þeir notað orð eins og mynd- arlegur maður, heljarmenni, ósér- hlífinn, dökkur á brún og brá, fylginn sér og beinskeyttur. Er þá ótalið margt sem einkenndi þennan góða dreng. Þórður flíkaði ekki tilfinning- um sínum og fannst ef til vill ein- hverjum að hann væri hrjúfur við- kynningar. Vissulega var það svo að löngum tíma eyddi hann ekki í óþarfa orð heldur kom iðulega beint að efn- inu og lá ekki á skoðunum sínum. Annarri hlið fékk ég þó einnig að kynnast á Þórði, sem sýndi svo ekki varð um villst að undir hvatlegu fasi var mildur maður, góðhjartaður og einstaklega hjálpfús þeim sem til hans leituðu. Mörg erindi mín leysti hann án málalenginga og ávallt var hann fús til verka ef einhverjum þurfti að liðsinna. Ef málefnið var honum ekki að skapi þá var svarið skýrt og ekki þurfti að ræða það frekar. Eitt atvik stendur alltaf ljós- lifandi í minni mínu varðandi Þórð. Ég sat fyrir aftan hann þegar ÍA lék við Feyenoord á Laugardalsvellin- um. Okkar mönnum gekk vel, en eins og venjulega sýndi Þórður lítil svip- brigði á meðan aðrir létu í sér heyra. Loks gerðist það að Ólafur sonur Þórðar skoraði eftirminnilegt mark, sem reyndist sigurmark leiksins. Þá sleppti Þórður fram af sér beislinu augnablik og fagnaði ógurlega, en settist niður jafn snögglega og hann hafði sprottið á fætur, leit í kringum sig og vonaði eflaust að enginn hefði séð til hans. Jafn minnisstætt og mark Ólafs er mun þessi mynd fylgja með í huga mínum til sanninda um það að hið ytra fas sagði lítið til um ÞÓRÐUR ÞÓRÐARSON Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.